24 stundir - 28.12.2007, Page 6
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Enex Kína stendur nú í mikilli
uppbyggingu á hitaveitu í borginni
Xianyang í Shaanxi-héraði í Kína
og stefnir fyrirtækið á að byggja þar
upp stærstu hitaveitu í heimi á
næstu árum.
Á sögufrægum stað
Enex Kína hefur byggt upp starf-
semi sína í Shaanxi, sem er land-
lukt hérað með 37 milljónir íbúa, í
Mið-Kína.
„Þetta er sögufrægt svæði því að
á tímabili var þarna höfuðborg
Kína,“ segir Gunnar Snorri Gunn-
arsson, sendiherra Íslands í Kína,
og á þar við höfuðborg héraðs-
insm, Xian, sem er gömul höfuð-
borg kínverska keisaradæmisins.
Xianyan þar sem Enex Kína hefur
starfsstöð sína er í 50 kílómetra
fjarlægð frá Xian. Íbúar Xianyang
eru um fjórar milljónir. „Þetta er
langt inni landi og þarna hafa mál-
in vissulega þróast nokkuð vel og
fram á við en mun hægar en með-
fram ströndinni,“ segir Gunnar
Snorri. Hann segir að á þessu svæði
sé mjög áberandi meginlandslofts-
lag, þar verði heitt á heitt á sumrin
og kalt á veturna og því mikil þörf
fyrir hitaveitu.
Mikill áhugi og stuðningur
„Það sem er skemmtilegt við
þetta er að við höfum orðið vör við
það í sendiráðinu og annars staðar
að það eru mjög margir í Kína að
fylgjast með þessu og sjá hvernig
þessu miðar áfram.Ýmis önnur
svæði í Kína munu eflaust fylgja á
eftir,“ segir Gunnar Snorri.
Ásgeir Margeirsson, stjórnarfor-
maður Enex Kína, segir að borg-
aryfirvöld í Xianyang sýni mikinn
stuðning en undir borginni er
jarðhitalind sem hefur 90-110
gráða heitt vatn í miklum mæli,
sem hefur hingað til verið að mestu
ónýtt.
„Yfirvöld á þessu svæði hafa
mikinn áhuga á því að rækta þetta
og þróa. Þau hafa mikinn metnað
til þess að skapa sér ákveðna sér-
stöðu,“ segir Gunnar Snorri og
bætir við: „Á þessu ári fékk borgin
til að mynda titilinn Jarðhitaborg
Kína.“
Aukin lífsgæði
Jarðhitaveitan sem Enex Kína
stendur nú að því að byggja mun
leysa af hólmi kolakyndingu. „Það
er alveg feikilegur munur sem
verður á lífsgæðum fólks á þessu
svæði,“ segir Gunnar Snorri og
bætir við: „Mengunin getur verið
alveg skelfileg víða í Kína. Bæði eru
það orkuver sem rekin eru með
kolum og síðan eru það einstak-
lingar sem kynda upp húsin sín
með kolasalla.“ Hann segir reykinn
sem fylgi þessu hvíla eins og ský yf-
ir borgum. „Allt sem hægt er að
gera til þess að draga úr því skiptir
gríðarlega miklu máli fyrir lífsgæði
í Kína og einnig í baráttunni gegn
hlýnun jarðar,“ segir Gunnar
Snorri sem segir að Kínverjar verði
að mæta orkuþörf sinni með ein-
hverjum öðrum hætti en með kol-
um. „Orkuþörf þeirra er svo mikil
að þetta mun aldrei geta leyst hana
alla, en þetta getur verið hluti af
lausninni,“ segir hann.
Mikil áhrif
hitaveitu í Kína
Enex byggir stærstu hitaveitu í heimi á sögufrægum stað í Kína
Eykur lífsgæði íbúa svæðisins mikið, segir sendiherra Íslands
➤ Enex Kína hefur byggt uppstarfsemi sína í Shaanxi-
héraði í Kína sem er landlukt
hérað í miðju landinu með 37
milljónir íbúa.
➤ Í borginni Xianyang, þar semfyrirtækið er nú að byggja
upp hitaveitu, búa um 4 millj-
ónir manna.
➤ Það er stefna kínverskrastjórnvalda að 15% af orku-
þörf Kína verði mætt með
endurnýjanlegum orkugjöf-
um árið 2020.
ENEX KÍNA
Nordic photos/AFP
Kolamengun Í mörgum borgum í Kína er
mikil mengun vegna brennslu kola.
6 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir
Búast má við að mikill fjöldi
fólks leiti aðstoðar vegna áfengis-
sýki sinnar í byrjun nýs árs. Að
sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfir-
læknis á Vogi, fjölgar þeim sem
vilja komast í meðferð alltaf í byrj-
un árs. „Það kemur vanalega mjög
mikill fjöldi inn til okkar eftir ára-
mót. Á hverju ári er ný byrjun, nýtt
líf og nýjar vonir. Fólk ákveður
gjarnan að staldra við um áramót
og reyna þá að snúa við blaðinu.“
Þórarinn segir að yfirleitt komi
upp einhver krísa sem rekur fólk af
stað. „Þó er það nú samt til í dæm-
inu að fólk setjist niður með sjálfu
sér og ákveði að gera eitthvað í sín-
um málum, án þess að einhver sér-
staklega alvarlegur atburður eigi
sér stað í lífi þess.“
Áfengi mesta heilsufarsógnin
Matthías Halldórsson aðstoðar-
landlæknir segir að áfengismis-
notkun sé eitthvert mesta heilsu-
farsvandamál vesturlandabúa.
Embættið hefur nýlega gefið út
klínískar leiðbeiningar um grein-
ingu og meðhöndlun áfengisvanda
í heilsugæslu. Áður höfðu engar
slíkar leiðbeiningar verið til. „Við
teljum mjög nauðsynlegt að verk-
lagsreglur af þessu tagi séu til inni á
heilsugæslunni.“ freyr@24 stundir.is
Margir vilja snúa við blaðinu um áramót og hætta að drekka
Fjöldi á Vog í byrjun nýs árs
Alkóhólismi Fjölmargir leita sér meðferðar vegna drykkju í byrjun árs.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Íslands hefur verið mikill hvata-
maður samstarfs við Kínverja um
jarðhitaverkefni og stutt fyrirtæki
í markaðssókn þar. Forsetinn
heimsótti Xian Yang borg í Sha-
anxi fylki í Kína og skoðaði hita-
veituframkvæmdir í október sl.
Þar fundaði hann með Zhang Li
Yong aðalritara Kommúnistaflokksins í Xianyang borg.
Forsetinn átti einnig fund með ríkisstjóra Shaanxi fylkis þar sem ýt-
arlega var rætt um næstu áfanga í jarðhitasamvinnu Shaanxi við Ís-
land. Forsetinn lagði áherslu á að ýtarleg úttekt yrði gerð á jarð-
hitamöguleikum fylkisins með það að markmiði að tryggja sjálfbæra
nýtingu auðlindarinnar. Í öðru lagi yrði hitaveituframkvæmdum hrað-
að eftir föngum og í þriðja lagi yrði efld samvinna vísindamanna og
sérfræðinga á þessu sviði. Ríkisstjórinn fagnaði mjög þessum hug-
myndum enda væru miklar jarðhitaauðlindir í fylkinu og brýnt væri
að nýta þær í samræmi við nýjar umhverfisáherslur kínverskra stjórn-
valda. ejg
Stórt hlutverk forsetans
Að sögn lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu var mjög rólegt
um jólahátíðina. Á jóladag voru
tveir árekstrar á Kjalarnesi og
nokkrir minniháttar í bænum. Þá
kviknaði í bílskúr í vesturbæ.
Að sögn lögreglunnar er alltaf
eitthvað um ofbeldi á heimilum
yfir jólin þar sem lögreglan þarf
að fjarlægja drukkna fjölskyldu-
meðlimi en þó ekki meira en aðr-
ar helgar. Ekki bar mikið á ölv-
unarakstri um jólin.
Róleg jólahátíð
hjá lögreglu
Tilkynnt var um
innbrot í vinnu-
skúr við vatns-
verksmiðjuna
Hlíðarenda sem
er í byggingu í
Ölfusi. Að sögn
lögreglu var
miklu stolið þar
af rafmagnsverkfærum. Allt voru
þetta nýleg verkfæri, yngri en
tveggja vikna, og talið er að tjón
nemi fleiri hundruð þúsund
krónum. Síðast var fólk við vinnu
hinn 22. desember.
Allir þeir sem telja sig geta gefið
upplýsingar um grunsamlegar
mannaferðir eru beðnir að hafa
samband við lögregluna á Sel-
fossi.
aak
Rándýrum verk-
færum stolið
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir
HÁSKERPA
HEIM Í STOFU
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
MIRAI 32” LCD háskerpusjónvarp
79.900-
TILBOÐ