24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 43

24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 43
24stundir FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 43 SÉRSTAKUR 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM FRÁ ANTEC NÝ ÖFLUG VEFVERSLUN www.us.is EIGENDASKIPTI ÖKUTÆKJA Á VEFNUM Umferðarstofa, í samstarfi við Glitni og Kaupþing, býður nú þann möguleika að tilkynna eigenda- skipti og ganga frá skráningu meðeigenda og umráðamanna bifreiða með rafrænum hætti á vef Umferðarstofu. Kynntu þér þessa einföldu og þægilegu nýjung á www.us.is. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 7 -0 8 4 1 Kia ceéd hefur verið kosinn fjölskyldubíll ársins af sænska bílablaðinu Motorföraren, en blaðið hefur staðið að slíku vali frá árinu 1996. Dómnefndina skipuðu 11 af þekktustu bíla- blaðamönnum Svíþjóðar. Valið er úr hópi nýrra bíla sem komið hafa á markaðinn yfir árið og til að eiga möguleika á að komast í hópinn verða bílarnir að vera hagnýtir, öryggir, góð fjárfesting og umhverfisvænir. Dómararnir töldu Kia-bif- reiðina bera af þar sem hún fæst á samkeppnishæfu verði og hef- ur komið vel út úr öryggispróf- unum. Bifreiðin þótti því skyn- samlegasti kosturinn fyrir hina dæmigerðu fjölskyldu. Tommie Wallinder hjá Kia í Svíþjóð var að vonum kátur með niðurstöð- una og sagði afar jákvætt fyrir fyrirtækið að hljóta slíka við- urkenningu. Góðar móttökur Bifreiðin var sett á markað- inn í febrúar og hlaut þá þegar góðar móttökur hjá kaupendum og í fjölmiðlum. Sama var uppi á teningnum þegar fyrirtækið setti sportbifreið sína á markað í ágúst síðastliðnum. Báðar eru bifreiðarnar framleiddar í nýrri og nútímalegri verksmiðju Kia í Slóvakíu. Þar eru notaðar allar nútímalegustu græjurnar við gerð bíla í dag með það að markmiði að framleiða hágæða- bifreiðar. maria@24stundir.is Svíþjóð Fjölskyldubíll ársins frá Kia Kia Öruggur bíll sem þykir góð fjárfesting fyrir fjölskyldur. Merkur bankinn í Danmörku, sem gefur sig út fyrir að taka samfélags- og umhverfislega ábyrgð í starfi sínu, hefur nú gripið til sinna ráða til að einfalda dönskum umhverfissinnum að eignast bíl. Bankinn veitir einfaldlega eingöngu bílalán svo fremi sem bíllinn er umhverfisvænn. Þessu fylgja ýmis fríðindi eins og að því minna sem bíllinn eyðir því lægri eru mánaðarlegar afborganir af láninu. Bíllinn sem lánað er fyrir verður að heyra undir einn af þremur mest eldsneytissparandi flokk- um bíla A, B eða C, en hingað til hefur aðeins verið lánað fyrir bílum í A og B flokki og þykir því lánstilraunin hafa heppnast einkar vel. Vilji fólk hins vegar frekar halda sig við reiðhjólin er einnig hið minnsta mál að taka lán hjá bankanum fyrir nýjum fák. mó Umhverfisvænt lán Danmörk Skorið hefur verið úr um að næsti meðlimur Chevrolet-fjölskyld- unnar verður smábíllinn Beat. Framleiðsla á bílnum verður haf- in árið 2010 og hann seldur í Bandaríkjunum og Evrópu. Chevrolet frumsýndi hugmyndir um þrjár tegundir borgarbíla á bílasýningu í New York fyrr á þessu ári. Bílarnir báru nöfnin Beat, Groove og Trax and Chevy en almenningur var síðan feng- inn til að kjósa um hver þeirra færi í framleiðslu og hlaut Beat eina komma níu milljónir at- kvæða. Þótti hann flottastur í út- liti og henta yngri ökumönnum einna best. Forsvarsmenn Chevr- olet segja lítið annað um málið en að Beat muni slái tóninn í því sem koma skuli í framtíð fyrirtækisins. mó Beat slær nýjan tón hjá Chevrolet Chevrolet Tvær nýliðaferðir verða farnar á vegum Ferðaklúbbsins 4x4 helgina 24. til 25. nóvember næstkomandi. Önnur ferðin er ætluð breyttum jeppum og verður farin á Strút en hin ferðin verður farin í Hólaskóg og er fyrir óbreytta jeppa og allar stærðir af dekkjum. Ferðirnar eru opnar jafnt meðlimum klúbbsins sem öðrum. Þurfa menn að vera vel búnir en annars eru ekki gerðar sérstakar kröfur um útbúnað óbreyttra eða lítið breyttra jeppa. Undirbúningsfundur verður haldinn fyrir ferðina en allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu klúbbsins, http://www.f4x4.is/new/, þar sem einnig er hægt að skrá sig. mó Jeppaferð á Strút Ferðir Aðeins 26 eintök voru framleidd af Mercedes Benz 540K. Þessi glæsilegi bíll er talinn meistaraverk Merces Benz-fyrirtækisins. Þessi glæsikerra er úr nýjasta hópi Hyundai-bíla og var kynnt til leiks á al- þjóðlegu bílasýningunni í Los Angeles fyrr í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.