Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞORBJÖRN Hlynur Árnason, prófastur á Borg
á Mýrum, hitti Yasser Arafat í höfuðstöðvum
hans í Ramallah fyrir rúmum tveimur árum en
Arafat var borinn þar til grafar í gær. Þorbjörn
átti á þessum tíma sæti í stjórn Lúterska heims-
sambandsins og var í hópi tólf stjórnarmanna
sem fóru til Palestínu til að kynna sér ástandið
þar í júní 2002.
„Aðkoman var svolítið sérkennileg því daginn
áður höfðu ísraelskar vígvélar hamast á höfuð-
stöðvum Arafats,“ segir Þorbjörn en aðgerðir
Ísraela voru svar við sjálfsmorðsárás sem gerð
hafði verið í Norður-Ísrael.
„Það var eiginlega allt ónýtt sem ónýtt gat
verið. Hliðarbyggingar voru í tætlum, allir bílar
gjörónýtir og það stórsá raunar á byggingunni
sem Arafat sjálfur bjó í. Það kom til tals að fresta
fundinum út af þessu ástandi en Arafat tók það
ekki í mál og við fórum því og áttum með honum
klukkustundarlangan fund.“
Þorbjörn segir Arafat hafa verið veiklulegan.
Honum hafi þó vaxið ásmeg-
in þegar leið á fundinn. „Við
ræddum málin og hann full-
yrti að ástandið í Palestínu
væri einsdæmi. Þetta væri
vegna þess að þó að víða um
heim væru „gleymd stríð“
þá gerðist allt í Palestínu
fyrir augum umheimsins;
sem aðhefðist þó ekkert.
Arafat sagði að þetta væri
púðurtunnan sem kveikja
myndi mikið bál ef ekkert væri að gert.“
Arafat merkur leiðtogi
Þorbjörn er spurður að því hvaða tilfinningar
bærist með honum, nú þegar Arafat er horfinn
af sviðinu. „Þetta svæði stendur mér afar nærri
og hlutskipti palestínsku þjóðarinnar líka,“ segir
hann. „Eftir að hafa farið þarna um og kynnt
mér aðstæður fólksins þá getur maður ekki ann-
að sagt en að þarna sé þjóðarmorð í gangi. Þetta
er deyjandi þjóð og flýjandi þjóð sem við sjáum
best af því hvað hefur fækkað mikið í kristnu
kirkjunum meðal Palestínumanna. Það er vegna
þess að hinir kristnu hafa yfirleitt betri stöðu í
samfélaginu, þeir hafa búið við betri efni og verið
betur menntaðir þannig að þeir eiga auðveldara
með að koma sér í burtu, fá landvist í Evrópu eða
í Bandaríkjunum. Það má segja að hver sem bet-
ur geti sé að forða sér. Eftir sitja hinir örsnauðu
sem eiga engin úrræði.
Þetta er mér ofarlega í huga á þessum tíma-
punkti og kannski einfaldlega reiði yfir því sem
alþjóðasamfélagið leyfir Ísraelum að komast
upp með í skjóli Bandaríkjanna.“ Þorbjörn
kveðst þeirrar skoðunar að Arafat hafi verið
merkur leiðtogi. „Ég held að Arafat hafi unnið
mjög merkt leiðtogastarf fyrir palestínsku þjóð-
ina þó að hann hafi vitaskuld verið umdeildur,
líka meðal síns fólks, sérstaklega undir það síð-
asta,“ sagði hann.
„Deyjandi þjóð og flýjandi þjóð“
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason hitti Yasser Arafat í Ramallah árið 2002
Þorbjörn Hlynur
Árnason
SUHA, hin umdeilda eiginkona Yassers
Arafats, og Zahra, dóttir þeirra, voru við
athöfnina í Kaíró í gær. Voru þær mjög
harmþrungnar en Suha fylgdi þó ekki eig-
inmanni sínum síðasta spölinn til Ramallah.
Varð hún eftir í Kaíró þar sem hún tók við
samúðarkveðjum víðs vegar að. Suha, sem
var meira en helmingi yngri en maður sinn,
hefur lengst af búið í Frakklandi.
AP
Syrgjandi
mæðgur
YASSER Arafat var lagður til
hinstu hvílu í höfuðstöðvum hans í
bænum Ramallah á Vesturbakk-
anum um miðjan dag í gær. Fyrr um
daginn hafði formleg útför Arafats
farið fram í Kaíró í Egyptalandi að
viðstöddum fulltrúum frá um sextíu
ríkjum. Stóð athöfnin í tæpar tvær
klukkustundir og þótti hófstillt en
annað var uppi á teningunum í Ram-
allah, þar biðu tugþúsundir Palest-
ínumanna þess að fylgja forseta sín-
um síðasta spölinn.
