Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 11

Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 11 FRÉTTIR UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að úr- skurðir úrskurðarnefndar fé- lagsþjónustu frá því í desember á síðasta ári, þar sem einstaklingi var synjað um styrk vegna sérstakra erfiðleika (jólauppbót) og jafnframt synjað um hækkun á fjárhagsaðstoð, hafi ekki verið byggðir á viðhlítandi lagagrundvelli. Að mati umboðsmanns samrým- ast reglur um fjárhagsaðstoð Fé- lagsþjónustunnar í Reykjavík ekki ákvæðum laga um fjárhagsaðstoð eins og þau verða skýrð með hliðsjón af jafnréttisreglu stjórnarskrárinn- ar. Umboðsmaður beinir þeim tilmæl- um til úrskurðarnefndar félagsþjón- ustunnar að hún taki mál þess sem kvartaði til endurskoðunar, kæmi fram ósk þess efnis frá viðkomandi, og tæki þá mið af þeim sjónarmiðum sem rakin eru í álitinu. Þá beindi hann þeim tilmælum til Reykjavíkurborgar að reglur um fjárhagsaðstoð Félagsþjónustunnar í Reykjavík frá 2003 yrðu endur- skoðaðar í samræmi við þau sjónar- mið sem rakin eru í álitinu. Umboðsmaður vakti athygli á að af hálfu þess sem kvartaði hefði því verið haldið fram að hann hefði ekki haft fasta búsetu í foreldrahúsum á því tímabili sem beiðni hans um leið- réttingu á fjárhagsaðstoð varðaði. Viðkomandi hélt því fram að aðstæð- ur hans hefðu ekki verið metnar sér- staklega heldur alfarið miðað við reglur um einstaklinga á aldrinum 18–24 ára, sem eiga lögheimili hjá foreldrum, og eigi aðeins rétt til helmings grunnframfærslu. Af gögnum málsins fékk umboðsmaður ekki séð að við meðferð þess hjá úr- skurðarnefnd félagsþjónustu eða Félagsþjónustu í Reykjavík hefðu verið gerðar ráðstafanir til þess að kanna hvort einstaklingurinn hefði í raun búið hjá foreldrum sínum á um- ræddu tímabili. Taldi umboðsmaður að málsmeð- ferðin hefði að þessu leyti ekki sam- rýmst stjórnsýslulögum, enda hefði ekki nægt í þessu sambandi að óska upplýsinga um skráð lögheimili við- komandi. Ófullnægjandi skýringar Í áliti umboðsmanns kemur fram að afgreiðslutími úrskuðarnefndar félagsþjónustu í málum þess sem kvartaði hafi tekið annars vegar 14 mánuði og hins vegar 10 mánuði, en samkvæmt lögum beri nefndinni að kveða upp úrskurð innan 3 mánaða frá því henni berst mál til meðferðar. Taldi umboðsmaður að nefndin hefði ekki gefið fullnægjandi skýringar á þessum töfum á afgreiðslu málanna. Umboðs- maður finnur að úrskurði Mikil eftirspurn er eftirþjónustu Sjónarhóls –ráðgjafarmiðstöðvarfyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Miðstöðin tók til starfa 1. ágúst sl. og eru starfsmenn nú þrír. Að sögn Þorgerðar Ragn- arsdóttur, framkvæmdastjóra mið- stöðvarinnar, stefnir allt í að bætt verði við starfsfólki um áramót til að sinna eftirspurninni sem fyrir hendi er. Í tilefni þess að um þessar mundir er ár liðið frá landssöfnun sem fram fór undir yfirskriftinni „Fyrir sér- stök börn til betra lífs“ verður opið hús í Sjónarhóli – ráðgjafarmiðstöð á Háaleitisbraut 13 á morgun milli kl. 14 og 17, en þar gefst áhugasöm- um tækifæri til að skoða húsakynnin og kynna sér það starf sem í húsinu er unnið. Að sögn Þorgerðar stóðu félögin Umhyggja, félag til styrktar lang- veikum börnum, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og ADHD-samtökin fyrir sameiginlegri söfnun á sínum tíma með það að markmiði að koma upp sameiginlegri ráðgjafarmiðstöð. Þjóðin lét 60 milljónir af hendi rakna „Forsvarsmenn samtakanna fjög- urra höfðu verið að velta því fyrir sér, hver í sínu horni, að koma upp ráðgjafarþjónustu á sínum vegum til þess að sinna þeirri þörf sem menn skynjuðu að væri fyrir hendi og reyndar höfðu Landssamtökin Þroskahjálp verið með svona þjón- ustu í boði síðan árið 1995. Þegar forsprakkar félaganna fóru að tala saman og komust að því að þeir voru allir að hugsa á svipuðum nótum þá hugsuðu þeir með sér að kannski væri sniðugast að sameina kraft- ana,“ segir Þorgerður aðspurð um tilurð söfnunarinnar á sínum tíma og stofnun Sjónarhóls. Að sögn Þorgerðar skilaði lands- söfnunin eftirminnilegum árangri, en þjóðin lét 60 milljónir krónur af hendi rakna fyrir málstaðinn. „Þess- ir fjármunir gerðu okkur kleift að kaupa húsnæðið á Háaleitisbraut 13. Hvað starfsemina varðar þá er hún fólki að kostnaðarlausu, en rekstur Sjónarhóls er tryggður til þriggja ára með framlagi félagsmálaráðu- neytisins, sem er 15 milljónir króna á ári, og stuðningi bakhjarlanna sem er 9 milljónir króna á ári, en bak- hjarlarnir eru Landsbanki Íslands, Actavis, Össur, Kvenfélagið Hring- urinn og Pokasjóður.