Morgunblaðið - 13.11.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.11.2004, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR aðinum. Eftir að hafa virt fyrir sér uppboð á tún- fiski, kynnti sendinefndin sér aðra starfsemi markaðarins og fékk rengi að gjöf frá fisksala sem var auðmjúkur yfir því hve langt að kominn hópurinn var. Hvorki bar mikið á íslenskri loðnu né grálúðu þann tíma sem hópurinn staldraði á fiskmarkaðinum. Með þingforseta í för er eiginkona hans, Krist- rún Eymundsdóttir, og þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðjón A. Kristjánsson, Jóhann Ár- sælsson og Steingrímur J. Sigfússon ásamt for- stöðumanni alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis. Sendinefndin fer frá Tókýó í dag áleiðis til Kyoto. Forseti Alþingis og eiginkona hans munu jafnframt hitta japönsku keisarahjónin á mánu- dag. HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, er í op- inberri heimsókn ásamt íslenskri sendinefnd í Japan í boði forseta efri deildar japanska þings- ins, og stendur hún til 16. nóvember. Við kom- una til Japan á fimmtudag fundaði sendinefndin með gestgjafanum. Sendinefndin ræddi við forsætisráðherra Jap- ans, Junichiro Koizumi, forseta efri deildar jap- anska þingsins, Chikage Oogi, og forseta neðri deildar japanska þingsins, Yohei Kono. Auk þess ræddi sendinefndin við hvalveiðinefnd þingsins. Sendinefndin brá sér einnig á Tsukiji fisk- markaðinn í Tókýó, sem er einn sá stærsti í heimi. Báðust framkvæmdastjóri fiskmarkaðar- ins og móttökunefndin öll afsökunar á því að ekki væri íslenskt hvalkjöt til sölu á mark- Forseti Alþingis í opinberri heimsókn í Japan Skoðuðu einn stærsta fiskmarkað heims Ljósmynd/Arnljótur B. Bergsson Halldór Blöndal kynnti sér einn stærsta fisk- markað í heimi ásamt íslensku sendinefndinni. SVO virðist sem fordómar gagn- vart útlendingum séu að aukast á Íslandi að því er fram kemur í ný- legri Gallup-könnun. Frá árinu 1999 hefur þeim sem vilja leyfa fleiri útlendingum að vinna hér- lendis fækkað um 14% eða frá 42%, sem voru því sammála 1999, niður í 28% árið 2004. Íslendingar eru sömuleiðis neikvæðari gagn- vart því að taka eigi við fleiri flóttamönnum á Íslandi. Árið 1999 voru 45% svarenda því sammála en í ár 27,5%. Fækkunin á milli ára nemur því tæpum 18%. Einnig er neikvæð svörun milli ára þegar spurt er hvort þeir sem flytji til Íslands eigi rétt á því að halda eigin siðum. Fyrir fimm ár- um sögðust 77% svarenda vera því sammála en í ár segjast liðlega 64% vera því sammála. Þessar niðurstöður koma fram í nýlegri neyslukönnun Gallup þar sem spurt var m.a. um viðhorf til útlendinga, framandi menningar og flóttamanna á Íslandi. Könn- unin var í formi svokallaðar póst- könnunar og var svarhlutfall 66% eða 1.075 manns. Alþjóðahúsið kynnti niðurstöður könnunarinnar á blaðamannafundi í gær og til að benda á að for- dómar hafi verið að aukast í ís- lensku samfélagi á undanförnum árum. „Þetta staðfestir ákveðnar grunsemdir sem við höfðum,“ seg- ir Einar Skúlason, framkvæmda- stjóri Alþjóðahússins. Hann segist hafa orðið var við vaxandi óánægju meðal útlendinga hérlendis varð- andi framkomu og viðmót Íslend- inga í sinn garð. Einar segir nauðsynlegt að opna umræðuna um þessi mál og eitt af því sem Alþjóðahúsið hyggst gera er að dreifa fréttablaði sínu, sem nefnist „Eins og fólk er flest“, á öll heimili í landinu næstkomandi sunnudag. Markmið blaðsins er að upplýsa fólk með það fyrir augum að draga úr fordómum gagnvart innflytjendum. Þar verður að finna greinar eftir ýmsa sérfræðinga þar sem þeir fjalla, út frá sínu sérsviði, um neikvæðar fullyrðingar sem haldið hefur verið á lofti um inn- flytjendur. Ungar menntakonur í Reykja- vík síst fordómafullar Fram kemur í könnuninni að marktækur munur sé á milli kynja, karlar séu fordómafyllri en konur, eldra fólk fordómafyllra en það sem yngra er, ómenntaðir frekar en menntaðir og meira sé um fordóma á landsbyggðinni en í Reykjavík. Könnun á viðhorfi Íslendinga til útlendinga Fordómar í sam- félaginu að aukast Í BYRJUN nóvember kynnti Morgunblaðið áskrifendum möguleika á að sjá blað dagsins í tölvunni sinni án viðbótargjalds. Viðbrögð við þessari viðbótar- þjónustu hafa verið gríðarlega góð, en núna hafa yfir 5.000 áskrifendur skráð sig og opnað fyrir aðgang að efni blaðsins. Mestu viðbrögðin hafa verið á strjálbýlli svæðum landsins þar sem samgöngur eru með þeim hætti að blaðið sjálft í pappírs- formi berst í seinna lagi. Einnig þykir áskrifendum á ferðalögum erlendis mikill fengur að geta skoðað blaðið þegar tækifæri gefst til. Til að virkja aðgang að efni blaðsins verður áskrifandi að skrá sig á forsíðu mbl.is og fá lykilorð sent í tölvupósti. Það er gert á þann veg að smella á mynd af forsíðu Morgunblaðsins sem er í vinstra dálki á mbl.is. Að því loknu getur áskrifandi skoðað blað dagsins, hvort sem er á textasniði (án auglýsinga) eða pdf-sniði, með endanlegu út- liti blaðsins. Blaðið verður þann- ig aðgengilegt áskrifendum kl. 6 á morgnana að íslenskum tíma, hvar sem er í veröldinni. Aðgangur að blaði dagsins í tölvuna Rúmlega 5 þúsund hafa skráð sig LÖGREGLUNNI í Hafnarfirði barst í vikunni bakpoki sem inni- hélt talsvert magn af framhliðum af útvarps- og geislaspilurum í bif- reiðar, en slíkum framhliðum er hægt að smella af tækjunum. Nokkrir einstaklingar hafa þegar sótt til lögreglu framhliðar sem var stolið úr bifreiðum þeirra og geta þeir sem enn sakna framhliða af út- varps- eða geislaspilurum bifreiða vitjað þeirra á lögreglustöðinni. Fundu framhlið- ar í bakpoka SKIPT var um yfirmann varnarliðs- ins með athöfn sem fram fór á Keflaíkurflugvelli í gærmorgun. Í stað Noel G. Preston aðmíráls hefur Robert S. McCormick ofursti úr flugher Bandaríkjanna tekið við. Yfirstjórn varnarliðsins er svo- nefnd sameinuð herstjórn (Joint command) og getur yfirmaður þess því komið úr hvaða grein Banda- ríkjahers sem er, þ.e. flota, landher eða flugher. Þýðir ekki að flugherinn hafi tekið við Á Keflavíkurflugvelli er deild úr flughernum til loftvarna og hefur hún yfir að ráða fjórum F-15-orr- ustuþotum, þar voru Orion-kafbát- arleitarvélar sem flugdeild flotans sá um að reka, en hennar hlutverk er að fylgjast með skipa- og kafbátaferðum og loks er þar flota- stöð sem flestir liðsmenn varnar- liðsins heyra undir. Friðþór Eydal upplýsinga- fulltrúi varnarliðsins segir að þó að yfirmaður varnarliðsins sé nú for- ingi úr flugher þýði það ekki að flugherinn hafi tekið við rekstri flotastöðvarinnar. Engar ákvarðanir hafi verið teknar um slíkar breyt- ingar sem séu háðar samráði ís- lenskra og bandarískra yfirvalda. Nýr yfirmaður varnarliðsins Robert S. McCormick SKIPULAGSSTOFNUN hefur með skilyrðum fallist á lagningu Gjá- bakkavegar milli Laugarvatns og Þingvalla. Um er að ræða um það bil 15 km langan, nýjan veg, sem mun liggja að mestu leyti um óraskað svæði. Þau skilyrði eru m.a. sett, að Vegagerðin lágmarki efnistöku og vandi til fyrirkomulags hennar og frágangs efnistökusvæða. Einnig er sett það skilyrði að lagður sé svo- nefndur fljótandi vegur til að draga úr áhrifum á votlendi. Sveitarstjórn breytir nafni vegarins Skipulagsfulltrúi uppsveita Ár- nessýslu segir að í tilefni af úrskurði Skipulagsstofnunar hafi sveitar- stjórn ályktað um það að vegur þessi verði framvegis nefndur Lyngdals- heiðarvegur, þar sem vegurinn muni hvergi koma nærri hinu gamla bæj- arstæði Gjábakka. Fallist á lagningu Gjábakka- vegar NOKKUR óútskýrður munur virð- ist vera á tölum Hagstofunnar og tölum sem fram koma í könnun Rannsókna og ráðgjöf ferðaþjón- ustunnar (RRF) um fjölda gisti- nátta erlendra ferðamanna hér á landi. Rögnvaldur Guðmundsson hjá RRF segir að útlit sé fyrir að gisti- nætur erlendra ferðamanna verði á bilinu 2,5 til 2,6 milljónir í lok þessa árs en þá sé talin með öll tegund gistingar, tjöld, sumarhús og einnig ókeypis gisting hjá vinum eða kunningjum. Gistinætur er- lendra ferðamanna hér á landi skv. tölum Hagstofunnar gætu orðið um 1,5 milljónir á þessu ári. Mismun- urinn á tölum Hagstofunnar og töl- um RRF er því liðlega ein milljón. Telur Rögnvaldur mikilvægt að kanna hver skýringin á þessu sé. Óvissa um fjölda gistinátta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.