Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 28
Ölfus | Aðeins verður gert ráð fyrir
mislægum vegamótum á Þrengsla-
vegamótum Suðurlandsvegar í út-
boði á endurbótum vegarins sem
auglýst verður á næstunni. Þing-
menn Suðurkjördæmis eru reiðu-
búnir að fresta hluta Suðurstrand-
arvegar til að geta fjármagnað
þessa breytingu.
Fyrirhugaðar eru endurbætur
sex kílómetra kafla á Suðurlands-
vegi frá Litlu kaffistofunni að
Hveradalabrekku. Þar af eru þrír
kílómetrar sem byggðir eru frá
grunni. Vegagerðin hugðist hafa
stefnugreind vegamót á Þrengsla-
vegamótum en því var mótmælt af
bæjarstjórn Ölfuss, fleiri sveitar-
félögum og hagsmunaaðilum, og
þess krafist að sett yrðu mislæg
vegamót. Bæjarstjórn Ölfuss hefur
samþykkt að gefa út framkvæmda-
leyfi fyrir veginum í trausti þess að
Vegagerðin breytti um stefnu.
Margrét Frímannsdóttir, fyrsti
þingmaður Suðurkjördæmis, segir
að þingmannahópurinn hafi ákveðið
að láta bjóða út mislæg vegamót.
Endanleg kostnaðaráætlun liggur
ekki fyrir en samkvæmt upplýs-
ingum Jóns Rögnvaldssonar vega-
málastjóra gæti verkið í heild kost-
að um 400 milljónir. Býst hann við
að viðbótar kostnaður vegna mis-
lægra vegamóta í stað stefnumark-
andi geti orðið 60 til 70 milljónir,
miðað við reynsluna af slíkum vega-
mótum á Reykjanesbrautinni.
Spurð að því hvernig viðbótarkostn-
aður yrði fjármagnaður kveðst
Margrét vonast til að hægt verði að
fá viðbót við endurskoðun vega-
áætlunar. Annars verði að færa til
fjárveitingar innan kjördæmisins og
segir að þar sé einkum horft til
þess að fresta hluta af Suðurstrand-
arvegi, þó þannig að gengið verði
frá austasta hluta hans.
Þessir sex kílómetrar á Suður-
landsvegi verða þriggja akgreina,
með einni aukagrein til framúrakst-
urs, á svipaðan hátt og nú er í
Hveradalabrekkunni. Hringvegur-
inn styttist um tæpan kílómetra við
framkvæmdina, framúrakstur verð-
ur öruggari sem og vegamót og
hættulegir krappir bogar leggjast
af.
Þingmenn hyggjast fresta
framkvæmdum á Suðurströnd
Mislæg vegamót
á Þrengslavegi
Þrengslavegamót Suðurlandsvegur verður á brú yfir veginum til Þor-
lákshafnar, á svokölluðum Þrengslavegamótum, sem teikningin sýnir.
28 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Þetta var mögnuð upp-
lifun í dag og dásamlegt að verða
vitni að þessari almennu gleði með-
al starfsmanna og fólks almennt.
Og síðan það að vera með þessum
mikla fjölda við skóflustunguna
sem var sannkölluð fjöldasamkoma.
Þarna kom fram svo mikil gleði og
hughrif hjá öllum,“ sagði Hafsteinn
Þorvaldsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suður-
lands, en hann tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýbyggingu
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á
Selfossi á fimmtudag að viðstöddu
fjölmenni.
Í kjölfar skóflustungunnar var
svo undirritaður verksamningur við
JÁ-Verktaka ehf. á Selfossi, sem
áttu lægsta tilboð í verkið, tæplega
589 milljónir króna. Í hinni nýju
viðbyggingu verður 26 rúma hjúkr-
unardeild, húsnæði heilsugæsl-
unnar á Selfossi og aðstaða fyrir
iðju- og sjúkraþjálfun. Verklok
fyrsta áfanga eru áformuð í febr-
úar 2007. Nýbyggingin rís vestan
við núverandi sjúkrahúsbyggingu
og tengist henni. Hún verður tvær
hæðir og kjallari.
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra var viðstaddur skóflu-
stunguna og undirritaði verksamn-
ing af hálfu ríkisins. Hann sagði
þetta langþráða stund fyrir alla og
undirskriftin væri fyrsta skrefið að
glæsilegri framtíð Heilbrigðisstofn-
unar Suðurlands. Margrét Frí-
mannsdóttir, 1. þingmaður Suður-
kjördæmis, sagði gleðiefni að
verkið væri hafið og sama gerði
Einar Njálsson, bæjarstjóri Ár-
borgar.
Beðið eftir þessum degi
Hafsteinn Þorvaldsson þekkir vel
söguna og stemninguna í kringum
uppbyggingu sjúkrahúss og heilsu-
gæslu á Selfossi. Hann var þekktur
í sínu starfi fyrir að halda á lofti
merki heilbrigðisþjónustunnar.
