Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Íþróttamaður Skaftárhrepps | Arnar Páll Gíslason úr Ungmennafélag- inu Skafta var út- nefndur íþróttamað- ur ársins í Skaftárhreppi 2004. Hann stundar frjáls- ar íþróttir og æfir með Ármanni í Reykjavík. Arnar Páll var valinn úr hópi ellefu íþrótta- manna sem tilnefndir voru við kjörið og er vel að titlinum kominn, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu. Ráðstefna um samgöngur | Landbún- aðar- og samgöngunefnd Húnaþings vestra hefur samþykkt að leggja til við sveitarstjórn að á hennar vegum verði haldin ráðstefna um samgöngumál í og við héraðið. Júlíus Guðni Antonsson lagði til- löguna fram og var hún samþykkt sam- hljóða. Fram kemur í tillögunni að reynt verði að fá til ráðstefnunnar sem flesta fulltrúa þeirra sem að samgöngumálum koma, kynntar mismunandi hugmyndir um fram- tíðarsýn og íbúum gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Tólf íþróttamennhafa verið til-nefndir við kjör á íþróttamanni Skaga- fjarðar. Valið verður til- kynnt 30. desember. Eft- irtaldir íþróttamenn hafa verið tilnefndir: Aldís Rut Gísladóttir, Smári, frjálsar íþróttir; Björn Jónsson, Stígandi, hestaíþróttir; Elísabet Jansen, Svaði, hestaíþróttir; Gísli Eyland Sveinsson, Tindastóll; Guðmundur Sveinsson, Léttfeti; Heiðrún Ósk Ey- mundsdóttir, Stígandi; Jó- hann Bjarkason, Golf- klúbbur Sauðárkróks; Sigurbjörn Árni Arn- grímsson, Tindastóll; Sunna Gestsdóttir, Tinda- stóll; Sævar Birgisson, Tindastóll; Vilhjálmur Baldursson, Neisti. Íþróttamaður Veitt hafa verið verðlaun fyrir snyrtilegasta um-hverfi sveitabæjar og snyrtilegustu lóðina íSkaftárhreppi. Er þetta í annað sinn sem verð- launin eru veitt. Ferðaþjónustan á Hunkubökkum, hjá Jóhönnu Jónsdóttur og Pálma Hreini Harðarsyni, hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilegasta umhverfi sveitabæjar. Viðurkenning fyrir snyrtilegustu lóðina árið 2004 kom í hlut Guðrúnar Ólafsdóttur og Elínar Valdimarsdóttur á Kirkjubæjarklaustri I. Snyrtilegt umhverfi Andrés BjörnssonGilsárvöllum íBorgarfirði eystri frétti að Friðrik Stein- grímsson í Mývatnssveit skorti siginn fisk og orti: Ef að finna ekki má eina spyrðu signa skalt þér bara skella á skötu yfirmigna. Friðrik hafði útvegað sér siginn fisk og svaraði: Fiska signa fæ ég brátt er fært mér jólin geta; þú skötu yfirmigna mátt maður sjálfur éta. Þá Andrés: Hana ét af hjartans lyst helst vil nokkra diska; þú hefur af miklu misst meður harða fiska. Loks Friðrik: Lykt af skötu lyst fær spillt svo liggur tómur diskur; ósköp lítið eiga skylt úldin skata og fiskur. Skata fiskur? pebl@mbl.is Mýrdalur | Fallegt veður hefur verið í Mýrdalnum að undan- förnu þótt Vetur konungur minni á það reglulega að hann er við völd á þessum tíma árs. Fólk notar góðviðrisdagana til gönguferða. Í göngu upp að Flúðanefi sem er austan við Vík sáu göngumenn að miklir bunk- ar af grýlukertum höfðu hlaðist upp í hellisskúta í nefinu og var að sjálfsögðu farið inn í skútann til að skoða sig betur um. Það er Sigrún Guðmundsdóttir úr Vík sem þar krýpur. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Litskrúðug grýlukerti Ganga Norðausturland | Mat á umhverfisáhrifum Norðausturvegar um Hólaheiði verður kynnt á þremur fundum á Norðausturlandi fljótlega eftir áramót. Í bréfi, sem Vegagerðin sendi sveitar- stjóra Öxarfjarðarhrepps, segir að vinna við mat á umhverfisáhrifum Norðaustur- vegar um Hólaheiði hafi staðið yfir að und- anförnu. „Tilgangur þessa nýja vegar er meðal annars að styrkja samgöngur milli byggða- kjarna á Norðausturlandi, auka umferðar- öryggi og stuðla að myndun eins þjónustu- svæðis sem nær til Kópaskers, Raufar- hafnar og Þórshafnar,“ segir í bréfinu en frá því er greint á vefnum dettifoss.is. Framkvæmdinni verður skipt í þrjá áfanga. Sá fyrsti er bygging vegar frá Katastöðum um Hólaheiði og Hófaskarð að Norðausturvegi ofan við Kollavík. Annar áfanginn er vegagerð frá Fjallgarðsmelum við Kollavík að Sævarlandi og sá þriðji er nýr vegur frá fyrsta áfanga á Hólaheiði, meðfram Ormarsá að Norðausturvegi við Hól. Á sjö köflum fyrirhugaðs vegar verða lagðir fram mismunandi valkostir til at- hugunar og úrskurðar Skipulagsstofnunar. Allar veglínur sem lagðar eru fram í mats- skýrsludrögunum ná markmiðum fram- kvæmdarinnar. Við skilgreiningu og ákvörðun um mismunandi valkosti var fjöldi mismunandi leiða skoðaður. Stór lið- ur í þeirri vinnu var að koma til móts við sjónarmið landeigenda. Mat á umhverfis- áhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf undir verkstjórn Vegagerðarinnar en að verk- efninu koma einnig aðilar með sérþekk- ingu á ýmsum sviðum, s.s. jarðfræði, gróð- urfari, fuglalífi og veðurfari. Vegagerðin efnir til þriggja funda þar sem framkvæmdin verður kynnt, í Sval- barðsskóla í Þistilfirði , Félagsheimilinu á Raufarhöfn og í Grunnskólanum á Kópa- skeri, en þeir verða allir laugardaginn 8. janúar næstkomandi. Kynning á vegi um Hólaheiði H rin gb ro t Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni ♦♦♦ Best skreyttu húsin | Sveitarfélagið Árborg veitti eigendum tveggja íbúðar- húsa og eins fyrirtækis viðurkenningar fyrir best skreyttu húsin fyrir jólin. Viðurkenningarnar komu í hlut Guð- mundar Kr. Jónssonar og Láru Ólafsdótt- ur í Vallholti 38 og Eggerts Skúla Jóhanns- sonar og Sædísar Óskar Harðardóttur á Baugstjörn 28. Bogi Karlsson og Kristín Guðmundsdóttir tóku við viðurkenningu fyrir hönd fyrirtækisins síns, Karls úr- smiðs. Hitaveita Suðurnesja og ýmis fyrirtæki veittu vinningshöfum verðlaun, meðal ann- ars í formi vöruúttektar.       Greiða fyrir þvottinn | Vistmenn á öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar Ísa- fjarðarbæjar munu frá og með áramótum þurfa að kosta þvott á fatnaði sínum. Stofnunin innheimtir 5.500 kr. gjald á mánuði fyrir að þvo einkafatnað vist- manna sem þess óska. Fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði að fatnaður vistmanna á öldr- unardeild var lengst af þveginn á þvotta- húsi stofnunarinnar. Í sumar var þvotta- húsinu lokað og samið við Efnalaugina Albert um allan þvott. Frá þeim tíma hefur efnalauginn innheimt gjald fyrir að þvo einkaþvott vistmanna og hefur Heil- brigðisstofnunin greitt það sjálf þar til nú að farið verður að innheimta gjald hjá vistmönnum. Heimilisfólki eða aðstand- endum þess er hins vegar gefinn kostur á því að sjá um þvottinn fyrir sig eða sína. Jón Fanndal Þórðarson, formaður fé- lags aldraðra á Ísafirði, fordæmir þessa ákvörðun í samtali við vefinn. Segir að hún lýsi í versta falli mikilli mannvonsku eða í besta falli ótrúlegu hugsunarleysi. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.