Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi leikritið Óliver! eftir Lionel Bart, sem byggt er á sögunni um Óliver Twist eftir Charles Dick- ens. Sunna Björk og fleiri unnu við að sminka leikarana og gera þá klára fyrir sýninguna þeg- ar ljósmyndari Morgunblaðsins leit baksviðs í gærkvöldi. Með hlutverk Ólivers Twist fer Gunnar Örn Stephensen, 10 ára gamall Eyfirð- ingur, og er hann nánast alla sýninguna á svið- inu. Ólafur Egill Egilsson, sem er aftastur á myndinni, fer með hlutverk skúrksins Fagins. Fremst á myndinni er svo Þorsteinn Bachmann, fyrrverandi leikhússtjóri LA, sem einnig tekur þátt í leiksýningunni. Góður rómur var gerður að sýningunni og leikurum vel fagnað í leikslok. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gerðir klárir fyrir frumsýningu á Akureyri LANDSBANKI Íslands hefur hætt veitingu 100% íbúðalána og lækkað hámark lánanna í 90% af markaðsverðmæti íbúða. Vaxta- kjör og skilyrði fyrir lánveitingu eru óbreytt en bankinn vill með þessu hvetja einstaklinga til var- færni í lántökum. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir bank- ana hafa gengið of langt þegar far- ið var að veita 100% verðtryggð íbúðalán. „Veruleg hækkun hefur orðið á íbúðaverði, eða allt að 17% á þessu ári. Auk þess sýna spár að verðbólgan geti þróast í og við efri mörk þeirra vikmarka sem Seðla- bankanum hafa verið sett sem verðbólguviðmið. Verðbólguþrýst- ingur er því nokkur upp á við. Við þessar aðstæður teljum við það óskynsamlegt fyrir lántakendur jafnt sem lánveitendur, og þar fara hagsmunir þessara aðila alveg saman, að veita 100% lán til íbúðar- kaupa. Ef eitthvert misgengi verð- ur á milli fasteignaverðs og verð- bólgu þá myndast hugsanlega neikvætt eigið fé hjá einstakling- um með slík lán. Við teljum það of áhættusamt og þess vegna hættum við að veita 100% lánin til almennra viðskiptavina.“ Halldór segir þetta skref stigið af ábyrgðartilfinningu, m.a. gagn- vart þjóðhagslegri þróun og þróun í útlánaaukningu. Hann hvetur jafnframt stjórnvöld til að huga að nýrri verkaskiptingu á milli banka og sparisjóða annars vegar og Íbúðalánasjóðs hins vegar. „Þar sem að markaðurinn getur leyst ákveðin verkefni innan ramma laga sem sett eru og tryggja þau meginmarkmið í sessi sem stjórn- völd vilja setja og sátt er um, þar á ríkið að draga sig út úr beinni þátt- töku enda ekki lengur þörf á rík- isvaldinu,“ segir Halldór. LÍ hættir að veita 100% íbúðalán Hámark lánshlutfalls vegna íbúðarkaupa lækkar í 90%  Landsbankinn/14 ÍSLANDSBANKI átti frumkvæði að því að bjóða 100% íbúðalán og segir Jón Þórisson, aðstoðarfor- stjóri bankans, að lækkun láns- hlutfalls sé þar ekki til skoðunar. „Við fórum af stað með það í huga að þarna væri verið að full- fjármagna fasteignir fyrir fólk, sem það áður fjármagnaði með öðrum hætti, þ.e. með skamm- tímaskuldum, lánsveði eða uppá- skriftum nákominna. Nú höfum við heildarmyndina og betri möguleika á að greina áhættu og getum ráðlagt viðskiptavinum okkar í takt við það,“ segir Jón. Hann segir að hafa þurfi í huga að þó svo að 100% lán séu í boði þá séu innan við 3% af heildarláns- fjárhæðum Íslandsbanka með veðhlutfalli á bilinu 90–100%. Hreiðar Már Sigurðsson, for- stjóri KB banka, segir bankann vera að skoða málið, eins og ávallt þegar breytingar verði á mark- aðnum. Lítill hluti með 100% ÁRIÐ 2004 slær öll met hvað varðar veltu á fasteignamarkaði og eykst um 11% frá 2003 en þinglýstum samningum fækkar hins veg- ar um 17%. Fjárfest var fyrir 177 milljarða á fasteignamark- aði á höfuðborgar- svæðinu og Akur- eyri fram til 22. desember og á þessi tala því eftir að hækka eitthvað fram að árslokum. Veltan í fyrra var 160 milljarðar kr. og hafði hún þá aukist um 24% frá 2002. Fjöldi þing- lýstra samninga á þessu ári