Sunnudagsblaðið - 06.03.1960, Blaðsíða 7

Sunnudagsblaðið - 06.03.1960, Blaðsíða 7
systir frúarinnar sem hafði gifzt Kana og farið vestur um haf til Amríku fyrir nokkrum árum. Og nú var hún komin aftur, sat makindalega í stof- unni heima hjá honum og reykti úr löngu munnstvkki og hafði barðastóran hatt á höfði og kinkaði til hans kolli brosandi og hrópaði: Nei, alveg að verða sköll- óttur! En smart! Og hann var feiminn einsog skólastrákur og rétti henni höndina og tautaði eitthvað niðurlútur og rak þá augun í hnén á henni, hún sat með krosslagða fætur og kjóllinn svo stuttur að hnjákollarnir blöstu við. Og Sigga segir mér að bú sért ekki búinn að búa til neitt beibí ennþá, sagði hún, þú verður nú að fara að drauja þér til þess. Svo rak hún upp skæran silfurbjölluhlátur en eigin- konan sat með stjarfan svip og horfði á manninn sinn eins- og húsdýr sem hefur flækzt inn í gestastofuna. Er langt síðan þú komst? spurði hann til þess þó að hafa iátið eitthvað að sér kveða áðuren hann læddist fram í eldhús til að lesa blöðin. Nokkrar vikur, þú hefur aldrei verið heima kjúttið mitt þegar ég hef komið. Honum óx áræði þegar hann varð þess var að Gauja var svona vingjarnleg og hann leyfði sér að spvrja hvernig manninum hennar liði, hvort hann væri á ferð með henni? Silfui bj ölluhlátur. Hann var nógúdd, skúnk- urinn sá! Eg er búin að kas- séra honum. Það er betra að vera ógift og eiga alla menn. Og silfurbjölluhlátur á ný. Ágúst. Brauðið þitt er til- búið framí eldhúsi. Og drekktu nú ekki svo mikið kaffi að þú fáir brjóstsviða, sagði eiginkonan og það var ískuldi í röddinni. Hann sá Gauju aftur nokkr um dögum síðar. Það var einn ig að kvöldlagi. Þá bar hana að í bíl sem beið eftir henni en hún kom hlaupandi upp stigann klædd í mikilfenglega loðkápu og lagði úr barrni hennar ilman dularfullra blóma. Hann opnaði fyrir henni og hún smeygði vísi- fingri undir hökuna á h.onum og sagði: Halló kjútti! Er frúin tilbú- in? Áðuren honum gafst tóm til að svara var honum stjak- að fremur harkalega til hlið- ar og þar var frúin komin heldur gustmikil og hann sá ekki beturen hún væú komin í nýja kápu. Hún sneri sér við á þröskuldinum og sagði held; ur stuttaralega: Sofnaðu nú ekki frá ljósinu. En Gauja Garðars veifaði til hans hendinni um leið cg þær vinkonur hlupu niður stigann og kallaði: Það er Johnnie vinur minn. Við ætlum að sýna honum bæinn. Hann laumaðist að eldhús- glugganum og gægð!st út í gegnum rimlatjaldið um leið og bíllinn ók af stað. Hcnum létti mikið þegar hann sá að þetta var þriggja manna'bíll. Sjá næstu síðu. 11 líka farin að finna fyrir bví hvað einmanakenndin er sár ~ þegar til lengdar lætur. r Hann var oft að því kom- t inn að láta til skarar skríða, ^ sýna að hann hafði skilið 11 bendingar hennar en þegar á > átti að herða missti hann 5 kjarkinn. Það var því líkast ^ að hefja bónorð við konu sem 1 hafði hryggbrotið mann fyr- ir mörgum árum. i Hann beið átekta og gældi ^ við vonina. Hann fór jafnvel að rifja upp ýmsar hugljúfar ■ minningar frá fyrstu hjúskap arárum þeirra. Hann minnt- ist þess hvað hún gladdist við hverja smágjöf sem hann færði henni, hvað hún gat hlegið hjartanlega þegar hann sagði henni frá einhverju skoplegu sem hafði komið fyr ir í búðinni um daginn. Hann minntist þess hvað gott var að finna mjúkan og varman líkama hennar og öran and- ardrátt á sælustundum næt- urinnar. Hann varð léttari á fætí við starf sitt, snerist um búð- argólfið og sparaði ekki að brosa framaní frúrnar sem komu að verzla fyrir daginn. En aðra stundina sótti á hann efi um að þessi breyting á konunni ætti nokkra rót að rekja til hans. Og þá varð hann enn daprari í bragði en áður, þegar hún lét sér nægja að sýna honum kulda og fyrir litni'ngu og hugsaði ekkert um að halda sér til. Hann varð undireins tor- ^ryggmn þegar hann kom heim eitt kvöldið og sá það var kominn gestur. Það var Gauja Garðars, gömul stall- ; Smásaga eftir Jöku i Jakobsson MYNDSKREYTING : STEINÞÓR SIGURÐSSON. FYRRI HLUTI. — Sunnudagsblaðið 7

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.