Morgunblaðið - 29.12.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 354. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Íslensk nætur-
drottning
Hrafnhildi Björnsdóttur boðið að
syngja með enskri óperu | Menning
Bílar og Íþróttir í dag
TALSMENN Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) vöruðu í
gær við því að hugsanlegt væri að
jafn margir myndu bíða bana af völd-
um farsótta á svæðunum, sem urðu
verst úti í náttúruhamförunum í As-
íu, og dóu af völdum flóðbylgna á
sunnudag. Engin endanleg tala er
komin á fjölda þeirra sem fórust, í
gærkvöldi var vitað að meira en
fimmtíu og fimm þúsund manns dóu
í tíu löndum en sú tala gæti átt eftir
að tvöfaldast.
„Hinn upphaflegi hryllingur sem
tengist flóðbylgjunum og jarðskjálft-
anum sjálfum gæti fallið í skuggann
af langtíma þjáningum íbúa þeirra
svæða sem verst urðu úti,“ sagði
David Nabarro, sérfræðingur hjá
WHO. Óttast menn að skortur á
fersku vatni og hreinlæti á hamfara-
svæðunum valdi því að farsóttir
breiðist út.
Manntjón mest í Indónesíu
Indónesía og Sri Lanka urðu verst
úti í hamförunum á sunnudag en
flóðbylgjur sem þá voru leystar úr
læðingi, af völdum öflugs jarð-
skjálfta í hafinu vestur af eyjunni
Súmötru, ollu því að tugir þúsunda
fórust og milljónir manna hafa misst
heimili sín. Embættismenn í Indó-
nesíu sögðu í gær að tala látinna þar
væri komin í 27.178 og á Sri Lanka
er vitað að 18.706 fórust. 4.413 fórust
á Indlandi og 1.516 á Taílandi. Þús-
unda er enn saknað.
Erfiðlega hefur gengið að skipu-
leggja hjálparstarf á verstu ham-
farasvæðunum. Víða skortir matvæli
og lyf og fregnir bárust af því frá
Aceh í Indónesíu, sem er nálægt
upptökum jarðskjálftans, að hungr-
að fólk rændi verslanir.
Lögreglan í Indónesíu sagðist
ekkert hafa heyrt frá íbúum nokk-
urra eyja í Andaman- og Nicobar-
eyjaklösunum, sem eru nálægt upp-
tökum jarðskjálftans, og er óttast að
um 7.000 manns hafi farist þar. Vitað
er að fjórðungur íbúa á eyjunni Car
Nicobar fórst.
Dæmi eru um að heilu þorpunum
hafi skolað á haf út. Þá herma fréttir
að allt að þriðjungur þeirra sem biðu
bana hafi verið lítil börn. Dæmi voru
um að flóðbylgjur hefðu hrifsað
kornabörn úr örmum foreldra og
flutt með sér á haf út.
Ekki vitað um ferðir 1.500 Svía
Margir þeirra sem fórust á Taí-
landi voru vestrænir ferðamenn,
einkum frá ýmsum löndum Evrópu.
Greindi Laila Freivalds, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, frá því að 1.500
Svía væri enn saknað á Taílandi.
„Við óttumst að margir þeirra muni
aldrei finnast,“ sagði Freivalds á
fréttamannafundi. Kvaðst hún ætla
að fara ásamt björgunarliði til Taí-
lands og kynna sér ástandið.
Ekki er heldur vitað um afdrif allt
að 600 Norðmanna, 200 Dana var
saknað og sömuleiðis 200 Finna.
Farsóttir gætu aukið
hörmungarnar til muna
Tala látinna af
völdum náttúru-
hamfara í Asíu
komin yfir 55.000
SJÁLFBOÐALIÐAR og opinberir starfsmenn safna
líkum fólks sem fórst á Sri Lanka og sem ekki hafði
tekist að bera kennsl á í fjöldagröf nærri bænum
Galle í suðurhluta landsins í gær.
Víða á hamfarasvæðunum var byrjað að grafa
látna í gær og sums staðar notuðu menn til þess ber-
ar hendur sínar. „Það er mikilvægt að grafa lík
manna sem fyrst og eyða líkamsleifum dýra áður en
drykkjarvatn spillist. Það er risavaxið verkefni,“
sagði Jan Egeland, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, sem hefur yfirumsjón með neyðar-
aðstoð SÞ.
AP
Líkum safnað í fjöldagrafir
SUMS staðar á hörmunga-
svæðunum við Indlandshaf var
skýrt frá björgun sem þykir
jaðra við kraftaverk. Þannig
fannst 20 daga gamalt barn á
reki á dýnu í Malasíu og hefur
nú verið fengið foreldrum sín-
um sem sluppu einnig ósködd-
uð úr harmleiknum.
