Morgunblaðið - 13.11.2004, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 57
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó í dag kl. 14. Auka-
umferðir eftir kaffi. Hárgreiðslu– og fót-
snyrtistofa eru opnar frá kl. 9–16 alla virka
daga.
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist sunnu-
daginn 14. nóvember, kl. 14. Kaffiveitingar,
allir velkomnir.
FEBÁ, Álftanesi | Farið verður að sjá sýn-
inguna „Edith Piaf“ í Þjóðleikhúsinu á laug-
ardagskvöld.
Félag eldri borgara Kópavogi | Opið hús
verður fyrir félagsmenn FEBK og gesti
þeirra kl. 14 í Félagsmiðstöðinni Gullsmára.
Dagskrá: Píanóleikur Elsa Fanney Jóns-
dóttir. Leiftur frá liðnum árum. Kaffi og
meðlæti. Sigríður Norðkvist stjórnar
fjöldasöng. Félagar, fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Félag eldri borgara Reykjavík | Dansleikur
sunnudagskvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur
fyrir dansi. Fyrirhuguð er ferð á Listasafn
Einars Jónssonar fimmtudaginn 18. nóv-
ember kl. 13. Safnið stendur um þessar
mundir fyrir kynningarátaki á afsteypum
og býður félagsmönnum upp á afslátt á
verði. Skráning á skrifstofu FEB í s. 588
2111.
Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Göngu-
hópur hittist í Kirkjuhvolskjallaranum, lagt
af stað kl. 10.30.
Hæðargarður 31 | „Út í bláinn“ fjölskyldu-
ganga Háaleitishverfis. Lagt af stað kl. 10.
Húsið opnað kl. 9.30. Teygjuæfingar og
vatn í boði. Upplýsingar í síma 568 3132.
Kirkjustarf
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund
alla laugardaga kl. 20. Einnig eru bæna-
stundir alla virka morgna kl. 6–7.
Langholtskirkja | Kirkjuprakkarar, starf
fyrir 7–9 ára, er á mánudögum kl. 15.30–
16.30. Athugið breyttan tíma. Fjölbreytt
starf í umsjón Ólafs Jóhanns og Guð-
mundar Arnar.
Njarðvíkurprestakall | Kirkjuvogskirkja
(Höfnum): Sunnudagaskóli á morgun kl.
13.30 í umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur
og Gunnars Þórs Haukssonar. Foreldrar
eru hvattir til að mæta með börnunum.
Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur.
Njarðvíkurprestakall | Ytri-Njarðvíkur-
kirkja: Sunnudagaskóli á morgun kl. 11 í
umsjá Margrétar H. Halldórsdóttur og
Gunnars Þórs Haukssonar og Natalíu
Chow Hewlett organista. Foreldrar eru
hvattir til að mæta með börnunum. Baldur
Rafn Sigurðsson sóknarprestur.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
SÝNINGIN „Ferð að yfirborði jarð-
ar,“ með verkum Boyle-fjölskyld-
unnar frá Skotlandi verður opnuð í
dag kl. 15 í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar. Með-
limir Boyle-fjölskyldunnar eru fjór-
ir, hjónin Mark Boyle og Joan Hill
og börn þeirra Sebastian og
Georgia, en hópurinn vinnur sem
einn listamaður að öllum verkefnum
sínum. Listsköpun þeirra er nokk-
urs konar fjölskyldufyrirtæki.
Boyle-fjölskyldan hefur sérhæft
sig í að gera svokallaðar jarð-
sneiðar, sem eru nákvæmar eft-
irmyndir af jarðsvæði, en fyrstu
jarðsneiðina gerðu þau Mark og
Joan árið 1964. Fjórum árum seinna
hófu þau risavaxið verkefni sem
nefnist Ferð að yfirborði jarðar.
Takmark þeirra var að gera ná-
kvæma eftirmynd af 1000 hlutum yf-
irborðs jarðar, sem væru valdir af
handahófi.
Verkefnið hófst þegar áhorfendur
voru beðnir um að kasta pílum í
risastórt heimskort til að velja stað-
ina. Sjötíu prósent pílnanna lentu í
sjó en sú fyrsta stakkst í Ísland. Í
framhaldinu ferðuðust þau til
margra landa, borga og afskekktra
staða, og gerðu ofurraunsæja lág-
mynd af því svæði þar sem pílan
hafði lent. Aðferðin sem þau nota við
að endurskapa jarðsvæðin svo ná-
kvæmlega, oft úr óstöðugum efnum
eins og sandi, mold og ís er vel varið
leyndarmál. Fjölskyldan hefur aldr-
ei komið til Íslands, áfangastaðar
fyrstu pílunnar, eða haldið þar sýn-
ingu, fyrr en nú. Þau sýndu fyrst í
Listasafninu á Akureyri en þaðan
kemur sýningin í Hafnarborg.
Mark og Joan eiga sér langan fer-
il að baki og hafa m.a. unnið með
listamönnum á borð við Jimi Hend-
rix og Dieter Roth. Með Hendrix
bjuggu þau til skynvíkkandi ljósa-
sýningu, sem varð afar þekkt og
bregður m.a. fyrir í bíómyndunum
um spæjarann Austin Powers.
Sýning Boyle-fjölskyldunnar er
haldin í samstarfi við Listasafnið á
Akureyri, sýningar- og safnstjóri
Hannes Sigurðsson.
Safnið er opið alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og lýkur
sýningunni 29. nóvember.
Morgunblaðið/Sverrir
Boyle-fjöl-
skyldan
kannar yfir-
borð jarðar
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið annað kvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal
Boðin verða upp um 160 verk, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 – 16,
í dag kl. 10.00 – 17.00 og á morgun kl. 12.00 – 17.00.
Sími 551 0400 Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Sýningar
kvikmyndasafnsins
Í VETUR hef ég sótt þónokkrar
sýningar hjá Kvikmyndasafni Ís-
lands í Bæjarbíói og haft af mikinn
lærdóm og skemmtun.
Þriðjudaginn 9. nóvember fór ég
að sjá Ívan grimma eftir Eisenstein
og hugsaði mér gott til glóðarinnar,
enda mikið meistaraverk þar á ferð.
Sýningin gekk bærilega, þótt sýn-
ingarstjórinn hökti lítillega á sumum
samskeytum, en slíkt eykur auðvitað
bara á stemninguna.
Mér brá hins vegar í brún þegar
sýningunni lauk: Myndin hafði að-
eins tekið um 100 mínútur í sýningu
en skv. áreiðanlegum heimildum er
heildartími Ívans grimma 115 mín-
útur.
Kópía Kvikmyndasafnsins virðist
vera alvarlega brengluð. Ég sting
upp á því að umsjónarmenn kvik-
myndasýninga í Bæjarbíói taki það
fram sérstaklega ef um styttar út-
gáfur mynda er að ræða, því annað
er fúsk.
Gestur Jónsson.
Verkfalli mótmælt
ÉG mótmæli verkfallinu. Mig langar
að komast í skólann og hitta vini
mína og ég vil fá að læra í skólanum
en get ekki gert neitt í þessu verk-
falli.
Af hverju hittast ekki nemend-
urnir í sínum skóla og ræða saman
og læra eitthvað? Hvernig geta þeir
gert okkur þetta?
Loka okkur úti og segja okkur
bara að fara heim. Nú er nóg komið,
ég þoli þetta ekki lengur. Mótmæl-
um verkfallinu.
Árni Bragi Eyjólfsson,
nemandi í 5. bekk Hrafnagilsskóla,
Eyjafjarðarsveit.
Drengjareiðhjól í óskilum
NÝLEGT drengjareiðhjól,
Diamond, fannst í Mýrinni í Garða-
bæ. Upplýsingar í íþróttahúsinu í
Mýrinni eða í síma 517 6600.
