Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Árni GuðmundurJónsson fæddist á Öndólfsstöðum í Reykjadal 10. nóv. 1933. Hann lést á heimlili sínu á Húsa- vík 18. desember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón Stef- ánsson, múrara- og byggingameistari á Öndólfsstöðum, f. 8. apríl 1900, d. 24. júní 1989 og Þórveig Kristín Árnadóttir frá Knarrareyri, f. 5. september 1908, d. 23. maí 1935. Seinni kona Jóns var Guðrún Jónsdóttir frá Brekkna- koti, f. 15. júlí 1899, d. 11. maí 1988. Systkini Árna eru: Stefán Þengill tónlistarmaður, f. 1929, d. 2001, Ingigerður Kristín, f. 1930, Steingerður Sólveig, f. 1932 og Hólmfríður Valgerður f. 1944. Árni kvæntist hinn 11. septem- ber 1959 Þorgerði Kristjönu Að- alsteinsdóttur húsmóður, f. 6. nóv- ember 1931. Foreldrar hennar voru Aðalsteinn Guðmundsson verkamaður, f. 11. september 1884, d. 25. ágúst 1953 og Hervör Frímannsdóttir, f. 20. ágúst 1894, sjúkraþjálfari , gift Gunnari Svan- bergssyni sjúkraþjálfara, f. 1965. Synir þeirra eru Bjartur, f. 1999 og Þorgeir, f. 2001. 5) Arngerður Marí tónlistarfræðingur, f. 1975, sambýlismaður Elmar Þór Gil- bertsson rafeindavirki, f. 1978. Dóttir þeirra er Alvilda Eyvör, f. 2004. Árni stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugum 1949–1952 og síðan við Iðnskólann á Húsavík. Hann lauk sveinsprófi í húsgagna- smíði 1957. Frá unglingsárum starfaði Árni við búrekstur föður síns, en 1954 stofnaði hann ásamt Stefáni bróður sínum nýbýli á Öndólfsstöðum, þar sem hann bjó síðan ásamt konu sinni til ársins 1992. Í þrjá áratugi rak hann einn- ig ásamt föður sínum trésmíða- verkstæðið Kögur á Öndólfsstöð- um. Þá starfaði hann frá 1993–2003 í kjötvinnslu Norð- lenska á Húsavík. Árni stundaði söngnám um tíma, var einn af stofnendum Pólýfónkórsins og söng alla tíð í kórum, síðast í Kirkjukór Húsavíkur. Hann var ötull félagsmálamaður, sat um árabil í hreppsnefnd Reykdæla- hrepps og var formaður Ung- mennafélagsins Eflingar, Fjár- ræktarfélags Reykdælinga, Fram- sóknarfélags Reykdælinga og Veiðifélags Reykjadalsár. Útför Árna verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. d. 6. desember 1981. Sonur Þorgerðar og fóstursonur Árna er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfund- ur og tónlistarmaður, f. 1955, kvæntur Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu, f. 1963, d. 2004. Börn þeirra eru Árni Húmi f. 1988, Þorgerður Ása, f. 1990 og Álfgrímur, f. 1997. Börn Árna og Þorgerðar eru: 1) Þór- veig Kristín kennari og fjármálastjóri, f. 1960, var gift Jakobi Svani Bjarna- syni. Börn þeirra eru Elsa María, f. 1982, Erna Jóna, f. 1988, Bjarni Siguróli, f. 1988 og Eyrún Björk, f. 1999. 2) Sighvatur Rúnar bifvéla- virki, f. 1961, kvæntur Evu Björgu Jónsdóttur verslunarstjóra, f. 1962. Börn þeirra eru Árni Rúnar, f. 1981, Alda Guðný, f. 1983 og Jón Arnar, f. 1990. 3) Hervör Alma fé- lagsráðgjafi, f. 1963, sambýlismað- ur Óskar Dýrmundur Ólafsson for- stöðumaður, f. 1966. Börn Ölmu og fyrrverandi maka hennar, Hlyns Helgasonar, eru Hrund, f. 1990 og Ívar, f. 1997. 