Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 46

Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðmundur Sig-fússon fæddist á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði 5. nóv- ember 1912. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnuninni á Hvammstanga 5. nóvember síðastlið- inn. Guðmundur var sonur hjónanna Kristínar Gróu Guð- mundsdóttur, f. 8.10. 1888, d. 15.2. 1963, og Sigfúsar Sigfússonar, f. 7.8. 1887, d. 29.1. 1958, á Stóru-Hvalsá, Hrútafirði. Krist- ín Gróa og Sigfús eignuðust fjór- tán börn og eru sex þeirra á lífi í dag. Hinn 10. september 1939 úar 1942, maki Pálmi Sæmunds- son, f. 25. september 1933. Börn þeirra eru þrjú og barnabörn tíu. 4) Margrét Hanna, f. 16. nóv- ember 1955, maki Guðmundur Rúnar Erlendsson, f. 26. apríl 1954. Dætur hennar af fyrra hjónabandi eru þrjár og barna- börn tvö. 5) Sigfús, f. 5. janúar 1958, maki Ingibjörg Sigríður Karlsdóttir, f. 3. september 1952. Dætur hennar eru tvær. Guðmundur og Hanna hófu bú- skap á Kolbeinsá árið 1937 og bjuggu þar í sjö ár. Fluttu þá að Stóru-Hvalsá og bjuggu þar í u.þ.b. tvö ár. Keyptu eftir það hálfa jörðina Kolbeinsá og stund- uðu búskap þar til ársins 1999, er þau fluttu á Heilbrigðisstofn- unina á Hvammstanga. Með bú- skapnum vann Guðmundur ýmis störf utan heimilis og tók virkan þátt í félagsmálum í sveitinni. Útför Guðmundar fer fram frá Prestbakkakirkju í Hrútafirði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. kvæntist Guðmundur Hönnu Guðnýju Hannesdóttur, f. 17.9. 1916. Foreldrar hennar voru Margrét Kristjánsdóttir og Hannes Guðnason frá Þurranesi í Saurbæ. Börn Guðmundar og Hönnu eru; 1) Hilm- ar, f. 2. apríl 1938, maki Sigurrós Magn- ea Jónsdóttir, f. 5. september 1939. Börn þeirra eru fjög- ur, barnabörn þrett- án og barnabarna- barn eitt. 2) Guðbjörn Agnar, f. 8. júní 1940, maki Sólveig Guð- björt Guðbjartsdóttir, f. 3. mars 1940. Börn þeirra eru fimm og barnabörn sex. 3) Ásdís, f. 2. jan- Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir samfylgdina og allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku mamma, Guð styrki þig í sorg þinni og umvefji þig alla tíð. Þín börn og tengdabörn. Mig langar með nokkrum fátæk- legum orðum að kveðja afa minn Guðmund Sigfússon, eða Munda eins og hann var ætíð kallaður. Afi og amma bjuggu á Kolbeinsá í Hrútafirði og þegar ég var barn var það alltaf tilhlökkunarefni að fara í heimsókn til þeirra og fannst mér í raun að ekki væri farið nógu oft. Seinna varð ég þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að vera í sveit hjá þeim í nokkur sumur og var sá tími eft- irminnilegur og góður. Ég á margar góðar minningar frá veru minni á Kolbeinsá hjá ömmu og afa. Eins og ég kynntist afa þá var hann rólegur og yfirvegaður. Hann gat þó alveg reiðst, en það var sára- sjaldan sem ég sá það gerast. Afi var sauðfjárbóndi og var hann natinn við bústörfin og hélt öllu í röð og reglu eins og kostur var. Honum þótti vænt um skepnurnar og ljóst að þær skiptu hann máli. Hann var handlag- inn og gerði við það sem hann mögu- lega komst yfir að lagfæra sjálfur. Marga hluti hafði afi smíðað sjálfur og hefur pabbi sagt mér frá mörgu sem