Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 48

Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 48
48 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Friðrik Bjarna-son fæddist í Hörgsdal á Síðu 4. júlí 1910. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu á Kirkjubæjar- klaustri laugardag- inn 6. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Bjarni Bjarnason, bóndi í Hörgsdal, f. 17.7. 1871, d. 17.9. 1946, og kona hans Sigríður Kristófers- dóttir, f. 7.10. 1879, d. 11.5. 1966. Þau eignuðust ellefu börn sem öll eru lát- in og ólu auk þess upp þrjú fósturbörn. Friðrik var sjöundi í systkinaröðinni ásamt Jakobi tvíburabróður sínum. Sigríður Matthíasdóttir fæddist bóndi á Fossi, f. 17.3. 1892, d. 28.8. 1935, og kona hans Helga M. Ólafsdóttir, f. 22.12. 1892, d. 27. júlí 1972. Sigríður átti eina syst- ur, Jóhönnu, f. 21.6. 1924, sem lif- ir systur sína. Þau Friðrik og Sigríður gengu í hjónaband 23. maí 1940 og bjuggu óslitið frá 1948 á Hraun- bóli á Síðu í V-Skaftafellssýslu. Þau hjónin eignuðust þrjár dætur sem eru: 1) Matta, f. 11.7. 1940, maki Benedikt Bjarnarson, f. 7.1. 1936. Börn þeirra eru Þuríður Helga, Sigurður Friðrik og Hauk- ur Camillus. 2) Helga, f. 23.9. 1941. Dætur hennar eru Sigríður og Þóra Mjöll. 3) Bára Sigríður, f. 24.7. 1944. Sonur hennar er Örn Frosti. Barnabarnabörnin eru ell- efu. Útför Friðriks verður gerð frá Prestbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. á Fossi á Síðu 14. maí 1922. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Matthías Stefánsson, Við fráfall tengdaforeldra minna Sigríðar Matthíasdóttur og Friðriks Bjarnasonar er mér efst í huga þakklæti fyrir allt sem þau voru mér og þátt þeirra í uppeldi barna minna, sem nutu þeirra ómetanlegu forréttinda að vera á sumrin í sveit- inni hjá afa og ömmu. Sú reynsla og lærdómur við bústörf og samvistin við þau hefur nýst þeim vel á lífs- leiðinni. Þrettán ára missir Sigríður föður sinn sviplega aðeins 43ja ára gamlan og er eftir það með móður sinni að mestu leyti á Þverá í sömu sveit eða allt þar til hún giftist tengdaföður mínum. Fyrsta hjóna- bandsárið bjuggu þau hjá foreldr- um Friðriks í Hörgsdal en flytja síðan að Hraunbóli í sömu sveit og eru þar til 1945. Þau flytja aftur í Hörgsdalinn og eru þar til 1948 er þau flytja endanlega að Hraunbóli og bjuggu þar alla tíð síðan. Þar til Friðrik hóf sjálfur búskap hafði hann unnið ýmis störf. Hann var m.a. í læri í söðlasmíði hjá Frið- riki Kristóferssyni í Mörk, og sagði hann mér að þeir hefðu unnið virkin í eldsmiðjunni hjá Sigfúsi á Geir- landi. Einnig vann hann með Sig- fúsi við að setja upp rafstöðvar í Mýrdalnum. Þeir eru og margir veggirnir í sveitinni sem hann hlóð en hann þótti sýna þar mikla verk- lagni og útsjónarsemi og var eft- irsóttur til slíkra starfa. Ég kom fyrst að Hraunbóli 1961 og man ekki eftir að hafa misst úr sumar fram á þennan dag. Það var alltaf tilhlökkunarefni að komast í sveitina þar sem maður varð svo andlega afslappaður að tíminn stóð nánast í stað. Ekki er hægt að segja að tengdaforeldrar mínir hafi verið nýjungagjörn heldur héldu sér að mestu við gamla lagið. Það var með ólíkindum hvað tengda- föður mínum tókst að framlengja líftíma tóla og tækja með þeim efni- viði sem hendi var næst og hefur reynsla hans af söðlasmíði og upp- setningu rafstöðva komið þar að góðu gagni. Ég á vonandi eftir að koma oft að Hraunbóli í framtíðinni og þá verður gott að geta rifjað upp þær góðu stundir sem ég átti þar með tengdaforeldrum mínum. Blessuð sé minning þeirra. Benedikt Bjarnarson. Elskuleg afi okkar og amma, hafa nú lokið löngu dagsverki sínu. Afi er nú kominn til ömmu nákvæmlega 16 vikum eftir að hún kvaddi þenn- an heim. Við systkinin eigum marg- ar góðar minningar frá sumardvöl okkar í sveitinni hjá ömmu og afa á Hraunbóli. Þessar minningar úr barnæskunni viljum við af alhug þakka fyrir. Samvera okkar með ömmu og afa hefur gefið okkur gott veganesti út í lífið og þá ekki síður hin síðari ár er fjölskyldur okkar hafa notið þessara samverustunda með okkur. Við höfum alltaf álitið okkur einstaklega heppin og stór- auðug, að geta komist í friðsæld sveitarinnar til ömmu og afa. Þar gátum við gleymt klukkunni, tölv- unni og símanum og bara notið þess að vera til. Börnin okkar kunnu líka að meta það að komast burt úr skarkala hins daglega lífs í friðinn og kyrrð- ina hjá langömmu og langafa á Hraunbóli. Að Hraunbóli kom eng- inn að tómum kofanum. Kökunum, rjómakaffinu og steikunum hennar ömmu gerðu allir góð skil og verður sárt saknað í Hraunbólsferðum okkar. Ekki var fyrir að fara efnislegum lífsgæðum eða þægindum á Hraun- bóli, en þar fundum við heilbrigða og andlega lífssýn sem við systkinin ásamt fjölskyldum okkar eigum eft- ir að búa að allt okkar líf. Elsku amma og afi, við kveðjum ykkur með þakklæti í huga og biðj- um góðan Guð að geyma ykkur. Þið munuð búa í hjörtum okkar að ei- lífu. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þuríður Helga, Sigurður Friðrik, Haukur Cam- illus og fjölskyldur. FRIÐRIK BJARNASON OG SIGRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR ✝ Hólmfríður Pét-ursdóttir fæddist í Presthvammi í Lax- árdal 17. júlí 1926. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Þingey- inga, Húsavík, 3. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Pétur Jóns- son, bóndi og vegavinnuverkstjóri í Reykjahlíð í Mý- vatnssveit, f. 18. apr- íl 1898, d. 17. nóv 1972, og Kristín Þur- íður Gísladóttir, f. 31. júlí 1895, d. 21. júlí 1984. Systk- ini Hólmfríðar eru Gísli, f. 10. maí 1922, d. 25 apríl 1950, Jón Ár- mann, f. 24. maí 1924, Snæbjörn, f. 31. ágúst 1928, og Helga Valborg, f. 26. júní 1936. Hólmfríður giftist 18. apríl 1949 Sverri Tryggvasyni frá Víðikeri, f. 15. júlí 1920, d. 8. júní 1999. For- eldrar hans voru Tryggvi Guðna- son, f. 9. nóv. 1876, d. 29. okt.1937, og Sigrún Ágústa Þorvaldsdóttir, f. 2. okt. 1878, d. 27. nóv. 1959. Börn Hólmfríðar og Sverris eru: 1) Héðinn, f. 20. sept. 1949, sambýlis- kona Lára Ingvarsdóttir. Börn Héðins og Huldu Finnlaugsdóttur, en þau slitu samvistum, eru: a) Tryggvi, f. 1974, d. 16. maí 1993. b) Erna, f. 1976, dóttir hennar og