Blár Nokia-sími týndist
BLÁR NOKIA 3100 með tveimur
límmiðum aftan á týndist í eða við
Sundhöllina á Barónsstíg síðdegis sl.
miðvikudag. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 588 4880 eða
860 1206.
Kettlingar fást gefins
TVEIR gullfallegir kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma 565 4210
eða 869 5128.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Í FRAMHALDI af fréttatilkynn-
ingu stjórnar sjálfseignarstofn-
unarinnar Kvikmyndahátíðar í
Reykjavík (KÍR), sem birtist í
Morgunblaðinu í gær, vill stjórn
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík (AKR) koma eftirfar-
andi á framfæri.
Eins og fram hefur komið var
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík stofnuð 27. júlí síðast-
liðinn í þeim tilgangi að halda veg-
lega alþjóðlega kvikmyndahátíð í
Reykjavík þar sem slík hátíð hefur
ekki verið haldin frá árinu 2001.
Markmið starfsemi AKR er:
§ Að auka fjölbreytni í kvikmynda-
úrvali hér landi og höfða til
breiðs hóps áhorfenda með fjöl-
breyttri og framsækinni dag-
skrá.
§ Að gera kvikmyndaáhugafólki á
Íslandi kleift að sjá kvikmyndir
sem hafa litla möguleika á að
komast í almenna dreifingu á al-
þjóðlegum kvikmyndamarkaði;
sem endurspegla menningu
margvíslegra menningarsvæða;
og sem ella myndu ekki skila sér
hingað til lands.
§ Að skapa beintengingu og mið-
punkt fyrir það nýjasta, fersk-
asta og áhugaverðasta sem er að
gerast á hinu alþjóðlega og ís-
lenska kvikmyndasviði. Þessi
þáttur þjónar upprennandi lista-
mönnum á sviði íslenskrar kvik-
myndagerðar ekki síður en hinu
almenna kvikmyndaáhugafólki.
§ Að efla og glæða áhuga almenn-
ings á kvikmyndum í víðu sam-
hengi. Með því að veita almenn-
ingi aðgang að slíkum verkum,
með því að standa fyrir fræðslu
og víðtækri og vandaðri umræðu
um kvikmyndir og með því að
tengja starf hátíðarinnar við
skólastarf.
§ Að koma á samstarfi á breiðum
grunni við listastofnanir, ýmsa
menningarviðburði og sveitar-
félög víða um land.
Menntamálaráðuneytið og
Reykjavíkurborg eru bakhjarlar
hátíðarinnar og styðja hana með
fjárframlögum.
Listrænir ráðgjafar AKR eru
Sigurjón Sighvatsson kvikmynda-
framleiðandi og kvikmyndagerðar-
mennirnir Dagur Kári Pétursson,
Sólveig Anspach og Sturla Gunn-
arsson. Þá hefur fulltrúum fag-
félaga kvikmyndagerðarmanna og
leikara auk fulltrúa ríkis, borgar
og AKR verið boðið að sitja í heið-
ursnefnd Alþjóðlegrar kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík. Skv. samningi
við menntamálaráðuneytið sér
Kvikmyndamiðstöð Íslands um þá
skipan. Þegar hafa verið tilnefnd í
heiðursnefnd: Sigríður Péturs-
dóttir og Ólafur H. Torfason til
vara fyrir Reykjavíkurborg og
Stefán Baldursson og Breki Karls-
son fyrir AKR.
Nýlega var undirrituð vilja-
yfirlýsing um samstarf við
mennta- og menningarsetrið á
Eiðum, sem Sigurjón Sighvatsson
er í forsvari fyrir. Með henni eru
lögð drög að samvinnu Eiða og
AKR við eflingu menningar á
landsbyggðinni og höfuðborgar-
svæðinu, og áhuga almennings á
sjónrænum listum í víðu sam-
hengi. Í fréttatilkynningu frá að-
standendum Kvikmyndahátíðar í
Reykjavík kemur fram ásökun
þess efnis að AKR notfæri sér
nafn og viðskiptavild KÍR án leyf-
is. Þetta er misskilningur. AKR
fékk í lok ágúst sl. munnlegt leyfi
Friðriks Þórs Friðrikssonar, for-
svarsmanns KÍR, til að nota nafn
og viðskiptavild hátíðarinnar.
