Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 58
58 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDATÓNLEIKAR SÍ á
fimmtudagskvöld voru að mörgu
leyti óvenjulegir. T.a.m. var áhöfn
S.Í. í smæsta lagi með aðeins 2
flautum og 2 óbóum auk strengja-
sveitar. Á móti komu fram 4 ein-
söngvarar og 22 manna kór, og
gat tónskáldið aldrei þessu vant
veitt flytjendum aukna hvatningu
með nærveru
sinni.
Né heldur
hafa margar
kvikmyndir í
téðri tónleikaröð
náð þeim gæða-
staðli að teljast
með 10 fremstu
verkum kvik-
myndasögunnar.
Mynd danska
leikstjórans Carl Th. Dreyers
(1889–1968) um píslarvætti Jó-
hönnu frá Örk, er bjargaði Frakk-
landi undan hersetu Breta, þykir
nú jafnast á við þögul stórvirki
eins og Fæðingu þjóðar Griffiths
og Ívan grimma Eisensteins. En
þótt keppikefli Dreyers hafi ekki
verið að gera „sögulega“ kvik-
mynd heldur tímalausa skírskotun,
mætti e.t.v. skjóta inn þeim sögu-
fróðleiksmola, að það sem brezk-
um böðlum Jóhönnu gekk helzt til
við réttarhöldin í Rúðu 1430 var
að geta stimplað „meyna frá
Orléans“ sem galdranorn – og þar
með réttlætt undangengna ósigra
sína heima fyrir.
Þvílíkt pólitískt baktjaldamakk
var 19 ára bóndadótturinni frá
Domrémy í Lorraine auðvitað öld-
ungis framandi, enda setti hún
lögfróða kvalara sína sífellt í
bobba með eðlislæga sakleysi sínu,
eins og fram kemur af varðveittum
réttarskjölum. Þá andstæðu út-
penslar grafískt myndmál Dreyers
ógleymanlega, og tónlist Einhorns
var í nánu samræmi. Einar 15 til-
raunir ku hafa verið gerðar til að
tónsetja kvikmyndina, en þessi
þykir hafa tekizt langbezt. Jafnvel
þótt höfundur segist sjálfur hafa
stefnt að tónlist sem gæti staðið
sjálfstæð (og munu færri dæmi um
slíkt í kvikmyndatónlist en út eru
gefin á hljóðdiskum), þá virtist
samt furðumargt smellpassa við
myndhrynjandina – þó að vera
kunni að sérhæfð reynsla Strobels
stjórnanda hafi brúað sitthvað bet-
ur í tímaramma en öðrum myndi
takast.
Tónmál Einhorns var sem fyrr
sagði í einlægu samræmi við písl-
arsögu Jóhönnu. Í meginatriðum
tónalt, gegnsætt og einfalt; dulítið
á við léttkryddaðan Orff með
hnífsbroddi af miðaldatónlist og
nútímanaumhyggju. Það var samt
oft býsna áhrifamikið, enda þótt
ákveðinn naívismi drægi stundum
fullangan seim fyrir dálæti höf-
undar á tvítekningum og hnígandi
skölum. Á móti vó fjölbreyttur rit-
háttur allt frá sólískri nekt í
krassandi massa, er lætur sig
merkilega oft vanta hjá framsækn-
ari tónskáldum.
Burtséð frá framan af svolítið
hráum kórtenórum var flutningur
S.Í. og Hljómeykis ýmist þrótt-
mikill eða kristalstær. Framlag
einsöngvaranna sömuleiðis, þar
sem heiðhvolfssópran Hallveigar
Rúnarsdóttur og hunangsbassi
Keiths Reed voru fremstir meðal
jafningja.
Sakleysið ósigrandi
TÓNLIST
Háskólabíó
Einhorn: Voices of Light við mynd C. T.
Dreyers um Jóhönnu frá Örk. Hallveig
Rúnarsdóttir S, Dóra Steinunn Ármanns-
dóttir MS, Egill Árni Pálsson T og Keith
Reed B; sönghópurinn Hljómeyki og Sin-
fóníuhljómsveit Íslands u. stj. Franks
Strobels. Fimmtudaginn 11. nóvember
kl. 19:30.
Kvikmyndatónleikar
Richard
Einhorn
Ríkarður Ö. Pálsson
Bíótónleikar
HÁSKÓLABÍÓI Í DAG, LAUGARDAG KL. 15.00
Klukkan tifar (1923) með Harold Lloyd
Hundalíf (1918) eftir Charlie Chaplin
Hljómsveitarstjóri ::: Frank Strobel
MI‹ASALA Í SÍMA 545 2500 E‹A Á WWW.SINFONIA.IS
Rakarinn morðóði
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
sun. 14. nóv. kl. 20
Allra síðasta sýning.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
Litla stúlkan með eldspýturnar
lau. 13. nóv. kl. 14 - sun. 14. nóv. kl. 14 - lau. 20. nóv. kl. 14
sun. 21. nóv. kl. 14 - lau. 27. nóv. kl. 14 - sun. 28. nóv. kl.14
Misstu ekki af SWEENEY TODD!
