Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 32
32 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra
Julefrokost
Hótelgisting og julefrokost við allra
hæfi í nóv. og des.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
leyndarmál Evrópu á sviði ferðamála.
Það er að minnsta kosti ákaflega
áhugavert land heim að sækja.“
Við þetta má bæta að sjálf fékk
Elín Ósk afar jákvæðar viðtökur,
bæði frá gagnrýnendum og forsvars-
mönnum Fílharmoníunnar, sem buðu
henni að koma með tónleika hvenær
sem hún vildi. „Við erum búnir að
bíða í mörg ár eftir svona dramatískri
söngkonu,“ sögðu þeir. Að loknum
hátíðartónleikunum hélt Actavis
glæsilega veislu fyrir listafólkið í
Military Culture Club, sem er ný-
uppgerður glæsisalur í gömlum hefð-
arstíl frá dögum gömlu konungshirð-
arinnar.
Auk hátíðartónleikanna í Sofíu
söng Óperukór Hafnarfjarðar við
Þessi ferð verður eflaust öll-um þátttakendum ógleym-anleg. Bæði er Búlgaríagott land heim að sækja og
móttökur þarlendra óviðjafnanlegar.
Það er alltaf dálítið erfitt og kjánalegt
að hæla sjálfum sér, en ég verð samt
að játa að ég hef sjaldan eða aldrei
upplifað aðra eins stemningu á tón-
leikunum og við urðum vitni að í Sof-
íu. Bravóhrópunum og fagnaðarlát-
unum ætlaði aldrei að linna, og bæði
ég, sem einsöngvari, og kórfélagar
þurftum að gefa eiginhandarritanir
til hægri og vinstri að loknum tónleik-
unum,“ sagði Elín Ósk Óskarsdóttir,
óperusöngkona og stjórnandi Óperu-
kórs Hafnarfjarðar, sem dvaldi
ásamt kórnum og fleiri ferðafélögum
í Búlgaríu dagana 14. til 20. október
síðastliðinn.
Íslensk menningarhátíð
Búlgaríuferðin var farin í tengslum
við íslenska menningardaga, Iceart,
sem Actavis og Landsbankinn efndu
til í Búlgaríu og voru tónleikar Elínar
Óskar og Óperukórs Hafnarfjarðar
liður í þeirri hátíð. Ennfremur má
geta þess að í tengslum við íslensku
menningarhátíðina í Búlgaríu var
sett upp málverkasýning með verk-
um Eiríks Smith listmálara sem hlaut
góðar viðtökur og var vel sótt.
Hátíðartónleikarnir voru haldnir í
Tónleikahúsi Fílharmóníuhljóm-
sveitar Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu,
fyrir fullu húsi sem tekur 1200 manns
og komust færri að en vildu. Fílharm-
óníuhljómsveitin í Sofíu lék undir
söng Elínar Óskar og kórsins, en
hljómsveitarstjóri var Bernharður
Wilkinsson.
Elín sagði að viðtökur hefðu verið
slíkar að þeim hefði verið boðið að
koma aftur, að minnsta kosti annað
hvert ár. „Það er ekki á hverjum degi
sem slíkt gerist í landi með svo rót-
gróna menningarhefð sem Búlgaría
hefur. Þeir sögðu við okkur að við
værum best geymda leyndarmál
Evrópu á tónlistarsviðinu. Og
kannski má líka til sanns vegar færa
að Búlgaría sé eitt best geymda
opnun íslensku menningarhátíð-
arinnar í Búlgaríu og einnig lögðu
kórfélagar land undir fót og héldu
tónleika í næststærstu borg Búlg-
aríu, Plovdiv, ásamt 14 manna ís-
lenskum karlakór, Raddbandafélagi
Reykjavíkur, undir stjórn Sigrúnar
Grendal.
„Á þessum tónleikum vorum við
með aðalundirleikara Óperukórs
Hafnarfjarðar, píanóleikarann Peter
Máté, og þarna kynntum við íslenska
tónlist, allt frá gömlum þjóðlögum til
tónlistar dagsins í dag og skörtuðum
íslenskum þjóðbúningum, þar á með-
al upphlutum og peysufötum allt frá
18. öld, og sjálf stjórnaði ég í fjall-
konukyrtli.
Elín sagði að á ferðalaginu til
Plovdiv hefði kórfélögum gefist gott
tækifæri til að kynnast fögru lands-
lagi og náttúrufari Búlgaríu.
„Við gáfum okkur líka tíma til að
skoða okkur um í borginni og var sér-
staklega gaman að fara í gamla borg-
arhlutann sem nýtur nú verndar. Á
hæðinni í gömlu borginni eru róm-
verskar minjar og þar er til dæmis
hringleikahús frá 2. öld eftir Krist
sem enn er notað til flutnings leik-
verka.“
Elín Ósk sagði ennfremur að ferða-
félögum hefði gefist kostur á að skoða
Rilaklaustrið, í grennd við borgina
Dubnitza, um 60 km suðvestur af Sof-
íu. Klaustrið er kennt við dýrlinginn
Ivan Rilski, sem uppi var á 9. öld, og
er einstakt vegna stærðar sinnar og
BÚLGARÍA | Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona söng á
íslenskri menningarhátíð ásamt Óperukór Hafnarfjarðar
Best geymda
leyndarmál Evrópu
Íslenskar sönggyðjur á þjóðlegum nótum, frá vinstri: Anna Margrét Kalda-
lóns, Margrét Grétarsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Svana Berglind Karls-
dóttir og Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir.
