Morgunblaðið - 13.11.2004, Side 6

Morgunblaðið - 13.11.2004, Side 6
6 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Óvinir allt um kring Vítahringur fjallar um þræla, kappa, bardaga, galdra og strák sem reynir að lifa eðlilegu lífi - en það reynist ekki auðvelt. Ný frábær saga frá verðlaunahöfundinum Kristínu Steinsdóttur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 3. – 9. nóv. 1. Börn og unglingar „VÉR mótmælum allir,“ hrópuðu grunnskólakennarar sem tóku sér stöðu fyrir framan Alþingishúsið í gær til þess að láta í ljós megna óánægju sína með lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Frumvarpið var samþykkt á rík- isstjórnarfundi í stjórnarráðinu í gærmorgun. Fyrr um morguninn boðaði forsætisráðherra formenn stjórnarandstöðuflokkanna á fund í stjórnarráðinu en frumvarpið var síðan lagt fram á Alþingi á þing- fundi kl. 10:30. Púuðu og þeyttu flautur Ætla má að meira en 100 kenn- arar hafi mótmælt á Austurvelli þegar flest var og báru sumir þeirra hvít blöð með dökkum fót- sporum á. Púað var til al- þingismanna og kennarar á bílum þeyttu flautur sínar. Lögreglan þurfti þrjár tilraunir til þess að koma upp nálgunarborða til að halda kennurum í hæfilegri fjar- lægð þar sem óánægðir kennarar slitu hann í tvö skipti við fagn- aðarlæti félaga sinna. Þær Guðný Guðlaugsdóttir og Hanna Friðriksdóttir sögðust afar ósáttar við lagasetninguna. Hún kæmi að vísu ekki á óvart heldur frekar hitt hvernig að henni væri staðið. Það væri ekkert nema sýnd- armennska að gefa kennurum frest til þess að semja fyrir 15. desem- ber. „Það er óskiljanlegt af hverju þetta er ekki sett í gerðardóm og klárað. Það verður ekki fyrr en 13 mánuðum eftir að samningurinn okkar rann út sem við fáum fyrst uppgjör úr þessari kjaradeilu. Það er bara fáránlegt að senda kenn- arana gríðarlega óánægða aftur inn í skólana. Það kemur bara niður á einu og það er á skólastarfinu.“ Íhuga alvarlega að hætta kennslu Guðný og Hanna sögðu hendur gerðardóms greinilega rígbundnar í lagafrumvarpinu og báðar sögðust þær myndu íhuga alvarlega að hætta kennslu ef ekki fengjust við- unandi kjarabætur. Sigfríður, Margrét og Linda sögðu að sér litist mjög illa á frum- varpið. „Það er bara verið að semja um launalækkanir. Það er algerlega verið að traðka á okkur, enn og aft- ur. Það er ekki nokkur einasta virð- ing borin fyrir þessu starfi og fólk- inu sem sinnir því.“ Þær sögðu ekki koma til greina að samþykkja miðlunartillöguna ef hún kæmi aftur upp á borðið, at- kvæðagreiðslan um hana segði allt sem segja þyrfti. Þær sögðu það al- veg vera uppi á borðinu að hætta kennslu ef niðurstaðan úr kjaradeil- unni yrði óásættanleg. Tilgangslaust að veita deilendum frest Í samþykkt stjórnar Kennara- sambands Íslands (KÍ) sem send var fjölmiðlum í gær segir að verði frumvarp til laga um kjaramál kennara og skólastjórnenda óbreytt að lögum hefur samningsrétturinn verið hrifsaður af kennurum með ofbeldisfullum hætti og þeir sendir nauðugir inn í skólana með óbreytt laun og starfskjör til vors 2005. Stjórnin telur það „hreina firru“ að reyna að þvinga félagsmenn KÍ í grunnskólum til vinnu á ný eftir margra vikna verkfall án þess að strax komi til hækkun launataxta. Grunnskólakennarar gagnrýndu harðlega lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar Morgunblaðið/Golli Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðinsson koma út úr stjórnarráðinu. Morgunblaðið/Golli Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræðir við fréttamenn. „Algerlega verið að traðka á okkur“ Morgunblaðið/ÞÖK Sigfríður, Margrét og Linda: „Það er algerlega verið að traðka á okkur.“ Morgunblaðið/ÞÖK Hanna og Guðný íhuga að hætta kennslu fáist ekki viðunandi kjarabætur. FULLTRÚAR launanefndar sveit- arfélaga mættu á fund allsherjarnefndar í gærkvöldi og gerðu grein fyrir athugasemdum sín- um við frumvarp til laga um kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunn- skólum. Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samningsnefndar sveitarfé- laga, segir að m.a. hafi verið gerð at- hugasemd við þann frest sem gerð- ardómur hefur til að komast að niðurstöðu og hvenær hann eigi að hefja störf. Sveitarstjórnarmenn sjái ekki ástæðu til svo langs frests. Geta unað við forskrift gerðardóms Birgir Björn segir að fljótt á litið sýnist sér að sveitarfélögin geti unað við forskrift gerðardóms eins og hann kemur fram í frumvarpinu. Hann segir tilboð kennara sem lagt var fram á mánudag hljóða upp á 45% kostnaðaraukningu fyrir sveit- arfélögin. „Ef það yrði kollhnísinn sem samfélagið tæki þá myndi ég ekki vilja bera ábyrgð á því.“ Birgir Björn segist meta stöðuna þannig að það sé nauðsynlegt að deil- endur setjist aftur að samningsborð- inu þar til gerð- ardómur tekur til starfa. „Nú liggur fyrir forskrift fyr- ir gerðardómi þannig að nú horfa aðilar bara kalt á það. Mun þessi forskrift hafa þannig áhrif á niðurstöðuna að okkur beri sem samningsaðilum að endurskoða hvað er mögulegt í stöðunni? Ég er að vona að það leiði til þess að við getum náð sam- komulagi um eitthvað sem báðir að- ilar geta staðið á bak við og haft sann- færingu fyrir að sé betri lausn heldur en gerðardómur. [...] Samfélagið er búið að setja leiðbeiningar og leik- reglur um hvernig eigi að ljúka þessu og þetta er tækifæri fyrir samnings- aðila að klára þetta. Ef þeir nýta sér það ekki þá er það sett í dóm þriðja aðila og hvorki sveitarfélögin né kennarasamtökin geta vitað hver sú lending verður.“ Hann segir að launanefndin hafi ekki mælt með þeirri leið sem frum- varpið kveður á um. „Það á að vera þannig almennt að menn eigi að standa í lappirnar og gera samninga sjálfir en ekki vera að kalla á rík- isvaldið eða Alþingi til lagasetningar. Því þá er eins og enginn beri ábyrgð. Samningsrétturinn er veittur vinnu- veitendum og stéttarfélögum og þeim ber skylda að bera ábyrgð á því sem þeir eru að gera.“ Hann segir að kennarar hafi talað um að gerðardómsleiðin sé skásti kosturinn í stöðunni „en þá eru þeir búnir að búa til þessar aðstæður. Ég held að það sé til að klippa þá niður úr snörunni, að þeir þurfi ekki að bera ábyrgð á niðurstöðunni.“ Birgir Björn segir nú muni samn- ingsnefndin bíða og sjá hver nið- urstaða Alþingis verði. Í kjölfarið verði farið yfir stöðuna. Eitt tækifæri enn til að semja Birgir Björn Sigurjónsson LAGAFRUMVARP ríkisstjórn- arinnar um kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum öðl- ast gildi um leið og þau hafa verið afgreidd frá Alþingi og verða þá verkföll, verkbönn og aðrar að- gerðir Kennarasambands Íslands gagnvart sveitarfélögunum óheimil þangað til samningur milli aðila liggur fyrir eða, ef til þess kemur, þangað til gerðardómur hefur ákveðið kjör grunnskólakennara. Um viðmið þau sem gerð- ardómur skal hafa í huga við ákvörðun launakjara grunnskóla- kennara segir að hann skuli „hafa hliðsjón af almennri þróun á vinnu- markaði frá gerð síðasta kjara- samnings deiluaðila að því leyti sem við á“. Við ákvarðanir um laun fé- lagsmanna og önnur starfskjör þeirra skal gerðardómurinn einnig hafa hliðsjón „af kjörum þeirra sem sambærilegir geta talist að mennt- un, störfum, vinnutíma og ábyrgð en jafnframt gæta þess að stöð- ugleika efnahagsmála og for- sendum annarra kjarasamninga sé ekki raskað“. Ákvörðun liggi fyrir í síðasta lagi 31. mars árið 2005 Sveitarfélögunum og kennurum er gefinn frestur til 15. desember til þess að ná fram samningi en að öðr- um kosti kemur málið til kasta gerðardóms sem Hæstiréttur til- nefnir þrjá menn í. Ákvörðun hans um kjör skal liggja fyrir í síðasta lagi 31. mars 2005 og verða þau þá bindandi sem kjarasamningur frá 15. desember og til þess tíma sem dómurinn ákveður. Endanlegt uppgjör launa á að vera 30. apríl 2005. Þó er tekið fram að komi deil- endur sér saman um einhver efnis- atrið eftir að málið er komið í gerð- ardóm skuli hann taka mið af því og eins hefur hann heimild til að beita sér fyrir samkomulagi eða dóms- sátt á milli aðila. „Gerðardómnum er sjálfum ætl- að að setja sér starfsreglur og afla nauðsynlegra gagna og getur hann krafist skýrslna, munnlegra og skriflegra, af þeim aðilum sem gerðardómurinn telur nauðsynlegt. Þá er kveðið á um rétt aðila til að koma sjónarmiðum sínum að við umfjöllun gerðardómsins, hvort sem er munnlega eða skriflega, og skal gerðardómurinn ætla þeim hæfilegan frest í því skyni,“ segir í athugasemdum við frumvarpið. „Forsend- um annarra kjarasamn- inga sé ekki raskað“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.