Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 310. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Húsgagnahöllin s. 585 7220 • Smáralind s. 585 7240 • Selfossi s. 480 7009 Nýtt100% ÖRYG GI VIÐ TRYGGJUM ÞÉR LÆGRA VERÐ sjá www.intersport.is Skífuskank og taktkjaftur Unglist lýkur í kvöld með óvenju- legri keppni Menning 60 Lesbók | Burt með væntingar um borgaralegt leikhús Sannleikur vafinn lygum Börn | Hugmyndin kom í heita pottinum Keðjusagan Íþróttir | Fyrsti landsliðshópur Viggós Birgir Leifur á parinu Lesbók, Börn og Íþróttir í dag ÖNGÞVEITI var við höfuðstöðvar Yassers Arafats, leiðtoga Palest- ínumanna, í Ramallah á Vestur- bakkanum í gær þegar tugir þús- unda manna söfnuðust þar saman til að fylgjast með útför hans. Lögreglumenn hleyptu af byssum upp í loftið til að hafa hemil á fólk- inu þegar það þyrptist að kistu Ara- fats. /20Reuters Öngþveiti við útför Arafats GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að eftir fráfall Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, gæfist „mjög gott tækifæri“ til að koma á friði og stofna sjálf- stætt, lýðræðislegt og lífvænlegt Palestínu- ríki áður en kjörtímabili hans lyki árið 2009. Bush sagði þetta eftir fund með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Hvíta húsinu í Washington þar sem þeir ræddu einkum málefni Mið-Austurlanda og átökin í Írak. Forsetinn kvaðst vona að eftirmenn Arafats einsettu sér að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi og koma á lýðræðis- legum umbótum. Boðar Evrópuferð á næsta ári Bush kvaðst einnig ætla að bæta sam- skipti Bandaríkjanna og Evrópulanda, sem lögðust gegn innrásinni í Írak, á síðara kjörtímabili sínu. „Ég ætla að heimsækja Evrópu eins fljótt og mögulegt er eftir inn- setningarathöfnina í janúar.“ „Gott tæki- færi“ til að koma á friði Washington. AFP. Reuters Tony Blair og Bush í Hvíta húsinu í gær. TIL ÞESS að eiga möguleika á því að fá kennara inn í skólana á mánu- dag sæmilega sátta, verður að tryggja að þeir fái 130 þúsund króna eingreiðslu og að minnsta kosti 5,5% launahækkun strax. Þetta er meðal athugasemda við frumvarp til laga um kjaramál kennara sem kennara- forystan gerði allsherjarnefnd grein fyrir á fundi í gærkvöldi. Fulltrúar launanefndar sveitarfé- laga mættu einnig á fund allsherj- arnefndar sem lauk kl. 23 í gær- kvöldi. Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefndinni í gær en annar fundur hefur verið boðaður í dag. Frum- varpið var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi í gær en þingfundur hefur verið boðaður kl. 10.30 í dag. Telja frest of langan Bæði fulltrúar kennara og sveit- arfélaganna gerðu athugasemdir við tímasetningar í frumvarpinu og telja frest sem gerðardómur hefur til að ljúka störfum of langan. Að mati kennara á að skipa í gerðardóm strax og á hann að hafa lokið störf- um um áramót. „Samningsaðilar geta þá notað tímann meðan gerð- ardómur er að koma sér í gang til að athuga hvort þeir nái saman um eitt- hvað,“ sagði Eiríkur Jónsson, for- maður KÍ í gærkvöldi. Þá vilja kenn- arar að úrskurður gerðardóms gildi frá 1. október. Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður samninganefndar sveitarfé- laga, segist telja að sveitarfélögin geti unað við forskrift gerðardóms eins og hún er sett fram í frumvarp- inu. Eiríkur segir kennara hins veg- ar ekki geta það með nokkru móti. Gerðardómur verði að bera kjör kennara saman við aðra háskóla- menntaða starfsmenn ríkisins með sambærilega menntun, reynslu og ábyrgð. „Mun þessi forskrift hafa þannig áhrif á niðurstöðuna að okkur beri sem samningsaðilum að endurskoða hvað er mögulegt í stöðunni?“ spyr Birgir Björn. „Ég er að vona að það leiði til þess að við getum náð sam- komulagi um eitthvað sem báðir að- ilar geta staðið á bak við og haft sannfæringu fyrir að sé betri lausn heldur en gerðardómur.“ Morgunblaðið/ÞÖK Reiðir kennarar á Austurvelli KENNARAR fjölmenntu fyrir framan Alþingishúsið í gær meðan á afgreiðslu frumvarps til laga um kjör kennara stóð og létu í ljós megna óánægju sína með frumvarpið. Púað var til alþingismanna og kennarar á bílum þeyttu flautur sínar. Lögreglan þurfti þrjár tilraunir til þess að koma upp nálgunarborða til að halda kennurum í hæfilegri fjarlægð þar sem óánægðir kennarar slitu hann í tvö skipti við fagnaðarlæti félaga sinna. Kennarar vilja eingreiðslu og fá 5,5% hækkun strax ÁKVÆÐIÐ um að sveitarfélögin og kennarar geti gengið frá kjara- samningi sín á milli fyrir 15. desember áður en málið kemur til kasta gerðardóms er fyrst og fremst sett vegna ábendinga sem stjórnvöld- um hafa borist frá Alþjóðavinnumálastofnuninni (ILO). Í tilmælum ILO mun vera bent á að löggjafarvaldið eigi ekki að setja lög á vinnudeilur án þess að gefa deilendum umþóttunarfrest til að leysa deiluna upp á eigin spýtur. Í sumar staðfesti þing ILO niðurstöðu félagafrelsisnefndar ILO um kæru ASÍ til ILO vegna endurtekinna afskipta stjórnvalda af gerð kjarasamninga.Talsmenn ASÍ sögðu þá að í ákvörðun þingsins fælist mjög alvarleg gagnrýni á ríkisstjórnina vegna afskipta stjórnvalda af gerð frjálsra kjara- samninga og að stjórnvöld yrðu að hugsa sig miklu betur um áður en þau færu með lagasetningu inn í kjarasamningagerð. Frestur vegna ábendinga frá ILO Deilendur gera báðir athugasemd við tímasetningar í frumvarpinu Frumvarp til laga um kjaramál kennara rætt í allsherjarnefnd í gærkvöldi  Kennaradeilan/6 og 10 SAKSÓKNARI á Ítalíu krafðist þess í gær að dóm- stóll í Mílanó dæmdi Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra landsins, í átta ára fangelsi fyrir að hafa mútað dómurum. Saksóknarinn vill einnig að Berlusconi verði bannað til lífstíðar að gegna opinberu embætti. Dómur verður kveðinn upp í málinu 3. desember. Að sögn saksóknarans fengu dómararnir reglulegar greiðslur frá fyrirtæki Berlusc- onis, Fininvest, meðal annars fyrir að hafa komið í veg fyrir að ríkisfyrirtæki yrði selt keppinaut hans í viðskiptalífinu árið 1985. Krefst dóms yfir Berlusconi Róm. AFP. Berlusconi ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.