24 stundir - 28.12.2007, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 24stundir
Á alþjóðlegri loftslagsráðstefnu
sem fram fór á Balí rétt fyrir jól
var mikið rætt um samgöngur
jafnt á vegum, í háloftum og á sjó,
enda kemur mikið af koltvísýringi
andrúmsloftsins þaðan. Einn þátt-
takenda á ráðstefnunni var Jack
Short, framkvæmdastjóri Samtaka
evrópskra samgönguráðherra. Í er-
indi sínu fjallaði hann á gagnrýn-
inn hátt um hinar háværu kröfur
sem uppi eru um aukna notkun á
lífrænu eldsneyti. Lífrænt eldsneyti
er að hans sögn afar dýrt og því
ekki valkostur fyrir alla auk þess
sem það er mun lakari orkugjafi.
Short bendir á að við hina
miklu samgönguaukningu sem
áætluð er á næstu árum og áratug-
um blasi við að ekki sé hægt að
reiða sig um of á að sem flestir
noti lífrænt eldsneyti.
„Það er mjög mikilvægt að
fleiri, ódýrari og öflugri kostir séu
skoðaðir. Einnig er mikilvægt að
unnið sé með þeim sem eiga hags-
muna að gæta og starfa í þessum
geira í stað þess að einblína á að
draga úr samgöngum og flutn-
ingum,“ sagði hann. „Eins og er
tel ég of miklar vonir bundnar við
lífrænt eldsneyti sem er hvorki
ódýr valkostur né sérstaklega um-
hverfisvænn.“
Hann segir ýmislegt annað lík-
legra til árangurs, eins og til dæm-
is smíði sparneytnari samgöngu-
tækja og þjálfun atvinnubílstjóra í
umhverfisvænni akstri. „Hvort
tveggja er mun hagkvæmara ásamt
því sem árangurinn verður þegar
augljós,“ bendir hann á.
Loftslagsráðstefnan á Balí fyrir jól
Lífrænt eldsneyti óhagkvæmt?
Mengun mikil af völdum
samgangna Jack Short
vill sjá áhrifaríkar lausnir.
24stundir/Steinunn Ásmundsd.
Óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs
i i t i
l il j l
f l i
M
bl
94
85
00
Bíldshöfði 14 - Sími 553 1244 – ljosboginnehf@simnet.is
Mikið úrval af:
störturum og alternatorum fyrir
flestar gerðir fólksbíla, vörubíla og
vinnuvéla. Einnig varahlutaþjónusta
námutrukkur sem kallaður er Bú-
kolla. Segir Valdimar Kristjánsson
hjá GV Gröfum að þetta sé algilt
viðurnefni á slíkum bílum þó hann
viti ekki hvaðan það hafi komið
upphaflega.
Líkist belju
Gísli Ólafsson hjá Vélum og
Þjónustu var inntur eftir skýringu
á Búkollunafninu. Hann segir að
nafnið sé þannig til komið að slíkir
liðskiptir trukkar, eða námubílar,
þyki líkjast kúm. „Þegar tækið
beygjir á liðstýringunni er það eins
og kú sem lítur aftur fyrir sig.
Einnig þykir tækið luralegt og
hægfara eins og nautgripir eru,“
segir Gísli. Þá sé oft unnið á vél-
unum við erfiðar aðstæður í drullu
og eðju og því séu þær oft illa útlít-
andi eins og nautgripir eru gjarnan
þegar þeir eru hafðir úti við í mis-
jafnri tíð.
Baulaðu nú Búkolla mín
Herra Ísland sest
undir stýri á vörubíl
➤ Kemur frá Kópaskeri, er 19ára og var kosinn Herra Ísland
árið 2007.
➤ Stundar nám á félagsfræði-braut í Menntaskólanum á
Akureyri og er á síðasta ári.
➤ Finnst fátt betra en að heim-sækja fjölskylduna heim á
Kópasker og hafa það gott
þar.
ÁGÚST ÖRN Skyldi alla stráka hafa
dreymt um að setjast
undir stýri á vörubíl eða
gröfu? Hér sest Herra Ís-
land, Ágúst Örn Guð-
mundsson undir stýri.
Reffilegur Ágúst Örn sest-
ur undir stýri á Búkollu.
Ágúst Örn Skyldi alla
stráka dreyma um að
keyra vörubíl?
24stundir/Skapti Hallgrímsson
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Ágúst Örn segist ekki hafa keyrt
vörubíl áður en að það gæti verið
gaman að prófa það. Hann hafi
passlegan áhuga á vinnuvélum og
hafi keyrt traktor sem lítill strákur í
sveitinni hjá afa sínum. Ágúst Örn
er þó ekki laus við alla tækjadellu
því hann hefur mikinn áhuga á
motorcross. „Sá áhugi byrjaði
þannig að félagi minn átti hjól og
maður fékk að prufa og fylgjast
með honum, en síðan keypti ég
mér hjól síðastliðið vor. Ég er
reyndar ekki búinn að vera nógu
mikið á ferðinni þar sem hjólið bil-
aði svo nú er ég bara að bíða eftir
varahlut og þá kemst ég aftur af
stað,“ segir Ágúst Örn.
Námutrukkurinn Búkolla
Trukkurinn sem Ágúst Örn sett-
ist undir stýri á er hefðbundinn