Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 41
UMRÆÐAN
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
AF HVERJU heyrist svona lítið
frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavík-
ur? hefur oft verið spurt und-
anfarið. Við því er einfalt svar,
það hefur ekki verið háttur
Mæðrastyrksnefndar, í þau 76 ár
sem hún hefur starfað, að bera
störf sín á torg. Samt þekkjast
störf hennar vel. Það sýnir góður
stuðningur einstaklinga, félaga og
fyrirtækja. Nefndin er afar þakk-
lát öllum stuðningsaðilum sem
hafa gert henni kleift að starfa.
Engum fjármunum er eytt í að
auglýsa nefndina en hver króna
notuð til aðstoðar þeim sem á
þurfa að halda. Þess vegna heyrist
svona lítið frá nefndinni. Unnið er
þar í hljóði.
Að nefndinni standa átta kven-
félög í Reykjavík og hjá henni
starfa um 20 sjálfboðaliðar sem
tilnefndir eru af þessum kven-
félögum. Matar- og fataúthlutun
er í hverri viku á miðvikudögum.
Að jafnaði hafa komið í ár 110
fjölskyldur í hverri viku en af
þeim koma 56% einu sinni í mán-
uði. Á framfæri þessara fjöl-
skyldna eru um 400 börn. Tíma-
bundnir erfiðleikar eru oft orsök
þessara heimsókna sem skjólstæð-
ingum tekst að ná tökum á, en því
miður eru líka afar erfiðar að-
stæður margra sem eiga sér mjög
mismunandi uppruna. Það eru
áreiðanlega þung spor fyrir marga
sem til Mæðrastyrksnefndar leita
en lögð er mikil áhersla á að létta
þau spor eftir megni.
Á sl. sumri fóru um 80 börn í
sveit í eina viku hvert á vegum
nefndarinnar. Hverri krónu af
þeim peningum sem söfnuðust til
þessa verkefnis var varið í þágu
dvalar í sveit fyrir börn og engu
eytt í auglýsingar né annan kostn-
að!
Á sl. ári veitti nefndin rúmlega
1.700 fjölskyldum lið í jólamán-
uðinum, auk þess fengu aðstoð um
1000 fjölskyldur í 3.115 skipti á
árinu 2003. Augljóst er að þörfin
hefur síst minnkað. Nú er und-
irbúningur hafinn að söfnun bæði
vegna jóla og brýnna verkefna og
við setjum allt okkar traust á þá
sem vilja veita okkur lið til þess
að geta glatt aðra. Treysta má því
að þeim peningum verður ein-
göngu varið til þess að styrkja
skjólstæðinga, en ekki í dýrar
auglýsingar og myndbirtingar.
Bankanúmer nefndarinnar er
0101-26-35021 og kt. 470269-1119
vilji fólk leggja þeim lið er minna
mega sín, hver eftir sinni getu. Öll
aðstoð er vel þegin. Þeir sem vilja
kynna sér starfsemina eru vel-
komnir á Sólvallagötu 48.
MÆÐRASTYRKSNEFND.
Af hverju heyrist
svona lítið …
Frá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Tónleikar
í Glerárkirkju
sunnudaginn 14. nóvember kl. 16.00
Einleikari: Nicole Cala Cariglia.
Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.
Efnisskrá:
Robert Schumann: Sellókonsert.
Johannes Brahms: Sinfónía nr. 4.
Verð aðgöngumiða kr. 1.500.
Eldri borgarar kr. 1.000.
Aðgangur ókeypis fyrir 20 ára og yngri.
Ársmiðar á þrenna tónleika til sölu í Pennanum-
Bókvali og við innganginn á kr. 3.500.