hann hefur smíðað og búið til á sinni ævi. Það var spennandi að vera í sveit- inni og læra þau störf sem þarf að sinna þar. Afi kom mér inn í störfin og kenndi mér að hirða skepnurnar og sinna því sem sinna þurfti. Þegar honum fannst tími til kominn kenndi hann mér á traktor og mátti þá bara keyra í fyrsta gír. Þetta kom þó allt í rólegheitum og ekki leið á löngu þar til ég gat sinnt þeirri vélavinnu sem þurfti, til dæmis við heyskapinn. Afi og amma áttu á þessum tíma tvo hunda, þá Kol og Gutta. Gutti var öllum góður en Kolur var hins vegar mjög frekur og ákveðinn en hlýddi húsbónda sínum í einu og öllu og sýndi honum ósvikna tryggð. Já, hann afi náði vel til dýranna. Meðan ég var í sveit á Kolbeinsá sá afi um minkaveiðar í hreppnum. Ósjaldan fór ég með honum og þá var einnig með í för minkahundurinn Kolur. Þetta voru oft skemmtilegar ferðir og margt lærði ég af afa um veiðarnar og ekki síður um atferli minksins. Tel ég mig hafa lært margt gott af afa á þessum tíma og vonandi hef ég létt eitthvað undir með honum og ömmu við bústörfin. Eitt af því sem upp úr stendur frá veru minni í sveitinni hjá afa og ömmu er hversu gestkvæmt var oft hjá þeim. Þau eru mörg skyldmenn- in og vinafólkið og það var sama hversu margir komu í heimsókn, það var alltaf hægt að búa til svefnpláss. Það voru allir velkomnir. Það var ekki amalegt að koma að Kolbeinsá til Hönnu og Munda. Nú er komið að kveðjustund. Afi hefur skilað góðu dagsverki; dags- verki sem hann getur verið hreykinn af. Við sem eftir sitjum minnumst hans með virðingu og þökk. Þrátt fyrir að gamall maður kveðji þennan heim er alltaf sárt að missa ástvin og er söknuðurinn mikill. Elsku amma. Missir þinn er mik- ill. Hugur okkar Lóu er hjá þér á þessum erfiðu tímum. Birkir. Elsku afi, þar kom að því að mað- urinn með ljáinn hafði betur og leiðir skiljast. Síðast þegar ég sá þig var ekki mikinn bilbug á þér að finna. Það var í haust þegar þú skaust suð- ur á spítala í smá aðgerð. Þótt þú værir nýlega kominn úr svæfingu þegar ég heimsótti þig þá varstu með á öllu sem var að gerast og að sjálfsögðu stutt í glettnina eins og vanalega. Þegar hjúkrunarfræðing- urinn kom inn og spurði sem svo hvort þú værir þarna ennþá, þá leistu á hana með stríðnisbrosinu og svaraðir „hva, bjóstu við að ég myndi strjúka heim af spítalanum“. Þetta atvik er fyrir mér á margan hátt lýs- andi fyrir þau kynni sem ég hef haft af þér frá því ég fyrst man eftir mér. Það var aldrei kvartað yfir hlutunum og ætíð hægt að sjá spaugilegu hlið- arnar á öllum málum. Þær eru vissu- lega margar og ánægjulegar minn- ingarnar sem ég á frá heimsóknum og veru minni hjá ykkur ömmu á Kolbeinsá og ég efast ekki um að ég deili þeim tilfinningum með mörg- um. Oft á tíðum var veran þar hálf- gert ævintýri fyrir börn þar sem ætíð var nóg að gera hvort sem var við störf eða leik. Maður beið með spenningi eftir því á vorin að fá að koma með á sjóinn þegar grásleppu- veiðin hófst, síðan var það selveiðin og svo var ógleymanlegt að fara með í eyjuna til að sækja dúninn. Það var einnig lærdómsríkt að fylgjast með hversu mikla virðingu þú barst fyrir dýrum og náttúrunni. Veiðimennsk- an var þér í blóð