Aðgangur að Muqataa, höf-
uðstöðvum Arafats í Ramallah, var
takmarkaður en að minnsta kosti tíu
þúsund Palestínumenn ruddu sér
leið inn í höfuðstöðvarnar til að
fylgjast með greftruninni, auk þess
sem mörg þúsund manns til viðbótar
tóku sér stöðu utan byggingar-
múranna. Hóf mannfjöldinn að fara
með bænir ásamt palestínskum
stjórnmálaleiðtogum þegar greftr-
uninni var lokið.
Gífurlegur tilfinningahiti var
greinilegur meðal fólks og ljóst að
þungur harmur er að palestínsku
þjóðinni kveðinn við fráfall Arafats,
sem lést á hersjúkrahúsi í París í
Frakklandi aðfaranótt fimmtudags.
Öngþveiti í Ramallah
Kista Arafats var látin síga niður í
gröf í höfuðstöðvum hans í Ramallah
sem sett var marmara og höggnum
steinum. Hafði hópur fólks varið að-
faranótt föstudags til að undirbúa
gröf Arafats, sem tekin var í trjá-
lundi skammt frá rústum húsa sem
tilheyrðu höfuðstöðvum Arafats, en
sem Ísraelsher hefur eyðilagt.
Mold sem tekin var við Al-Aqsa
moskuna í Jerúsalem var mokað yfir
kistu Arafats en Palestínumenn
vona að einhvern tímann verði hægt
að grafa Arafats í Jerúsalem í sam-
ræmi við óskir hans sjálfs.
Þá var svart-hvíti höfuðklúturinn
sem Arafat jafnan bar einnig lagður
ofan á gröf hans. Lesið var úr kór-
aninum og sjá mátti lífverði hins
látna leiðtoga syrgja, grétu þeir og
féllust í faðma.
Mikið öngþveiti hafði skapast í
Ramallah þegar þyrla kom með
kistuna með líki Arafats frá Egypta-
landi um hádegisbilið í gær. Þús-
undir Palestínumanna biðu komu
þyrlunnar í ofvæni og þegar hún
hafði lent hópaðist mannfjöldinn að
henni. „Velkominn, velkominn, Abu
Ammar [Arafat],“ söng fólkið, „vel-
kominn, velkominn gamli maður“.
Um 25 mínútur liðu áður en hægt
var að bera kistu Arafats út úr þyrl-
unni og þurftu öryggislögreglumenn
að skjóta af byssum sínum upp í loft-
ið til að reyna að dreifa mannfjöld-
anum. Það dugði þó ekki til og var þá
notaður lögreglujeppi til að ryðja
svæði við þyrluna.
Kistan með líki Arafats var um
síðir borin út úr þyrlunni og gegnum
garðinn utan við Muqataa-
byggingarnar svokölluðu en þar var
Arafat í eins konar stofufangelsi síð-
ustu þrjú ár ævi sinnar.
Hundruð Palestínumanna hóp-
uðust kringum kistuna, sem vafin
var í fána Palestínu, þegar hún var
borin yfir í Muqataa og voru þeir
ekki að fela harm sinn, grétu sumir
sáran, aðrir skutu af byssum upp í
loftið og enn aðrir hrópuðu minning-
arorð um Arafat. Fólkið hrópaði:
„Með sálu okkar, með blóði okkar,
munum við styðja þig, Abu Ammar.“
„Arafat forseti hefði viljað hafa
þetta svona, hann hefði viljað sjá
fólk tjá tilfinningar sínar, sýna
stuðning sinn við hann, sársauka
sinn, sorg og ástúð,“ sagði þingkon-
an Hanan Ashrawi við AP-frétta-
stofuna. „Fólkið gerði tilkall til for-
ingja síns. Það vildi kveðja hann úr
eins mikilli nálægð og hægt var.“
Þúsundir Palestínumanna
fylgdu Arafat til grafar
AP
Fólkið þyrptist um kistu Arafats eftir að hún var borin út úr þyrlunni, sem flutti hana til Ramallah. Gerðu öryggisverðir sitt besta til að verja hana.
Ramallah, Kaíró. AFP, AP.
AP
Palestínskir hermenn syrgja við gröf Arafats í gær. Sjá má svarthvítan höfuðklút Arafats ofan á gröfinni.