Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR skólabörn fá ekki þá lögmætu kennslu sem þeim ber. Þrátt fyrir langt verkfall og stíf fundahöld eru deiluaðilar engu nær og hafa eins og áður sagði að því er virðist heldur fjarlægst síðustu daga. Má því færa fyrir því gild rök að svo ríkir al- mannahagsmunir standi til þess að starf í grunnskólum landsins geti haf- ist að nýju svo fljótt sem auðið er að lög sem fela í sér bann við verkfallinu eigi rétt á sér við núverandi aðstæð- ur.“ Forsætisráðherra fór yfir einstök atriði frumvarpsins, en nánar er greint frá því á öðrum stað hér í blaðinu. Ráðherra tók fram, í því sam- bandi, að ríkisstjórnin hefði lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að fylgja aðhaldssamri efnahagsstefnu til að tryggja áframhaldandi stöðug- leika í efnahagslífinu á næstu árum. „Í þessu samhengi er brýnt að launa- stefna ríkis og sveitarfélaga komi ekki af stað víxlhækkunum verðlags og launa sem aftur hefði í för með sér aukna verðbólgu og rýrnun kaup- máttar. Þessu frumvarpi er ætlað að stuðla að framgangi þessara mark- miða,“ sagði hann. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að hann og sinn flokkur væru í grundvallaratrið- um á móti því að menn beittu laga- setningu til að ljúka verkfalli. „Ég hef fullan skilning á því þegar hæstvirtur forsætisráðherra segir að með hags- muni barna og fjölskyldna í landinu í huga hafi reynst nauðsynlegt að grípa til aðgerða. Ég hef fullan skilning á því að með einhverjum hætti verði menn að reyna að leysa þennan hnút. Ég segi hins vegar að þessi ríkis- stjórn ber töluverða ábyrgð á þeim hnúti sem búið er að binda á þessa deilu. Það er einfaldlega þannig að að- gerðaleysi ríkisstjórnarinnar, þyrni- rósarsvefninn sem heltók hana langar stundir, leiddi til þess að málin kom- ust í þessa stöðu.“ Sagði hann einnig í þessu sambandi að ríkisstjórnin hefði verið mjög ósanngjörn í tekjuskipt- ingu sinni gagvart sveitarfélögunum í landinu. Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði að sinn þing- flokkur væri andvígur frumvarpinu. „Eftir því sem ég hugleiði málið betur því verri finnst mér sú niðurstaða sem ríkisstjórnin hefur komist að. Ég ætla ekki að gera lítið úr vandanum fyrir börnin eða fyrir 4.500 kennara, 4.500 heimili sem staðið hafa í erfiðri kjarabaráttu og verið launalaus í sjö vikur. Nú fær þetta fólk kaldar kveðj- ur frá ríkisstjórn Íslands. Það er sent heim með lögum bótalaust. Ekki nóg með það, það er bannað með lögum að bæta fólkinu þann skaða sem kergja og þvergirðingsháttur viðsemjandans hefur valdið því í þessu langa og stranga verkfalli, því í lagafrumvarp- inu segir að ákvarðanir gerðardóms skuli vera bindandi sem kjarasamn- ingur á milli aðila frá og með 15. des- ember.“ Ögmundur ítrekaði í ræðu sinni að styrkja þyrfti fjárhagslega stöðu sveitarfélaganna og gera þeim þannig kleift að ganga til samninga við kenn- ara og aðra starfsmenn sína. Það væri raunhæf lausn á kjaradeilunni. Skaði kennara bættur Magnús Þór Hafsteinsson, þing- flokksformaður Frjálslynda flokks- ins, tók í upphafi máls síns fram að Frjálslyndi flokkurinn hefði ávallt verið á móti lagasetningum á kjara- deilur. „Við erum andvíg því að lög verði sett á kennara núna,“ sagði hann. „Það hlýtur að vera svo að rík- isstjórnin beri þunga ábyrgð í þessu máli.“ Hann sagði að ríkisstjórnin hefði á undanförnum vikum minnt á mann sem svæfi þungum svefni. „Nú reynir ríkisstjórnin að rífa sig á fætur í þessu máli og kemur fram með þessa lagasetningu.“ Magnús sagði þó ljóst að ekkert kæmi í veg fyrir að frumvarpið yrði afgreitt sem lög frá Alþingi. Hann sagði að á frumvarpinu þyrftu því að verða ákveðnar breytingar. „Til dæmis að kennurum yrði bættur sá skaði, sem þeir hafa orðið fyrir í þessu verkfalli, þ.e. að hugsanlegar kjara- bætur til þeirra verði ekki frá 15. des- ember, eins og hér er kveðið á um, heldur að þær nái framar í tíma.“ Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ítrekaði að lagasetning í kjaradeilu væri þrauta- lending. Hún sagði síðan að það væri m.a. ljóst eftir samræður ráðherra við fulltrúa deilenda að allt væri upp í loft í kjaradeilunni; deilendur væru frem- ur að fjarlægjast en nálgast. Staðan væri því afar erfið. „Og það er komin upp að mínu mati ákveðin neyð sem réttlætir þá leið sem við erum að fara hér í dag.“ Frumvarpið væri engan veginn ákjósanleg niðurstaða „en að mínu mati er þetta illskásta leiðin í þessari stöðu“. Grípi í taumana Árni Magnússon félagsmálaráð- herra sagði m.a. í ræðu sinni að fjár- hagsleg málefni sveitarfélaga og tekjuskipting þeirra og ríkisins væru til stöðugrar umfjöllunar, sem eðli- legt væri. „Þau eru hins vegar ekki grundvallaratriði þessa máls.“ Hann sagði að það væri mikil einföldun á þeirri stöðu sem uppi væri að til að leysa hana þyrfti meira fé frá ríkinu. Því næst fjallaði hann um ummæli umboðsmanns barna, um að yfir- standandi verkfall kennara hefði fyrst og fremst bitnað á þeim sem síst skyldi, þ.e. börnum þessa lands. Sagði hann að barnaverndarmálefni heyrðu undir verksvið félagsmálaráðuneytis- ins. Kjaradeilan væri komin á alvar- legt stig og krefðist aðgerða ríkis- stjórnarinnar. „Það er ekki hægt að horfa upp á það að grunnskólanem- endur bíði af varanlegt og ómetanlegt tjón, ef svo fer sem horfir að deilan haldi áfram. Ríkisstjórninni ber skylda til að grípa nú í taumana,“ sagði hann. Fyrstu umræðu um frumvarpið lauk um hálffjögur í gær. Eftir það var því vísað til annarrar umræðu með 25 atkvæðum stjórnarliða. Stjórnarandstæðingar sátu hjá. Fór frumvarpið síðan til umfjöllunar í alls- herjarnefnd Alþingis. Stefnt er að því að taka frumvarpið til annarrar og þriðju umræðu á Alþingi í dag. Verði það afgreitt í dag tekur það strax gildi. „ÞAÐ er ekkert launungarmál að rík- isstjórnin hefur ekki sóst eftir aðild að þessu máli og talið að hinir eiginlegu deiluaðilar eigi að sjá sóma sinn í að ná samkomulagi án atbeina ríkis- stjórnarinnar,“ sagði Halldór Ás- grímsson forsætisráðherra er hann mælti fyrir frumvarpi til laga um kjaradeilu kennara og skólastjórn- enda í grunnskólum á Alþingi í gær. „Við munum hins vegar ekki skorast undan þeirri skyldu okkar að leiða þetta mál til lykta þegar það blasir við að málið er komið í algeran hnút.“ Umræðan um frumvarpið hófst rúmlega hálfellefu í gærmorgun eða strax eftir að stjórnarþingmenn höfðu greitt atkvæði með afbrigðum frá þingsköpum, þannig að hægt yrði að taka málið á dagskrá, þar sem of skammt var liðið frá útbýtingu þess. Stjórnarandstæðingar sátu hjá í þeirri atkvæðagreiðslu. Halldór fór í upphafi máls síns yfir stöðuna í kjaradeilu grunnskólakenn- ara og sveitarfélaga. Sagði hann síðan að það væri grafalvarlegt að deiluað- ilar; fulltrúar kennara og sveitarfé- laga, skyldu ekki hafa borið gæfu til að leysa kjaradeiluna „og að málinu sé einfaldlega vísað til ríkisstjórnar“, bætti hann við. Sagði hann að meðan á kjaradeilunni hefði staðið hefði rík- isstjórnin ítrekað lýst því yfir að það væri skylda samningsaðila að ná sam- an um kjarasamning á eigin forsend- um og að lagasetning á kjaradeilur væri algjört neyðarrúræði. „Það er hins vegar niðurstaða okkar nú eftir ítarlegar viðræður við fulltrúa kenn- ara, skólastjórnenda og sveitarfélaga að það sé enginn annar kostur í stöð- unni en að grípa inn í þessa kjaradeilu með lagasetningu. Ríkisstjórnin telur sig einfaldlega ekki lengur geta setið aðgerðarlaus á meðan 45 þúsund Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi á Alþingi í gær um bann við verkfalli kennara Enginn annar kostur en að grípa inn í deiluna með lagasetningu Annarri umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um bann við verkfalli grunnskólakennara lauk á Alþingi síðdegis í gær eftir fimm klukkustunda umræðu. Stefnt er að því að frumvarpið verði að lögum í dag. Stjórnarandstæðingar segja ríkisstjórnina bera ábyrgð á stöðunni Morgunblaðið/Golli Umræður fóru fram á Alþingi í gær um lagasetningu á verkfall kennara. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, Davíð Oddsson utanríkisráðherra, Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, og Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinnar. Þau málefni sem hæst ber íþjóðfélaginu hverju sinnirata venjulega með einumeða öðrum hætti inn í sal Alþingis. Kjaradeila grunnskóla- kennara og sveitarfélaga er þar eng- in undantekning. Deilan hefur reglu- lega verið til umræðu á þingi frá því það hóf störf að nýju í byrjun októ- ber en verkfall kennara hófst, eins og kunnugt er hinn 20. september sl. Stjórnarandstæðingar hafa í þeim umræðum ítrekað kallað eftir að- komu ríkisstjórnarinnar að deilunni, þá aðallega með því að bæta fjár- hagsstöðu sveitarfélaganna, svo þau geti komið til móts við kjarakröfur kennara. Ráðherrar og stjórnarliðar hafa á hinn bóginn lagt áherslu á að lausn kjaradeilunnar væri í höndum samningsaðila. Til tíðinda dró þó í vikunni og á miðvikudag, þegar upp úr slitnaði á samningafundi deilenda hjá Rík- issáttasemjara, var ljóst að allt stefndi í lagasetningu. Daginn áður hafði Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagt í um- ræðum á Alþingi að lagasetning í kjaradeilu væri neyðarrúræði. Á miðvikudag sagði hún í samtali við Morgunblaðið að staðan í deilunni væri það erfið að flokka mætti hana sem neyð; mikið bæri á milli deil- enda. Sama dag útilokaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, í samtali við blaðamenn, hvorki laga- setningu né gerðardóm til lausnar deilunni. Fulltrúar deilenda voru boðaðir á fund ráðherra á fimmtudag og fyrir hádegi í gær, föstudag, var lagt fram á aukafundi á Alþingi frumvarp um bann við verkfalli kennara. Umræð- ur um frumvarpið stóðu síðan yfir í u.þ.b. fimm tíma. Til aukafundar hefur einnig verið boðað í dag, laug- ardag, þar sem stefnt er að því að gera frumvarpið að lögum frá Al- þingi. Verði það samþykkt hefst kennsla í grunnskólum landsins að nýju á mánudag.    Hópur kennara fylgdist meðumræðunum af þingpöll-unum í gær. Komu þeir andúð sinni á frumvarpinu á fram- færi með því að hrópa og kalla ofan af þingpöllunum. Kölluðu þeir til dæmis: heyr, heyr, þegar stjórn- arandstæðingar, sem mótmæltu lagasetningunni, töluðu í pontu. For- seti Alþingis sló af því tilefni ein- stöku sinnum í bjölluna og minnti gesti á að ekki væri ætlast til þess að þeir létu í sér heyra á meðan um- ræður færu fram í þingsalnum. En það heyrðist ekki bara í mót- mælendunum á þingpöllunum. Því inn í þinghúsið bárust einnig hljóð frá bílflautum og blístri kennaranna sem fyrir utan stóðu. Voru þeir einn- ig reiðir lagasetningunni. Umræðan á þingi hélt þó áfram, þrátt fyrir þetta, þótt ekki skuli úti- lokað að andstaða einhverra stjórn- arandstæðinga kunni að hafa eflst við hvatningu mótmælenda á þing- pöllum og úti á Austurvelli. Það breytir því þó ekki að frumvarpið verður væntanlega gert að lögum í dag með atkvæðum stjórnarliða.    Það eru þó ekki bara kennararsem hafa mótmælt fyrirframan Alþingi þetta haustið. Sex nemendur Lækjarskóla í Hafn- arfirði létu t.d. ekki kuldann aftra sér, einn napran vetrardag fyrir nokkru, þegar þeir mótmæltu stöð- unni í kennaradeilunni, við anddyri Alþingis. Þegar þau höfðu staðið fyr- ir utan þinghúsið í nokkra tíma ákvað Margrét Frímannsdóttir þingmaður hins vegar að þau yrðu að komast inn í hlýjuna og bauð þeim í heita kjötsúpu í mötuneytinu. Þetta var á fimmtudegi. Vikunni áður hafði hópur foreldra undirbúið mótmælastöðu á þingpöll- um Alþingis. Mótmælin áttu m.ö.o. að vera á föstudegi. Þeir höfðu hins vegar ekki áttað sig á því að venju- lega eru ekki þingfundir á föstudög- um. Komu þeir því að tómum kof- anum. Þeir létu það þó ekki aftra sér og mynduðu mótmælastöðu, þess í stað, fyrir framan þinghúsið. Þess má geta að krakkarnir í Lækjarskóla voru alveg með fund- ardaga Alþingis á hreinu þegar und- irrituð ræddi við þá á dögunum. Stefna þeirra var að mótmæla fyrir framan Alþingi á fimmtudegi, en mæta síðan aftur með mótmæla- spjöldin á mánudegi „enda engir þingfundir á föstudögum,“ sögðu þau ákveðin við undirritaða. Það getur þó gerst, eins og þessi þing- vika ber með sér, að aukafundir séu haldnir á föstudögum, þegar mikið liggur við.      Af verkfalli, mótmælum og kjötsúpu EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.