Sunnudagsblaðið - 07.02.1960, Page 1
V. ÁRG. — SUNNUDAGUR 7. FEBR. 1960 — 4. TBL.
Eitt barn
af fiórum
LESENDUR hafa að öllum líkindum oft heyrt
þær fréttir áður, að fjórða hvert barn, sem fæðist í
þennan heim hér á landi, er skráð óskilgetið. En hver
er ástæðan?
Það er fjallað um þetta og ýmislegt fleira í sam-
bandi við ógiftar mæður og óskilgetin börn á sjöttu
síðu í dag. Þar er skýrt frá reynslu einnar stúlku, sem
lenti í þeirri óhamingju að ala bam í lausaleik. Þar
eru birtar skýrslur frá Hagstofunni um fæðingar á
íslandi allt frá 1926 og til 1958.
Einnig er stutt viðtal við formann Mæðrastyrks-
nefndar, frú Jónínu Guðmundsdóttur, um störf nefnd
arinnar og sitthvað fleira. Jónína hefur mörgu kynnzt
í starfi sínu bæði fyrir Mæðrastyrksnefnd og barna-
verndarnefnd. Skoðun hennar á hinni háu tölu óskil-
getinna barna er því athyglisverð. Hún heldur því
fram, að ástandið í þessum efnum sé ekkert verra,
en það hefur alltaf verið.
Sjá blaðsíðu 6 & 7.
Úrslitin í botnasamkeppn-
inni um hafmeyjuna birt-
ast i POKAHORNINU i
dag. Alls bárust hvorki
meira né minna en
185 botnar.