Morgunblaðið - 13.11.2004, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 21
ERLENT
Safnkortshafar Esso greiða aðeins kr. 3.400 í
sæti og kr. 1.900 í stæði (Auk 2000 safnkortspunkta)
VISA korthafar fá
20 % afslátt af miðaverði.
Eltust við
kínverskan
kafbát
Vaxandi úlfúð milli
Japana og Kínverja
Tókýó. AFP.
JAPANSKA stjórnin krafðist þess í
gær, að Kínastjórn bæðist afsökunar
á því að hafa sent kafbát inn fyrir
japanska lögsögu, inn á svæði, sem
er mjög gasauðugt og ríkin hafa deilt
um.
Kafbáturinn kom inn í japanska
lögsögu um 300 km suðvestur af Ok-
inawa og sendu Japanir þá á vett-
vang tvo tundurspilla og eftirlitsflug-
vél. Fylgdist hún með ferðum
kafbátsins með því að kasta hlust-
unarduflum í sjóinn. Stóð eftirförin
yfir í tvo sólarhringa.
„Við mótmælum þessu framferði
harðlega og krefjumst þess, að kín-
verska stjórnin biðjist afsökunar,“
sagði Nobutaka Machimura, utan-
ríkisráðherra Japans, eftir fund með
næstæðsta manni kínverska sendi-
ráðsins í Tókýó. Þegar síðast fréttist
höfðu Kínverjar þó ekkert um málið
sagt.
Samskipti Kína og Japans hafa
versnað mjög að undanförnu af ýms-
um ástæðum. Bæði eru ríkin mjög
háð innflutningi á eldsneyti og líta
Kínverjar hýru auga til gassvæðisins
fyrrnefnda þótt það sé innan jap-
anskrar lögsögu. 1999 var áætlað, að
það hefði að geyma 200 milljarða
rúmmetra af gasi.
Leyniskýrsla um
kínverska árás
Fyrir nokkru lak út skýrsla frá
japanska varnarmálaráðuneytinu
þar sem sett eru upp þrjú hugsanleg
tilfelli um árás Kínverja á Japan og
eiga þau öll við um árás á Okinawa
þar sem gassvæðið umdeilda er. Hef-
ur skýrslan kynt enn undir úlfúðinni
auk þess sem Kínverjar minnast enn
framferðis Japana á stríðsárunum.
Í fyrradag lagði japönsk þing-
nefnd til, að Japanir skæru verulega
niður þróunaraðstoð við Kína og
nefndi sem ástæðu efnahagslegan
uppgang í Kína og vaxandi fjandskap
milli ríkjanna. Til þessa hafa Japanir
lagt Kínverjum til nærri 2.200 millj-
arða ísl. kr.
Kúrdar
handteknir
Liempde. AFP.
HOLLENSKA lögreglan handtók í
gær 29 manns er hún réðst inn í hús-
næði, sem er talið hafa verið æfinga-
búðir fyrir kúrdíska skæruliða.
Kúrdarnir, sem voru handteknir,
eru félagar í PKK, Kúrdíska verka-
mannaflokknum, en hann hefur lengi
háð blóðuga baráttu fyrir sjálfstjórn
Kúrda í Austur- og Suðaustur-Tyrk-
landi. Ekki er talið, að eiginleg her-
þjálfun hafi farið fram í búðunum,
sem eru í Suður-Hollandi, heldur
fyrst og fremst „hugmyndafræðileg“
þjálfun. Eru handtökurnar ekki tald-
ar tengjast aðgerðum hollensku lög-
reglunnar að undanförnu gegn grun-
uðum hryðjuverkamönnum.
♦♦♦
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111