Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 35 sé þúsund rðum: s, ei- Ís- ur og “ innan gsins sem íkingin gin úr on orti ssum lífð- ár sem nir og til ar og r. úr Verka- k Rabin. um ein- hugrekki ökku var mt. alda með n og hug- var skoð- annarra els sem agið sem u líka til á Óslóar- við mál- em litu á ýsingu er umenn í er hinn r. Haidar formaður manna í nda þótt m þá var sverð fyr- mættust eð því til- og stefna á grunni anna. er lagður r eins og áfram að úr munni að Arafat pið til of- er sú að ætti reynt um sveit- höfðað til onum var u að leið- íðustu ár- legðist á i til að fá r engum m Ísr- nn vang- pur, ekki m. nn mikill remur en ifa sigur er engum er Arafat , þolgæði sína svo og full- mun nást Arafats u þjóðinni em kynd- . rmaður a. L íklegt er að trygginga- félögum verði falinn stærri hluti og aukin þátttaka í íslenska velferðarkerfinu á næstu 10 árum og þá ekki hvað síst á sviði heilbrigðismála. Þetta sagði Ásgeir Baldurs fram- kvæmdastjóri VÍS, á ráðstefnu um forgangsröðun í heilbrigðis- kerfinu sem haldin var í Odd- fellowhúsinu á Akureyri í gær. Þar var fjallað um málið frá ýms- um hliðum og velt upp spurn- ingum eins og hvert forgangsröð- un leiði varðandi kostnað, réttindi sjúklinga og einkavæðingu. Fyrir henni stóðu Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Alls voru flutt 16 erindi á ráð- stefnunni, stjórnendur í heilbrigð- iskerfinu, fulltrúar stjórnmála- flokka, fulltrúar sjúklinga komu þeirra sjónarmiðum á framfæri og þá tóku þátt sérfræðingar á ýmsum sviðum sem standa utan heilbrigðiskerfisins. Fyrirsjáanlegt að auka þarf framlög til heilbrigðismála Í máli Ásgeirs kom fram að op- inber útgjöld til heilbrigðismála hefðu aukist um 22 milljarða á 5 ára tímabili, frá 1998 til 2002. Út- gjöldin vaxa stöðugt, m.a. vegna þess að öldruðum fjölgar, skatt- stofnar minnka, launakostnaður hækkar og tækjabúnaður sem og lyf eru dýrari en áður. Mikil þörf er fyrirsjáanleg á auknum fram- lögum til heilbrigðismála í fram- tíðinni. Þeim er m.a. mætt með aukinni kostnaðarþátttöku sjúk- linga. Þá væri fjárhagsvandi sjúkrahúsi ávallt í umræðunni og samningar við sérfræðilækna væru jafnan erfiðir vegna aukins kostnaðar. Að mati Ásgeir eru líkur á að þróunin verði í þá átt að kostnaður sjúklinga muni enn aukast. Hann nefndi að trygg- ingaframboð trygg- ingafélaganna tæki ekki á grunnþörfum í heilbrigðiskerfinu nú. Á öðrum Norðurlöndum væru tryggingafélög farin að bjóða upp á viðbótartryggingar við al- mannatryggingakerfið, þar sem m.a. er lögð áhersla á meiri og betri þjónustu við sjúklinga en al- mennt gerist, tryggingataki getur valið um einkasjúkrahús á öllum Norðurlöndunum, sjúklingum er veitt þjónusta sem flýtir fyrir bata þannig að fólk komist sem fyrst út á vinnumarkaðinn á ný, er veitt fjárhagsvernd vegna vinnutaps. Ásgeir sagði tækifæri fyrir hendi fyrir tryggingafélögin varð- andi heilbrigðisþjónustu, félögin og yfirvöld heilbrigðismála gætu tekið höndum saman og unnið saman að t.d. forvörnum, greiðari aðgangi að þjónustu og markaðs- setningu kerfisins í útlöndum svo eitthvað sé nefnt. „Vaxandi kostn- aði heilbrigðisþjónustunnar verð- ur velt yfir á þá sem nota þjón- ustuna,“ sagði Ásgeir um framtíðina, en þeir, notendurnir væru verst í stakk búnir til að bera kostnaðinn og fengju hann ekki endurgreiddan. „Ég er sann- færður um að á næstu 10 árum verður tryggingafélögunum falinn stærri hluti og aukin þátttaka í ís- lenska velferðarkerfinu, ekki hvað síst á sviði heilbrigðis- og trygg- ingamála.“ Alls hafa 19 markmið heil- brigðisáætlunar af 33 náðst Ingimar Einarsson, skrifstofu- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, greindi frá heilbrigðisáætlun sem í gildi er hér á landi til ársins 2010, en í henni er reglum um forgangsröðun skipt í þrjá meginhluta; sið- fræðilega þætti, áherslur heilbrigðis- þjónustunnar og skipu- lag og stefnumörkun. Til að tryggja fram- gang áætlunarinnar voru skilgreind 33 markmið og nú í lok árs 2004 er staðan sú að 19 þessara markmiða hefur verið náð eða verulega miðað að settu marki, í 13 tilvikum er um að ræða óbreytt ástand eða litlar breyt- ingar og loks er eitt dæmi „þess að við höfum fjarlægst sett mark- mið“ sagði Ingimar. Hann gerði ráð fyrir að öllum markmiðum áætlunarinnar yrði náð árið 2010, fyrir lok gildistíma hennar. Forgangsröðunin leggur áherslu á rétt sjúklinga, sam- ábyrgð þegnanna, sem jafnast að- gengi þeirra að þjónustu, forgang þeirra sem mest þurfa á þjónustu að halda, skýrar reglur um bið- lista, hagnýtingu upplýsinga- tækni, umbætur í skipulagsmál- um og að heilbrigðisþjónustan skuli að mestu kostuð af al- mannafé. Í máli Ingimars kom fram að sú vinna sem lögð var í gerð áætl- unarinnar og forgangsröðunina hefði ekki skilað sér út í hina póli- tísku umræðu um heilbrigðismál. Þess í stað snérist umræðan nú að mestu um hvers konar rekstr- arform væri heppilegast. For- gangsröðunin tæki alls enga af- stöðu til þess hvað væri best og heppilegast í þeim efnum. Gagn- rýni á heilbrigðisyfirvöld beindist einkum að fjárveitingum til ein- stakra stofnana og verkefna, en að mati Ingimars er þörf á meiri og skipulegri umræðum um við- fangsefni eins og forgangsröðun. Krefjast svara „Menn veigra sér við að taka á þeim spurningum, sem varpað er fram varðandi forgangsröðun. Ætlast er til þess að læknar og aðrar heilbrigðisstéttir svari þeim í kyrrþey eins og þær hafa gert fram að þessu og svo mjúklega að það snerti helst engan nema að tjaldabaki,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélags Íslands. Hann sagði lækna og hjúkr- unarfólk hafa krafist svara um hvernig fara eigi með takmarkaða fjármuni, en öllum reyndist erfitt að fóta sig við nýjar aðstæður, sagði Sigurbjörn og taldi að úr- lausnarefnið hlyti í ríkum mæli að vera siðferðilegs eðlis. Nefndi hann að stjórnvöld ættu tvo kosti til að auka við heilbrigðisþjón- ustuna; að íþyngja þegnunum með aukinni skattheimtu eða fá „nýja peninga“ inn í kerfið, fé sem þegnar legðu fram af fúsum vilja til að fá sömu þjónustu þeg- ar þeim hentar. Síðara tilvikið væri dæmi um einkavæðingu, þjónusta og fjármögnun væru ut- an við hlutskipti annarra þegna. Forgangsröðun sagði hann mundu leiða til aukinnar einka- væðingar í heilbrigðisþjónustunni. „Hvaða aðferðum sem beitt er þá mun forgangsröðun leiða til þeirrar niðurstöðu fyrir tiltekinn einstakling að úrræði sem eru til munu ekki bjóðast nema fyrir hans eigin fé eða tryggingar sem hann hefur tekið sér og greiddar eru úr hans eigin vasa eða þeirra sem hann semur við. Þetta er harkaleg niðurstaða en óhjá- kvæmileg í ljósi þess að úrræði nútíma læknisfræði eru komin langt fram úr því sem allsnægta- þjóðfélög Vesturlanda eru tilbúin að greiða fyrir þau.“ Leita þeirrar leiðar sem minnst ranglæti fylgir Kristján Kristjánsson heim- spekingur fjallaði um réttlæti og forgangsröðun út frá helstu kenn- ingum stjórnmálanna, m.a. jafn- aðarstefnu, frjálshyggju og frjáls- lyndisstefnu og komst að því engin réttlætiskenn- inganna væri ann- markalaus, né heldur þeir forgangskvarðar sem af henni leiddu. Hann lagði því til að menn hættu að leita að „réttlátu leiðinni“ í þessum efnum en einbeittu sér þess í stað að þeirri sem hefði minnst ranglæti í för með sér. Ef til vill væri heppilegt, þegar réttlætið gæfi engin einhlít svör, að huga að öðrum siðferðisgildum og nefndi hann hamingjuna í því sambandi. Í erindi Jónínu Bjartmarz, Framsóknarflokki, kom fram að einsýnt væri að forgangsverkefni væri að endurskipuleggja fjár- mögnun heilbrigðiskerfisins og taka upp aðrar leiðir sem hvetja til aukinnar hagræðingar, einnig þyrfti að fara fram mat á heild- arþörf þjónustunnar og ákveða þyrfti hvernig „við viljum raða eftir forgangi verkefnum sem við teljum nauðsynleg og eigi að greiðast fyrir úr sameiginlegum sjóðum.“ Hundruð geðsjúkra á biðlistum Sveinn Magnússon fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar nefndi í sínu erindi að geðsjúkdómar yllu meira vinnutapi og kostnaði en flestir aðrir sjúkdómar. Hann dró upp dökka mynd af stöðunni, m.a. að niðurskurður til geðheilbrigð- ismála væri 6% á ári. Hundruð geðsjúkra væru á biðlistum m.a. eftir íbúðum eða liðveislu, um 60 geðsjúkir væru án búsetuúrræða og tepptu pláss á endurhæfing- arsviði og þá væru um 20 manns á höfuðborgarsvæðinu heimilis- lausir og haldnir alvarlegum geð- sjúkdómum. Þá nefni hann að um 380 manns væru á biðlista eftir meðferð á Reykjalundi, en gera mætti ráð fyrir mun stærri hóp, því vegna hins langa lista væri hætt að vísa mönnum þangað. Þá væru 70-80 börn og ungmenni á bið- lista hjá BUGL. Sveinn gat þess að verkefni í þessum mála- flokki sem setja þyrfti í forgang væri m.a. að koma á fót sértækri deild fyrir mikið geð- sjúka vímuefnaneytendur, nauð- synlegt væri að rjúfa einangrun geðsjúkra á landsbyggðinni, koma þyrfti á markvissum stuðningi og samvinnu við aðstandendur sam- hliða meðferðarúrræðum fyrir geðsjúka og einstaklinga með geðraskanir og nefndi hann brýna nauðsyn þess að taka upp lög um sjálfræðissviptingu og nauðungar- vistun geðsjúkra, samkvæmt gild- andi lögum stæðu aðstandendur frammi fyrir þeim ábyrgðarhluta að taka ákvörðun um sviptingu sjálfræðis hins geðsjúka, þeirri ábyrgð yrði að koma yfir á fag- fólk. Miklar umræður á ráðstefnu um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu Spáir auknum hlut trygg- ingafélaga í velferðarkerfinu Morgunblaðið/Kristján Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu var til umfjöllunar á ráðstefnu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri. Forgangsröðun í heil- brigðiskerfinu var til umræðu á ráðstefnu sem haldin var á Akureyri í gær. Þar leiddu saman hesta sína stjórnendur í heilbrigðisgeiranum, sérfræðingar utan hans, stjórnmálamenn og fulltrúar sjúklinga. maggath@mbl.is Vaxandi kostn- aði heilbrigðis- þjónustunnar verður velt yfir á þá sem nota þjónustuna. 20 heimilis- lausir á höfuð- borgarsvæði haldnir alvar- legum geð- sjúkdómum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.