„Búlgaría er áhugavert
land heim að sækja,“
segir Elín Ósk Ósk-
arsdóttir.
Forvitnilegt: Rómverskt hringleikahús frá 2. öld eftir Krist. Óperukór Hafnarfjarðar: Ásamt Elínu Ósk stjórnanda og píanóleikaranum
Peter Máté á tónleikum í Búlgaríu.
Hvers vegna fórstu til Flórída?
Ég þurfti að fara til Gainesville
til að hitta Hörð G. Kristinsson,
prófessor í háskólanum þar. Ég er í
doktorsnámi og hann er einn af
leiðbeinendum mínum. Ég ákvað
því að skreppa til Gainesville til að
vinna við rannsóknir vegna námsins
og ætlaði auðvitað að ná
mér í smá brúnku í leið-
inni.
Tókst þér það?
Nei. Ég vissi að ég
þyrfti að vinna mikið, en
ætlaði mér að hafa eina
lausa helgi og liggja í
sólbaði og gera ýmislegt
skemmtilegt. En strax
og ég lenti á flugvell-
inum sá ég skilti þar
sem verið var að afsaka
það að viðgerðir stæðu
yfir eftir síðasta fellibyl.
Í háskólanum voru allir
nemendur með opnar
tölvur þar sem birtar
voru spár yfir hvar
næsti fellibylur kæmi yf-
ir. Lengst af benti allt til
þess að hann kæmi yfir
Gainesville, en leiðin
breyttist sem betur fer.
Fólki sem bjó við
ströndina var skipað að yfirgefa
heimili sín og hraðbrautin sem ligg-
ur um Flórída liggur ein-
mitt yfir Gainesville og
mér fannst svolítið eins
og allir væru að flýja en
við yrðum skilin eftir.
Þennan föstudag var há-
skólanum lokað snemma
svo ég náði að liggja í sólbaði við
sundlaug í hverfinu sem ég bjó í um
tvo tíma. Fellibylurinn kom ekki yf-
ir svæðið en veðrið var nógu slæmt
til þess að nokkur tré rifnuðu upp
með rótum og eitt féll á hús og varð
það manni að bana. Annar lést á
hraðbrautinni eftir að hafa ekið of
hratt í bleytunni og misst stjórn á
bílnum. Greinar og könglar flugu
um allt og það varð rafmagnslaust í
tvo daga.
Fórstu þá ekkert út að borða?
Jú. Þennan föstudag komst ég út
að borða með tveimur íslenskum
konum og á ball á eftir. Við borð-
uðum á Harrýs seafood bar and
grill. Við fengum okkur auðvitað
fordrykkinn Hurricane fyrst. Þetta
er mjög góður suðrænn drykkur.
Síðan fékk ég blandaða sjávarrétti,
enda einstaklega góður skelfiskur á
svæðinu. Rækjurnar voru sérstak-
lega góðar. Á eftir fékk ég Key
Lime Pie, sem er ostakaka úr sér-
stökum og sætum lime-ávöxtum
sem ræktaðir eru á svæðinu. Áður
höfðu þau Hörður og Margrét, sem
ég gisti hjá, eldað handa mér dýr-
indis nautasteik, alveg einstaklega
góða.
Ætlarðu aftur til Gainesville?
Já. Ég þarf að fara aftur og ætla
örugglega að velja annan árstíma
svo ég geti skoðað það sem svæðið
hefur upp á að bjóða. Þarna er
margt spennandi að sjá. Gainesville
er á miðjum Flórídaskaganum og er
klukkustundar akstur á ströndina
hvort sem þú vilt fara að Atlants-
hafinu eða Mexíkóflóanum. Þetta er
notalegur háskólabær og mér
fannst ég vera í tryggu umhverfi.
Mér leið vel í 30 stiga hita og þó-
nokkrum raka. Í miðri
borginni er Lake Alice
þar sem hægt er að sjá
bæði krókódíla og
skjaldbökur. Krókódíl-
arnir létu þó ekki sjá sig
á meðan ég var þar. Svo
langar mig að komast í gamalt hús í
borginni þar sem leðurblökur halda
sig. Hægt er að fylgjast með þegar
þær fljúga út úr húsinu í flokkum.
Ég missti líka af leik í háskóladeild
ameríska fótboltans sem ég ætlaði
að sjá. Leikvangur þeirra kallast
Swamp, en lið háskólans heitir Gait-
ors. Fólki þykir mikil upplifun að
komast á leik þarna og ég á það
vonandi eftir. Annars kom Flórída
að mörgu leyti á óvart. Mér fannst
fallegra og grænna þar en ég bjóst
við.
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Hefði viljað sjá
leðurblökur
Margrét Geirsdóttir: Flórídafari.
Margrét Geirsdóttir vinnur hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. Hún dvaldi í Flórída í hálfan mánuð í
haust, einmitt þegar einn af fellibyljunum reið yfir.
Krókódílarnir
létu þó ekki
sjá sig á með-
an ég var þar.
www.hookedonharrys.com