borin en þó var aldrei neitt dýr veitt nema það hefði tilgang. Ég hef ekki tölu á öllum þeim fuglategundum og eggjateg- undum sem ég bragðaði á hjá ykkur ömmu, að ég tali nú ekki um allar þær útfærslur á selkjöti sem hægt var að hugsa sér, allt var nýtt sem hægt var og úr því eldaður matur. Veður og veðurfréttir voru mikil- vægar hjá þér eins og mörgum öðr- um Íslendingum og þeir voru fáir veðurfréttatímarnir sem fóru fram hjá þér. Mér er mjög minnisstætt hvernig þú samviskusamlega í mörg ár skrifaðir alltaf niður vindstig og hitastig á öllum veðurstöðvum landsins. Hvort þú notaðir þessar upplýsingar veit ég ekki en eflaust hafa þær hjálpað þér við að skilja betur hegðun náttúrunnar. Öll smíðavinna lék í höndunum á þér, sama hvort um var að ræða járn eða tré. Ótrúlegustu hlutir voru smíðað- ir, allt frá smágerðum handverkfær- um úr járni og upp í trébát sem not- aður var í mörg ár. Þær voru oft fjörugar umræðurnar sem áttu sér stað í eldhúsinu á Kolbeinsá. Þar voru allir hlutir ræddir, tekist á um menn og málefni og flest látið flakka, oftast þó á léttu nótunum. Stundum tókst þú ekki beinan þátt í þessu heldur lást á bekknum og skaust svo bara inn athugasemdum ef þér fannst rangt farið með eða þá bara til að stríða okkur hinum og hlóst svo ef þér tókst að hræra upp í öllu. Oft furðaði ég mig á öllum þeim fjölda af vísum sem þú kunnir utan- bókar. Þær einhvern veginn duttu út úr þér við ólíklegustu tækifæri þannig að maður stundum veltist um af hlátri. Þessar vísur komu úr öllum áttum en höfundar var ekki endilega alltaf getið, enda ekki víst að menn vildu kannast við að hafa samið sum- ar þeirra. Oft settist þú á kvöldin fyrir framan orgelið góða og spilaðir og söngst. Það lék í höndum þínum eins og annað enda með sterka og hljómfagra rödd sem virtist ekki hafa dofnað síðast þegar ég heyrði þig syngja. Það var á níræðisafmæl- inu þínu fyrir tveimur árum þar sem þú söngst eins og herforingi ásamt systkinum þínum og fleirum. Afi minn, ég er sannfærður um að vel hefur verið tekið á móti þér þar sem þú ert núna og ég bið góðan guð að vera með þér. Takk fyrir allt. Elsku amma, þótt það er örugg- lega aldrei hægt að undirbúa sig full- komlega undir það að missa mann- inn sinn eftir 70 ára samvist þá veit ég að þú tekur þessu af því æðru- leysi og skilningi sem þér einni er lagið. Ég votta þér mína innilegustu samúð. Guðmundur Pálmason. Elskulegur afi minn er fallinn frá, og valdi sér sama dag og er hann fæddist fyrir 92 árum síðan. Afi og amma eru stór hluti í mín- um uppvexti, og nánast á hverjum degi var hlaupið „heim“ til ömmu og afa og samgangur var mikill á milli heimilanna. Margar minningar á ég um afa, þar má nefna þegar verið var að smala og afi náði í okkur krakkana á jeppanum sínum og keyrði okkur á móts við karlana sem höfðu farið af stað ríðandi fyrr um morguninn og áttum við að aðstoða við að reka síðasta spölinn heim. Hann hafði mikinn áhuga á að segja okkur nöfn á kennileitum, enda var hann sérstaklega minnugur á þau og svo síðar þegar við fórum um og orð- in jafnvel sjálf ríðandi spurði hann okkur hvar við hefðum farið og hvort hefðu nú verið kindur á þessum hólnum eða dalnum og