Sunnudagsblaðið - 06.03.1960, Blaðsíða 9

Sunnudagsblaðið - 06.03.1960, Blaðsíða 9
um að fara aftur heim með herdeildir sínar. Killinger aðvaraði þá. Hann kvaðst mundu koma aftur og hefna sín grimmi- lega. Hann yfirgaf höllina, og heyrði skömmu síðar yfirlýs- ingu í útvarpinu, sem var svo hljóðandi: — Við semjum frið við Bandamenn. Okkuv hefur ver ið lofað að fá aftur Transsil- vaníu og þar að auki fullt sjálfstæði. Einræðinu er lok- ið. Sá sem berst áfram gerir það í óþökk ríkisins. ■ Gleði fólksins átti sér eng- in takmörk, Síðan komu Rússarnir — sigurherrarnir! Killinger framdi sjálfsmorð og þýzku herdelldirnar flýðu úr landinu. En Þjóðverjar höfðu ekki sagt sitt síðasta orð. Þeir gerðu sprengjuárásir á Buka- rest þrjá daga í röð. Eld- sprengju var varpað á kon- ungshöllina og allir, sem hafð ir voru í haldi þar, fórust. Nú var tími til kominn fyr- ir Michael að setja á fót sitt hýja lýðræði. En það ríkti fullkomin ringulreið í land- inu og stjórninni tókst ekki að koma á röð og reglu. í stað Antonescu var nú kominn Andrei Visjinski, útsendari frá Moskvu. Hann færði sér í nyt þá óáran, sem ríkti í land inu, og setti fram kröfur og skilyrði. Hann krafðist þess að þáverandi ríkisstjórn segði af sér, en kommúnistinn Groza yrði gerður að forsæt- isráðherra. Ameríka og Eng- land mótmæltu þessum kröf- um, en þá hótuðu Rússar að taka Rúmeníu og steypa kon- unginum af stóli. Að lokum varð Michael að láta undan. Michael fór eins langt og hann komst. Hann neitaði að sýna sig á hersýningum og hann neitaði allri samvinnu við forsæt'sráðherra komm- únista. Loks var svo komið, að hann sá sér ekki annað fært en gera nákvæmlega hið sama og faðir hans hafði eitt sinn gert — taka saman pjönk ur sínar og flýja land ásamt móður sinni, sem alla tíð hafði stutt hann með ráðum og dáð ... Og nú býr hann í ró og næði í Englandi á búgarði sinum ásamt konu og dætrum. Fyrstu árin voru erfið, því að honum tókst ekki að hafa með sér ne'na dýrgripi, eins og faðir hans hafði gert. En garðurinn er farinn að gefa af sér góðar tekjur. Hann un- ir sér hið bezta og íbúarnir í litla þorpinu eru hrevknir af því að neyta konunglegra á- vaxta og grænmetis. West side story Framhaltl af bls. 6. Leikurinn nefnist „West Side Story“ og er nútímaleikur um kynþáttabaráttu í New York. Þess má geta, að mögu- Ieikar eru á því, að banda- rískur leikflokkur komi hing- að til lands og sýni einmitt „West Side Story“, en þetta mun ekki fullráðið ennþá. Söngleikurinn er saminn af þeim Lennart Bernstein og Jerome Robbins. Þetta er gamla sagan um Rómeó og Júlíu í nýjum búningi, hvít- an amerískan dreng og stúlku frá Puerto Rico. Þau fella ást arhug hvort til annars, en eru skilin að af vinum og ætt- ingjum. Vinir „hins hvíta Rómeós“ hata íbúa Puerto Rico, án nokkurrar skynsam- legrar ástæðu. Hinum hvítu geðjast ekki að íbúum Puerto Rico, af því að þeir skilja þá ekki, og íbúum Puerto Rico geðjast ekki að hvítu mönn- unum, af því að þeir mæta ekki skilningi frá þeirra hálfu. Hinir hvítu í leiknum eru af allra lægstu st'gum í Banda ríkjunum, og það eru marg- vísleg þjóðfélagsleg og sál- fræðileg vandamál, sem þeir glíma við innbyrðis, miklu fleiri og stærri vandamál en það, að íbúar frá Puerto Rico flytjast í nágrenni við þá. í- búarnir frá Puerto Rico vilja berjast, af bví að þeim finnst, að þeir hafi rétt til að lifa og vera til og einmitt þarna, sem þeir eru. Og þeir hafa þenn- an rétt. En lögreglan og aðrar velferðarstofnanir gera ekki neitt að gagni til þess að bæta sambúð hinna hvítu og íbú- anna frá Puerto Rico og fá þá til að skilja hvor aðra. Hin frumstæðu lög gilda. Þeir standa hverir andspænis öðr- um og eyðileggja kannski mest fyrir sjálfum sér. Rómeó og Júlía í „West Side Story“ reyna að finna sér stað, þar sem þau geta lif- að í friði og notið hamingj- unnar, en áður en þeim tekst að strjúka úr heimahögunum, þar sem allt logar í fáránlegri baráttu, e.r ungi maðurinn myrtur, í bardaga, sem hann hafði enga löngun til þess að taka þátt í. Morðinginn var bróðir stúlkunnar, sem hann elskar. Og hér endar leikur- inn. ÓPÍUM Framhald af bls. 3. brigðiseftirlitið gerir ekki ráð fyiúr, að allir ópíumneytend- ur fáist til að fara á sjúkra- hús. Margir vilja heldur hverfa „undir jörðina“ en fara á Rangsit-sjúkrahúsið, enda bótt vistin þar sé ókeyp- is. Ríkið aðstoðar einnig fjöl- skyldur þeirra manna, sem legg.íast á sjúkrahús vegna ó- píumnautnar. En það er svo undarlegt, að sárafáir notfæra sér tækifærin til þess að losna við þessa hræðilegu nautn. Ein höfuðástæðan er óttinn Sjá næstu síðu. SPILALEIKUR ■ ÞAÐ er alltaf gaman að fara í leiki og spilaleikir hafa löngum verið vinsælir. Nýlega lærðum við nýjan spilaleik, sem er bæði spenn-andi og lærdómsríkur og þess vegna langar okkur til að kenna ykkur hann. Það eru ekki notuð venju- leg spil, heldur verðið þið að búa ykkur til spil, sem eiga að vera jafnmörg staf- rófinu. Á hvert spil skrifið þið einn staf, unz allt staf- rófið er komið. (Það má reyndar sleppa stöfum eins og x og z). Spilin á að stokka vel og síðan leggja þau á borð, þannig, að bókstafirnir snúi niður. Þrír eða fleiri geta tekið þátt í leiknum, sem er í stuttu máli á þessa leið: Þátttakandi segir t. d.: — „Borg í Evrópu.“ Síðan tekur hann eitt spil af borð- inu og um leið og hann sér stafinn á því á hann að nefna borg í Evrópu, sem byrjar á þessum staf. Ef hann svarar rétt geymir hann spilið og gerir aftur, VÍSNASAMKEPPNIN er í fullum gangi. Fyrripart- urinn er að þessu sinni um landhelgismálið og hljóðar svo : Togskip hennar hátignar híma á dauðum miðum. Botnar sendist fyrir 13. marz, en úrslitin verða vænt- anlega birt 20. marz. Nýtt lýsingarorð hefur bætzt við í málið. Það er orðið FRÍMERKILEGUR. Merking: Alveg laus við að vera merkilegur. + EFTIRLEGUKIND. HÉR kemur ein ofurlítil eftirlegukind úr síðustu vísnasamkeppni. Fyrripart- urinn var: Þykir æran einskis verð, í okkar kæra landi. Botn: Ýmsum bæri æviferð að enda í snærisbandi. þar til hann strandar. Þa tekur sá næsti við og svo koll af kolli, unz öll spilin eru búin. Menn geta valið sér margs konar viðfangsefni, en vin- sælast eru atriði úr landa- fræði, ár í Ameríku, borgir í Afríku og svo framvegis. En ekkert er því til fyrir- stöðu, að taka önnur við- fangsefni eins og til dæmis nöfn á skáldum eða leikur- um eða eitthvað þess háttar. Góðan skemmtun! NÝGIFT hjón höfðu fengið marga dýra og eigulega gripi £ nýja heimilið sitt. Dag nokk urn fengu þau bréf með morg unpóstinum og í bréfinu voru tveir aðgöngumiðar á leiksýn ingu. Auk þess fylgdi lítill miði, sem á stóð: — Rejmið að gizka á, hver sendir ykkur miðana. Ungu hjónin urðu frá sér numin af hrifningu yfir mið- unum og fóru á sýninguna um kvöldið. Þetta var geysigóð leiksýning. Ungu hjónin skemmtu sér með prýði, og enn þá höfðu þau ekki látið sér detta í hug, hver hefði verið svo indæll að senda þeim miðana. Þegar þau komu heim, hafði verið brotizt í húsið og öllum dýrmætustu munum þeirra stolið. Hið eina, sem þau fundu var lítill seðill, sem á stóð: — Nú vitið þið það. * PRESTUR gekk framhjá sirkustjaldi og sá þrjá menn sitja í stiga og gráta. — Vinir, hvað hryggir ykk- ur svo mjög, sagði presturinn í meðaukunartón. — Fíllinn er dauður, sagði einn þeirra þremenninga og síðan grétu þeir hærra en áð- ur. Presturinn varð hrærður: — Góðhjartaðir menn, sagði hann. Ég skil tilfinning ar vkkar. Mitt hjarta hrærist, þegar ég sé ykkur syrgja svo mjög blessaðan málleysingj- ann. Þá leit einn af syrgjendun um upp: — Yður skjátlast, sagði hann. — Við eigum að grafa hann. + RÖDD REYNSLUNNAR. HINN frægi flugmaður, Jimmy Doolittle, segist allt- af sjá það á mönnum, sem ferðast í flugvélum, hvort þeir eru vanir flugi eða ekki. Útskýring: Maður, sem sit- ur í ró og næði og les í blaði, er vanur flugfarþegi. Maður, sem lítur ótt og títt í kringum sig og er óróleg- ur, er í sinni fyrstu flug- ferð. Síðast en ekki sízt: Maður, sem situr kófsveitt- ur og nagar á sér neglurnar — hann er flugmaður! ★ + KÁTA EKKJAN. KONA nokkur, sem átti í skilnaði við mann sinn, kom til vinkonu sinnar og kvartaði yfir því, hversu óttalegt umstang þetta væri. Hún kvaðst alveg vera að gefast upp á þessum eilífu ráðstefnum með lögfræðing- um og allri bannsettri skrif- finnskunni. — Blessuð vertu, þetta er ekkert, svaraði vinkonan. —■ Það er miklu verra að vera ekkja. Þegar ég hugsa um allt það umstang, sem ég hef mátt hafa út af svona löguðu, — þá liggur stund- um við, að ég óski þess, að maðurinn minn væri enn á lífi! ORÐUNA veitum við að þessu sinni manninum, sem lenti í klónum á Dýravernd- unarfélaginu. Kýrnar voru teknab af honum vegna van- fóðrunar, en hann skýrði málið á þann hátt, að hann væri að ala upp harðgert kúakyn! Sunnudagsblaðið 9

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.