er 9.980 en var 11.800 í fyrra og hefur þeim því fækkað um 17%. Árið 2002 voru þinglýstir samningar ríflega 10 þús- und og aukningin milli áranna 2001 og 2002 um það bil 17%. Árið 1999 var metár í fjölda kaupsamninga þegar nærri 11.600 samn- ingum var þinglýst. Þeim fækkaði árin 2000 og 2001 en fjölgaði aftur árið 2002 Undanfarin 10 ár hefur verið stöðug aukning á veltu í fasteignaviðskiptum í krónum talið. Árið 1994 var veltan 49 millj- arðar króna á verðlagi þess árs og fór fyrst yfir 100 milljarða árið 1999. Enn metár í fasteigna- viðskiptum *2F'/J         Q Q Q Q Q Q :     / !$& 667;  2($%"2 AFGREIÐSLUTÍMI fyrir herflug- vélar á Keflavíkurflugvelli verður styttur frá og með næstu áramót- um. Stefnt er að því að flugaf- greiðsla herflugvéla verði boðin út á næsta ári, samkvæmt upplýsingum frá Friðþóri Eydal hjá upplýsinga- skrifstofu varnarliðsins. Flugafgreiðsla fyrir herflugvélar, sem leið eiga um Keflavíkurflugvöll, verður opin frá klukkan 7–19, mánudag til laugardags frá og með 1. janúar næstkomandi, í stað sólar- hringsafgreiðslu alla daga vikunn- ar. Breytingin hefur engin áhrif á almennt flug um Keflavíkurflugvöll eða flugrekstur varnarliðsins sjálfs og er í takt við rekstrartilhögun sem viðhöfð er á flestum flugbækistöðv- um Bandaríkjaflota. Um 100–150 herflugvélar leggja jafnan leið sína um Keflavíkurflug- völl í hverjum mánuði. Ekki er búist við að breytingin hafi áhrif á þann fjölda heldur mun ferðum þeirra verða hagað í samræmi við nýjan af- greiðslutíma. Breyting þessi mun þýða hagræðingu í röðum varnar- liðsmanna sem fækka mun í störf- um við afgreiðslu ofangreindra við- komuflugvéla. Að sögn Friðþórs er ekki búist við því að íslenskum starfsmönnum varnarliðsins fækki vegna þessarar breytingar. Stefnt mun að því að flugaf- greiðsla vegna herflugs, sem á leið um Keflavíkurflugvöll, verði boðin út á næsta ári. Síðastliðið sumar fór fram forval vegna slíks útboðs. Þá var miðað við að breytingin yrði um þessi áramót, en framkvæmd máls- ins hefur dregist, að sögn Friðþórs. Auk hermanna, sem starfa í flug- afgreiðslu, annast starfsmenn flug- þjónustudeildar slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli fermingu og af- fermingu herflugvéla á flugvellin- um. Breyttur afgreiðslutími her- flugvéla á Keflavíkurflugvelli STJÓRN Strætó bs. ætlar að láta reyna á lögmæti þess að ríkið endurgreiði 2⁄3 hluta virðisaukaskatts af öllum hópferðabílum öðrum en strætisvögnum, og verður ríkinu stefnt fyrir dóm fái strætisvagnar ekki sömu meðferð og aðrir hópferðabílar fyrir lögum. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir að hefði fyrirtækið fengið sömu skattaívilnanir við innkaup á strætis- vögnum eins og aðrir sem reka hópferðabíla hefði Stætó getað sparað 70–80 milljónir króna, sem hefði dugað til að kaupa a.m.k. fjóra nýja vagna, frá því reglugerð um end- urgreiðslu virðisaukaskatts af hópferðabíl- um tók gildi. Um er að ræða ákvæði í reglugerð um tímabundna niðurfellingu 2⁄3 hluta virðis- aukaskatts af nýjum hópferðabílum, þar sem sérstaklega er tekið fram að þetta ákvæði eigi ekki við um almenningsvagna. „Við teljum að það fái ekki staðist, þetta er mismunun, við uppfyllum öll önnur skilyrði. Svo finnst fólki líka að þar sem við rekum al- menningssamgöngur, með tilheyrandi þjóð- hagslegri hagkvæmni að einhverju leyti, þá skjóti skökku við að sá partur af málaflokkn- um njóti ekki þessara ívilnana,“ segir Ás- geir. Þetta mál verður kannað nánar á næst- unni, það rætt við lögfræðinga og sendar fyrirspurnir til fjármálaráðuneytis og inn- heimtumanns ríkissjóðs. Stjórn Strætó ósátt við að fá ekki lækkun á virðisaukaskatti Íhuga að stefna ríkinu vegna mis- mununar Morgunblaðið/Kristinn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.