24 stundir - 19.01.2008, Síða 1
„Það að Ólafur Stefánsson er meiddur og verður ekki með í næstu leikjum
þýðir að nú er komið að skuldadögum hjá drengjunum sem hann hefur
leitt í gegnum árin. Þeir verða að sýna og sanna að þeir geti þetta án hans
og þeir verða bara að gera það og ég held að þeir geri það … Nú verða þeir
að sýna hvort þeir eru menn eða mýs,“ segir Sigurður Sveins-
son um gengi íslenska handboltalandsliðsins á EM.
Árvakur/Golli
„Erum þekktir fyrir að fara erfiðu leiðina“
Þýðir ekkert
að væla
»42
24stundirlaugardagur19. janúar 200813. tölublað 4. árgangur
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
Baldur Þórhallsson stjórnmála-
fræðingur gefur bóndanum ekk-
ert sérstakt á bóndadaginn. Það
gera hins vegar þær konur
sem blaðið ræddi við. Hver
með sínum hætti.
Rómantík og rósir
SPJALLIл45
Þórunn Lárusdóttir leikkona opnar
myndaalbúmið sitt fyrir lesendum sem
fá að skyggnast inn í líf hennar frá barn-
æsku til dagsins í dag. Þórunn hefur
ferðast mikið um ævina og er því vel
sigld, eins og sagt var.
Alltaf í háloftunum
MYNDAALBÚMIл28
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Ég er mjög íhaldssamur varðandi
allar breytingar sem snúa að mögu-
leika á eignarhaldi útlendinga í ís-
lenskum sjávarútvegi,“ segir Einar
K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Í 24 stundum á fimmtudaginn
sagðist Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra hafa skipað nefnd í
því skyni að rýmka reglur um fjár-
festingu erlendra aðila hér á landi,
meðal annars í sjávarútvegi.
Einar segir skoðun sína og stefnu
Sjálfstæðisflokksins vera óbreytta í
þessum efnum. „Sjávarútvegurinn
er mjög sérstök atvinnugrein og hér
er um að ræða nýtingarrétt á okkar
helstu auðlind. Við háðum okkar
landhelgisstríð á sínum tíma til þess
að fá óskoraðan rétt til nýtingar á
okkar efnahagslögsögu. Og ég vil
ekki að við glötum þeim árangri í
einhverju fljótræði.“
Arnbjörg Sveinsdóttir, sjálfstæð-
iskona og formaður sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefndar, tekur und-
ir með Einari.
Ekki virðast þó allir sjálfstæðis-
menn hrifnir af stefnu flokksins í
þessum efnum. Pétur Blöndal,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir
þjóðerni ekki eiga að skipta máli
þegar einstaklingar fjárfesta í sjávar-
útvegi.
„Ég held að sjávarútvegurinn líði
fyrir það að fá ekki áhættufjármagn
erlendis frá,“ segir Pétur. Fyrirtæki í
sjávarútvegi þurfi að fá lán erlendis
frá með veði í útgerðinni, sem þýði
að ef þau geti ekki borgað lánið
missi fyrirtækin útgerðina. „Menn
eru oft miklu háðari lánardrottni
sínum heldur en eiganda.“ Pétur
segir þó mikilvægt að íslenska ríkið
haldi lögsögu sinni yfir auðlindinni.
„Þetta er eitt af þeim efnum sem
ágreiningur er um meðal ríkis-
stjórnarflokkanna,“ segir Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins. Hann segir mikilvægt að
láta ekki „Evrópusambandsþrá
Samfylkingarinnar“ ráða ferðinni í
þessum mikilvæga málaflokki.
Ráðherra
greinir á um
fjárfestingar
Viðskipta- og sjávarútvegsráðherra ósam-
mála um erlendar fjárfestingar í sjávar-
útvegi Ólík sjónarmið sjálfstæðismanna
STJÓRNARANDSTAÐAN»10
➤ Samkvæmt EES-samningnumer Íslendingum heimilt að
beita höftum á fjárfestingar
erlendra aðila í sjávarútvegi
þrátt fyrir ákvæði samnings-
ins um frjálsar fjárfestingar.
➤ Heimild sú gildir þó ekki umóbeinar fjárfestingar erlendra
aðila í sjávarútvegi.
EES-SAMNINGURINN
Þjónusta við sjúklinga verður ekki
verri þó bráðalæknar séu ekki
lengur í neyðarbíl. „Við verðum
áfram í góðu sambandi við lækna á
bráðamóttökunni,“ segir Brynjar
Þór Friðriksson bráða-
tæknir.
Bráðatæknar í
stað bráðalækna
»4
Haldi verktakar sprengivinnu inn-
an ákveðinna styrkmarka eru þeir
ekki skaðabótaskyldir vegna
skemmda á húsnæði sem kunna að
hljótast af völdum þeirra. „Sjokk
að vera ekki tryggður,“
segir íbúi.
Íbúar bera
skaðann sjálfir
»4
Hugvitsmenn hafa leyst eitt
helsta vandamál fólks sem
snemma er á fótum. Ofristað
brauð heyrir senn sögunni til.
Brauðristin sem nær þessum
árangri byggist á sáraeinfaldri
hugmynd: hún er gegnsæ.
Þannig getur morgunsælker-
inn auðveldlega séð hvenær
brauðið er rétt ristað.
Helsti ókosturinn er að aðeins
rúmast ein sneið, þannig að
fjölskyldur þurfa að fjárfesta í
nokkrum til að geta snætt
morgunverðinn saman. aij
Brenndu
brauði útrýmt
0
-5
-1 -2
-2
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 125,01
ÚRVALSVÍSITALA 5.531
SALA %
USD 64,74 -0,62
GBP 126,90 -1,46
DKK 12,76 -0,76
JPY 0,60 -0,97
EUR 95,08 -0,75
-0,84
0,30
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
Bláa kannan
ódýrust
NEYTENDAVAKTIN
14