Einhver magnaðasta sýning sem sést hefur á íslensku leiksviði
Aðeins EIN sýning eftir!
CHICAGO
Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Su 21/11 kl 20, - UPPSELT
Su 28/11 kl 20, Fi 2/12 kl 20, Fö 3/12 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGA
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20
Su 21/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20,
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20,
Fö 26/11 kl 20, Lau 4/12 kl 20.
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI -
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingar að eigin vali
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins - Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun:
Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir.
Í kvöld kl 20, Lau 20/11 kl 20, Lau 27/11 kl 20
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20,
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 14/11 kl 14, Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14,
Su 5/12 kl 14, Su 2/1 2005 kl 14
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
SCREENSAVER eftir Rami Be'er
Su 21/11 kl 20
SÍÐASTA SÝNING
15:15 TÓNLEIKAR - NÝ ENDURREISN
Málþing: Atli H. Sveinsson,Bjarki Sveinbjörnsson,
Bergþóra Jónsdóttir og Þorsteinn Gylfason.
Í dag kl 15:15
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA
Þri 16/11 kl 20 - Viðar Hreinsson
Fi 18/11 kl 20 - Helga Ögmundardóttir
Þri 23/11 kl 20 - Gísli Sigurðsson
Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is
Þjóðleikhúsið sími 551 1200
• Stóra sviðið kl. 20:00
EDITH PIAF – Sigurður Pálsson
Í kvöld lau. 13/11 uppselt, fös. 19/11 uppselt, fim. 25/11 uppselt, fös. 26/11 uppselt, lau. 4/12
uppselt, lau. 11/12 uppselt, sun. 12/12 örfá sæti laus, mið. 29/12 uppselt,
fim. 30/12 örfá sæti laus.
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner
Sun. 14/11 kl.14:00 örfá sæti laus, sun. 21/11 kl. 14:00 nokkur sæti laus,
sun.28/11 kl. 14:00.
NORÐUR – Hrafnhildur Hagalín
6. sýn. sun. 14/11 nokkur sæti laus, 7. sýn. fim. 18/11 nokkur sæti laus, 8. sýn.
sun. 21/11 nokkur sæti laus, 9. sýn. lau. 27/11.
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur
Lau. 20/11 örfá sæti laus, mið. 24/11 nokkur sæti laus, fös. 3/12.
ERN EFTIR ALDRI – Auður Bjarnadóttir. Sýning Svöluleikhússins
Frumsýning mið. 17/11, þri. 23/11, mið. 1/12. Aðeins þessar þrjár sýningar.
• Smíðaverkstæðið kl. 20:00
SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov
Í kvöld lau. 13/11 nokkur sæti laus, sun. 14/11 nokkur sæti laus, fös. 19/11.
Fáar sýningar eftir
NÍTJÁNHUNDRUÐ – Alessandro Baricco
Frumsýning fim. 18/11 uppselt, lau. 20/11, lau. 27/11, sun. 28/11.
• Litla sviðið kl. 20:00
BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson
Sun. 14/11 örfá sæti laus, fim. 18/11 nokkur sæti laus, lau. 20/11 nokkur sæti
laus, lau. 27/11, sun. 28/11
SVÖRT MJÓLK
ALLRA SÍÐUSTU FORVÖÐ!
Herbert Guðmundsson
og Stuðbandalagið
í kvöld
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
lau. 13. nóv. kl. 20. nokkur sæti laus.
fös. 19. nóv. kl. 20. laus sæti.
lau. 20. nóv. kl. 20. laus sæti.
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Sunnudagur 14. nóvember
kl.17.00 Kórtónleikar í Neskirkju.
Flutt verður rómantísk kórtónlist og TE DEUM
eftir Arvo Pärt fyrir þrjá kóra, strengjasveit,
píanó og hljóðband.
Aðgangur 1.500 kr.
☎ 552 3000
eftir LEE HALL
Ég skora á alla að sjá þessa
stórkostlegu sýningu”
AK Útvarp Saga
Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
EKKI MISSA AF KÓNGINUM!
• Fimmtudag 25/11 kl 20 LAUS SÆTI
• Sunnudag 12/12 kl 20 AUKASÝNING
• Sunnudag 26/12 kl 20 JÓLASÝNING
“ÞVÍLÍK SNILLD!
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Ausa og Stólarnir
Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus
Mán 15/11 kl 20 UPPSELT
Þri 16/11 kl 20 UPPSELT
Mið 17/11 kl 20 UPPSELT
Fim 18/11 kl 20 UPPSELT
Fös 19/11 kl 20 4.kortas. Nokkur sæti laus
ÓLIVER!
forsala
18. nóv
Sun 14/11 kl 20 Margrét Eir Útgáfutónleikar
Forsala á Óliver! hefst 18. nóvember
Í kvö ld l au . 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 19 .11 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 26 .11 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 27 .11 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 04 .12 20 .00 LAUS SÆTI
SÝNINGUM LÝKUR Í DESEMBER