“ Samræming aðgerða barninu í hag Spurð um starfsemina segir Þor- gerður hana fyrst og fremst snúast um að styðja foreldra á fjölbreyttan hátt t.d. með viðtölum og með því að stuðla að samvinnu mismunandi þjónustuaðila. „Raunar má segja að við byggjum á þeirri reynslu og þekkingu sem Landssamtökin Þroskahjálp bjuggu að, en Hrefna Haraldsdóttir þroskaþjálfi, sem áð- ur vann hjá Landssamtökunum Þroskahjálp, er núna starfsmaður Sjónarhóls. Þannig má segja að byggt sé á hennar hugmyndafræði. Hrefna hefur þróað þá aðferð að hún kallar saman aðstandendur og alla þá sérfræðinga sem eru að vinna með einstökum börnum í því skyni að hópurinn geti sett sér sameig- inleg markmið og samræmt það sem þeir eru að gera þannig að það þjóni þörfum barnsins sem best,“ segir Þorgerður og nefnir sem dæmi að fyrir fimm ára þroskaheft barn með fjölþætt vandamál geti komið allt að tólf aðilar. „Þá erum við að tala um foreldrana, ömmu og afa, stuðnings- fjölskylduna, leikskólastuðnings- fulltrúann og leikskólastjórann, þroskaþjálfa, sjúkraþjálfara, lækni, ráðgjafa félagsþjónustu, ráðgjafa RÁS-deildarinnar hjá Leikskólum Reykjavíkur og einhverfuráðgjafa. Ef þetta fólk hittist aldrei þá er hættan sú að ekki verði um sam- ræmdar aðgerðir að ræða og þá verður veruleiki barnsins afar flók- inn.“ Fjölbreytt þjónusta á forsendum foreldranna Þorgerður leggur áherslu á að allt sé gert á forsendum foreldranna. „Það er ekkert gert nema í samráði við þá og við reynum þá að aðstoða þau eftir þeirra óskum. Meðal þess sem ráðgjafi getur gert er að mæta sem stuðningsfulltrúi með foreldri t.d. á fundum í skóla eða þeim stað öðrum þar sem ræða þarf um þarfir eða aðstæður barnsins, enda mikill styrkur í því að þurfa ekki að mæta einn á fundi til að tala máli barnsins síns.“ Þorgerður leggur áhersla á að auk Sjónarhóls sé fjölbreytt þjónusta fyrir hendi í húsinu. „Í fyrsta lagi má nefna að aðildarfélögin fjögur sem stóðu fyrir söfnuninni eru núna loks komin undir sama þak, sem styttir og auðveldar allar boðleiðir. Sumir eru í fleiru en einu félagi, enda er ekki alltaf ljóst hvar hagsmunum viðkomandi er best borgið. Þetta fólk þurfti áður að fara á marga staði til að sækja þjónstuna, en núna er allt á einum stað. Nýlega var skrifað undir leigu- samning við CP-félagið, umsjón- arfélag einhverfra, og Félag áhuga- fólks um downs-heilkenni sem munu deila hér vinnuaðstöðu. Auk þess starfar Átak, félag fólks með þroska- hamlanir í sama húsi, þannig að það má segja að langflest félög sem sinna börnum með sérþarfir séu komin hérna undir sama þak, sem er auðvitað mikill kostur. Síðan má nefna að Tölvumiðstöð fatlaðra er staðsett hér í húsinu, en hún annast ráðgjöf, námskeið og upplýsinga- miðlun varðandi ýmiss konar sér- útbúnað á tölvur fyrir fatlaða,“ segir Þorgerður og nefnir að einnig séu háskólanemar með rannsókn- araðstöðu í húsinu. „Nýlega var skrifað undir samn- ing við Verslunarráð Íslands og Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Íslands um rannsóknaraðstöðu fyrir fram- haldsnema sem eru að vinna að rannsóknum sem á einhvern hátt þjóna þessum hópi, en aðkoma þeirra hér auðgar vissulega starf- semina í húsinu,“ segir hún. Nýtt húsnæði Sjónarhóls verður opnað almenningi á morgun Sameinum krafta okkar Morgunblaðið/ÞÖK Starfsfólk Sjónarhóls hefur næg verkefni en eftirspurn eftir þjónustunni er mikil og vaxandi. Starfsemin snýst fyrst og fremst um að styðja foreldra á fjölbreyttan hátt, t.d. með viðtölum og með því að stuðla að samvinnu mismunandi þjónustuaðila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.