Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 54

Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 54
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Svínið mitt © DARGAUD KOMDU SÆLL FARÐU BURT VILTU LEIKA? ÉG GET EKKI UNNIÐ FUGLINN ER Í VONDU SKAPI HANN ER HEPPINN AÐ HANN BÝR EKKI Í BÚRI. EF MAÐUR BÝR EKKI Í BÚRI ÞÁ ER HEIL- SAN ÞAÐ EIN SEM MAÐUR ÞAR TIL AÐ VERA GLAÐUR ...OG PÍNU JAFN- VÆGI ERTU TIL Í AÐ RÉTTA JÓNU ÞENNAN MIÐA? ÞETTA ER LEYNIMIÐI SEM ÞÚ MÁTT EKKI LESA ÞÚ ERT NÚ MEIRI HÁLFVITINN KALVIN! ÉG SAGÐI AÐ ÞÚ MÆTTIR EKKI LESA MIÐANN SOLLA FRÁBÆRT GROIN! GROIN! OG SVO... ÞENNAN KANN ÉG EKKI GROIN ÉG VERÐ AÐ FARA GROIN HÚN ER HEIT !?! NÚ ER NÓG KOMIÐ ADDA! HANN ER ÁGÆTUR ÞESSI GUNNI EN EF ÞÚ SEGIR SVONA GRÓF ORÐ AFTUR ÞÁ.... ÞETTA GENGUR EKKI LENGUR AAAAHHHHHH!! HVAÐ ERTU AÐ GERA? HRINGJA Í PABBA HANS! GOTT KVÖLD HERRA. ÉG ER PABBI HENNAR ÖDDU. ÞAÐ ER KOMIÐ UPP SVOLÍTIÐ VANDAMÁL EFTIR AÐ GUNNI KOM Í HEIMSÓKN TIL OKKAR ÞETTA ER ALVEG ÓTRÚLEGT! ÉG ÆTLAÐI EINMITT AÐ HRINGJA Í ÞIG OG SEGJA ÞAÐ SAMA BORÐAÐU MATINN ÞINN NEI, ÉG ER HÆTTUR AÐ BORÐA SVÍNAKJÖT Dagbók Í dag er laugardagur 13. nóvember, 318. dagur ársins 2004 Aksturslag er eins ogsvo margt annað athæfi mannsins háð venjum. Fyrirmyndar- ökumönnum hefur tekist að temja sér góðar ökuvenjur, þar sem löghlýðni og al- menn skynsemi liggur til grundvallar. En því miður hafa alltof margir ökumenn tam- ið sér ýmsa slæma ávana sem þeir eiga erfitt með að losa sig við. x x x Víkverja var hugsaðtil þessa er hann stóð sjálfan sig að verki, gerði nokkuð sem hann er alltof gjarn á að gera, og skammast sín fyrir. Þessi óvani Víkverja, og svo fjölmargra annarra ökumanna, er að virða að vettugi stöðvunarlínur við umferðarljós. Virkar kannski sem eitthvert smotterí í stóra samheng- inu – aðalatriðið sé að stoppa á rauðu ljósi og virða þá reglu sem boðorð sé – en auðvitað er óþolandi að maður geti ekki vanið sig á svona einfalda reglu. Þessi ósiður getur t.d. haft í för með sér – og gerir gjarnan – að bíllinn lendi inn á miðri gangbraut, reit sem ætlaður er gangandi vegfar- endum, en ekki pláss- frekjunum bílunum. En þótt nógu alvar- legur sé þá er þessi ósiður samt ekki nærri því sá alvarleg- asti sem ökumenn hafa vanið sig á. Þeir eru t.d. ótrúlega margir sem virðast aldrei hafa getað vanið sig á að nota stefnu- ljósin reglulega og rétt. Sem er náttúr- lega vítavert kæru- leysi og getur hæglega leitt til stórslysa. Ann- að sem einhverjir virð- ast ekki geta vanið sig á, sama hversu mikilvægi þess er brýnt fyrir þeim, er að nota bílbeltin. Það sýndi sig einmitt best hér um árið, þegar bílbeltanotkun var sett í lög, að eftir allt saman þá var hún háð venjum. Langflestum tókst, sem betur fer, upp frá því að venja sig á að nota bíl- beltin. Og sama gildir um farsíma- notkun undir stýri. Fyrir ári eða svo var annar hver maður blaðrandi, með símann í annarri, stýrið í hinni og hugann einhvers staðar víðsfjarri. En eftir að lögreglan fór að sekta menn fyrir þennan óvana þá hefur Víkverji orðið miklu minna var við hann. Hvað segir það okkur? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is          Borgarleikhúsið | Mikið fjölmenni, eða rúmlega hundrað manns, skráðu sig til þátttöku á námskeiði um Vesturfarana sem Mímir-símenntun og Borgar- leikhúsið skipulögðu, en þar flytja virtir fræðimenn fyrirlestra um vesturfar- ana, sögu þeirra, líf og menningu. Böðvar Guðmundsson rithöfundur ávarp- aði viðstadda á fyrsta degi námskeiðsins á fimmtudagskvöld. Morgunblaðið/Kristinn Fjallað um vesturfara MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Og hann sagði við mig: „Það er fram komið. Ég er Alfa og Ómega, upp- hafið og endirinn. Ég mun gefa þeim ókeypis, sem þyrstur er, af lind lífs- ins vatns.“ (Opinb. 21, 6.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.