24 stundir - 16.11.2007, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Skólavörðustíg 21 - Sími - 551 4050 - Reykjavík
Gullfalleg
sængurverasett
aldrei meira úrval
Fimm stúlkur úr 10.l í Lauga-
lækjarskóla fá verðlaun í dag fyrir
vefsíðu sem þær gerðu um Jónas
Hallgrímsson. Stúlkurnar eru
Anna Lind Þórðardóttir, Guðríður
Jóhannsdóttir, Hildigunnur Anna
Hall, Katrín Helena Jónsdóttir og
Þórdís Erla Sveinsdóttir.
Verkefnið unnu þær sem ís-
lenskuverkefni í skólanum en Jónas
er þema annarinnar í nokkrum
fögum í tilefni 200 ára fæðingaraf-
mælis.
Á síðunni fjalla stúlkurnar um
ástir Jónasar, baráttu hans fyrir
varðveislu tungunnar, líf og störf
auk skáldskaparins eða „eiginlega
allt nema náttúrufræðina“ að
sögnKatrínar sem einnig orti ljóð
um Jónas. Ljóðið birtist á upphafs-
síðu verkefnisins og hefst á orð-
unum: „Margbrotinn maður Jónas
var.“
Katrín segir samvinnuna hafa
gengið vel enda eru þær bestu vin-
konur. Verkefnið tók tvær vikur og
skiptu þær verkum þannig á milli
sín að ein sá um hönnun á útliti en
hinar heimildaöflun og skrif.
Uppáhaldsljóð hópsins af verkum
Jónasar er „Ferðalok“ en þær fjalla
töluvert um það á síðunni. „Jónas á
náttúrlega mikið af flottum ljóðum
en þetta er það sem okkur finnst fal-
legast,“ segir Guðríður.
„Það er líka svo margt í því,“
bætir Katrín við. „Við trúum því að
það sé ort til Þóru Melsteð en við
þekkjum söguna af henni. Ljóðið
er líka fullt af myndlíkingum og
það má líta á það sem ættjarðar-
ljóð.“
Stúlkurnar keppa í Skrekk síðar í
mánuðinum og er því uppteknar í
æfingum þessa dagana en þær ætla
að sýna frumsamdan pólitískan
söngleik eftir bekkjarfélaga sinn.
thorakristin@24stundir.is
Stúlkur úr Laugalækjarskóla fá verðlaun
Vefsíða um Jónas
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Á degi íslenskrar tungu, sem er í
dag, fá hátt í hundrað grunnskóla-
nemendur í Reykjavík íslensku-
verðlaun menntaráðs, sem eru nú
veitt í fyrsta skipti við hátíðlega at-
höfn í Borgarleikhúsinu. Frú Vig-
dís Finnbogadóttir er verndari
verðlaunanna og hefst hátíðin á
ávarpi hennar.
Verðlaunagripurinn er verk úr
gleri sem gert er af Dröfn Guð-
mundsdóttur myndhöggvara. Sýn-
ir verkið bókaropnu með áletruð-
um seinustu fjórum línum fyrsta
erindis „Ástu“ en þaðan eru ein-
kunnarorð dagsins „móðurmálið
mitt góða“ komin.
Markmið verðlaunanna er að
vekja áhuga grunnskólanema á ís-
lensku máli, jafnt töluðu sem rit-
uðu, og hvetja þá til framfara.
Þeir sem þiggja verðlaun í dag
hafa að mati skóla sinna skarað
fram úr á ýmsa vegu svo sem með
ljóðlist, ritlist og í frjórri notkun á
tungumálinu.
Grunnskólar gátu tilnefnt verð-
launahafa úr hverjum árgangi og er
ýmist um að ræða einstaklinga eða
hópa sem unnið hafa sameiginlega
að verkefnum.
Einn verðlaunahafanna er Guð-
rún Brjánsdóttir í sjöunda bekk í
Melaskóla en hún fær verðlaun fyr-
ir skemmtileg söguskrif. Guðrún
hefur skrifað bæði sögur og ljóð og
fengið verk sín meðal annars birt í
Barnablaði Morgunblaðsins og á
vef Reykjavíkurborgar 2004 en þar
birtist fyrsta verk hennar sem kall-
ast Nútíma jólaguðspjallið.
Guðrún hefur áður unnið verð-
laun fyrir skrif en hún vann sum-
arsagnasamkeppni Barnablaðs
Morgunblaðsins fyrir tveimur ár-
um fyrir söguna Sumartetrið.
„Ég er mjög hrifin af Roald Dahl
og uppáhaldsbókin mín eftir hann
er Matthildur,“ segir Guðrún um
uppáhaldshöfunda sína. „Hún er
svo flott hún Matthildur, bæði klár
og skemmtileg. Annars er ég líka
mjög hrifin af Astrid Lindgren en
ég les almennt mest af ævintýra- og
spennubókum.“
Aðspurð um hvernig henni líki
verk Jónasar Hallgrímssonar segir
hún: „Ég held að „Ísland“ sé mitt
uppáhaldsljóð eftir hann. Ég hef
bæði lesið það og sungið það í kór
og það er mjög fallegt.“
Hún getur vel hugsað sér að
verða rithöfundur en til greina
kemur einnig að verða tónlistar-
maður.
Guðrún er ánægð með verð-
launin. „Þetta er náttúrlega mjög
skemmtilegt og spennandi. Þetta er
líka mikill heiður.“
Móðurmálið
mitt góða
Íslenskuverðlaun menntaráðs veitt í fyrsta skipti Hátt í 100
grunnskólanemar í Reykjavík fá verðlaun fyrir skapandi skrif
Upprennandi rithöfundur Guðrún Brjáns-
dóttir er ein þeirra sem fengu í dag íslensku-
verðlaun menntaráðs.
➤ Í dag er haldinn dagur ís-lenskrar tungu í ellefta sinn.
➤ Dagurinn var valinn vegna af-mælis Jónasar Hallgríms-
sonar, eins ástsælasta skálds
þjóðarinnar, en 200 ár eru lið-
in frá fæðingu hans.
JÓNAS HALLGRÍMSSON
FRÉTTAVIÐTAL
frettir@24stundir.is a
„Ég held að „Ísland“ sé mitt uppáhaldsljóð eftir hann.
Ég hef bæði lesið það og sungið það í kór og það er
mjög fallegt.“
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir