Morgunblaðið - 13.11.2004, Side 40

Morgunblaðið - 13.11.2004, Side 40
40 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Munurinn á forsetning-unum eftir og á eftirmun vera skýr í hug-um flestra Íslend- inga. Forsetningin eftir að við- bættu þolfalli vísar í flestum tilvikum beint eða óbeint til tíma, t.d.: Ég kem eftir tvo daga og skilja eitthvað eftir sig. Forsetn- ingin á eftir að viðbættu þágufalli vísar hins vegar oft til hreyfingar í röð, t.d.: hlaupa á eftir ein- hverjum og koma á eftir ein- hverjum. Málið er þó ekki alveg svona einfalt því að í föstum orða- samböndum er nokkurt svigrúm til að nota hvort sem er eftir e-m eða á eftir e-m, t.d. er ýmist sagt reka eftir einhverjum [eft- irrekstur] eða reka á eftir ein- hverjum (oftast þannig). Ástæðan er sú að myndin reka eftir ein- hverjum er upprunaleg og breyt- ingin eftir > á eftir (með vísan til hreyfingar í röð) er ekki um garð gengin í tilteknum samböndum. Þetta kemur þó ekki að sök, mál- kennd manna sker úr í vafa- tilvikum. Hitt er verra og nýtt af nálinni að forsetningin á eftir sé látin vísa til tíma, t.d.: ?á eftir [þ.e. eftir allt] allt sem á undan er gengið; ?á eftir messu [þ.e. eft- ir messuna] er kirkjugestum boð- ið að ...; Morguninn á eftir [þ.e. eftir] fór hann; ?eignast eitthvað á eftir e-m [þ.e. eftir e-n] og ?Er líf á eftir dauðanum? [þ.e. eftir dauðann]. Öll eru þessi dæmi fengin úr prentuðu máli og hér er nýmæli á ferð sem hvorki sam- ræmist málvenju né getur talist til fyrirmyndar. Eins og áður sagði er upp- haflega myndin eftir einhverjum enn notuð í föstum orða- samböndum. Allir ættu að geta verið sammála um það að við segjum t.d. láta eitthvað/allt eftir einhverjum, sjá eftir einhverju og fylgja einhverju (góðum sigri) eft- ir. Umsjónarmaður varð því mjög undrandi er hann rakst á dæmið fylgja e-u á eftir [þ.e. eftir] (Sjónv. 23.6.04). Sögnin að forða sér/e-m merkir ‘bjarga sér/e-m, koma sér/e-m undan e-u’, t.d.: Guð forði mér frá því að ...; forða lífi sínu; eitthvað forðar einhverjum frá gjaldþroti og þjófurinn reyndi að forða sér. Í nútímamáli ber oft við að sögn- in sé látin merkja ‘koma í veg fyrir e-ð, afstýra e-u, hindra e-ð’, t.d.: ?forða því að brúargólfið fari af stað (Mbl. 5.8.04); ?Ökumaður jeppans ... náði ekki að forða árekstri (Fréttabl. 5.8.04); ?reyndi að forða slysi (Fréttabl. 11.8.04); ?forða verkfalli (19.9.04) og ?forða sér frá fallbaráttunni (Mbl. 20.8.04). Slík notkun mun einungis vera kunn úr nú- tímamáli og getur ekki tal- ist til fyr- irmyndar. Eindæmin eru verst sagði Grettir Ás- mundarson (Grettis saga, 16. kafli). Í nútímamáli er til hvort tveggja eindæmi ‘sjálfdæmi’ og einsdæmi ‘einstæður atburður’. Með orðinu eindæmi er myndað orðasambandið gera eitthvað upp á sitt eindæmi ‘á eigin ábyrgð’ en orðið einsdæmi er notað í beinni merkingu, t.d. það er ekkert eins- dæmi að ... Þessum tveimur orð- um bera að halda aðskildum, þeim má helst ekki rugla saman eins og í eftirfarandi dæmi: ?Koma þarf í veg fyrir að einn ráðherra geti tekið geðþótta- ákvörðun upp á sitt einsdæmi [þ.e. eindæmi] hver setjist í æðsta rétt þjóðarinnar (30.9.04). — Það er örugglega ekkert einsdæmi að ráðherra geri eitt og annað upp á sitt eindæmi, það er raunar ein- dæma ósennilegt að þeir láti af því. Til gamans má geta þess að af myndinni eindæmi (t.d. í Grettis sögu) er myndað nafnorðið en- dimi eða endemi og er það notað í ýmsum samböndum, t.d.: mörg endemi tóku menn þá til önnur, þau er nú mundi ódæmi þykja og eitthvað er með (mikilum) endem- um, sbr. enn fremur: endemis rugl, vitleysa ... (‘einstakt rugl’). Orðatiltækið e-ð liggur í loftinu merkir ‘e-ð mun gerast (fljót- lega), e-ð vofir yfir’, t.d.: mér fannst einhver ógnun beinlínis liggja í loftinu eða það liggur í loftinu að stjórnvöld láti verk- fallið til sín taka. Orðatiltæki þetta mun vera erlent að uppruna en það skiptir reyndar ekki höf- uðmáli, telja má að það hafi öðl- ast fullan þegnrétt í íslensku. Hitt finnst umsjónarmanni mik- ilvægt að það sé notað með þeim hætti sem málnotendur hafa kom- ið sér saman um. Svo er þó ekki alltaf eins og eftirfarandi dæmi sýnir: Hin endalausa spurning sem hangið hefur í loftinu … (Fréttabl. 5.7.04). Slík málbeiting finnst umsjónarmanni ekki til fyr- irmyndar en hér dæmi hver fyrir sig. Úr handraðanum Sögnin stagast á e-u merkir ‘klifa á e-u, endurtaka e-ð (í sí- fellu); þrástagast á e-u’, t.d. skrif- ar Jón Thoroddsen í Pilti og stúlku: Þetta er nú hún Tigga þín, sem þú hefur verið allajafna að stagast á og í þjóðsögum Jóns Árnasonar stendur: stagast aftur og aftur á þessu. Umsjónarmaður telur að líkingin að baki orða- sambandinu vísi til þess er bót er stöguð á flík eða skó. Til þessa bendir að Gísli biskup Þorláksson segir í bréfi (1669) að hann geti ei legið í því skóbótarstagi árlega árs að skrifa nýtt umboðsbréf en þar er vísað til sífelldra end- urtekninga. — Sögnin að staglast á e-u ‘stagast á e-u, endurtaka e-ð í sífellu’ er talsvert yngri (frá 19. öld) en þar kann líkingin að vísa til þess er menn stagla sokk, stagla í gat (á flík) eða stagla saman gat. Til slíkrar iðju vísar nafnorðið stagl, t.d. málfræðistagl og bónastagl. Umsjónarmaður hefur vanist því að nota fremur sögnina staglast á e-u en stagast á e-u og málfræðistag (eða annað af þeim toga) þekkir hann alls ekki. Í nútímamáli er til hvort tveggja eindæmi ‘sjálf- dæmi’ og eins- dæmi ‘einstæð- ur atburður’. jonf@hi.is ÍSLENSKT MÁL – 40 Jón G. Friðjónsson 40. þáttur EÐLILEG atvik réðu því að ég lenti á flugvelli fyrir skömmu, allt í einu raðaði lögreglan sér upp fyrir framan dyrnar, hætta á ferðum, fólk komst ekki sína leið og vissi ekki hvers vegna. Við biðum og það lá óskilgreindur ótti í loftinu. Við- brögðin ólík; öskur á stangli, lág- vært söngl, þögn, bölv og ragn, kona sparkaði í vegg, karl hrópaði að hann væri andskotans enginn gísl, barn kjökraði, starfsmaður bað fólk að róa hugann. En einsog hendi væri veifað var hættunni af- lýst og okkur, öllu þessu nafnlausa fólki, var hleypt út í aðskiljanleg farartæki sem fluttu okkur hvert á sinn staðinn, hvert til sinna örlag- anna. Þá fór ég allt í einu að hugsa norður! Þetta var sterk upplifun og mér varð hugsað til leikrits Hrafnhildar Hagalín, Norður, sem ég sá fyrir fáum dögum. Ég þekkti spennuna aftur þaðan, mundi óttann og óró- leikann. Já, ég hafði aftur verið stödd á stað sem kveikti í mér og minnti mig á að sennilega verðum við alltaf fangar valdsins. En til að gera langa sögu stutta þá hafði mér verið boðið Norður með góðum vin- um. Ég verð þó að segja einsog er að ég var ekki spennt fyrir sýning- unni. Hvers vegna? Vegna þess að flestir gagnrýnendur voru búnir að hamast svo á efninu, dangla svo í texta, leikmynd, leikstjórn og leik að mig langaði hreint ekki. Já, gagnrýni hefur, því miður, alltof oft sín tilætluðu áhrif. Ég hlýt því að hugsa, hef svo sem gert það svo oft áður, hvort það sé ekki eðlilegt að leyfa leikriti að renna um skeið, liðka sig í far- vatninu, spyrjast út og fá sína umræðu manna á milli áður en hin faglega gagnrýni birtist. En fagleg gagnrýni er auðvitað sú sem gefur okkur nýja og óvænta dýpt í verkið. Niðurrifið get- ur ekki gert það frek- ar en upphafningin. Það er augjóst mál. En ég drattaðist sem sé af stað í Þjóð- leikhúsið og í hausn- um á mér dundu setn- ingar einsog: „Verst er að hér er valtað yf- ir leikrit Hrafnhildar Hagalín. Ekkert hlustað eftir tónunum í verkinu.“ „Það var geinilegt að þeir leik- arar sem vanastir voru gátu stjórnað sér sjálfir.“ Margar leiðinlegri setn- ingar sagðar sem ég nenni ekki að hafa eftir enda skildi ég þær ekki eftir að hafa séð leikritið. Mér varð á að hugsa. Hvers vegna lætur fólk svona? Hvers vegna þessi heift? Svarið felst ef til vill í því sem Haf- liði Arngrímsson sagði í Víðsjá: „Og maður finnur fyrir óþægindum og kvíða innra með sér. Fyllist allt að því vanlíðan og hjartað dunar í brjósti manns. Þetta er ekki þægi- legt leikrit.“ Satt er það. Sýningin er afar óþægileg og þar liggur kannski hundurinn grafinn. Fullyrðingar einsog að leikstjórinn, Viðar Eggertsson, hafi verið að sviðsetja sjálf- an sig og hugmyndir sínar um nútíma leik- hús verða því hreint og beint óskiljanlegar. Að hugleiða aðalatriði Í hléi heyrði ég konu segja að hún skildi ekkert í gagnrýninni, sýningin væri frábær. Ég var sammála enda viss um að þetta nöt- urlega, fallega og furðulega leikrit rataði sína leið þrátt fyrir hinar dæmalausu full- yrðingar um að leik- stjórinn hafi ekki verið þarna. Látum nú ekki svona. Það voru allir þarna og vel það! Leikritið gæti ekki hafa valdið slíkum usla í sálarlífinu nema að svo hafi verið. En þeg- ar ég fór að hugsa bet- ur um þetta þá datt mér í hug að kannski værum við ekkert sér- staklega hrifin af nýstárlegu leik- húsi, þannig lagað séð, datt í hug að kannski værum við ennþá öruggust meðal hins viðurkennda og fyrirséða. Spurning? Nei, auð- vitað ekki. Við viljum að leikritin ögri, skemmti og andskotist í okk- ur, viljum eitthvað djarft og lyg- inni líkast. Og við viljum ekki að listin sé kaffærð! Við viljum leikrit sem segja okkur eitthvað nýtt um það sem við þegar vitum en hafi líka til að bera eitthvað sammann- legt og töfrandi. Við hljótum því að sjá Norður og ákveða sjálf hvort við förum norður og dæmum niður, eða segjum norður og upp! Hvor- ugt skiptir máli. Þetta eru klisjur. Aðalatriðið er þetta: Góð leikrit hafa í sér að geyma frumkraft, eld, átök, gleði, húmor. Þau endurlifna í minningunni, veðrast með tím- anum, en eru fyrst og síðast eitt- hvað sem engu er líkt. Leikritið er náið listform. Hver einasta stund í leikhúsi er einstök. Og þá er ég ef til vill komin að kjarnanum. Kannski sá ég ekki sama leikrit og gagnrýnendurnir! Það kann að vera því leikritið „Norður“ sem ég sá var nefnilega fjandi sterkt, ögr- andi, villt og fallegt. Allt vann sam- an að þeirri heildarmynd sem ég gleymi ekki. En sýningin gladdi mig ekki einsog góður glassúr á rétti stundu með réttu fólki á réttri köku. Hún kallaði ekki fram löng- unina í gamlar lummur, saltfisk, saltkjöt og súrsaða hrútspunga. Verkið kallar á nýtt hugsanaferli, sýnir okkur síbreytilega möguleika leikhússins og þess vegna held ég að vegir þess muni liggja til allra átta. Að endingu þetta! Í Norðri Hrafnhildar Hagalín er lífsháski sem vefst saman við hættulega flotta leikmynd, leik- stjórn, hljóðmynd og ótrúlegan leik. Þess vegna þakka ég fyrir mig og hvet aðra til að dæma sýningu sem ég sá og gengur enn þrátt fyrir að gagnrýnandi sem vildi kannski fara austur hafi sagt að verkið hafi aldrei verið frumsýnt. Förum norður! Vigdís Grímsdóttir fjallar um leikritið Norður ’Verkið kallar ánýtt hugsana- ferli, sýnir okk- ur síbreytilega möguleika leik- hússins og þess vegna held ég að vegir þess muni liggja til allra átta.‘ Vigdís Grímsdóttir Höfundur er rithöfundur. ENNÞÁ eru þess dæmi að maður hitti fólk sem hefur gömlu rang- hugmyndirnar um skjalasöfn, að þau séu gamaldags þunglamalegar stofn- anir, þar sem gamlir tóbakskarlar sitji í þungu rykugu lofti við skriftir og starfsmennirnir séu fornfálegir sérvitringar. Kannski hefur þessi ímynd einhvern tímann verið til, alveg í gamla, gamladaga. Í dag eru skjalasöfn ríkis og sveitarfélaga flest nú- tímalegar opinberar stofnanir sem keppast við að bjóða góða og skjóta þjónustu fyrir almenning, fræðimenn og stofnanir. Sífellt eru gerðar meiri faglegar kröfur til skjalasafn- anna, verksvið þeirra hefur víkkað og starfs- menn þeirra eru sér meðvitandi um að starf þeirra út á við er ekki síður mikilvægt en vandað innra starf. Til hvers skjalasöfn? Eitt af héraðs- skjalasöfnunum er Borgarskjalasafn Reykjavíkur og er það rekið af Reykjavík- urborg. Safnið varð- veitir eldri skjöl borgarstofnana, leiðbeinir og hefur eftirlit með skjalastjórn þeirra og tekur ákvarð- anir um eyðingu skjala sem ekki er talin ástæða til að varðveita, í sam- ræmi við gildandi reglur. Safnið tek- ur einnig til varðveislu skjöl ein- staklinga, félaga og fyrirtækja og aðrar heimildir sem varpa ljósi á sögu Reykjavíkur og Reykvíkinga. Fólki er ekki alltaf ljós munurinn á skjali og prentuðu