24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 35
24stundir FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 35
Íslendingar eyða miklum pen-
ingum í snyrtivörur fyrir jólin,
bæði til gjafa og eigin nota enda
um að gera að lyfta sér aðeins
upp með góðum kremum og
skemmtilegum förðunarvörum.
Þeir sem eiga í vandræðum
með að finna litla gjöf til þess að
gleðja frúnna með á að-
fangadagsmorgun ættu að lauma
nokkrum snyrtivörum í jólasokk-
inn hennar.
Face og Night Sculptor
Kremin frá Helenu Rubinstein
styrkja húðina, gefa henni raka
og næringu og draga úr hrukk-
um. Húðin verður þéttari og
unglegri en kremið dregur einnig
úr þreytumerkjum og þrota.
Brúnkukremin frá Lancôme
Kremin gefa húðinni fallegan og
hraustlegan blæ sem veitir oftar
en ekki af yfir vetrartímann.
Flash Bronzer fæst bæði á andlit
og líkama. Auðvelt er að bera
kremið á, en það gengur hratt
inn í húðina og smitast ekki.
Gylltur maskari frá Guerlain
Þegar nær dregur jólum verður
meira um glamúr og hvað er
jólalegra en gylltur maskari? Þessi
maskari frá Guerlain er notaður
með svörtum maskara en hann
gefur augnhárunum fallega gyllta
áferð. Þær sem vilja ganga aðeins
lengra geta líka notað maskarann
einan og sér og gefið augunum
gyllta umgjörð.
Fuel for Life frá Diesel
Nýi ilmurinn frá Diesel angar af
blómum og kynþokka. Sætur
keimur ásamt berjatónum gefur
ilminum mýkt. Ilmurinn hentar
konum á öllum aldri og kemur í
rómantískum, gamaldags um-
búðum sem fara vel í jólapakk-
ann eða jólasaokkinn.
Naglalakk frá Lancôme
Naglalakkið í haust- og vetr-
arlínu Lancôme kemur í fallegum
fjólulit með brúnum tónum. Lit-
urinn er ekki aðeins fallegur
heldur er einnig hægt að nota
segul á glasinu til þess að mynda
stjörnumynstur í blautt nagla-
lakkið.
24 stundir/Ómar
Smáræði í jólasokkinn
Snyrtivörur Góðar í jóla-
pakkann eða til eigin nota.
Það hafa verið töluverðar
breytingar í Epal undanfarið enda
hefur verslunin stækkað um 870
fermetra. Eyjólfur Pálsson fram-
kvæmdastjóri segir að það sé
töluverður munur að vera í stærri
verslun. „Við vorum í 500 fer-
metra húsnæði og við stækkuðum
því töluvert við okkur. Við byggð-
um hæð ofan á húsið og erum því
með mjög skemmtilegt pláss, tíu
metra lofthæð og 80 fermetra of-
anljós. Eins og fyrr leggjum við
áherslu á okkar vörur nema núna
fær allt meira pláss og nýtur sín
betur. Til að mynda þrefaldaðist
gjafavörudeildin við breyting-
arnar og viðskiptavinirnir eru því
mjög sáttir.“
Jólavörur frá Georg Jensen
Það er mikið úrval í Epal og til
að mynda fást þar allar jólavörur
frá Georg Jensen. „Við erum til
dæmis með þennan fræga jóla-
óróa sem Íslendingar kaupa svo
mikið af og það er þegar góð sala
í honum. Það skemmtilega við
jólaóróann er að það er góðvinur
minn, Ole Kortzau, sem hannaði
hann í ár en Ole hannaði einmitt
sófa fyrir Epal fyrir tuttugu árum.
Það skemmtilega er að Neytenda-
samtökin gerðu verðkönnun á
óróanum og Epal var með lægsta
verðið. Ég varð nú ekki hissa á
því en sumir urðu það. Auk
Georg Jensen erum við með jóla-
vörur frá Rosendahl, Marimekko
og fleirum.“
Stærri og betri Epal
Epal Nú má fá allar jólavörur
frá Georg Jensen í Epal.
»KYNNING
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16
www.rumgott.is
FRÍ LEGUGREINING
og fagleg ráðgjöf
á heilsu- og
sjúkradýnum
HAUSTTILBOÐ 10-40% AFSLÁTTUR
BYLTING Í
SVEFNLAUSNUM
EITT BESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM