24 stundir - 16.11.2007, Side 39
24stundir FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 39
Fljótlegir og auðveldir jólamolar
sem þarf ekki að baka.
2 bollar sykur
3 matskeiðar kakó
2 matskeiðar smjör
½ teskeið salt
½ bolli mjólk
Bræðið allt saman í potti. Bætið
svo út í ½ bolla hnetusmjöri, 1 te-
skeið af vanilludropum og ½ bolla
af söxuðum hnetum. Búið til litlar
kúlur. Kælt.
Einfaldir molar fyrir jólin
Það er óþarfi að gefa stórar og
dýrar gjafir um jólin. Gjafir sem
bragð er af falla vel í kramið hjá
flestum og ekki þarf mikil fjárráð
til þess að gefa slíkar gjafir séu þær
heimatilbúnar.
Konfektmolar og smákökur
Nokkrir konfektmolar í fallegri
öskju gleðja alla fagurkera en eins
er hægt að baka smákökur og setja
í fallegar glerkrukkur.
Úr þessu deigi má búa til ýmsar
gerðir af smákökum sem eru góðar
til gjafa en þær er hægt að skreyta á
mismunandi vegu og svo má prófa
sig áfram og bæta við hnetum eða
súkkulaðibitum eftir smekk.
3 bollar hveiti
1 bolli flórsykur
1 bolli smjör
½ teskeið salt
4 stórar eggjarauður
1 teskeið vanilludropar
1 stór eggjahvíta hrærð við 2
teskeiðar af vatni
kökuskraut
Blandið saman hveiti, smjöri,
salti og sykri. Hrærið saman eggja-
rauðum og vanilludropum og bæt-
ið við. Bakið við 150 gráður. Pensl-
ið með eggjahvítublöndu ef það á
að skreyta.
Heimatilbúið skraut
Til þess að búa til eigið köku-
skraut má nota fíngerðan strásykur
og setja dropa af matarlit út í og
strá svo yfir kökurnar. Til þess að
gera kökurnar ennþá líflegri má
nota piparkökuform til þess að
skera þær út í skemmtileg mynstur.
Að bakstrinum loknum er um
að gera að festa kaup á gler-
krukkum og fallegum borðum eða
pappaöskjum sem hægt er að
skreyta á ýmsa vegu og raða kök-
um og konfekti ofan í. Svo má láta
litla flösku af desert-víni fylgja
með.
Bragðgóðar og heimatilbúnar gjafir í jólapakkann
Gjafir sem bragð er af
24 stundir/Photos
Gjafir sem gleðja Jólagjafir þurfa ekki að vera stórar og dýrar. Smákökur og konfekt gleðja flesta sælkera.
Það má alltaf narta í
poppkorn og er ekki verra að
hjúpa það smá karamellu.
½ kíló rjómakaramellur
1 teskeið vatn
2 teskeiðar smjör
7 bollar poppkorn
Blandið saman karamellu,
vatni og smjöri. Bræðið og
hrærið þar til mjúkt. Poppið
og hellið karamellunni yfir. Blandið vel saman.
Gómsætt
jólapoppkorn
Karamellumoli með kaffiboll-
anum í jólastússinu.
1 bolli smjör
11⁄3 bolli sykur
1 matskeið síróp
3 matskeiðar vatn
450 grömm súkkulaði
450 grömm pekanhnetur
Smjör og sykur brætt, sírópi og
vatni bætt við. Hitað að suðu.
Hellt í smurða ofnskúffu. Kælt og
hjúpað súkkulaði. Hnetur muldar
yfir.
Nartað í kara-
mellu milli mála
Jólatilboð
Fólksbílakerra,150x108, 550kg burður
Krónur 79.000.-