Harðar Sigurjóns Karlssonar er Álfheiður Kristín. Sambýlismaður Ernu er Halldór Gunnarsson, son- ár. Hólmfríður var formaður Menningarsjóðs þingeyskra kvenna um árabil. Hún stóð fyrir því að sjóðurinn var stofnaður 1951 og stuðlaði að því að endur- reisa hann upp úr 1990. Hlutverk sjóðsins var að styrkja konur í Suður-Þingeyjarsýslu til náms. Í tilefni af 50 ára afmæli sjóðsins var gefin út hjá bókaútgáfunni Pjaxa ehf. í samvinnu við Menningar- sjóðinn bók með hugverkum 180 þingeyskra kvenna og var Hólm- fríður upphafsmaður og aðal- hvatamaður að bókinni. Skóg- ræktarfélag var stofnað í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1943. Hún átti þátt í að endurvekja fé- lagið um 1970 og var formaður þess frá 1977 til 1996. Árið 1985 var stofnað fyrir tilhlutan hennar ITC deildin Fluga, sem starfar inn- an alþjóðasamtakanna Internat- ional Training in Communication. Hólmfríður var tvisvar forseti deildarinnar og forseti II. ráðs ITC. Hún tók að sér ábyrgðarstörf fyrir landsvið samtakanna. Hólm- fríður var hvatamaður að því að Handverksfélagið Dyngjan var stofnað í Mývatnssveit og var í stjórn þess félags. Einnig hafði hún forgöngu um að stofna Félag eldri Mývetninga og var auk þess einnig einn af aðalhvatamönnum þess að stofna Mývatnssafn, til að varðveita muni og sýna ókomnum kynslóðum hvernig lifað var í Mý- vatnssveit fyrrum. Á síðastliðnu ári var Hólmfríður sæmd riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf hennar að félagsmálum, handverki og skógrækt. Útför Hólmfríðar fer fram frá Reykjahlíðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ur þeirra er Brynjar Logi. c) Jóhannes Pét- ur, f. 1979, sambýlis- kona Sólveig Hlín Kristjánsdóttir. d) Helgi, f. 1988. e) Ein- ar, f. 1990. Dóttir Héð- ins og Rufiu Alexivu, Diljá, f. 2001. 2) Sig- rún, f. 9. maí 1953, maður hennar er Frið- rik Lange Jóhannes- son. Börn þeirra eru: a) Sverrir Lange, f. 1975, sambýliskona, Helga María Gísla- dóttir, sonur þeirra er Tristan Alex Lange og b) Daði Lange, f. 1979. 3) Kristín Þuríður, f. 6. des. 1959. Sonur hennar og Jó- hannesar Hjálmarssonar er Bjart- mar Þorri, f. 1978. 4) Gísli, f. 18. maí 1961, kona hans er Lilja Sig- ríður Jónsdóttir. Börn þeirra eru Aldís, f. 1983, Eyrún, f. 1990, Tóm- as, f. 1994, og Bjarki, f. 2001. Árið 1957 stofnuðu Sverrir og Hólmfríður nýbýli út úr landi Reynihlíðar, reistu þar íbúðarhús og nefndu bæinn Víðihlíð. Hólm- fríður vann lengi í hótelinu í Reynihlíð, fyrst var hún starfs- stúlka og síðan sá hún um árarað- ir, um að baka brauð og kaffibrauð í hótelinu. Um 50 ár starfaði Hólm- fríður í Kvenfélagi Mývatnssveitar og var formaður þess frá 1952 til 1974 með hléum eða samtals í 15 ár. Hún var formaður Kvenfélaga- sambands Suður-Þingeyinga í 11 Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir.) Elsku Fríða frænka mín var góð fyrirmynd fyrir unga stúlku. Hug- sjónamanneskja, barðist fyrir jafn- rétti kynjanna og hagsmunum minni- máttar, umhverfissinni sem sá Hólasand í hillingum hulinn skógi grænum. Hún var skáld og listamað- ur, orti vísur við öll möguleg