Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 39
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, spilað
brids/vist.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslan opin, kl. 10–10.45 leikfimi,
kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–16 sam-
verustund, kl. 14.40 ferð í Bónus, kl.
14.30–15.30 kaffi.
Félagsstarf Gerðubergs | Opið kl. 9–
16.30, m.a. spilasalur frá hádegi.
Skráning í ferðalag 4. jan. stendur yfir
á staðnum og í síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna – bútasaumur, útskurður, hár-
greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 11 banki,
kl. 12 hádegismatur, kl. 13 brids, kl. 15
kaffi.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl.
9–16. Skráning í Listasmiðju í fram-
sögn og framkomu sem verður alla
mánudaga eftir áramót. Kennari
Soffía Jakobsdóttir. Hárgreiðslustofa
568 3139. Fótaaðgerðarstofa
897 9801. Nánari upplýsingar í síma
568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–16 myndmennt,
kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug), kl.
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl. 12.15–14 versl-
unarferð í Bónus í Holtagörðum, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurð-
ur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Dvalarheimilið Hjallatún | Helgistund
kl. 20. Organisti er Kristín Waage. Kór
Víkurkirkju syngur.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni. Prest-
ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org-
elleikari Hörður Bragason. Allir vel-
komnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum kl. 20. Bæna- og
þakkarstund. Kaffiveitingar eftir sam-
komuna. Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið | Kristniboðs-
sambandið þiggur með þökkum um-
slög og frímerki af jólapóstinum. Þau
eru seld til ágóða fyrir kristniboðs- og
hjálparstarf í Afríku. Móttaka er við
sölubás Kristniboðssambandsins á 2.
hæð Kringlunnar, í húsi KFUM og K á
Holtavegi 28 og Glerárgötu 1 á Ak-
ureyri, svo og í sumum kirkjum.
Neskirkja | Jólaball eldri borgara og
Litla kórs Neskirkju verður kl. 15.30.
Gunnar Eyjólfsson leikari segir sögur,
Litli kórinn og Inga J. Backman syngja,
jóladans, kaffiveitingar og hugvekja.
Allir velkomnir. Kl. 12.15. Ath. fyrir-
bænamessa, sr. Sig. Árni Þórðarson.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
HRAFNHILDUR
Björnsdóttir sópran-
söngkona mun syngja
hlutverk Næturdrottn-
ingarinnar í uppfærslu
English Touring Opera á
Töfraflautu Mozarts í vor.
Hrafnhildur mun enn-
fremur syngja annað hlut-
verk í uppfærslunni, sem
er stytt, sem og í kórnum í
annarri uppfærslu óperu-
flokksins, á óperunni
Mary, Queen of Scots. Þá
mun Garðar Thor Cortes
taka þátt í uppfærslu
þriðju óperunnar hjá English Tour-
ing Opera í vor, Cosi fan tutte.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Hrafnhildur mun bregða sér í hlut-
verk Næturdrottningarinnar frægu,
því hún tók þátt í uppfærslu Aber-
deen International Youth Festival á
óperunni í sumar og hlaut mjög góða
dóma fyrir. Það lá því beint við að
hún reyndi að komast að í þessu
hlutverki, eða hvað? „Nei, ég vissi
ekki einu sinni að þeir ætluðu sér að
setja upp þessa óperu,“ segir hún
þegar Morgunblaðið hefur samband
við hana vegna málsins. „En ég hef
sérhæft mig dálítið í þessu hlutverki.
Það eru færri sem geta sungið það
vegna þess hve hátt það liggur. Ég
hef það því alltaf með mér í prufur,
og hafði það líka þegar mér var boð-
ið að syngja fyrir hjá English Tour-
ing Opera. Þar átti að syngja eitt-
hvað þrennt, og ég bauð dóm-
nefndinni þetta meðal annars, sem
þau vildu endilega heyra.“
Það eru fyrst og fremst tvær aríur
sem Næturdrottningin syngur, og
söng Hrafnhildur aðra
þeirra í inntökuprófinu.
„Þá var ég búin að
syngja þrjú verk og mér
var þakkað fyrir og ég
fór út. En þá kom for-
maður dómnefnd-
arinnar á eftir mér og
spurði hvort ég gæti
nokkuð sungið hina
aríuna líka, sem ég
gerði. Tveimur dögum
síðar höfðu þau sam-
band við mig og buðu
mér að vera með í vor og
taka meðal annars að
mér þetta hlutverk.“
Alsæl með þetta
Hrafnhildur lauk söngnámi frá
Trinity College of Music í London í
fyrra og er nú búsett hér á landi, en
ferðast utan og syngur fyrir. Að
mati innvígðra í söngheiminum ytra
þykir það ansi gott eitt og sér að fá
að syngja fyrir hjá English Touring
Opera, en söngvarar í prufur eru
valdir úr umsóknum sem berast.
„Hvað þá að vera boðið hlutverk. Ég
er því alsæl með þetta,“ segir Hrafn-
hildur.
English Touring Opera er óp-
eruflokkur sem ferðast um Bretland
og setur upp sýningar. Frumsýn-
ingin á Töfraflautunni verður í lok
janúar. „Ég myndi segja að þetta
væri mjög gott tækifæri. Vonandi
getur það orðið stökkpallur yfir í
eitthvað annað,“ segir Hrafnhildur
að síðustu.
