Sunnudagsblaðið - 17.10.1965, Page 7
ooooooo
| Ég sá það og 1 leys rði það
0
S
Það var geimkvöld í gærkvöldi og rafmagns-
laust, og menn voru kammó hverir við aðra á göt-
unni, og allir þekktust og enginn vissi af hverju
rafmagnið hefði farið. Nú eru helgarnar degi
lengri en áður, byrja á föstudögum, og samkvæm-
isljónin iáta sig ekkert muna um að halda það
út í þrjú kvöld og mæta svo á barnum á Borg-
inni í hádegínu á mánudögum svona rétt til að
taka úr sér ræmuna og rykið eftir helgina. Mað-
urinn á neðri hæðinni er ekkert samkvæmisljón
en hann á líka bíi, voða fínan, splunkunýjan, svart-
an og er alltaf eitthvað að dedúa við bílinn sinn,
og þegar hann heldur að enginn sjái til spjallar
hann við bílinn og hælir honum þá upp í há-
stert og jafnvel klappar honum dálítið, segir hann
verði nú að du:ga vel næstu vikuna, og alltaf þeg-
ar eott sólskin er. þá er maðurinn á neðri hæð-
inni kominn á fætur fvrir allar aldir til að pússa
og snurfusa bílinn sinn og stundum tekur hann
hlífina ofan af húddinu og káfar eitthvað í vél-
ina með lyklum eða töngum og snýr sér svo allt
í einu að framhjágangandi og segir: „Hún plum-
ar sig bærilega þessi kelling”.
Litlu krökkunum í garðinum á bak við húsið
var afskaplega mikið niðri fyrir liér á dögunum
og sögðust hafa séð stóran hund með bítlahár og
mann ríðandi á hundinum. Þau litlu krakkarnir
ræða mikið um guð og Óli, sem er þeirra stærst-
ur fer alltaf í kirkju á sunnudögum og hefur þá
alltaf eitthvað nýtt að segja frá guði, og um síð-
ustu helgi kom alveg nýtt fram í málinu, að guð
væri alls ekki gamall og hann hefði ekkert
skeeg. Þetta með skeggið var tilefni mikilla og
fróðlegra umræðna, og þar lögðu allir eitthvað
til málanna og einn sagði „að mamma heði satt
að gvuð væri með voða stórt skegg alveg niðrá
mava” og Óli sagði. að mamma hennar hefði
aldrei séð guð, en presturinn í kirkjunni hefði
sagt það „og hann veit það miklu betur en
mamma þín góða”.
Það er kostulegt að koma í sum hús, þar sem
aulakassinn er aðalhúsgagnið og heimilisfólkið
er allt safnað í kring um hann og enginn má
segja aukatekið orð og kannske virðulegur séra-
nrestur stendur alveg á öndinni af spenningi,
hvort hasarbófinn skjóti góða manninn 'í kass-
anum, eða hvort ríðandi kábojinn getur snarað
óðan villihestinn, og litlu börnin liggja á gólf-
inu föl af spenningi og svo æða þau um á daginn
með bonausabyssur o? binda hvert annað við
staur og hver veit nema þau prufi einhvern dag-
inn að hengja hvert annað svolítið. Nú eru dúkku-
og bílaleikir toorfnir, bara „bang, toang“.
Fisksalinn í götunni við hliðina ber sig manna-
lega og segist græða á tá og fingri, því nú sé hann
eiginlega alveg hættur að selja fisk en selji bara
kartöflur í staðinn og það sé stórum betra og
þetta sé bara píp og vitleysa í kaupmanninum,
að enginn gróði sé af kartöflunum.
Feiti karlinn. sem býr í blúnduhandriðahúsinu
hér á móti er nýkominn frá Majorku og litla
stelpan, sem fer með honum í Laugarnar segir
hann sé voða brúnn á mallanum og þegar skatt-
skráin kom um daginn urðu allir í hverfinu
voða forvitnir að vita hvað feiti karlinn borgar
í skatta, því liann keyrir í svo fínum bíl og er
alltaf í útlandinu á bídsinni eins og konan hans
kallar það. En viti menn, útsvarið var ekki nema
fimmbúsund og enginn skattur og nú velta allir
hér fvrir sér hvort það sé bara nóg að skreppa
'á b'dsina svona tvisvar, brisvar á ári til að vera
skattfrír, því feiti karlinn fer að minnsta kosti í
toaustsumaraukafrí, venjulegt sumarfrí og vor-
sumarfrí. Þetta er nú það, sem fólkið hér í hverf-
inu er að spjalla um síðan það hætti að tala um
rykið á götunni og það allt saman, því nú er búið
að malbika og gera fínt, vantar ekkert nema
gangstéttina.
Það var strækur hjá öskuköllunum í morgun,
þeir allir í kringum eina tunnuna og í háa rifr-
ildi. Þeir voru að rífast um fegurðardrottningar
segi og skrifa fegurðardrottningar. Einn sagði:
,.Ég er á móti þessum helvítis kroppasýningum,
látum Halldór búnaðarmálastjóra halda rollusýn-
ingar. en að einhverjar stelpugálur séu að halda
sýningu á því sem guð hefur skanað, það er til
skammar”. Og annar reyndi að vera skáldlegur
og sagði: „Því mega ekki blessaðar stúlkurnar
bera fegurðina á torg?” og þeir gleymdu alveg
tunnunum og bílstjórinn varð að flauta á þá, þar
til þeir rönkuðu við sér.
Kennarinn, sem kemur alltaf í strætóinn á
á stoppistöðinni hjá elliheimilinu segir að skól-
arnir byrji alltof snemma, börnin séu í fýlu og
það sé ekkert hægt að kenna þeim fyrstu vikurn-
ar og nú sé líka september orðinn bezti mánuður
ársins og mest að gera í bygglngarvinnunni og
bessveena eigi alis ekki að bvrja skólahald fyrr
en í október og halti maðurinn, sem kemur í
vagninn við Háskólann tók undir orð kennarans
og sagði skólahaldið væri orðið fargan og honum
hefðu dugað níu vikurnar í umgangsskóla og hann
sæi svo sem ekki hvaða gagn væri í öllu þessu
óskaplegu skólafargani og konan, sem situr allt-
af fyrir aftan bílstjórann kinkaði kolli í sífellu,
Frh. á bls. 511.
’ ‘fT ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 5O3
OOOOOOOOO OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO