Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 36

Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 36
Morgunblaðið/Steinþór Almar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga. Þjóðræknisfélagið er 65 ára,stofnað í desember 1939.Það hefur gengið í gegn-um súrt og sætt og um tíma lá starfsemin niðri. 1997 var það endurreist og hefur það vaxið stöðugt síðan. Markmið félagsins er fyrst og fremst að efla samhygð og samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, og tengsl við fólk af ís- lenskum ættum utan Íslands. Eða eins og segir í lögum ÞFÍ: „Félagið beitir sér fyrir eflingu samskipta við Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi samkvæmt sérstökum samstarfssamningi. Félagið hefur náin samskipti við þjóðrækn- isfélögin og önnur samtök Íslend- inga vestanhafs. Það stuðlar að gagnkvæmum menningar- viðburðum, miðlar upplýsingum, kemur á heimsóknum, svarar fyr- irspurnum frá fólki vestanhafs og annast milligöngu um að efla tengsl þess við aðila á Íslandi. Þjóðrækn- isfélagið leitast við að vekja skilning íslenskra stofnana og fyrirtækja á mikilvægi náins sambands við Ís- lendingabyggðir vestanhafs.“ Ferðir á nýjar slóðir Almar Grímsson hefur verið for- maður ÞFÍ síðan í fyrra og lagði strax mikla áherslu á mikilvægi ferða Íslendinga vestur um haf. „Við ætlum að leggja enn meiri áherslu á samskiptin í gegnum ferð- ir,“ segir hann um komandi starfs- ár, en fjölmennur aðalfundur var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu um liðna helgi. „Við ætlum að fara víðar en áður og efla tengslin við aðrar byggðir,“ bætir hann við. Hefðbundin söguferð verður farin í tengslum við Íslendingahátíðir í Mountain í Norður-Dakota og Gimli í Manitoba, en auk þess verður boðið upp á ferð til Utah annars vegar og hins vegar til Alberta og Saskatchewan. „Það er löngu tíma- bært að styrkja sambandið við Ut- ah en þangað förum við í tilefni þess að á næsta ári eru 150 ár frá því Íslendingar settust þar fyrst að,“ segir Almar. „Fólk af íslensk- um ættum er einnig fjölmennt í Al- berta og Saskatchewan og hug- myndin er að efla tengslin við það enn frekar.“ Að sögn Almars heppnaðist ferð á vesturströndina síðastliðið sumar sérlega vel og ýtti hún undir frekari landvinninga. „Þjóðræknisfélaginu ber að efla tengslin og það verður best gert með nánum samskiptum við afkomendur vesturfaranna.“ Stefan J. Stefanson, sem var út- nefndur heiðursfélagi ÞFÍ á aðal- fundinum, Ted Arnason og eig- inkonur þeirra héldu uppi skipulögðum ferðum frá Vest- urheimi til Íslands í 20 ár eftir að fjölmennur hópur kom til að taka þátt í 1100 ára afmæli Íslands- byggðar 1974. Almar hefur áhuga á að koma slíkum reglulegum heim- sóknum á á ný en segir að Kan- adamenn virðist síður vilja ferðast í gegnum Bandaríkin til Íslands og það setji strik í reikninginn. „Ice- landair býður upp á marga góða möguleika til Bandaríkjanna og við höfum til dæmis farið með rútum frá Minneapolis til Íslend- ingabyggða þar fyrir norðan en Kanadamenn virðast frekar vilja fljúga beint frá Kanada til Íslands. Þeir muna leiguflugin og spyrja stöðugt hvenær Icelandair ætli að byrja aftur að fljúga til Kanada.“ Öflugra félagsstarf Undanfarin ár hefur Jónas Þór haldið námskeið um vesturfarana og hefur fyrrnefnd söguferð verið farin í tengslum við þau. Almar seg- ir að þessi námskeið séu mik- ilvægur þáttur í starfseminni og þeim verði haldið áfram. Fræðslu- fundir hafi verið haldnir fyrir hópa sem hafi farið í ferðir vestur og ým- islegt sé á döfinni til að efla fé- lagsstarfið. „Engum dylst að áhugi á „Íslendingum“ og svæðum þeirra í vesturheimi er mikill og fer vax- andi. Margir hópar hafa tengst Vesturheimi á einn eða annan hátt og í því efni er nærtækast að benda á leikrit um vesturfarana sem verð- ur frumsýnt í Borgarleikhúsinu í janúar.“ Almar segir að samstarf ÞFÍ við Þjóðmenningarhúsið opni ýmsa möguleika og samkvæmt samningi Vesturfarasetursins á Hofsósi, Reykjavíkurborgar og Þjóðmenn- ingarhússins verði til dæmis sett upp sýning frá Utah sem hefur ver- ið í Vesturfarasetrinu undanfarin ár. „Svona menningarviðburðir efla starfið og vekja enn frekari athygli á þessum samskiptum vestur,“ seg- ir Almar. Hann bætir við að sam- starf ÞFÍ og Vesturfarasetursins sé líka meira en áður og haldið verði áfram að bjóða upp á vorferðir norður frá Reykjavík. Snorraverkefnið hefur verið rekið í sex ár í samstarfi við Norræna fé- lagið. 90 ungmenni frá Norður- Ameríku hafa komið til landsins vegna verkefnisins og 18 íslensk ungmenni hafa tekið þátt í sam- bærilegu verkefni í Manitoba, Snorri West. Snorri plús, verkefni fyrir 30 ára og eldri, hófst í fyrra og hefur mælst vel fyrir, að sögn Almars. „Snorraverkefnið er sennilega það markverðasta sem gerst hefur í samskiptunum undanfarin ár,“ seg- ir Almar. „Það er grunnurinn í starfi Þjóðræknisfélagsins og gefur því þann starfsgrundvöll sem það hefur. Jarðvegurinn fyrir félagið er góður og Snorraverkefnið hefur líka átt þátt í því að vekja áhugann vestra.“ Snorraverkefnið grunnurinn í starfinu Morgunblaðið/Steinþór Nokkrir þátttakendur í Snorraverkefninu á aðalfundinum. Mikill kraftur hefur verið í starfsemi Þjóð- ræknisfélags Íslend- inga að undanförnu og stendur til að efla starfið enn frekar á næsta ári. Steinþór Guðbjartsson forvitn- aðist um stöðuna hjá Almari Grímssyni, formanni félagsins. steg@mbl.is 36 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í LÖGUM um grunnskóla segir að einkaskólar eigi ekki kröfu til styrks af almannafé. Afleiðing þessa er sú að einkareknir skólar fyrir nemendur á grunnskólaaldri hafa átt erfitt upp- dráttar á Íslandi. Á sama tíma er yfirlýst markmið hins op- inbera að bjóða menntun við hæfi hvers og eins. Því markmiði verður ekki náð nema til staðar séu ólíkir skólar sem foreldrar og nemendur geta valið um óháð efnahag. Bundnar eru vonir við að þessu ákvæði grunn- skólalaga verði breytt við endurskoðun lag- anna. Fyrirkomulag og umhverfi grunn- skólareksturs getur verið með marg- víslegum hætti. Allt frá einkaskólum sem ekki njóta framlags hins opinbera til skóla sem hið opinbera rek- ur og ber allan kostn- að af án beinnar kostnaðarþátttöku for- eldra. Á milli þessara tveggja póla er í fram- kvæmd mismunandi fyrirkomulag á rekstri grunnskóla víða um heim. Megintilgang- urinn með stuðningi við mismunandi rekstrarform grunn- skóla er m.a. að auka val foreldra og nemenda og efla samkeppni á milli skóla. Í stefnumótun og mark- miðssetningu í menntamálum margra landa kemur fram að ein leiðin til að auka fjölbreytni og ný- sköpun í skólastarfi sé að stuðla að fjölbreytni í fjármögnun, hug- myndafræði og rekstrarformi. Kjarninn er sá að til að koma til móts við þarfir hvers og eins verði að skapa umhverfi sem styður við fjölbreytni. Fjölbreytni – jöfn tækifæri Að allir hafi jöfn tækifæri í grunn- skóla felur í sér að til staðar séu mismunandi skólar. Það þýðir líka að þeir sem ekki þrífast vel í einum skóla geti valið annan óháð efnahag. Í fáum orðum þýðir þetta að skóla- kerfið komi til móts við ólíkar þarfir nemenda með því að bjóða val um hugmyndafræði, form og áherslur. Hætta er á að „opinberir“ skólar, reknir á hefðbundinn hátt, verði of einsleitir til að mæta þessari kröfu. Fjármögnun, skólagerð, rekstraraðilar Í umfjöllun um mismunandi leiðir við rekstur grunnskóla er gjarnan nefnt að nota megi svokallaðar markaðslausnir þar sem eiginleikar hins frjálsa markaðar fái notið sín. Í því samhengi er rætt um:  Mismunandi leiðir til fjármögnunar.  Mismunandi gerðir skóla og hugmyndafræði.  Mögulega rekstraraðila. Þegar rætt er um mismunandi fjármögnun er m.a. átt við að fjár- framlag, fyrir skólakostnaði eða hluta af honum, geti fylgt hverju barni eða að ákveðin fjárhæð geti fylgt sumum börnum, t.d. börnum sem tilheyra minnihlutahópum til að gera þeim kleift að velja um skóla. Einnig er í þessari umræðu bent á þann möguleika að þeir sem borgi sérstaklega fyrir menntun geti fengið skattaafslátt eða að þeir sem lítinn skatt greiða geti fengið sérstakan stuðning til menntunar. Jafnframt er bent á þann mögu- leika að fyrirtæki sem styðji við menntun grunnskólabarna gætu fengið skattafrádrátt. Í umræðu um að efla ólíkar gerð- ir skóla, þ.e. skóla sem byggja starf sitt á mismunandi hugmyndafræði, er bent á þann möguleika að hið opinbera styðji við rekstur allra skóla, líka þeirra sem reknir eru af einkaaðilum. Þetta er ekki talið óeðlilegt þar sem markmið hins op- inbera er að bjóða menntun við hæfi hvers og eins og til að ná því markmiði verði að vera val um mis- munandi hug- myndafræði. Slíkum stuðningi geta fylgt skilyrði um að skóla- gjöld séu ekki inn- heimt eða að ákveðinni rammanámskrá skuli fylgt. Hverjir skulu svo hafa leyfi til að reka grunnskólann? Til eru ólíkar útfærslur á því, allt frá einstaklingum sem reka einn skóla til fyrirtækja sem reka marga skóla með hagnað að leiðarljósi. Í Svíþjóð er t.d. fyr- irtæki sem heitir „Kunskapsskolen“ og rekur nú um 20 skóla með um 9.000 nem- endum. Í Bandaríkj- unum færist það í vöxt að „menntafyrirtæki“ taki að sér að reka skóla fyrir ákveðin fylki. Reynslan í Garðabæ Í Garðabæ hefur verið tekin sú ákvörðun að ákveðið fjár- framlag fylgi hverju barni á grunn- skólaaldri. Þetta þýðir að börn geta valið í hvaða skóla þau fara. Þau börn sem búa næst viðkomandi skóla hafa þó forgang ef til þess kemur að vísa þurfi börnunum frá vegna mikillar aðsóknar. Hug- myndin að baki þessu fyrirkomulagi er að jafnrétti skuli vera til náms og það náist ekki nema foreldrar og nemendur geti valið þann skóla sem þau telja að mæti þörfum sínum best. Ekki er nægjanlegt að ákveða eingöngu að fjármunir skuli fylgja barni. Yfirvöld þurfa einnig að stuðla að því með ákvörðunum sín- um að mismunandi valkostir verði til staðar m.a. með því að styðja við bakið á ólíkum skólum. Í Garðabæ er t.d. verið að byggja nýjan skóla þar sem áhersla verður lögð á ein- staklingsmiðað nám, líkt og í öðrum grunnskólum, í húsnæði sem sér- staklega er hannað til að styðja við einstaklingsmiðaða kennsluhætti. Barnaskóli Hjallastefnunnar er einkarekinn skóli í Garðabæ fyrir nemendur 5–8 ára. Hverjum grunn- skólanema þar fylgja fjármunir frá bæjaryfirvöldum sem greiðir kennslukostnað og húsnæði líkt og í öðrum skólum bæjarins. Grunn- skólanemendur skólans úr Garðabæ borga því engin skólagjöld í Barna- skólanum. Með þessum ákvörðunum eru bæjaryfirvöld að koma til móts við þarfir nemenda. Nemendur og for- eldrar velja þann skóla sem þeir telja best henta. Reynslan af þessu fyrirkomulagi er jákvæð. For- eldrum sex ára barna, sem byrja að hausti í grunnskóla, er boðið á vor- mánuðum á kynningu á starfsemi og áherslum hvers skóla til að auð- velda þeim valið. Nemendur eru því ekki sjálfkrafa skráðir í „hverf- isskólann“ heldur þurfa skólarnir að hafa fyrir því að fá til sín nem- endur. Að koma til móts við nemendur Gunnar Einarsson skrifar um rekstur grunnskóla ’Hverjir skulusvo hafa leyfi til að reka grunn- skólann? Til eru ólíkar útfærslur á því, allt frá einstaklingum sem reka einn skóla til fyrir- tækja sem reka marga skóla með hagnað að leiðarljósi.‘ Gunnar Einarsson Höfundur er forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, með meistaragráðu í stjórnun menntamála og stundar nú doktorsnám við háskól- ann í Reading þar sem skólastjórnun er viðfangsefnið. ÚR VESTURHEIMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.