24 stundir - 03.01.2008, Blaðsíða 29
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 29
Það er dálítið merkilegt að jóla-
sýning Borgarleikhússins þetta ár-
ið er ekki leiksýning, heldur rokk-
tónleikar. Ágætir rokktónleikar að
vísu, en ekki leiksýning þar sem
mátti auðveldlega festa hönd á
framvindu eða söguþræði. Hljóm-
sveitin var kröftug og mátti engan
veikan blett á henni finna. Að-
alstjarnan á sviðinu – súpergoðið
sjálft, Krummi í Mínus – söng líka
fantavel. Túlkun hans á titilstjörn-
unni var þó vitaskuld mörkuð af því
að hann er ekki leikari og því var
það tilfinningalega litróf sem birtist
á sviðinu heldur stutt. Sérstaklega
var bagalegt að sjá enga alvöru til-
finningu í Getsemane.
Jens Ólafsson, Júdas, var þó
veiki hlekkur sýningarinnar. Til
þess að verkið nái tilætluðum
hughrifum verður salurinn að sjá
að Júdas trúir því að gjörðir hans
séu öllum fyrir bestu. Júdas þess-
arar uppfærslu var reiður, ógn-
andi og – verst af öllu – óskýr-
mæltur. Grunnhugmynd verksins
týndist með öllu.
Það má segja að Súperstar sé
verk aukapersónanna. Kumpán-
arnir Pílatus og Heródes eru með
því skemmtilegra í verkinu og þau
atriði þar sem Ingvar Sigurðsson
og Bergur Þór Ingólfsson birtust í
gervum þeirra voru hápunktar
sýningarinnar. Sérstaklega tókst
Ingvari að draga upp skarpa
mynd af þeirri siðferðislegu
klemmu sem Pílatus lendir í. Lára
Sveinsdóttir í hlutverki Maríu
Magdalenu stóð sig jafnframt
mjög vel og söng eins og engill.
Búningar voru vel heppnaðir.
Fylgismenn Krists virtust heldur
ógæfulegt lið, hann sjálfur lufs-
aðist um á leðurbuxum og María
Magdalena var klædd eins og
ódýr hóra. Þetta skapaði
skemmtilega stemningu á sviðinu
sem minnti á að það var ekki
rjómi samfélagsins sem flykkti sér
um smiðssoninn forðum.
Ný þýðing Karls Ágústs Úlfs-
sonar var oft ljómandi skemmti-
leg, ljóðræn og hversdagsleg til
skiptis. „Hann minnti mig á
veiðidýr í neyð – og veiðimann,
um leið,“ söng Pílatus um það
þegar Kristur vitjaði hans í
draumi.
Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu
„Fjölfaldaðu eitt ýsuflak, með hendur fyrir aftan bak“
Leikstjóri: Björn Hlynur Haraldsson
Tónlistarstjóri: Daði Birgisson
Leikmynd: Axel Hallkell
Jóhannesson
Leikarar: leikarar Bergur
Þór Ingólfsson, Ingvar E.
Sigurðsson, Jens Ólafs-
son, Jóhann G. Jóhanns-
son, Krummi Björgvins,
Lára Sveinsdóttir,
Magnús Jónsson,
Orri Huginn
Ágústsson og
fleiri.
Jesus Christ Superstar
í Borgarleikhúsinu
Eft ir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@24stundir.is
LEIKLIST
Aðdáendur Grýlu og jólasvein-
anna geta enn fengið að hitta þau
á Draugasetrinu á Stokkseyri, en
þar hófust svokallaðir Grýludag-
ar þann 17. nóvember síðastlið-
inn og þeir standa fram á þrett-
ándann sem er næstkomandi
sunnudag.
Þá kom Grýla á safnið og byrjaði
að skemmta gestum á meðan hún
sópaði gólf og beið eftir jóla-
sveinunum. Sá fyrsti, Stekkjar-
staur, kom 12. desember og sá
síðasti, Kertasníkir, hverfur aftur
til fjalla á þrettándanum og kem-
ur ekki aftur fyrr en á næstu jól-
um.
Jólasveinar í
Draugasafninu
Vínartónleikar verða haldnir í
Tónlistarhúsinu Laugarborg í
Eyjafjarðarsveit á sunnudaginn
næstkomandi. Flytjendur verða
Salonhljómsveit Sigurðar I.
Snorrasonar og Hulda Björk
Garðarsdóttir og á efnisskrá er
Vínartónlist eftir ýmis tónskáld,
þar á meðal Josef og Johann
Strauß.
En þar sem álfar eru taldir fara á
kreik á þrettánda degi jóla hefst
leikurinn á nokkrum íslenskum
álfalögum og lagi Atla Heimis við
þýðingu Jónasar Hallgrímssonar
á ljóði þýska skáldsins Heinrich
Heine, Álfareiðinni. Tónleikarnir
hefjast klukkan 15.
Vínartónleikar
í Laugarborg
Síðasti sýningardagur samsýn-
ingar Stephans Stephensens, Rak-
elar Gunnarsdóttur, Lóu Hjálm-
týsdóttur, Guðmundar
Thoroddsen, Helga Þórssonar og
Söru Riel í 101 Gallery er í dag,
fimmtudaginn 3. janúar 2008.
Listamennirnir eiga það allir
sameiginlegt að hafa haldið
einkasýningar í galleríinu á ný-
liðnu ári og er þessi sýning nokk-
urs konar lokaviðburður sýning-
arársins.
Lokadagur
Alþjóðahús óskar viðurkenningarhöfunum Luca Lúkasi Kostić, Hjálmari Sveinssyni,
Ævari Kjartanssyni og Eflingu-stéttarfélagi til hamingju en þeir hlutu viðurkenningu
Alþjóðahúss „Vel að verki staðið“ fyrir lofsverða frammistöðu
í málefnum innflytjenda á Íslandi.
Viðurkenningin þjónar þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á
landi í málefnum innflytjenda. Veittar voru viðurkenningar fyrir lofsverða
frammistöðu í þremur flokkum; til einstaklings af íslensku bergi brotinn
sem hefur lagt sitt af mörkum til innflytjenda á Íslandi sem voru tveir
að þessu sinni, til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt
sitt af mörkum til samfélagsins og til fyrirtækis, stofnunar
eða félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda
og fjölmenningarsamfélagsins.
H
ÖN
N
UN
: L
UC
IA
N
O
DU
TR
ATil hamingju
Landsbankinn er bakhjarl viðurkenningarinnar.
VIÐURKENNINGIN ER TILEINKUÐ THOR JENSEN EN HANN FLUTTI HINGAÐ TIL LANDS UNGUR AÐ ALDRI, VANN
SIG UPP ÚR SÁRRI FÁTÆKT OG MARKAÐI REKSTUR FYRIRTÆKJA HANS INNREIÐ TÆKNIALDAR Í ÍSLENSKT
ATVINNULÍF OG HAFÐI HANN GRÍÐARLEG ÁHRIF Á ÍSLENSKT SAMFÉLAG Á FYRRI HLUTA 20. ALDAR.
Katla Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Alþjóðahúss, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, Sigurður Bessason, formaður Eflingar-stéttarfélags, Luca Lúkas Kostić knattspyrnuþjálfari,
Ævar Kjartansson dagskrárgerðarmaður, Hjálmar Sveinsson dagskrárgerðarmaður, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss.