24 stundir - 03.01.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Hugmyndin er að vekja athygli á
trúarbrögðum heims og því hvað
við eigum sameiginlegt. Við minn-
umst á yfir 100 trúarhátíðir þó það
sé fjallað sérstaklega um 48,“ segir
Linda Rós Alfreðsdóttir, verkefnis-
stjóri Evrópuárs jafnra tækifæra,
um trúardagatal sem kemur út á
næstu dögum.
Dagatalinu var bæði ætlað að
endurspegla íslenskan veruleika til
dæmis með því að hafa ásatrúar-
félagið með, en huga líka að því
hvernig trúarhátíðum er háttað í
heiminum og höfðu skipuleggjend-
ur samband við samráðsvettvang
trúfélaga og buðum öllum þar að
vera í ritstjórn en þau trúfélög sem
ekki þáðu það af einhverjum ástæð-
um voru engu að síður með í ráð-
um til að mynda varðandi yfirlestur
á textum.
Breytileiki innan trúarbragða
Að sögn Lindu Rósar er lögð
áhersla á fimm trúarbrögð, það eru
hindú, búddismi, íslam, gyðing-
dómur og kristni, bæði vegna sög-
unnar og fjöldans. Þannig er gyð-
ingdómur mikilvægur því hann er
upphaf eingyðistrúarbragða og
bæði kristni og íslam rekja ættir
sínar til gyðingdóms þó hann sé
ekki mjög fjölmennur. „Svo er
kristni, ekki bara lútherska kirkjan,
það eru líka kaþólikkar, vottar Je-
hóva, mormónar, aðventistar og við
reynum að spanna eins fjölbreytt
svið innan hverra trúarbragða.“
Dagatalinu verður dreift í allar
bekkjardeildir, alla leikskóla og ef
það verður afgangur verður honum
dreift á fjölþjóðlega vinnustaði en
upplagið er um 3600 eintök en það
verður einnig hægt að nálgast það á
vefsíðunni island.is.
Margar hátíðir á sama tíma
Linda Rósa segir mjög marga
daga rauða á dagatalinu, það sé um
þriðji hver, en ekki sé ætlast til þess
að fólk fylgi öllum rauðu dögun-
um. Hún segir tilhneigingu til að
trúarhátíðir séu allar á svipuðum
tíma. „Til dæmis er lítið á sumrin
en mjög margar hátíðir í desember
og janúar kristni, shinto, sikhismi,
íslam, hindú, gyðingdómur og
ásatrú eru öll með hátíðir í janúar
og í mars er nánast allt rautt,“ segir
hún.
Hún segir þá kenningu algenga
að ný trúarbrögð yfirtaki þau eldri
samanber þá um jólahátíðina sem
kom úr ásatrú. Þá tengist trúarhá-
tíðir líka uppskerunni.
Linda gefur lítið út á skrítnar há-
tíðir enda hafi markmið útgáfunnar
verið að ekkert ætti að vera skrítið.
„Við fjöllum þó um sprengidag sem
fæstir tengja föstu lengur.
Aðspurð segist Linda Rós ekki
vita hvort dagatalið verður endur-
útgefið þar sem töluverð vinna ligg-
ur að baki því þar sem tímatöl eru
ekki öll eins. Þannig fylgir íslamska
árið til að mynda tunglinu en gyð-
ingar hafa 13 mánuði þriðja hvert
ár.
Meira en hundrað
trúarhátíðir á árinu
Evrópuár jafnra tækifæra gefur út trúardagatal Ekki ætlast til þess að fólk taki sér frí á öllum rauðum dögum
Musteri himnanna Eitt frægasta tákn
Peking og bænastaður fyrir uppskeru.
➤ Afmæli gúrúsins Gobid Singhí sikhisma, 5. janúar.
➤ Þrettándinn í kristni, 6. jan-úar.
➤ Jóladagur rétttrúnaðarkirkj-unnar, 7. janúar.
➤ Al-Hijira, nýársdagur íslams,10 janúar.
➤ Samkirkjuleg bænavika hefstí kristni 13. janúar.
➤ Makar Sankrant í hindúasiðþann 14. janúar.
➤ Dagur fullorðinna eða SeijinShiki í shinto, 15. janúar
➤ Bóndadagur, ásatrú, 25. jan-úar.
NÆSTU TRÚARHÁTÍÐIR
24stundir/Þorkell
„Þarna er hennar efni notað án
leyfis svo þessari síðu verður lokað
umsvifalaust,“ segir Árni Matthías-
son, einn umsjónarmanna blog.is.
Síðan sem um ræðir er bloggsíða
þar sem gat að líta sömu færslur og
á heimasíðu Sóleyjar Tómasdóttur
varaborgarfulltrúa, eini munurinn
var sá að opið var fyrir athuga-
semdir en Sóley lokaði fyrir þann
möguleika á sinni síðu fyrir
skömmu.
Aðspurð sagðist Sóley Tómas-
dóttir ekki hafa hugmynd um hver
væri á bak við síðuna. „Ætli þetta
séu mennirnir sem velta því fyrir
sér hvort fólk hafi ekkert betra að
gera þegar það veltir fyrir sér starfs-
heiti ráðherra? Þeir finna sér ald-
eilis nóg til dundurs, sitja allan ný-
ársdag og afrita heila bloggsíðu.“
Að sögn Sóleyjar lokaði hún ekki
á athugasemdir af þeirri ástæðu að
hún þyldi þær ekki. „Mér fannst
gagnlegt að hafa athugasemdirnar
þarna inni svo fólk sæi hvað kven-
frelsisbaráttan á við að etja. En ég
ber ritstjórnarlega ábyrgð á því sem
þar birtist.“
Árni segir ekki algengt að loka
þurfi bloggsíðum, það hafi einung-
is gerst um tíu sinnum.
Afritaði heimasíðu til að gera athugasemdir
Blog.is lokar
hermibloggsíðu
Danska þjóðin fær að kjósa um
að fella úr gildi undanþágur Dan-
merkur frá samningum Evrópu-
sambandsins. Þetta kom fram í ný-
ársávarpi forsætisráðherrans
Anders Fogh Rasmussen, sem seg-
ist vona að landið styrki með þessu
stöðu sína innan sambandsins.
„Nú þurfum við að gera upp við
okkur hvort við viljum láta okkur
nægja að vera fyrirmynd, eða hvort
við viljum leika stærra hlutverk,“
sagði Fogh.
Undanþágur Dana snúa að þátt-
töku í peningamálastefnu Evrópu-
sambandsins, sameiginlegum
varnarmálum, dómsmálasam-
vinnu og innanríkismálum. aij
Nýársávarp Anders Fogh Rasmussen
Undanþágurnar út
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
KRINGLUNNI OG LAUGARVEGI 17
20-60 %
AFSLÁTTUR