kannaði með því kunnáttu okkar. Á vorin var ævinlega veiddur sel- ur, það var eins og karlarnir á bæn- um yrðu léttari í spori þegar komið var að því, þó vinnan væri mikil og vinnudagur oft mjög langur. Þar minnist ég afa standandi við flán- ingsbrettið sem hann hafði útbúið sjálfur, og með vasahnífinn sinn að flá selina, gaf sér tíma til að spjalla við okkur, stoppaði ef til vill, til að fá sér í nefið og svo var haldið áfram. Einnig var farið niður í eyju að taka dún, það fannst okkur spen- nadi, þá fór afi á trillunni sinni, svo var siglt niðureftir og vonaðist mað- ur eftir að fá að sigla með, en stund- um var fólkið svo margt að einhverj- ir urðu að labba niður í Búðarvog og við vorum svo ferjuð út í eyjuna. Þá fræddi hann okkur um heiti á öllum víkum og vogum, skerjum og hólm- um á leiðinni og vonaðist sjálfsagt til að eitthvað sæti eftir í kollinum á okkur. Í þessum ferðum var byssan höfð með, afi var mikill veiðimaður, hann reyndi að halda ránfugli og minki frá varpinu og lá á grenjum á vorin. Marga morgna kom hann við í eld- húsinu hjá mömmu, settist hann þá alltaf á sama stað við eldhúsborðið, mamma náði i bollann „hans“ og færði honum kaffi, afi hélt sig við sama bollann, einhvern sem hentaði vel fyrir hans myndarlega nef, stundum ef hann var eitthvað meira að flýta sér settist hann í efstu tröppuna og fékk sopann sinn þar. Afi spilaði á orgel, var undirleikari í kirkjunni um tíma, hann átti fót- stigið orgel sem hann spilaði oft á. Fannst mér mjög gaman að hlusta á hann spila og syngja, og lagið „Ó, þá náð að eiga Jesú“ á alltaf eftir að minna mig á hann. Margt rifjast upp, afi að smíða úr járni í litlu smiðjunni sinni, að dytta að verkfærum í skemmunni, eitt- hvað að laga trilluna sína eða hvað annað sem gera þurfti. Amma var ævinlega við hlið afa, hvort heldur að færa honum eitthvað í svanginn eða vinna við hlið hans í útiverkum. Í haust voru þau búin að vera gift í 65 ár, ó já, ekki alltaf sam- mála, en ekki skilin enn eins og amma orðaði það sjálf er hún sagði lauslega frá lífshlaupi sínu á ættar- móti fyrir nokkrum árum síðan. Elsku amma mín, missir þinn er mikill, mér finnst ég vera ríkari manneskja að hafa fengið að eiga ykkur að, og ósköp hefur mér fund- ist fallegt hversu vel þú hlúðir að afa allt til loka. Hvíl í friði elsku afi minn, minning þín lifir áfram með okkur. Þín Erna. Guðmundur á Kolbeinsá kvaddi þessa jarðvist á 92. afmælisdaginn sinn hinn 5. nóvember sl. Stundin friðsæl líkt og ég skynja lífshlaup hans. Umhverfið kunnuglegt og gott. Hann í sínu herbergi, sínu rúmi með Hönnu sér við hlið. Starfsfólk sjúkrahússins á Hvammstanga skammt undan, sem ávallt hefur sýnt þeim nærgætni og virðingu. Guðmundur var afi mannsins míns og langafi barnanna minna og einnig góður vinur minn. Við Ragnar bjuggum með þeim Guðmundi og Hönnu á Kolbeinsá 1 um tveggja ára skeið. Synir okkar Jón Pálmar og Auðunn Ingi voru 4 og 6 ára er við fluttum í sveitina og eyddu þeir löngum stundum í endanum hjá langömmu og langafa við gott atlæti. Þetta var dýrmætur tími. Þeir námu margt af þeim og er Auðunn Ingi hóf skólagöngu sína 6 ára gamall hafði hann tileinkað sér ýmislegt úr mál- fari