Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 24

Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 24
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Undanfarin ár hefur nýbúum fjölgað mjög í sveitarfélaginu. Mörgum finnst sem þessu fólki gangi erfiðlega að samlagast samfélag- inu enda margir komnir án fjölskyldu sinn- ar, eingöngu til að afla fjár og senda til heimalandsins. Þegar fólk þetta hefur svo verið hér árum saman áttar það sig á því að sennilega þurfi það að gera það upp við sig hvar það ætli að eyða ævinni og þá komast margir að þeirri niðurstöðu að réttast sé að setjast að á Íslandi enda hefur fátt breyst í heimalandinu sem gefur tilefni til heim- ferðar. Og niðurstaðan er að á Íslandi séu góð búsetuskilyrði, næg atvinna, tækifæri til að eignast eigið húsnæði og góðir skólar sem stundum starfa a.m.k. Mjög margir úr þess- um hópi hafa nú fest kaup á húsnæði á Hvolsvelli og fengið fjölskylduna til sín. Nú er svo komið að í flestum húsunum í einni elstu götunni í þorpinu, Hvolsvegi, búa nýir Íslendingar sem ættir sína eiga að rekja til Chile, Póllands, Portúgals og ef til vill fleiri landa. Það væri því hægt að tala um Kínatán á Hvolsvelli ef einhverjir væru Kínverjarnir. En að öllu gríni slepptu þá á þetta fólk sinn stóra þátt í því að hér er heilmikil uppbygg- ing og íbúðarhúsnæði rís uppúr móanum sem aldrei fyrr.    Héraðsbókasafnið á Hvolsvelli hefur stað- ið fyrir nýstárlegu námi í íslensku fyrir ný- búa. Það byggist að mestu á sjálfboðavinnu og er fólki boðið að koma á bókasafnið eitt kvöld í viku, horfa á íslenskukennslu af myndbandi og tala íslensku. Þá kemur ótrú- lega margt skemmtilegt upp á því málið á sér svo marga fleti og allir sem kunna ís- lensku á annað borð geta kennt. Um daginn komu t.d. nokkrir unglingar og fannst þeim frábært að gerast kennarar eina kvöldstund og töluðu þau um að þau hefðu aldrei fyrr upplifað hvað þau kynnu mikið í íslensku. Allir sem vilja geta komið á bókasafnið á fimmtudagskvöldum og lagt þessu lið. Sann- arlega góð hugmynd.    Vegamál hafa verið mikið til umræðu und- anfarið enda margir og langir tengivegir hér um slóðir og lítið um fé til vegagerðar. Það tók þó steininn úr þegar þingmönnum Suð- urlands datt í hug að taka 60 milljónir til rannsókna á jarðlögum vegna Vest- mannaeyjaganga sem fara áttu í svokallaðan Bakkaveg, leiðina niður á Bakkaflugvöll. Sveitarstjórn Rangárþings eystra mótmælti hástöfum sem og íbúarnir og sem hugsa nú Vestmanneyingum þegjandi þörfina. . Úr bæjarlífinu HVOLSVÖLLUR EFTIR STEINUNNI ÓSK KOLBEINSDÓTTUR FRÉTTARITARA Bæjarstjórn Ólafs-fjarðar harmarályktun kjördæm- isþings framsókn- armanna í Norðvest- urkjördæmi, haldið í Borganesi um nýliðna helgi, þar sem kveðið er á um frestun jarðganga um Héðinsfjörð til Siglu- fjarðar. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Ólafsfjarðar í vikunni. „Bæjarstjórn Ólafs- fjarðar hvetur framsókn- armenn í Norðvest- urkjördæmi, sem og aðra þá er kunna að vera í vafa um gildi þessarar framkvæmdar, til að kynna sér samfélagslegt gildi jarðganga fyrir byggðarlögin við ut- anverðan Eyjafjörð, sem og Eyjafjörð allan,“ seg- ir í ályktun bæjar- stjórnar. Gildi ganga Forsvarsmenn Lionsklúbbsins Hængs afhentu ádögunum fjárstyrki úr verkefnasjóði klúbbsinstil þriggja aðila á Akureyri. Það voru Ferða- félagið Rjúkandi, sem starfar innan Lautarinnar, at- hvarfs fyrir geðfatlaða, afþreyingarsjóður Sambýlisins í Bakkahlíð, þar sem Alzheimer-sjúklingar dvelja og Hetjurnar, Félag foreldra langveikra barna, sem fengu styrki að þessu sinni. Páll Jónsson t.v. og Ranveig Tausen tók við styrk Lautarinnar, þá er Árni V. Friðriksson formaður Lionsklúbbsins Hængs, Tryggvi Tryggvason gjaldkeri, Íris Björk Árnadóttir og Ingibjörg Gylfadóttir frá Hetj- unum og Sigrún Gestsdóttir frá Sambýlinu í Bakkahlíð. Helsta tekjulind verkefnasjóðs Lionsklúbbsins Hængs er útgáfa auglýsingablaðsins Leó, sem komið hefur út í byrjun desember sl. 30 ár. Morgunblaðið/Kristján Hængur afhenti styrki Óttar Einarssonsendi einhverjusinni Guðmundi Sæmundssyni vísu á jóla- korti en hann sá þá um þáttinn „Daglegt mál“: Hlustenda vænsta von, vitur og göfug sál: Guðmundur Sæmundsson sem er með „Daglegt mál“. Eitthvað er farið að ganga á afturfótunum hjá Óttari ef marka má nýrri vísu sem hann orti: Öllum hlutum aftur fer, allt er lífið brekka: Búið er að banna mér bæði að reykja og drekka. Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit orti: Svolitla ég samúð finn sárt var á að hlýða. En færðu ekki, Óttar minn, æ, þú veist að ... borða pizzu? Sigrún Haraldsdóttir var á rölti við Laugaveginn: Laugaveginn lágreist geng ljótt er allt og hvítt. Nú er ég í kulda keng komin uppá nýtt. Lífsins brekka pebl@mbl.is Eyjafjörður | Það styttist í að ný brú yfir Hörgá á Ólafsfjarðarvegi verði tekin í notkun en í vikunni lauk steypuvinnu verksins, er þekjan var steypt. Við brúna verður byggður 700 metra langur veg- ur, sem tengist núverandi vegi. Nýja brúin er eftirspennt tveggja akreina bita- brú, 38 metra löng og með sjö metra háum stöpl- um. Hún leysir af hólmi gamla einbreiða brú sem liggur yfir ána rúmlega 100 metrum neðar. Nýja brúin verður mikil samgöngubót, enda er aðkom- an að gömlu brúnni slæm og krappar beygjur beggja vegna hennar. Morgunblaðið/Kristján Styttist í nýja brú yfir Hörgá Samgöngur Sauðárkrókur | Landsflug hefur ákveðið að hefja að nýju áætlunarflug milli Reykjavíkur og Sauðárkróks um næstu mánaðamót. Áætlun liggur ekki fyrir en væntanlega verður flogið sex sinnum í viku. Þegar Landsflug tók yfir innanlands- flug Íslandsflugs, 1. október síðastliðinn, var flugi hætt til Sauðárkróks en það flug þjónar einnig Siglfirðingum þar sem skipulagðar voru rútuferðir milli Alex- andersflugvallar á Sauðárkróki og Siglu- fjarðar í tengslum við flugið. Þá kom fram að ekki væru nógu margir farþegar á leiðinni. Guðlaugur Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landsflugs, segir að nú sé fyrirhugað að gera markaðsátak í sam- vinnu við bæjarfélögin og áætlunarflugið hafið í trausti þess að það leiði til fjölg- unar farþega. „Það er okkur til mikillar gleði að geta gert þetta fyrir íbúana, ekki síst Siglfirðinga sem þurfa á þess- ari þjónustu að halda,“ segir Guðlaugur. Keypt verður ný flugvél, nítján sæta Dornier vél, til að þjóna á þessari leið. Áætlun liggur ekki fyrir en Guðlaugur býst við að flogið verði kvölds og morgna á þriðjudögum og fimmtudögum og eitt flug á föstudögum og sunnudög- um. Þá eru áform uppi um að nýta vélina til að auka þjónustuna við Vestmanna- eyjar, með því að bætt verði við ferð á föstudögum og sunnudögum. Flug hefst að nýju til Sauðárkróks Suðurnes | Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur ákveðið að kjósa nefnd til að fara yfir núverandi stöðu sam- starfs sveitarfélaganna á svæðinu. Tillaga þessa efnis var lögð fram af fulltrúum Grindavíkur, Sandgerðis, Garðs og Vatnsleysustrandarhrepps. Fram kem- ur að tilefnið er skýrsla sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar lét vinna en þar er lagt til að tekin verði upp umræða um að leggja SSS niður í núverandi mynd. Þá var samþykkt tillaga Reykjanesbæj- ar um að gerð verði athugun á kostum þess að breyta Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Kölku, í hlutafélag og framkvæmdastjóra sambandsins falið að koma verkinu af stað. Nefnd fer yfir samstarf sveit- arfélaganna ♦♦♦ Skagaströnd | Skammdegishátíð er andstæða sólrisuhátíðanna sem haldnar eru víða um land þegar sólin fer að sjást aftur á útmán- uðum. Skammdegishátíðin sem haldin var í leikskólanum Barna- bóli á Skagaströnd er aftur á móti haldin til að fagna myrkrinu og þeim skemmtilega tíma sem fram undan er og nær hámarki um jólin. Skammdegishátíðin hófst í há- deginu með því að öllum for- eldrum var boðið í súpu og brauð með börnunum sínum á leikskól- anum. Klukkan fimm, þegar dimmt var orðið, fóru börnin í skrúðgöngu frá leikskólanum sín- um með kertaluktirnar sem þau höfðu búið til yfir að Sæborg, sem er dvalarheimili fyrir aldr- aða. Þar fóru börnin inn og sungu nokkur lög fyrir eldri borgarana sem þar búa. Að söngnum loknum gengu síðan all- ir fylktu liði í Barnaból aftur og borðuðu kakó og vöfflur. Þegar einn þriggja ára var spurður af hverju haldin væri skammdegishátíð var svarið: „Af því að þegar myrkrið er komið sér maður ljósin svo vel.“ Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Skammdegishátíð hjá börnunum í Barnabóli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.