24 stundir - 03.01.2008, Blaðsíða 33
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 33
- kemur þér við
24 stundir
óskar lesendum sín
um gleðilegs árs
og þakkar frábærar
viðtökur á liðnu ári
Líkamsræktarstöðvar landsins fyllast af
fólki þessa dagana enda vilja margir losa sig
við aukakíló sem gerðu vart við sig um hátíð-
irnar. Fólk stundar í auknum mæli heilsu-
rækt jafnt og þétt allt árið að sögn Guðrúnar
Gísladóttur, framkvæmdastjóra Átaks
heilsuræktar á Akureyri.
Styrkjandi slökun á milli
„Okkur fannst fólk vera duglegt að koma í
desember en það eru samt margir sem taka
sér smápásu í eina til tvær vikur og koma svo
aftur sterkir inn í janúar. Það er alltaf einhver
fækkun en minni en var,“ segir Guðrún og
bendir jafnframt á að heilsuræktin sé orðin
fjölbreyttari en áður.
„Það er eins og fólk sé farið að átta sig á
því hvað það er mikilvægt að taka rólega og
styrkjandi slökunartíma inn á milli. Þeir hafa
sótt mikið í sig veðrið í haust og það heldur
örugglega áfram,“ segir hún.
Líkt og í öðrum heilsuræktarstöðvum
landsins er mikið að gerast í Átaki á þessum
tíma árs og segir Guðrún að nú séu ný nám-
skeið að hefjast. „Fit pilates og boot camp er
mjög vinsælt. Við erum líka með sterka há-
degishópa og hlaupahópa,“ segir hún.
Stöðin þrefaldaðist
Guðrún rekur Átak ásamt Fanneyju Bene-
diktsdóttur. Fyrir um ári var stöðin stækkuð
um 1.000 fermetra og er nú í 1.500 fermetra
húsnæði ásamt nudd- og snyrtistofunni
Aqua Spa. Um leið kom Fanney Benedikts-
dóttir inn í reksturinn. Guðrún segir að
stækkunin hafi breytt miklu fyrir stöðina.
„Þetta var gríðarlega stórt skref fyrir okkur.
Þetta var orðið svo lítið að við gátum í raun
engu bætt við,“ segir Guðrún Gísladóttir.
Nánari upplýsingar má nálgast á atakak.is.
Margir eru duglegir í ræktinni í desember
Heilsurækt allan ársins hring
Fallegt útsýni Stöðin er
við hafið og fallegt útsýni
úr tækjasalnum.
Hreyfing býður upp á námskeið
til undirbúnings fyrir þá sem
vilja taka alþjóðlega ACE-
einkaþjálfunarprófið. Nám-
skeiðið hefst 19. janúar og fer
fram aðra hverja helgi, bæði laug-
ardag og sunnudag, í átta vikur.
Síðasti námskeiðsdagur er
sunnudagurinn 2. mars. ACE-
prófið sjálft fer síðan fram í
Hreyfingu þann 15. mars. Aldurs-
takmark er 18 ár og verða þátt-
takendur að hafa gilt skyndi-
hjálparnámskeið. Boðið verður
upp á slíkt námskeið í tengslum
við prófið. Nánari upplýsingar
má nálgast hjá Hreyfingu.
Alþjóðleg einka-
þjálfunarpróf
Bretar hafa lagt bann við auglýs-
ingum á ruslfæði sem beint er til
barna yngri en 16 ára. Banninu er
ætlað að hvetja til heilsusamlegri
neysluhátta og berjast gegn sívax-
andi offituvanda meðal barna.
Með banninu eru settar skorður
við sjónvarpsauglýsingum um
matar- og drykkjarvörur sem
innihalda mikið af fitu, salti og
sykri. Slíkar auglýsingar eru ekki
leyfðar fyrir og eftir sjónvarps-
þætti sem höfða sérstaklega til
barna á þessum aldri.
Þó að sumum finnist bannið
ganga of langt telja aðrir að leggja
eigi á allsherjarbann við auglýs-
ingum á ruslfæði.
Bannað að aug-
lýsa ruslfæði
Svefnvenjur barna og unglinga
fara gjarnan úr skorðum í jólafrí-
inu og tekst sumum jafnvel að
snúa sólarhringnum við. Yngri
börn þurfa um níu klukkustunda
svefn á hverri nóttu en unglingar
tíu stunda. Ónógur svefn kemur
niður á heilsu þeirra og frammi-
stöðu í námi og leik. Það er því
mikilvægt að foreldrar sjái til
þess að svefnvenjur barna þeirra
séu komnar í samt lag áður en
skólinn hefst.
Svefninn í lag