Hann þekkti vel til á Suðurlandi og
náði að hrífa fólk með sér en það
hefur sýnt sig að heilbrigðismál er
sá málaflokkur sem Sunnlendingar
fylkja sér mjög um og Hafsteinn
þekkir vel þann hug. „Meðan ég
var framkvæmdastjóri var alltaf
einn liður sem fór fram úr áætl-
unum en það var gjafafé sem við
réðum sjálf hvernig var nýtt og svo
er enn. Við náðum að byggja upp
fæðingarstofu og tækjakost fyrir
starfsemi sjúkrahússins. Þannig
náðist að endurbyggja tæki og
skapa góða aðstöðu,“ sagði Haf-
steinn. Hann sagði gjafirnar sýna
velvilja fólks til stofnunarinnar frá
öllum Sunnlendingum. Kvenfélögin
hefðu alltaf sýnt mikinn áhuga á
starfseminni og verið með mikla
drift í kringum þessi mál og þannig
væri það enn.
„Ég gleymi því aldrei þegar við
tókum gömlu Ljósheimana í notk-
un. Það voru bókstaflega allir til-
búnir með gjafir og vinnuframlag.
Það var eins og áhugi og afl fólks-
ins fengi þarna farveg til útrásar.
Þessi mikla og góða stemning gerði
vart við sig í dag og það er alveg
ljóst að fólk hefur beðið eftir þess-
um degi. Ég hef tröllatrú á framtíð
þessarar stofnunar fyrir Sunnlend-
inga,“ sagði Hafsteinn Þorvaldsson
sem aðstoðaði við undirbúning at-
hafnarinnar á skóflustungudaginn
og fylkti liði með Hörpukórnum
sem söng.
Fyrsta skóflustungan markar upphaf framkvæmda við
nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi
Dásamlegt
að verða
vitni að
gleði fólks
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Framkvæmdir hafnar Hafsteinn Þorvaldsson stakk upp vænan kökk.
Stokkseyri | Jón Ingi Sigurmunds-
son myndlistarmaður heldur þessa
dagana sýningu í menningar-
verstöðinni Hólmaröst á Stokks-
eyri. Sýningin var opnuð í tengslum
við stórsamkomu þar sem farið var
yfir starf Jóns Inga sem kórstjóra.
Myndefnið sækir Jón Ingi í ná-
grenni sitt við ströndina og í skóg-
inn innar í landinu. Um er að ræða
vatnslita- og olíumyndir.
Sýnir í menning-
arverstöðinni
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Stjórn Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga vill að endur-
bætur á Suðurlandsvegi á milli Sel-
foss og Reykjavíkur verði settar í
forgang við endurskoðun vegaáætl-
unar fyrir næstu þrjú ár. Hefur
stjórnin kynnt þingmönnum kjör-
dæmisins þessi sjónarmið.
Aðalfundur SASS fer fram í Vest-
mannaeyjum nú um helgina. Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
ávarpar fundinn sem og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, auk fulltrúa
þingmanna.
Kynntar verða tillögur um eflingu
sveitarstjórnarstigsins og niðurstöð-
ur starfsnefnda, samgöngunefndar,
starfshóps um heilbrigðismál og til-
laga að sérdeild á Suðurlandi fyrir
börn með geð- og hegðunarraskanir.
Í skýrslu stjórnar sem verður lögð
fram á fundinum kemur fram að sam-
göngumál hafa verið fyrirferðarmikil
í starfsemi samtakanna.
Nefnd SASS um samgöngumál
leggur til að á næstu fjórum árum
verði gerður þriggja akreina vegur á
milli Selfoss og Reykjavíkur með mis-
lægum gatnamótum við Þrengslaveg.
Við þá uppbyggingu verði gert ráð
fyrir síðar verði hægt að fjölga ak-
greinum í fjórar. Við endurskoðun 12
ára samgönguáætlunar verði gert ráð
fyrir áframhaldandi vegbótum á leið-
inni; 4 akreinum, nýrri brú yfir Ölfusá
og lýsingu. Reynt verði að ná sem
breiðastri samstöðu um málið með
fyrirtækjum, áhugamönnum um sam-
göngubætur og Reykjavíkurborg.
Einnig er lögð áhersla á að aukið
verði fjármagn til samgöngumann-
virkja á Suðurlandi í samræmi við
umferðarþunga og lengd samgöngu-
kerfis í landshlutanum. Samgöngu-
nefnd SASS telur að þingmenn eigi
ekki að koma jafn mikið að ákvörð-
unum um einstakar samgöngufram-
kvæmdir eins og nú er.
Þriggja akreina
vegur um Hellis-
heiði í forgang