þeirra svo eftir var tekið. Guð- mundur hefur glatt okkur með nær- veru sinni og fallegri söngrödd við skírnir og fermingar barnanna okk- ar. Er Auðunn Ingi fermdist vorið 2003 lagði hann mikið á sig að koma og fylgja honum til altaris þrátt fyrir lasleika. Það sýndi fallegan hug hans. Það var mannbætandi að búa í návist við Guðmund og Hönnu. Hjá þeim áttu allir skjól, ekki var farið í manngreinarálit, allir höfðu eitthvað til síns ágætis. Börn löðuðust að þeim enda hlustað á raddir þeirra. Hanna, það væri hver maður sæmdur af þínu dagsverki. Þú og börnin þín eruð lánsöm að hafa notið langrar samvistar við góðan eigin- mann og föður. Ég votta öllum þeim er tengjast Guðmundi á Kolbeinsá samúð. Ég sakna vinar í stað en er líka þakklát Guði fyrir að hafa ákveðið heimferð hans á þessum tímapunkti, því þegar athafnir dag- legs lífs fara að verða erfiðar er hvíldin kærkomin. Með eftirfarandi ljóðlínum kveð ég Guðmund á Kol- beinsá og þakka honum hans góða vinskap. Lokið er vöku langri liðinn er þessi dagur. Morgunsins röðulroði rennur upp nýr og fagur. Miskunnarandinn mikli metur þitt veganesti. Breiðir út ferskan faðminn fagnandi nýjum gesti. (H.A.) Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir. Ég er ekki sá eini sem Mundi og Hanna á Kolbeinsá hafa átt þátt í að koma til manns. Meira og minna all- an þeirra búskap dvaldist að sum- arlagi hjá þeim fjöldi barna og ung- linga úr þéttbýlinu, oft skyldfólk en alls ekki alltaf. Allir leituðust við að halda tengslunum áfram eftir að sveitadvölinni lauk með því að koma í heimsóknir á hverju sumri, og þá oft með eigin fjölskyldu. Ég var einn af þeim, og einstök tengsl tókust milli Ólafar konu minnar og þeirra hjóna sem tóku henni opnum örm- um, sem vert er að þakka sérstak- lega. Kolbeinsá er ekki eins og hvaða sveitabær sem er. Hlunnindajörð að fornu fari, sem veitti börnum ótrú- lega upplifun á leið til aukins þroska. Auk hefðbundins búskapar var stunduð selveiði, æðardúnstekja, lundaveiði, söfnun og vinnsla á reka- við, hrognkelsaveiðar og jafnvel handfæraveiðar. Lífið við ströndina, æðurin, krían, teistan, lómurinn, marflærnar og marglytturnar, rek- inn í fjörunni og sjálf hafaldan að norðan og brimið við klettana var ei- líf uppspretta nýrra ævintýra og uppgötvana sem greypt eru í sálar- tetrið og aldrei fyrnast. Ég er sann- færður um að dvölin þessi 10 sumur í röð, frá 5 til 15 ára aldurs, frá sauð- burði fram yfir réttir, hefur mótað persónu mína meira en flest annað. Í huganum var eilíf sól í Hrútafirð- inum á þessum tíma, nokkuð sem ég hef átt erfitt með að sannfæra aðra um síðar. Guðmundur föðurbróðir minn var ekki heldur eins og hvaða bóndi sem er. Hann var einstaklega handlaginn og smíðaði þau áhöld sem ekki voru til á bænum og auk þess skeifur og ótal aðra hluti sem óþarfi er upp að telja. Hann var talinn góður sláttu- maður og laginn við skepnur, slyng- ur við veiðar á ref og rjúpu og bjarg- aði sér almennt ákaflega vel við búskapinn. Hann hélt okkur sumar- krökkunum vel að verki og vonandi höfum verið til einhvers gagns, en aldrei minnist ég þess að hann hafi GUÐMUNDUR SIGFÚSSON Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.