Sunnudagsblaðið - 17.10.1965, Side 9

Sunnudagsblaðið - 17.10.1965, Side 9
Fyrsti fastráðni sjónvarpsmaðurinn á vegum BBC var Douglas Birkenshaw, sem var ráðinn verkfræð- ingur og rannsóknarstjóri árið 1930. Til samstarfs við hann gengu tveir menn frá sjónvarpsstofu Bairds, og þessir þrír menn urðu fyrstu tæknistarfsmenn sjónvarps brezka útvarpsins. Nokkru síðar auglýsti BBC eftir fyrsta kvenþulnum. Hún varð að vera lagleg og myndast vel og hafa gott minni. Auk þess skyldi hún vera ógefin og hún mátti ekki vera rauð- hærð, því að þann lit var erfitt að senda. Umsókn- irnar urðu svo margar, að útvarpið varð að fá auka- fóik til að fara í gegnum þær allar, en að lokum urðu tvær stúlkur fyrir valinu. Um líkt leyti var einnig ráðinn karlmaður til þularstarfa. Það var ekki auðvelt verk sem beið þessara fyrstu sjónvarpsþula. Baird hafði fundiö upp þrjár mismun- andi aðferðir við sendingar, en allar heimtuðu þær mikla andlitsförðun. Ein aðferðin heimtaði þykka, gula andlitsförðun, skarlatsrauðar varir og gráa augnaskugga; önnur aðferð heimtaði ljósgult andlit, biáar varir og augnabrúnir, og þriðja aðferðin heimt- aði móleita andlitsförðun og brúnar varir og augna- skugga. Auk þess þurfti að beita ljósum þannig við sendingarnar, að hætta var á að þulirnir fengju höf- uðverk. Um líkt leyti og þulirnir voru ráðnir, bættist nýr maður í hóp sjónvarpsfólks hjá BBC. Það var Cecil Madden, dagskrárstjóri, en hann átti eftir að hafa mikil áhrif á þróun sjónvarpsins og efnismeðferðar r þess næstu árin. Eitthvert fyrsta verkefni hans vaf að undirbúa tuttugu sjónvarpsþætti í sambandi við Ólympíuleikana 1936. Það verkefni reyndist erfitt, en einhvern veginn slampaðist það þó af, þrátt fyrir margs konar óhöpp og jafnvel hrein skemmdarverk. Sjónvarpið átti nefnilega marga andstæðinga í þá daga. Sumir héldu því fram, að aðsókn myndi minnka háskasamlega, ef sjónvarpað væri frá knattspyrnu- keppnum og öðrum kappleikjum; aðrir fullyrtu, að sjónvarpið hlyti að drepa bæði leikhússtarfsemi, kvikmyndahús og venjulegan útvarpsrekstur. Þessar röksemdir báðar heyrast oft enn þann dag í dag, þótt reynslan bendi ekki til, að þær hafi við neitt að styðjast. Hættulegri áróður gegn sjónvarpinu var sá orð- rómur, að það væri njósnatæki, sem væri ætlað að snuðra í híbýlum manna. Þessi orðrómur varð svö magnaður, að samgöngumálaráðherrann brezki varð að flytja sérstakt lítvarpserindi, þar sem hann full- vissaði þjóðina um, að þetta væri uppspuni og að sjónvarpsmyndavélar yrðu ekki notaðar til að njósna um einkalíf almennra borgara. Skömmu eftir Ólympíuleikana 1936 tilkynnti BBC að fastar sjónvarpssendingar hæfust fljótlega og yrði sjónvarpað tvær klukkustundir á dag. Þvi var heitið, að efnið skyldi vera fjölbreytt og frjálslegt; hinir ágætustu listamenn yrðu ráðnir til að skemmta, Og merkisatburðir yrðu sýndir á sjónvarpsskerminum. Bétt áður en fösíu sendingarnar hófust, byrjaði H<Ni m ■ ‘ " fflj? ■ V-W- » W , xífex j lXflP::íXÍX: blli- X X .BCi- •sbri'.aa , j íÝcÝi. - h tf r X r .í' > 'ÖJJLCÍUíS ■.Baíras. t. , - • ALPÝÐUBLADID - SUNNUDAGSDLAÐ 5Q5

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.