4) Sólveig Ása, f. 1968 Sumarsólin hellir geislum sínum yfir Húsavík. Ég er þriggja ára. Mamma tekur fagnandi á móti dökkhærðum manni sem faðmar hana og kyssir. Ég er undrandi, en líka glaður. Maðurinn á gulan og svartan jeppa. Við förum í bílferðir. Ég sofna í aftursætinu. Haust, vet- ur og vor. Svo flytjum við í Öndólfs- staði og ég hef eignast pabba sem heitir Árni. Amma flytur með okk- ur. Við erum hamingjusöm fjöl- skylda. Tíminn er fugl sem flýgur… Hann þekkir alla fugla. Finnur hreiðrin þeirra og sýnir mér egg og unga. Hann leyfir mér að smíða með sér. Réttir mér sandpappír, hamar og nagla með stórum haus. Með honum eignast ég líka afa og Gunnu og Sigga og Bínu í ytra húsi. Hann kann á allar vélar og er alltaf að syngja. Á nýja verkstæðinu heima á Öndólfsstöðum æfir karla- kórinn og ég fæ að fylgjast með. Þegar gest ber að garði eru Glunt- arnir sungnir í stofunni. Hann smíð- ar skápa og skúffur og margar hlaupastelpur í sláttuvélina hans Haraldar frænda á Breiðumýri. Allt leikur í höndum hans. Hann er hag- ur á bæði tré og járn. Getur búið til flesta hluti. Á verkstæðinu hanga verkfærin í röð og reglu. Í baukum og kössum á hann þúsund skrítnar skrúfur, rær, gorma, bolta, rör og skífur. Þar er líka nóg af kubbum og krossviðarafgöngum sem er gott að smíða úr. Stundum sit ég á drátt- arvélinni hjá honum og sofna við vélarhljóðið. Hann hlær og syngur með aðra hönd á stýri. Lánið leikur við hann, ekki síst barnalánið, og fjölskyldan stækkar með hverju árinu. Herbergjum hússins fjölgar líka. Hann setur upp veggi, smíðar hillur og skápa, á meðan mamma saumar gluggatjöld og föt af öllum stærðum og gerðum. Fleiri hendur taka þátt í daglegum störfum. Tím- inn er hraðfleygur fugl… Hann brýtur nýtt land, byggir stærri hlöðu, kaupir öflugri dráttarvél og heyvinnutæki. Það er enginn leikur að sjá fyrir stórri fjölskyldu. Smíðar innréttingar, hurðir og glugga. Hver stund er dýrmæt og það er meira en nóg að starfa. Eins gott að láta ekki sjá sig á kafi í bók um miðjan dag þegar fyrir liggur að fúaverja timburstafla, mála þakið á fjárhúsunum, stinga út úr hænsna- kofanum eða tína steina úr túninu. Hann er snillingur í að muna eftir öllum þessum verkum í tíma og ótíma. Hvergi í heiminum geta verið jafn hreinir flórar og vel sópaðar hlöður ímynda ég mér. Og allar vél- ar vel smurðar og í stakasta lagi. Á sumrin förum við í óteljandi bílferð- ir á um héraðið á sunnudögum og höfum á endanum þrætt flesta færa vegarspotta. Land-Róverinn rúmar allan krakkaskarann. Hann kennir okkur að blása úr eggjum og upp rennur tími mikillar eggjasöfnunar. Það kostar margar ferðir og sumar á fáfarna staði. Hann veit hvað fjöll- in heita og vill að við leggjum þau öll á minnið. Stundum förum við með afa að veiða í Másvatni. Hann er ákafur og segir afa að flýta sér. Það er alltaf nóg að starfa. Á vorin tekur marga daga að yfirfara og gera við alla túngirðinguna, skóg- ræktargirðinguna og hestagirð- inguna. Við höfum með okkur hönk af gaddavír, nokkra þunga rekavið- arstaura og stóru sleggjuna sem hann sveiflar hátt og hittir beint á staurinn. Hann er ótrúlega sterkur og getur víst lyft steðjanum í smiðj- unni ef hann langar til. Hann vill að við æfum frjálsar íþróttir, en ég vil bara lesa og reyni stundum að fara leynt með það. Hann veit hvað kýrnar hugsa, líka á jólunum þegar þær fá bestu töðuna. Honum