Morgunblaðið - 13.11.2004, Page 62
62 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FLESTIR sem upplifðu brunaliðs-
bröltið og eldbrellurnar í Back-
draft, sælla minninga, fengu sig
fullsadda af öllu slíku og í sann-
leika sagt reiknaði ég ekki með
miklu af Ladder 49. Annað kom á
daginn. Myndin er vissulega ekk-
ert meistaraverk en hún tekur fyr-
ir viðkvæmt efni og gerir því
væmnislítil skil. Tekst það í
stórum dráttum sem henni er ætl-
að: að heiðra störf og fórnfýsi
slökkviliðsmanna. Má vera að
Hollywood sé í og með að reisa
sinn bautastein um hetjurnar í
slökkviliði New York-borgar sem
féllu í níðingsverkinu sem kennt er
við 11. september.
Hvað sem því líður kemur
Ladder 49 á óvart. Einföld saga af
slökkviliðsmanninum Jack Morri-
son (Phoenix), sem einangrast í
miðju eldhafi brennandi stórhýsis í
upphafi myndar. Síðan er 10 ára
ferill hans í liðinu rakinn frá fyrsta
degi í afturhvörfum á milli þess
sem félagar hans gera allt til að
bjarga honum. Hann eignast konu
og börn, vini og félaga innan liðsins
og má segja að vel sé haldið á klisj-
unum og endalokin engan veginn
fyrirsjáanleg.
Handritshöfundurinn reynir að
skyggnast á bak við tjöldin og leit-
ar svara við erfiðum spurningum,
líkt og hver sé uppspretta hug-
rekkisins sem knýr slökkviliðsmenn
áfram undir lífshættulegum kring-
umstæðum, hvaða áhrif slík störf
hafa á einstaklinginn og fjölskyld-
una, samhygðina innan hópsins.
Aðalpersónurnar eru þokkalega
dregnar, bæði hinn geðugi og
hreinskipti Morrison og ekki síður
Linda (Barrett), kona hans, sem
stendur þétt við bakið á bónda sín-
um. Phoenix er rísandi og traustur
leikari og við eigum örugglega eftir
að sjá meira til hinnar jarðbundnu
Barret. Travolta verður að skilja
rembinginn eftir heima og skilar
vel hlutverki stjórans sem mótar
sína menn og fær sérstakt dálæti á
Morrison. Aðrir eru minna áber-
andi. Leikstjórnin er í traustum
höndum, hvort sem er fengist við
logandi eldhafið eða manneskjurnar
sem berjast við það, beint og
óbeint, upp á líf og dauða.
Brunaliðsmenn í blíðu og stríðu
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Leikstjóri: Jay Russell. Aðalleikendur:
Joaquin Phoenix, John Travolta, Jacinda
Barrett. 115. mín. Bandarísk. 2004.
Ladder 49
Sæbjörn Valdimarsson
PORTÚGALSKA fado-söngkonan
Mariza heldur tvenna tónleika hér á
landi á vegum Listahátíðar í
Reykjavík á næsta ári. Tónleikarnir
verða í Broadway 27. og 28. maí, en
Mariza kemur með fjölmenna
hljómsveit með sér.
Mariza er fædd í Mósambík en
ólst upp í Lissabon þar sem for-
eldrar hennar ráku veitingahús
sem frægt var fyrir fado-tónlist.
Mariza var byrjuð að syngja fado
fimm ára gömul, en sem táningur
söng hún aðallega blús, djass og
fönk. Áhugi á fado kviknaði svo hjá
henni eftir tvítugt og síðan hefur
hún helgað sig hefðinni.
Mariza sló í gegn í Portúgal þeg-
ar hún söng lög sem Amalia
Rodriguez hafði gert fræg í
sjónvarpsþætti 1999 og í
kjölfar þess urðu
margir til að kalla
hana arftaka söng-
konunnar miklu. Hún
hefur þó lagt áherslu
á að fado sé ekki
safngripur, heldur lif-
andi tónlistarform og
hefur þannig leyft
sér að bregða útaf
hefðinni á síðustu
plötum sínum.
Á fyrstu plöt-
unni, Fado Em
Mim, sem kom út
2001 og var fyrsta
fado-platan sem
komst inn á portú-
galska vinsældalistann í
mörg ár, söng hún að-
allega fado-söngva, en á
Fado Curvo, sem kom
út 2002 er tónlistin
fjölbreyttari. Fyrir
stuttu kom svo út
mynddiskur
með tónleika-
upptökum.
Tónlist | Portúgalska söngkonan
Mariza til Íslands
Fado á Listahátíð
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
VINCE VAUGHN VINCE VAUGHNBEN STILLER BEN STILLER
DodgeBall
Ó.Ö.H. DV
Toppmyndin á
Íslandi í dag
kl. 12, 1.20, 2.40 og 4. Ísl. tal.
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI
RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. kl. 12, 2 og 4. Ísl. tal.
Sýnd kl. 12, 1.50, 3.50 og 8.
Sýnd kl. 6 og 10.
Kr. 500
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu
uppgjöri!
i í li
i í
j i
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6. B.i. 14 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 1.40 og 3.50
J U L I A N N E M O O R E
Frumsýnd 18. nóv
Frumsýnd 18. nóv
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
kl. 3.40 6, 8.30 og 10.40 B.i. 12
Sýnd kl. 4, 8 og 10. KRAFTSÝNING!
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
Aðeins
300 kr.
Aðeins 300 kr.
Aðeins
300 kr.
GRÍNHELGI
MISSTU ÞIG ÚR HLÁTRI fyrir aðeins 300 kr.
Sýnd kl. 12, 1.50 og 3.50. Sýnd kl. 12, 2 og 4.
Sýnd kl. 1.40 og 3.50.Sýnd kl. 12, 1.20, 2.40 og 4.
BEN STILLER
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
DodgeBall
VINCE VAUGHN
Snargeggjuð gamanmynd
frá hinum steikta
Scary Movie hóp
Aðeins 300 kr.
Aðeins 300 kr.
Aðeins
300 kr.
Aðeins 300 kr.
yfir 32.000 mann
yfir 18.000 manns