Tveggja ára gamall sænsku-
mælandi drengur frá Finn-
landi, Hannes Bergström,
fannst einn og yfirgefinn en lítt
meiddur á götu í Phuket í Taí-
landi, illa bitinn af moskítóflug-
um. Frændi hans náði í hann í
gærmorgun eftir að hafa séð
frásögn af drengnum og mynd
á vefsíðu blaðsins Phuket Gaz-
ette á Netinu. Fjölskylda
Hannesar var í leyfi í Taílandi.
Starfsfólkið á spítalanum sem
sinnti honum tók eftir því að
það lifnaði yfir honum þegar
hann heyrði sænsku. Móðir
drengsins og amma eru ófund-
nar en faðirinn komst lífs af.
AP
Myndin af Hannesi Bergström
sem varð til þess að frændi
hans sótti hann á sjúkrahús.
Kornabarn
fannst á
lífi fljót-
andi á dýnu
ÁRNÝ Aurangasri Hinriksson,
kennari við Framhaldsskólann í
Austur-Skaftafellssýslu á Höfn í
Hornafirði, er ættuð frá Sri Lanka
en hefur búið lengi hér á landi. Hún
sagðist ekki vita hve margir af ætt-
ingjum hennar hefðu farist í flóð-
bylgjunni á dögunum.
Árný sagðist vera í daglegu sam-
bandi við fjölskyldu sína á Sri Lanka.
Níræð móðir hennar og systir voru
fjarri sjó og biðu ekki skaða, en þær
eiga hús í Colombo, nálægt þar sem
20 þúsund manns misstu heimili sín,
að sögn Árnýjar. Systurdóttir Ár-
nýjar er nýgift framkvæmdastjóra
lúxushótels á Maldíveyjum og fór
þangað deginum
áður en flóðbylgj-
an færði eyjarnar
að miklu leyti í
kaf.
„Við höfðum
mjög miklar
áhyggjur af henni
því Maldíveyjar
fóru undir vatn,“
segir Árný. „Það
náðist ekki sam-
band því fjarskipti lögðust af. Þegar
dagur var liðinn sendi hún SMS-
skeyti og lét vita af sér. Hún sagði að
1. hæð hótelsins væri undir vatni, en
að þau hefðust við á 2. hæð og hefðu
nógan mat. Ég veit ekkert um skyld-
fólk mitt sem hefur unnið á lúxushót-
elum á suðurströndinni í Galle, Mat-
ara og Tangalle sem urðu illa úti. Ég
á frænda sem rekur gistihús þarna,
en það er ekki mögulegt að hafa
samband við þetta fólk.
Frænka mín, sem er lögfræð-
ingur, býr í Matara og ég á marga
ættingja og vini í Galle. Mágkona
mín á aldraða móður og bræður í
Matara. Hún hefur ekki náð neinu
sambandi við þau. Þangað er hvorki
símasamband né vegasamband, því
vegurinn sópaðist í burt. Ég hringi
daglega en þau hafa engar fréttir að
færa.“
Í óvissu um ættingja sína
Árný Aurangasri
Hinriksson
Sjá umfjöllun á bls. 6–7, 24–25
TUTTUGU nemendur, sem ný-
lega útskrifuðust úr Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, eru ákveðnir
að fara í fyrirhugaða útskriftar-
ferð til Hua Hin í Taílandi á
morgun, að sögn Elvu Bjarkar
Margeirsdóttur, eins nemend-
anna.
Þrír voru enn í vafa eftir fund
sem haldinn var í gærkvöldi með
nemendunum, foreldrum þeirra
og framkvæmdastjóra ferðaskrif-
stofunnar Kuoni, sem skipulegg-
ur ferðina. „Auðvitað er maður
ekki alveg öruggur, en við erum
búin að tala við Rauða krossinn,
utanríkisráðuneytið, landlæknis-
embættið, ræðismann Taílands
og staðkunnugt fólk. Það segja
allir að við séum örugg á þessum
stað,“ sagði Elva Björk. Ætlunin
er að fljúga til Bangkok í Taílandi
og aka síðan til Hua Hin þar sem
hópurinn dvelur í tvær vikur.
Til Taílands í
útskriftarferð
Bílar | Lítill en rúmgóður Fiat Japanskir jeppar vinsælir Íþróttir |
Íþróttamaður ársins valinn í 49. sinn Hermann Hreiðarsson í
sviðsljósinu Kvennalandsliðið vann þær ensku í körfunni