er annt um skepnurnar, en samt þarf að slátra kálfunum. Þannig er lífið. Tíminn er fugl sem flýgur æ hrað- ar… Hann kennir okkur að bera virðingu fyrir landinu, þekkir jurtir, man staði og örnefni. Á sama hátt og afi hefur hann yfir lausavísur. Sumar hefur hann sjálfur ort. Segir að maður geti fest sér góðar vísur í minni við fyrstu heyrn. Staldrar við stuðlana og höfuðstafina. Minnir á mikilvægi þeirra. Í haustsól smölum heiðina heima. Á meðan hann fer hring um heiðina stend ég og bíð á brúninni. Hann fer austur yfir fló- ann, upp undir Hvítafell og kemur niður hjá Varnargili. Kemur ekki auga á strákinn sem á að vera á vís- um stað og hóar af hæðarbrún. Strákur er dottinn í dagdrauma og ærnar rata ekki allar heim. Það verður uppi fótur og fit. Ferðalögin eru mikilvæg en hvergi er áð lengur en á þarf að halda. Þó er tími til að skoða næst- um hvert einasta eyðibýli sem við eigum leið hjá. Sundferðirnar eru líka nauðsynlegar. Það er stutt í sundlaugina á Laugum og á sumrin er gaman að skreppa í Grjótagjá í Mývatnssveit. Stundum kemur strákurinn upp í honum, ekki síst þegar Stefán Þengill er með í för. Þá er auðvelt að sjá að pabbi var einu sinni lítill strákur. Löngu seinna á hann eftir að uppgötva að án sundsins er enginn dagur full- kominn. Hann er strangur faðir en bannar manni sjaldan nokkuð. Lætur í ljósi ef honum mislíkar, getur reyndar orðið fjúkandi reiður, en er fljótur að jafna sig. Á erfitt með að skilja að maður skuli vilja hanga og gera ekki neitt þegar mest er um vert að gera gagn. Fráleitt að láta það bíða til morguns sem hægt er að gera í dag. Þannig hugsar hann. Finnst sum ljóð torskilin en leggur sig þó eftir að botna í þeim. „Hvers vegna ekkert rím? Þú ferð nú létt með að stuðla.“ Hann leggur ríka áherslu á að menn séu hófsamir og fari vel með sitt. Spyr hvort maður hafi nóg fyrir sig að leggja. Vill að maður viti að hann sé ávallt tilbúinn að hlaupa undir bagga ef á þarf að halda. Seg- ir á lágu nótunum að hann sé stoltur af manni, en finnst það jaðra við sjálfshól. Við getum rætt um alla hluti. Eigum á stundum tveggja manna tal um viðkvæm mál. En hann ræðir oftar um landsins gagn og nauðsynjar og veltir fyrir sér framtíð þjóðarinnar. Dregur heil- indi stjórnmálamanna í efa. Setur spurningarmerki við margar ákvarðanir. Vill alltaf hreinskilin svör. Tíminn er fugl sem fer hraðar en gulur og svartur jeppi með ungan, dökkhærðan mann undir stýri, ljós- hærða konu í flegnum sumarkjól við hlið hans og sofandi strák í aftur- sætinu. Vetrarsólin yfir Húsavík. Það er þá sem hann hverfur á vit feðra sinna. Ég sé hann fyrir mér þegar hann leggur augun aftur og svífur af stað. Hann kemur við í Reykja- dal. Fer að líkindum yfir Vatnshlíð- ina og svo upp í heiðina, framhjá Þorgrímssteini. Sér móta fyrir Önd- hólunum og svífur austur yfir Fló- ann, upp undir Hvítafell og loks nið- ur með Varnargili. Hvít fönn yfir öllu. Landið í vetrarskrúða. Og óm- ur af himneskum söng. Aðalsteinn Ásberg. Ég tók þessa ákvörðun alveg sjálfur. Ég hafði kynnst dóttur hans Árna á Öndólfsstöðum um veturinn og við verið saman nokkra mánuði. Dóttirin, hún Solla, hafði ákveðið áður en við kynntumst að fara til Bretlands um sumarið að passa barn. Og hún fór. Ég gat bara ekki beðið eftir að kynnast því fólki sem hafði tekist svo vel upp að búa hana Sollu mína til. Eins og ég sagði í upphafi tók ég þessa ákvörðun sjálfur, alveg sjálf- ur. Við hreyfðumst af stað hægt og rólega bíllinn og ég á leið til Öndólfsstaða í Reykjadal. Þar bjuggu þau hjónin Árni og Togga, sem höfðu gefið heiminum og síðar mér, hana Sollu. Ég kom að dyr- unum eins og ég var klæddur og sagðist vera kærastinn hennar Sollu, kominn frá Akureyri að skoða hjónin og slotið. Síðar áttu menn eftir að sligast af hlátri yfir þessari sögu, hvernig mér hefði dottið þetta í hug, hefði ég ekki bara getað beðið eftir Sollu, sem kom aftur seinna um sumarið. Svarið var einfalt, ég gat ekki beðið, ég bara varð að sjá herlegheitin. Mér var vel tekið boð- ið inn í kökur og allslags kræsingar. Eftir það spurði Árni hvort mér lægi eitthvað á heim, ég hélt nú ekki, þóttist viss um að nú ætti að sýna mér eitthvað alveg sérstakt. Sú varð raunin, við Sighvatur, bróð- ir Sollu, vorum leiddir upp að gam- alli hlöðu sem stóð við álíka gamalt fjárhús og þangað ofaní vorum við settir og mokuðum þaðan upp margra ára gömlu heyi fram á kvöld. Það var eitthvað við þetta, þetta var skemmtileg reynsla og þarna var honum Árna vel lýst, út- sjónarsamur, notaði það vel sem upp í hendur hans barst og ef það barst honum ekki, sótti hann það bara. Þarna spilaði ég mig upp í hendurnar á honum og hann notaði mig vel. Gott hjá þér karlinn minn. Eftir að ég kláraði sjúkraþjálfun átti hann eftir að nota þann aðgang vel, spyrja, forvitnast og fá leiðbein- ingar, nú síðast sneri ég upp á hann á stofugólfinu hjá henni Ölmu hans og reyndi að laga bakverk sem hafði hrjáð hann um nokkurt skeið, með bara ágætis árangri að hans mati. Og auðvitað spurði hann mig á eftir hvað væri að frétta af Akureyring- um, ég átti að þekkja þá flesta eða vera skyldur þeim. Árni var einstakur maður, hann fylgdist vel með því sem gerðist og hafði hreinar og klárar skoðanir. En umfram allt var hann tengdapabbi minn sem reyndist okkur Sollu ein- staklega vel með hjálpsemi sinni og góðmennsku. Ég lít á það sem for- réttindi að hafa fengið að ferðast með Árna um lífsins krákustígi, allt frá kynnum okkar á Öndólfsstöðum forðum og sendi henni tengda- mömmu minni hugheilar samúðar- kveðjur. Gunnar Svanbergsson. Árni var einn af föstu punktunum í tilverunni, hann var frændi okkar, nágranni og vinur. Í uppvexti okkar bjó hann með fjölskyldu sinni á Öndólfsstöðum næsta bæ við okkur. Börnin hans eru jafnaldrar okkar, leikfélagar og vinir. Hann var bónd- inn sem smíðaði og söng. Eftir að við urðum fullorðin kynntumst við honum sem frábærum sögumanni, hann fræddi okkur um margt sem gerst hafði í gamla daga og dró ekki af sér í frásögnum. Það var alltaf gott að hitta Árna, fá fast faðmlag og koss á kinn, hvort heldur sem var á Húsavík eftir að þau Toggu fluttu þangað eða heima á Ökrum þar sem hann átti sitt fasta sæti við eldhúsborðið. Við sendum Toggu og öllum af- komendum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Akrasystkin og fjölskyldur. Það var alltaf gaman að fara með Árna, hvort heldur var á nýja og ókunna staði eða til að verða vitni að viðburðum, því allt var honum