Morgunblaðið - 13.11.2004, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 27
MINNSTAÐUR
Hvammstangi | Grænalaut er nafnið
á söfnunarsvæði Húnaþings vestra en
þar fer fram öll urðun, söfnun, endur-
vinnsla og geymsla á stærri hlutum
frá fyrirtækjum og einstaklingum í
héraðinu.
Söfnunarsvæðið Grænalaut er
rúmlega þrír hektarar á stærð og
staðsett á Vatnsnesi, um þrjá kíló-
metra norðan Hvammstanga. Til-
koma Grænulautar er forsenda fyrir
góðu skipulagi í umhverfismálum
sveitarfélagsins og nýverið fékk
svæðið starfsleyfi sem gildir til 2017.
Að sögn Arnars Birgis Ólafssonar,
umhverfis- og garðyrkjustjóra Húna-
þings vestra, er hér um að ræða mikið
hagsmunamál fyrir íbúa sveitarfé-
lagsins, enda sparast gífurlegir fjár-
munir og eldsneytisnotkun að þurfa
ekki að flytja þúsundir tonna af úr-
gangi úr sýslunni til annarra lands-
hluta. Grænalaut samrýmist jafn-
framt stefnumiðum Húnaþings
vestra um sjálfbæra þróun. Staða
héraðins í umhverfismálum og endur-
vinnslu er nú mjög góð og jafnast
fyllilega á við það besta sem gerist
annars staðar á landinu.
Stefna mörkuð til framtíðar
Arnar Birgir segir að árið 2002 hafi
tæknideild sveitarfélagsins staðið
frammi fyrir mörgum flóknum vanda-
málum í umhverfismálum sveitarfé-
lagsins. Ákveðið var að finna sameig-
inlegan flöt á lausn þeirra og marka
framtíðarstefnu. Hluti þeirrar stefnu
var að búa til eitt miðlægt svæði, þar
sem víðtæk umhverfistengd starf-
semi færi fram.
Framkvæmdir við Grænulaut hóf-
ust fyrir tveimur árum í kjölfar samn-
inga sem gerðir voru við landeigend-
ur Syðri-Kárastaða á Vatnsnesi en
um árabil hafði urðun á heimilis-, fyr-
irtækja- og sláturúrgangi farið þar
fram. Þá var timbur-, hjólbarða- og
brotajárnshaugum, sem voru á
Hvammstanga og Laugarbakka, lok-
að og svæðin hreinsuð í kjölfarið,
enda orðin þyrnir í augum íbúa.
Í kjölfarið var tekið í notkun 3.000
fermetra malarplan í Grænulaut og
móttaka hafin á þessum hráefnum,
timbri, hjólbörðum og brotajárni. Það
ár skilgreindi Úrvinnslusjóður
Grænulaut sem móttöku- og söfnun-
arsvæði sitt fyrir bifreiðar og hjól-
barða.
Nýverið var tekið í notkun
geymsluplan á afgirtu svæði í Grænu-
laut, þar sem íbúum gefst kostur á að
geyma verðmæti sín, s.s. gáma,
vinnutæki, bifreiðar og aðra hluti sem
erfitt er að finna geymslu fyrir. Arnar
Birgir segist stoltur af þessum ár-
angri, sem náðst hafi í löngu vinnu-
ferli.
Sorp úr Húnaþingi vestra urðað í Grænulaut á Vatnsnesi
Samrýmist stefnumiðun
um sjálfbæra þróun
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Umhverfi Arnar Birgir Ólafsson, umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings
vestra, er ánægður með að sorpförgunarmálin eru nú komin í höfn.
LANDIÐ
www.toyota.is
* Tilboð miðast við einka- eða rekstrarleigu fyrir milligöngu Glitnis.
Tilboð RAV4 frá 46.300 kr. á mán.*RAV4 2.0 5 gíra 5 dyra 46.300 kr. á mán. m/aukahlutapakka.RAV4 fylgja aukahlutirað andvirði 130.000 kr.
Tilboð Ókeypis 33” breytingÖllum Land Cruiser 90 jeppum meðbensínvél og fjögurra þrepa skiptingu fylgir ókeypis 33" breyting að verðmæti343.000 kr.
Tilboð
Corolla f
rá 29.900
kr. á má
n.*
Corolla h/
b 1.4 5dy
ra 29.900
kr. á mán.
Corolla s/d
1.4 4dyra
30.550 kr
. á mán.
Corolla w/
g 1.4 5dyr
a 31.400 k
r. á mán.
120.000
kr. afslát
tur af ka
upverði
Bestu kjör
á betri not
uðum bílum
Erum með h
eilmikið af To
yota betri no
tuðum
bílum. Þetta
eru allt frábæ
rir bílar sem
þú
getur eignas
t eða tekið á
einkaleigu fy
rir
milligöngu G
litnis
Allt í gangi alla helgina
100%
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Íbúðalán
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is