Tónlist | Íslenskir söngvarar taka þátt í
uppfærslum English Touring Opera
Íslensk nætur-
drottning
www.englishtouringopera.org.uk
Hrafnhildur Björnsdóttir
DAGBÓK/MENNING
KRISTÍN Þorkelsdóttir flytur í dag
hádegisfyrirlestur í Hafnarhúsinu,
þar sem hún mun fjalla um seðla-
hönnun, viðhorf til efnisvals á seðl-
unum, söguna sem þeir segja, og
skýra frá því hvernig munir úr Þjóð-
minjasafninu koma þar við sögu. Er
þetta síðasti fyrirlesturinn í tengslum
við yfirstandandi sýningu um graf-
íska hönnun á Íslandi.
Kristín hefur verið aðsópsmikil á
íslenskum sjónmenntavettvangi,
grafískur hönnuður til margra ára og
höfundur að prentgripum, auglýs-
ingum, merkjum og öðru sjónrænu
efni sem mótað hefur umhverfi lands-
manna og vitund í ríkum mæli. Þá er
hún einnig ötull vatnslitamyndamál-
ari.
Að sögn Kristínar er afar áhuga-
vert að kanna þau svið þar sem list og
hönnun skarast. „Í raun og veru er
hver seðill þéttskrifað blað úr okkar
þjóðarsögu, en þessar blaðsíður eru
skráðar með myndmáli,“ segir Krist-
ín. „Ég reyni að opna augu fólks fyrir
því. Til dæmis eru á milli fjörutíu og
fimmtíu tilvitnanir á seðlunum í
menningararfinn sem er aðallega á
Þjóðminjasafninu og fleiri söfnum.
Það kom mér sjálfri á óvart hvað
þetta er mikið, þegar ég fór að telja
þetta saman.“
Ný peningaseðlasería var sett í
umferð fyrsta janúar árið 1981, þegar
gjaldmiðilsbreytingin varð. Þá var
lægsti seðillinn tíu krónur. „Sá seðill
finnst mér standa fyrir fyrsta al-
mannatengslamanninn sem við Ís-
lendingar eignuðumst, Arngrím
Jónsson lærða,“ segir Kristín.
Næstur var fimmtíu króna seðillinn,
sem ber portrett af Guðbrandi
Þorlákssyni. „Hann er í raun og veru
minnisvarði um prentverkið og
prentlistina. Þar er mikið af skrauti
og letri úr Guðbrandsbiblíu sem er
notað í þann seðil. Svo kemur
hundraðkallinn, þar sem handritin og
handritasöfnunin eru umfjöllunar-
efnið. Þessir þrír eru allir horfnir þó
þeir séu ennþá gjaldgengir.“
Jón Sigurðsson og sjálfstæðisbar-
áttan eru aðalefni fimmhundruð
króna seðilsins og því næst kemur
þúsund króna seðillinn með Brynjólfi
Sveinssyni og Skálholtskirkjunum.
„Brynjólfur lét reisa síðustu stóru
bygginguna í Skálholti, en þús-
undkallinn er í raun minnisvarði um
byggingarlist,“ segir Kristín. „Fimm-
þúsundkrónaseðillinn er að mínu
mati afar merkilegur seðill. Hann er
sá fyrsti með konu á og þar gekk ég
út frá nytjalist. Þar er Ragnheiður
Jónsdóttir í aðalhlutverki, en hún var
biskupsfrú á Hólum. Ragnheiður
sinnti hannyrðakennslu og var mikið í
hannyrðum sjálf, en hannyrðar og út-
skurður voru listform þess tíma og
eru mjög mikið notaðar í seðlunum.
Allt sem er á hverjum seðli er líka
tengt lífshlaupi þess manns sem hann
prýðir. Þegar þessi seðlasería var
hönnuð var farið á söfn og leitaðar
uppi persónur sem voru til myndir af
og hafa eitthvað fram að færa. Þá er
leitað að munum sem tengjast þeim
og minningum. Brynjólfur er und-
antekningin frá þessu, en þar skóp ég
mynd af honum út frá afar skýrum
lýsingum sem voru til af honum.“
Myndlist | Fyrirlestur um seðlahönnun í Hafnarhúsi
Menningarsaga í myndmáli
Morgunblaðið/Ásdís
Kristín Þorkelsdóttir myndlistarmaður fjallar um hönnun peningaseðla.
Græna slumman og önnur ljóð –
Stelpur og strákar innst inní, er eftir
Thorstein Thomsen í þýðingu Þórðar
Helgasonar og Mich-
aels Dal. Mynd-
skreyting er eftir Piu
Dalsgaard.
Bókin hefur að
geyma 48 ljóð um
unglinga. Í ljóðunum
birtist margvíslegur
hugarheimur ung-
linga, vandamál þeirra, sorg og gleði.
Höfundur setur yrkisefni sitt fram fyrir
lesendur á einfaldan hátt, þar sem
mikil kímni og nærgætni ríkja. Þannig
tekst honum fyrirhafnarlítið að leiða
lesandann inn í risavaxin tilfinn-
ingavandamál unglinganna og fá
hann til að velta þeim fyrir sér. Yrk-
isefnin eru af ýmsum toga, svo sem
einelti, ástarsorg, fötlun og vanaleg
samskiptavandamál unglinga inn-
byrðis og við fullorðna. Einnig á höf-
undur til að bregða upp einföldum
myndum sem geta vakið hugrenn-
ingatengsl.
Útgefandi er Iða. Bókin er 63 síður.
Ljóð