einskær upplifun sem hann kunni að njóta. Hann hafði áhuga á öllum þáttum mannlífsins, fólki, hegðun þess og athöfnum. Að fylgja honum í upplifun sinni var því ætíð skemmtun og opnaði fyrir manni nýjar hliðar á þáttum lífsins sem annars kunnu að virðast hversdags- legir. Eitt sumarið lánaði hann mér horn á verkstæðinu sínu og hann fylgdist grannt með furðulegum til- burðum mínum við myndlist, var alltaf til í að ræða efasemdir sínar og fannst vel þess virði að reyna að skilja hvers vegna ungur maður kaus að tjá sig svona í myndgerð þar sem engin almennileg mynd var á. Mér er einnig minnisstæð ferð okkar í Nútímalistasafnið í Barce- lona þar sem fyrir augu bar hug- myndalist áttunda áratugarins, list eins fjarri íslenska málverkinu og hægt er að hugsa sér. Hann þreytt- ist þó ekki á að skoða það sem fyrir augu bar og setti stöðugt fram spurningar um tilgang og eðli þess- ara verka, spurningar sem oftar en ekki opnuðu augu mín fyrir nýjum flötum í merkingu þeirra. Sama forvitnin um gangverk hlutanna einkenndi einnig ferðir okkar á ýmsa viðburði, knatt- spyrnuleik í Lundúnaborg, nautaat í Barcelona eða orgeltónleika í Páls- kirkjunni. Ætíð gátum við rætt þessa viðburði og umfram allt upp- lifun okkar af þeim til hlítar og fundið í þeim tilgang og eðli sem gaf lífinu og fólkinu í kringum okkur aukið gildi. Og ekki þurftu hlutirnir að vera stórir um sig eða hátíðlegir til að vekja óspillta athygli Árna, honum þótti fólkið í heita pottinum allt eins mikils virði og spurði það ætíð spjörunum úr um hagi þess, um byggðamál og landsmálin. Aldrei urðu umræður í heita pottinum hversdagslegar þegar Árni átti í hlut og aldrei horfði fólk feimið hvað framan í annað þegar hann var með. Hvar sem Árni kom við var hann hvati á frjóa umræðu og skapandi hugsun um tilveruna. Ég veit að hans verður sárt saknað hvar sem hann kom við og votta ég Þorgerði alla samúð mína. Hlynur Helgason. Það voru sorgarfréttir sem bár- ust okkur hinn 18. desember sl., Árni móðurbróðir okkar var látinn. Það er svo margt sem rifjast upp frá gömlum dögum. Í huga okkar var Árni frændi og Öndólfsstaðir fastur punktur í tilverunni og höf- um við öll skottast með honum og fjölskyldu hans við hin ýmsu störf í sveitinni síðan við munum eftir okk- ur. Viljum við þakka honum fyrir ógleymanlegar stundir og góðvild í okkar garð og biðjum guð að vaka yfir honum. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Elsku Togga, Aðalsteinn, Þór- veig, Sighvatur, Alma, Solla, Adda og fjölskyldur, megi algóður guð gæta ykkar og styrkja. Guðrún, Kristinn, Védís og Árni Kár. ÁRNI GUÐMUNDUR JÓNSSON Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU PÁLÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, áður Hásteinsvegi 64. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun til starfs- fólks Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja og Hraunbúða. Guð blessi ykkur öll. Guðlaugur Guðjónsson, Inga Hrönn Guðlaugsdóttir, Birkir Agnarsson, Guðrún Guðlaugsdóttir, Henrý Henrikssen, Sigríður Guðlaugsdóttir, Sigurgeir Þór Sigurðsson, Guðjón Guðlaugsson, Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir og ömmubörnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.