Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 23 DAGLEGT LÍF S ala á flugeldum er hafin af fullum krafti og flestir flugeldamarkaðir hafa nú opið fram eftir og fram á gamlársdag. Óskar Bjartmarz, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að ekki sé ósennilegt að álykta að landsmenn eyði hundruðum milljóna í skoteldana þetta árið eins og undanfarin ár þrátt fyrir að verðið hafi verið að lækka síðastliðin tvö ár. Hann telur að magnið sem flutt er inn til lands- ins að þessu sinni sé svipað og í fyrra en þá voru m.a. fluttir inn 530.000 flugeldar og um 91.000 blys. Fjöldi söluaðila er einnig svipaður og í fyrra en í ár eru það 24 söluaðilar sem hafa fengið tilskilin leyfi fyrir sölu skotelda og selja á 48 stöðum á höfuð- borgarsvæðinu. Landsbjörg með 300–400 tonn Slysavarnafélagið Landsbjörg flytur inn 300– 400 tonn af flugeldum fyrir þessi áramót og dreifir á 120 flugeldamarkaði björgunarsveitanna úti um allt land. Flugeldasala björgunarsveitanna á sér 35 ára hefð, en flugeldasalan er helsta tekjulind sveit- anna og getur skipt sköpum ef á reynir, segir Val- geir Elíasson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Síðustu ár hafa flugeldasérfræðingar Lands- bjargar sótt sér efnivið í smiðju Íslendingasagna þegar kemur að flugeldum, að sögn Valgeirs. Þar hafa fornkappar á borð við Gunnar á Hlíðarenda, Gretti Ásmundarson og Hallgerði langbrók verið gæddir lífi á litríkan og hljómmikinn hátt með hjálp kínverskra flugeldagerðarmanna. Verð á varningnum er það sama og í fyrra enda fara öll innkaup frá Kína fram í dollurum, sem nú er nokk- uð hliðhollur söluaðilum, að sögn Valgeirs. Helsta nýjungin í ár hjá björgunarsveitunum er svokallað vopnabúr, að sögn Valgeirs. Það inni- heldur kröftugar rakettur í nýjum búningi, sem bera nöfn vopna fornhetjanna svo sem Exi, Lás- bogi, Sverð, Bogi, Atgeir, Spjót og Hnífur. Til styrktar langveikum börnum Kiwanisklúbburinn Esja í Reykjavík selur flug- elda að Engjateigi 11 í Reykjavík til styrktar lang- veikum börnum. „Við flytjum flugeldana inn sjálfir frá Evrópu. Við bjóðum upp á einn fjölskyldu- pakka en þess utan erum við nú að gera tilraun með innflutning á þremur tegundum af litlum fjöl- skyldupökkum, sem í eru litlar tertur, gos og litlir flugeldar, segir Sverrir Karlsson, formaður flug- eldanefndar Esju. „Uppbyggingin í flugeldasöl- unni er svipuð og í fyrra og verðið það sama. Við erum búnir að standa í þessu í hátt í þrjátíu ár og fer ágóðinn allur til styrktar langveikum börnum.“ Til styrktar heimilislausum börnum Kiwanisklúbburinn Höfði í Grafarvogi er með flugeldasölu að Dvergshöfða 27 og rennur hagn- aður af sölunni til góðgerðarmála. „Við höfum í mörg ár styrkt Geldingalæk, sem er heimili fyrir heimilislaus börn, auk annarra verkefna, er varða börn, segir Sigurður Svav- arsson, sem situr í flugeldanefnd kiwanisklúbbsins Höfða í Grafarvogi. Flugeldana og blysin flytur Höfði inn frá Kína og Hollandi. „Við bjóðum nú upp á eina stærð af fjölskyldupokum, en þar að auki erum við auðvitað með úrval af tertum, flug- eldum og smávöru. Verðið er það sama og í fyrra. Auglýsingapésum hefur verið dreift frá kiwanis- klúbbnum Höfða á heimili í Grafarvogi, Árbænum og í Grafarholti sem veitir 20% afslátt af uppsettu verði. Ný heiti á fjölskyldupökkunum KR-flugeldar hafa flutt in skotelda í rúmlega tuttugu ár. Lúðvík Georgsson hjá KR-flugeldum segir að fjölskyldupakkarnir hafi fengið nýtt útlit og heiti nú Brons, Silfur og Gull. „Áður var sá háttur hafður á að flugeldapakk- arnir voru útbúnir hér á landi en nú koma allir pakkar tilbúnir frá Kína. Í leiðinni var ákveðið að hanna nýjar umbúðir, gefa pökkunum ný nöfn og endurskoða innihald þeirra.“ Lúðvík segir að ýmsar nýjungar séu í skoteldum og blysum og bendir á að nú séu gosin öll komin í íslenskar umbúðir. Hann bendir á að í fyrra hafi verð á skoteldum lækkað og að í ár lækki það enn frekar og er skýringin hagstætt gengi dollara. Hundrað skota verðlaunaterta Ódýri flugeldamarkaðurinn er með ýmis tilboð í gangi. Hundrað skota verðlaunaterta hjá þeim er á 25% afslætti, risa fjölskyldupakkinn er á 40% af- slætti, miðnæturrakettur á 42% afslætti og allar aðrar vörur á 20% afslætti. Vinsælastar hjá þeim voru í fyrra tívolíbombu- rakettur. Einnig eru þeir með mikið úrval af skot- tertum, allt frá smátertum upp í risatertur og allt þar á milli. Grannaskelfir vinsælastur Gæðaflugeldar hafa verið með flugeldasölu í 14 ár. Auk pakkanna eru þeir með úrval af tertum, rakettum, gosum, ýlum o.fl. 25% afsláttur er af öll- um vörum hjá Gæðaflugeldum. Nýjungar hjá þeim eru tertur sem eru framleiddar sérstaklega fyrir þá og heita íslenskum nöfnum eins og Stóri hvellur og Partý bomba. Í fyrra var vinsælust hjá þeim litla tertan Grannaskelfir sem kostar 500 krónur. Einnig hefur 20 kílóa tertan Stóra sýning alltaf selst upp. Íslensk eldfjallanöfn og fuglar Gullborg flugeldar eru gamalgrónir á mark- aðnum og hafa verið með flugeldasölu frá 1978. Þeir voru fyrstir til að setja íslensk nöfn á eldfærin og til dæmis heita skotkökurnar nöfnum íslenskra eldfjalla, allar rakettur bera nöfn íslenskra fugla auk mynda af fuglunum, blysin heita Blámi, Grænka og Roði eftir þeim lit sem úr þeim kemur og kúlublysin heita nöfnum eins og Töfrasproti. Vinsælasta kakan hjá þeim í fyrra heitir Víti og er 25 skota kaka sem kostar 500 krónur. Hjá Gull- borg flugeldum er hægt að kaupa staka hluti en einnig fjórar stærðir af fjölskyldupökkum. Pakkarnir ólíkir Ógerningur er að bera saman verð milli sölu- aðila því pakkarnir eru ólíkir að gæðum og stærð og er því einungis um vísbendingar að ræða. Þær upplýsingar sem fram koma í meðfylgjandi töflu eru alls ekki tæmandi því mörg íþróttafélög og önnur félagasamtök sem ekki er getið um í töfl- unni, selja flugelda. Margir bjóða afslætti, t.d. er Fylkir með afslátt í dag, 29. desember, gegn fram- vísun dreifimiða. Þá ber að geta þess að margir selja flugelda, blys, stjörnuljós og annan varning í lausasölu og verðið er misjafnt eftir sölustöðum.  NEYTENDUR | Verð á flugeldum lækkar eða stendur í stað Landsmenn skjóta á loft um 530.000 flugeldum Í fyrra skutu landsmenn á loft um 530.000 flugeldum og 91.000 blysum en að sögn Óskars Bjart- marz, varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, er ekki ósennilegt að magnið sé svipað sem landsmenn nota um þessi áramót. Lesið leiðbeiningar sem fylgja skoteldum og blysum og farið eftir þeim.        *(  + ,     - (  F   $"  %"2   1(& & &PPP)"    % )&"##:  "2    $"  %  !"#$#%&' $(! #%( )'  $  % " #) %$*(! $  ! % $!"#$#%$ %./    '  (8 J6(  % &,   , $ J ) ,  98 5 ! ) 3 J6(  . 18   J6(  % &,     1 ) 2: J6(  0 #     3$)% J  (   >-8#  1    $ !  " 3 J 12%(" *% 2&   * 2 ,  -8#   02!     183$)%  J6(  12%("   %N  -8#   '( ,  J6(  , %3 $  4( ? (  J6(  %3 $  5! N 3$)%  J6(  + ##  6 ,-    ,-    ,-    ,-    .&  66 / ##&  7 / ##& 8  0)'# 1#%$&   0)'# 1#%$&   +## 7  . #"$ 7  / ##& 7 66 2 ## 3&  6 .3& 9  +- 8 7 4$## 9  .3& 8 66 5 & 9  +$ 9 8 5 & 9 66 . #"$ 7  4$## 9  . #"$ 7  4$## 9  . #"$ 7  4$## 9               Þegar skotið er upp flugeldumber að hafa margt í huga ogeitt af því er sú staðreynd að dýrin stór og smá fyllast miklum óróa við lætin sem fylgja sprenging- unum og flýja jafnvel að heiman og týnast. Eins er mikil slysahætta af útigangshrossum sem tryllast gjarn- an við sprengingar og ljósaglampa og dæmi er um að þau hafi ætt fyrir bíla. Þeir sem eiga gæludýr geta þó gert ráðstafanir og dýralæknar mæla með því að halda hundum og köttum innandyra á gamlárskvöld og gefa þeim róandi lyf meðan á her- legheitunum stendur. Hestamenn ættu að byrgja glugga á hesthúsum og hafa ljósin kveikt til að draga úr áhrifum frá ljósglömpum og jafnvel stilla á háværa tónlist í útvarpi til að draga úr áhrifum af sprengihávaða. Dýralæknar hvetja fólk eindregið til að láta duga að skjóta upp flugeld- um á gamlársdag en ekki í marga daga fyrir og eftir, til að leggja þessi ósköp ekki lengur á skepnurnar en nauðsyn krefur, því þær verða skelf- ingu lostnar og líða kvalir þegar skotgleðin gagntekur mannfólkið. Morgunblaðið/Jim Smart Flugeldar eru skelfing fyrir skepnur Enginn má versla með skot-elda í smásölu nema hannhafi til þess leyfi frá hlut- aðeigandi lögreglustjóra. Bannað er að selja eða afhenda skotelda barni yngra en 16 ára sé þess getið í leiðbeiningum með skoteldum. Öll sala á skoteldum til barna yngri en 12 ára er óheimil og öll meðferð barna á þeim skal vera undir eft- irliti fullorðinna. Slysin gera ekki boð á undan sér. Lesa á vel leiðbeiningar sem fylgja skoteldum og blysum og fara eftir þeim og ekki á að vera með skot- elda við brennur. Reynslan sýnir að alltaf er eitthvað um slys um ára- mót af völdum skotelda og blysa. Þeim má fækka verulega ef fólk umgengst þá hluti eins og ætlast er til. Með því að fara varlega er hægt að draga úr líkum á þessum slysum. Meðferð skotelda er heimil frá kl. 9 til miðnættis á tímabilinu 28. des- ember til 6. janúar að báðum dög- um meðtöldum. Á nýársnótt má þó skjóta upp lengur. Lögreglan hvetur fólk til að gæta hófs í áfengisneyslu og foreldra til að gleyma ekki börnum sínum svo flestir megi eiga ánægjuleg áramót. Meðferð áfengis og notkun skotelda og blysa fer alls ekki saman. Verð á flugeldapökkum er það sama og í fyrra hjá sumum sölu- aðilum en hefur lækkað hjá öðrum. Áfengi og skoteldar eiga ekki saman Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.