24 stundir - 03.01.2008, Blaðsíða 39
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 39
Jennifer Aniston hefur gefið
sögusögnum um meint samband
hennar og leikarans Jason Lewis
byr undir báða vængi, en hinn
síðarnefndi ku hafa flogið með
einkaþotu sinni á fund Aniston
þar sem hún dvaldist með Co-
urteney Cox og fjölskyldu hennar
í Mexíkó yfir áramótin. „Þau hafa
sést í faðmlögum á ströndinni og
njóta greinilega lífsins saman,“
sagði heimildarmaður ameríska
tímaritsins OK! hþ
Aniston með
nýjan stegg
Ólátabelgurinn Britney Spears
kom alheiminum á óvart og eyddi
gamlárskveldi með sonum sínum
tveimur í stað þess að tjútta og
tralla eins og henni einni er lagið.
Spears fékk að hafa syni sína með
þeim skilyrðum að dómkvaddur
eftirlitsmaður yrði með, en auk
hans var nýi kærastinn, ljós-
myndarinn Adnan Ghalib, gestur
á fjölskyldukvöldinu. hþ
Róleg áramót
hjá Britney
Leikarinn Eddie Murphy byrjaði
nýtt ár á því að giftast unnustu
sinni, Tracey Edmonds, en þau
munu hafa trúlofað sig í júlí síð-
astliðnum. Parið lét pússa sig
saman á fyrsta degi ársins á
einkaeyju skammt frá Bora Bora,
en um látlausa athöfn var að
ræða þar sem eingöngu nánustu
ættingjar og vinir deildu deg-
inum með brúðhjónunum. hþ
Murphy gengur
í það heilaga
Leikkonan Uma Thurman hefur
afráðið að segja sígarettufíkninni
stríð á hendur eftir árangurslausa
baráttu við að reyna að hætta síð-
ustu árin. Uma kveðst þess full-
viss að reykingarnar hafi haft af
henni bitastæð hlutverk þar sem
líkamlegt form hennar sé lakara
vegna reykinganna. hþ
Uma Thurman
hættir að reykja
Leikkonan Glenn Close hefur
viðurkennt að hafa átt fullt í
fangi með að sinna hlutverki
sínu sem einstæð móðir eftir að
hún skildi við barnsföður sinn,
John Starke, árið 1991. Leik-
konan fékk forræði yfir dótt-
urinni, sem nú er 19 ára gömul,
en segist hafa átt fullt í fangi
með að sameina einkalífið og
ferilinn, auk þess sem það hefur
reynst þrautin þyngri að koma
til móts við kröfur dóttur sinnar.
„Börnin eru eins og kúnnar. Þau
vilja alla athygli þína allan dag-
inn,“ segir Glenn, sem enn berst
við að halda jafnvægi milli vinn-
unnar og heimilisins. hþ
Erfitt að vera einstæð móðir
Leikkonan Angelina Jolie hyggst
stækka fjölskylduna á næstunni
og eignast enn eitt barnið með
kærastanum Brad Pitt. Eins og
kunnugt er eiga þau fjögur börn,
þar af þrjú ættleidd, og segist Jol-
ie daðra við hugmyndina um
annað barn á næstunni. „Við
munum eignast fleiri börn. Hver
veit, kannski munum við eignast
annað barn á árinu,“ sagði hún í
samtali við In Touch og bætti því
við að þau Brad séu samrýmd í
foreldrahlutverkinu enda þótt
þau rífist á köflum. „Við rífumst
stundum en við deilum ekki
vegna uppeldislegra þátta.“ hþ
Hyggst eignast fleiri börn