tækifæri og bjó til hvað sem var úr hverju sem var – snillingur í höndunum. Hún var óþreytandi afl í margvíslegum fé- lagsstörfum. Fáir hafa átt Fálkaorð- una meira skilið en hún fyrir framlag sitt þar. Ég syrgi einn af hornsteinum fjöl- skyldunnar okkar, móðursystur sem passaði mig þegar ég var lítil. Hjarta heimilis þar sem klukkan 5 á aðfanga- dag var enn verið að búa til síðustu jólagjafirnar eins og á verkstæði jóla- sveinanna, þar sem hlý angan af reyktum silungi og heitu brauði fyllti vitin og umvafði mann öryggi. Heimili þar sem ég fékk að hlusta á Litlu Ljót og Áfram stelpur á plötuspilaranum, þar sem ég lærði að passa börn, barnabörnin. Ég minnist Fríðu við að klippa rósir í gróðurhúsinu, við gróð- ursetningu trjáa uppi í brekku, heyri óm af hlátrasköllum í Grjótagjá og sögur hennar af álfum og tröllum á söluferðum okkar fyrir S.Í.B.S. Það var fjör í kringum hana við undirbún- ing skemmtiatriða þorrablóta, á álfa- dansæfingum, við laufabrauðsgerð heima á torfunni okkar að ég tali ekki um jólaboðin þá var gott að vera með Fríðu í liði sem vissi allt og var til í að leika hvað sem var. Best af öllu var að koma til Fríðu í bakaríið á hótelinu, fá góð ráð og heimsins bestu rúnn- stykki. Oft bakaði hún fyrir jarðarfarir þar með sköpunargleði og samúð, ég sé fyrir mér skærbleikar tertur fyrir unnanda þess lits. Skyldu hennar tertur vera skreyttar rósum í dag? Ég mun sakna frænku minnar og vildi geta kvatt hana betur og þakkað fyrir allt sem hún gaf mér. Elsku Héðinn, Rúna, Stína, Gilli og fjölskyldur, Erna mín og Þorri, ég hugsa til ykkar. Kveðja Drífa Arnþórsdóttir. Í dag kveðjum við kæra frænku, Hólmfríði Pétursdóttur úr Víðihlíð. Í minni fjölskyldu var hún gjarnan köll- uð Fríða gamla frænka, ekki af því að hún hafi verið svo gömul heldur af því að hún var svo góð frænka. Það eru forréttindi að fá að alast upp í samhentri stórfjölskyldu og eiga þannig margar góðar minningar frá stórum sem smáum viðburðum sem ylja manni um hjartarætur um ókom- inn tíma. Nú þegar komið er að leið- arlokum hjá Fríðu þá streyma minn- ingabrotin um huga minn. Svartabrauðið í eldhúsinu í Víðihlíð. Félagsmálanámskeið hjá Fríðu þegar ég var unglingur. Bakstursilmur í bakaríinu á hótelinu. Súkkulaðikök- urnar og rúnstykkin! Vísur, spakmæli og geislandi bros. Ferðir upp í skóg- ræktargirðingu. Vínberja- og rósa- rækt í gróðurhúsinu. Og jólagjafirnar úr Víðihlíðarsmiðju. Seint gleymi ég henni Soffíu slöngu sem einu sinni skreið upp úr risapoka sem komið hafði verið fyrir undir jólatrénu í Austurhlíð. Fríða var mikil hagleik- skona og allt virtist leika í höndum hennar. Enda brást það yfirleitt ekki að ef einhver lenti í vandræðum með að út- búa eitthvað eða laga þá var hægt að leita til Fríðu og hún bjargaði mál- unum. Hún var líka óþrjótandi upp- spretta hugmynda og eftir hana liggja stórkostleg listaverk, bæði stór og smá, hvort heldur sem um handverk eða hugverk er að ræða. Fríða var atorkumikil og átti mörg áhugamál. Sameiginlegt áhugamál okkar voru félagsstörf og um skeið vorum við samtíða í ITC-starfi. Það voru