24 stundir


24 stundir - 03.01.2008, Qupperneq 39

24 stundir - 03.01.2008, Qupperneq 39
24stundir FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 39 Jennifer Aniston hefur gefið sögusögnum um meint samband hennar og leikarans Jason Lewis byr undir báða vængi, en hinn síðarnefndi ku hafa flogið með einkaþotu sinni á fund Aniston þar sem hún dvaldist með Co- urteney Cox og fjölskyldu hennar í Mexíkó yfir áramótin. „Þau hafa sést í faðmlögum á ströndinni og njóta greinilega lífsins saman,“ sagði heimildarmaður ameríska tímaritsins OK! hþ Aniston með nýjan stegg Ólátabelgurinn Britney Spears kom alheiminum á óvart og eyddi gamlárskveldi með sonum sínum tveimur í stað þess að tjútta og tralla eins og henni einni er lagið. Spears fékk að hafa syni sína með þeim skilyrðum að dómkvaddur eftirlitsmaður yrði með, en auk hans var nýi kærastinn, ljós- myndarinn Adnan Ghalib, gestur á fjölskyldukvöldinu. hþ Róleg áramót hjá Britney Leikarinn Eddie Murphy byrjaði nýtt ár á því að giftast unnustu sinni, Tracey Edmonds, en þau munu hafa trúlofað sig í júlí síð- astliðnum. Parið lét pússa sig saman á fyrsta degi ársins á einkaeyju skammt frá Bora Bora, en um látlausa athöfn var að ræða þar sem eingöngu nánustu ættingjar og vinir deildu deg- inum með brúðhjónunum. hþ Murphy gengur í það heilaga Leikkonan Uma Thurman hefur afráðið að segja sígarettufíkninni stríð á hendur eftir árangurslausa baráttu við að reyna að hætta síð- ustu árin. Uma kveðst þess full- viss að reykingarnar hafi haft af henni bitastæð hlutverk þar sem líkamlegt form hennar sé lakara vegna reykinganna. hþ Uma Thurman hættir að reykja Leikkonan Glenn Close hefur viðurkennt að hafa átt fullt í fangi með að sinna hlutverki sínu sem einstæð móðir eftir að hún skildi við barnsföður sinn, John Starke, árið 1991. Leik- konan fékk forræði yfir dótt- urinni, sem nú er 19 ára gömul, en segist hafa átt fullt í fangi með að sameina einkalífið og ferilinn, auk þess sem það hefur reynst þrautin þyngri að koma til móts við kröfur dóttur sinnar. „Börnin eru eins og kúnnar. Þau vilja alla athygli þína allan dag- inn,“ segir Glenn, sem enn berst við að halda jafnvægi milli vinn- unnar og heimilisins. hþ Erfitt að vera einstæð móðir Leikkonan Angelina Jolie hyggst stækka fjölskylduna á næstunni og eignast enn eitt barnið með kærastanum Brad Pitt. Eins og kunnugt er eiga þau fjögur börn, þar af þrjú ættleidd, og segist Jol- ie daðra við hugmyndina um annað barn á næstunni. „Við munum eignast fleiri börn. Hver veit, kannski munum við eignast annað barn á árinu,“ sagði hún í samtali við In Touch og bætti því við að þau Brad séu samrýmd í foreldrahlutverkinu enda þótt þau rífist á köflum. „Við rífumst stundum en við deilum ekki vegna uppeldislegra þátta.“ hþ Hyggst eignast fleiri börn

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.