Stjórn AKR ákvað að nota ekki
nafn KÍR eins og ljóst má vera. Í
vörumerki hátíðarinnar stóð um
tíma Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík en á ensku Reykjavík
Film Festival. Hún hefur einnig í
nokkrum bréfum sagt sig arftaka
KÍR. Þetta gerði hún í góðri trú en
mun ekki gera það héðan í frá þar
sem forsvarsmenn KÍR eru greini-
lega ekki á eitt sáttir um að hún
megi kynna sig með þeim hætti.
AKR harmar þennan leiða mis-
skilning.
Í fréttatilkynningu frá KÍR
kemur jafnframt fram að ef slegið
er upp í simaskra.is nafni Kvik-
myndahátíðar í Reykjavík er búið
að slá þar inn nafn og síma AKR.
Ástæður þessa liggja í leitarforriti
vefsímaskrárinnar. Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í Reykjavík er
skráð í simaskra.is sem Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í Reykjavík og
hefur aldrei verið skráð þar undir
öðru heiti. Stjórn Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar harmar þennan
leiða misskilning sem hefði mátt
leiðrétta með einfaldri fyrirspurn
eða ábendingu. Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík hefur ekki
verið kunnugt um áform KÍR um
áframhaldandi starfsemi, fyrr en
nú. Þar sem þessi leiði misskiln-
ingur hefur nú verið leiðréttur tel-
ur AKR mikilvægt að áhugafólk
um uppbyggingu öflugrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík vinni
sameiginlega og af heilum hug að
því markmiði.
Reykjavík, 12. nóvember 2004
Stjórn Alþjóðlegrar kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík:
Hrönn Marinósdóttir,
framkvæmdastjóri AKR,
Breki Karlsson,
stjórnarmaður,
Tómas Hermannsson,
stjórnarformaður AKR.
Fréttatilkynning frá Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík 12. nóvember 2004
Að gefnu tilefni
BJÖRK Guðna-
dóttir og Ráðhild-
ur Ingadóttir
opna myndlist-
arsýningar í Ný-
listasafninu í dag
kl. 17. Á sama
tíma opnar Ný-
listasafnið sýn-
ingu á verkum í
eigu safnsins sem
kallast Sýra
Nostalgía.
Sýning Bjarkar heitir „Eilífðin
er líklegast núna“ og er þar að
finna fjölda skúlptúra úr gipsi og
eitt stórt verk úr áli og pólýester
siffon. Björg vill ögra skynjun
áhorfandans með formum og lita-
notkun, sem minna bæði á teikni-
myndir barnæskunnar og erótísk-
ar línur mannslíkams. Verkin
öðlast þannig nýja verund sem er
bæði munúðarleg og fyndin.
Sýning Ragn-
heiðar „Inni í
kuðungi, einn
díll,“ er undir
miklum áhrifum
drauma hennar,
en sem barn og
unglingur
dreymdi hana
drauma sem
leiddu til áhuga
hennar á stjörnu-
fræði og náttúruvísindum.
Undanfarið hefur Ráðhildur
skoðað drauma sína með því að
endurgera þá í formi myndbanda.
Á sýningunni er ein slík endur-
gerð, auk skúlptúrs og vegg-
málverks.
Draumfarir og
framandi form
Sýningarnar eru opnar frá kl. 13–17
miðvikudaga til sunnudaga og
standa til 19. desember.
Ráðhildur
Ingadóttir
Björk
Guðnadóttir
Myndlist | Tvær listakonur opna
sýningar í Nýlistasafninu