lær- dómsrík og skemmtileg ár og ekki var nú kynslóðabilinu fyrir að fara þar. Þó það sé lífsins gangur að menn- irnir týni tölunni og allir verði að vera undir það búnir þá er erfitt að hugsa sér stórfjölskylduna án Fríðu gömlu frænku. Elsku Gilli, Stína, Rúna, Héðinn og fjölskyldur, innilegar sam- úðarkveðjur til ykkar allra. Birna, Steinar og börn. Ég var lítil í sveitinni okkar, elsku Fríða ömmusystir, og af því ég var svo lítil þá man ég ekki svo skýrt. Margar minninganna um þig eru eins og máðar vatnslitamyndir eða kunnugleg lykt sem maður getur ekki skilgreint, bara þekkir og gleðst, bráðnar að innan, lekur til og rennur saman svo allt verður óskýrt, og eftir stendur tilfinningin ein. Vatnslita- myndir af hrafntinnu við útidyrnar, fallegum púðum í týndu herbergi, rugguhesti, hægindastól og rúg- brauði með reyktum silungi. Þú gafst mér prjónapúka og vísu í fermingargjöf, og ég safna málverk- um eftir þig og vel þeim hjartastað. Almættið styrki ykkur öll, sem haf- ið elskað og misst þessa góðu konu. Helga Valborg Steinarsdóttir. Í kjölfar sumarloka, á einhverju hlýjasta sumri sem Íslendingar hafa upplifað lauk Hólmfríður Pétursdótt- ir vegferð sinni á þessari jörð. Hólm- fríður var einn af stofnendum Lands- samtaka ITC á Íslandi. Er á engan hallað þótt fullyrt sé að með henni sé genginn einn af máttarstólpum sam- takanna. Margir eru þeir félagar sem til hennar hafa sótt stuðning og hvatningu. Hún var til síðasta dags áhugasamur og ötull félagi og lét ekk- ert aftra sér frá þátttöku. Það varð ekki fundið af návist við hana á lands- þingi ITC í vor að hún hefði þar í för með sér óboðinn gest, sjúkdóminn sem hún tókst á við síðustu misserin. Þannig var hún, ávallt glaðvær, kjarkmikil og ung í anda. Stjórn Landssamtaka ITC á Íslandi vottar öllum aðstandendum innilega samúð og hugsar til Hólmfríðar með þökk og virðingu. Arnþrúður Halldórs- dóttir, forseti Lands- samtaka ITC á Íslandi. Dalurinn opnast, himinhá hamrafjöll við þér taka. Vinur minn kær, ég kveð þig nú, þú kemur ekki til baka. Vinkona mín Hólmfríður Péturs- dóttir er farin og kemur ekki til baka eins og segir í þessu litla kínverska ljóði. Ég kynntist Fríðu, eins og hún var oftast kölluð, 1985 þegar við sátum báðar Landsþing ITC á Íslandi sem haldið var í Stykkishólmi. Ég heill- aðist af þessari lágvöxnu konu sem var þó nokkru eldri en ég, en yngri í anda. Hún var frjó í hugsun og mikill heimsborgari. Fríða blandaði geði við fólk frá ýmsum löndum og hýsti marga útlendinga sem vantaði húsa- skjól og náði góðu sambandi við þá, hverrar þjóðar sem þeir voru. Fríða var vel lesin og víðsýn og fylgdist vel með því sem var að gerast bæði heima og heiman. Hún var jafnan í forystu- sveit þeirra sem voru í félagsstörfum og kenndi á mörgum félagsmálanám- skeiðum sem haldin voru í Þingeyj- arsýslum. Hún var stofnforseti ITC-deildar- innar Flugu sem var stofnuð í Mý- vatnssveit og nágrannabyggðum árið 1985. Gegndi hún einnig mörgun trúnaðarstörfum á efri sviðum ITC. ITC Fluga starfar innan Alþjóða- HÓLMFRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.