efni. Meginmun- urinn er sá að skjalið er yfirleitt ein- ungis til í einu eintaki en prentað efni í fjölda eintaka. Skjalið er því oft ein- stakt og verður ekki bætt ef það tap- ast. Skjal getur verið sendibréf, dag- bók, tölvupóstur, ljósmynd, bókhald, póstkort og svo mætti lengi telja. Bækur og dagblöð teljast ekki til skjala. Af hverju geyma skjöl? Opinberum stofnunum er óheimilt að eyða nokkru skjali án þess að skrif- leg heimild liggi fyrir þar um frá Þjóðskjalasafni eða viðkomandi hér- aðsskjalasafni. Þetta er til að tryggja að skjölum sé ekki eytt handahófs- kennt, heldur sé búið að taka form- lega ákvörðun um að þau hafi ekki gildi til framtíðar, því skjöl eru geymd af margvíslegum ástæðum. Skjöl Reykjavíkurborgar eru einkum varðveitt af því að þau hafa lagalegt, fjárhagslegt eða sögulegt gildi. Skjöl eru oft varðveitt þar sem þau hafa að geyma upplýsingar varðandi réttindi Reykvíkinga eða fjalla um líf þeirra. Dæmi um það eru skjöl um hús og lóðir, einkunnir, bekkjarlistar, skatt- framtöl og skjöl Barnavernd- arnefndar. Einkaskjalasöfn veita sömuleiðis ómetanlegar og fjöl- breyttar upplýsingar um sögu og mannlíf borgarinnar. Hverjir eiga erindi á Borgarskjalasafn? Öllum er heimill að- gangur að safninu og aðstoða starfsmenn gesti við að finna upp- lýsingar og heimildir. Aðgangur fer eftir Upplýsingalögum, Stjórnsýslulögum eða öðrum lögum sem kunna að gilda. Al- mennt eru skjöl sveit- arfélaganna opin en fyrst og fremst eru lok- uð skjöl sem hafa að geyma trúnaðarupplýs- ingar um einkamálefni einstaklinga eða fjár- hagsmálefni fyrirtækja. Almenningur sækir safnið í vaxandi mæli og vinsælustu skjölin eru þau sem tengjast fólk- inu sjálfu, svo sem upp- lýsingar um hús og íbúa þess. Á vef safnsins www. borgarskjala- safn.is eru birtar skjalaskrár og upp- lýsingar um vinsælustu skjalaflokk- ana. Árið 1974 séð í skjölum Í dag taka Borgarskjalasafn Reykja- víkur, Þjóðskjalasafn Íslands og hér- aðsskjalasöfn um land allt þátt í Nor- rænum skjaladegi. Þema dagsins er árið 1974 séð í skjölum og er það fjöl- breytt mynd af árinu sem safnkostur skjalasafnanna sýnir. Borgarskjalasafn Reykjavíkur opnar sýningu í Kringlunni laug- ardaginn þar sem sýnd verða skjöl tengd jólahaldi landsmanna og sér- staklega fjallað um jólin 1974. M.a. verða sýnd jólakort frá ýmsum tím- um. Borgarskjalasafnið mun sömu- leiðis kynna starfsemi sína með text- um og ljósmyndum og fjalla um hvað var að gerast í Reykjavík árið 1974. Sýningin í Kringlunni mun standa út nóvember. Borgarskjalasafnið tekur einnig þátt í sýningu á vefnum www.skjaladagur.is. Skjalasöfnin í landinu eru fjár- sjóður heimilda og upplýsinga sem bíða þess að verða dregnar fram í dagsljósið. Skjalasafn – átt þú erindi þangað? Svanhildur Bogadóttir minnir á Norrænan skjaladag, 13. nóvember ’Skjalasöfnin ílandinu eru fjár- sjóður heimilda og upplýsinga sem bíða þess að verða dregn- ar fram í dags- ljósið.‘ Svanhildur Bogadóttir Höfundur er borgarskjalavörður í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.