24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir WWW.EBK.DK Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Anders Ingemann Jensen farsími nr. +45 40 20 32 38 netfang: aj@ebk.dk Ert þú í byggingarhugleiðingum? Hugsaðu um hollustuna! Svalandi, próteinríkur og fitulaus Silkimjúkt, próteinríkt og fitulaust Fitusnauðar og mildar ab-vörur – dagleg neysla stuðlar að bættri heilsu og vellíðan VÍÐA UM HEIM Algarve 17 Amsterdam 9 Ankara 4 Barcelona 17 Berlín 8 Chicago -14 Dublin 13 Frankfurt 10 Glasgow 13 Halifax 4 Hamborg 9 Helsinki 2 Kaupmannahöfn 6 London 13 Madrid 12 Mílanó 10 Montreal 0 München 10 New York 4 Nuuk 1 Orlando 17 Osló 2 Palma 20 París 10 Prag 9 Stokkhólmur 4 Þórshöfn 3 Vestan 8-15 m/s og él, en léttskýjað A-lands. Frost 3 til 10 stig, kaldast í innsveitum. VEÐRIÐ Í DAG 0 -5 -1 -2 -2 Allt að 10 stiga frost Norðan og norðvestan, 10-15 m/s. Snjókoma eða él fyrir norðan, en bjartviðri syðra. Frost 1 til 10 stig, en um frostmark við suður- ströndina. VEÐRIÐ Á MORGUN 0 1 0 1 -1 Snjókoma eða él nyrðra Allir sakborningarnir í Fá- skrúðsfjarðarmálinu játuðu sök þegar málið var þingfest í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir gerðu þó fyrirvara um nokkur at- riði í sakargiftum, meðal annars magn fíkniefnanna sem þeir eru ákærðir fyrir að smygla til landsins. Röksemdin fyrir því var sú skoðun þeirra að raki hefði komist í efnin og þau því verið þyngri við vigtun lögreglu á þeim. Játuðu með fyrirvörum Einar Jökull Einarsson játaði því að hafa skipulagt innflutning á fíkniefnunum en neitaði því að hafa fjármagnað kaupin á efnun- um. Bjarni Hrafnkelsson játaði að hafa pakkað fíkniefnunum til flutnings en neitaði að hafa komið að skipulagningu smyglsins að öðru leyti. Alvar Óskarsson og Guðbjarni Traustason játuðu báðir að hafa flutt efnin til landsins í skútu frá Danmörku. Þeir gerðu hins vegar athugasemdir við magn fíkniefnanna. Marinó Einar Árna- son játaði að hafa tekið við fíkni- efnunum af þeim Alvari og Guð- bjarna á Fáskrúðsfirði. Jafnframt játaði hann að hafa ætlað að af- henda þeim vistir og olíu til að þeir gætu siglt skútunni aftur frá Ís- landi. Arnar Gústafsson játaði að hafa ætlað að taka við fíkniefnun- um af Marinó og geyma þau fyrir Einar Jökul. Hann sagðist þó ekki hafa vitað hvað væri í pökkunum. freyr@24stundir.is Sakborningarnir í Fáskrúðsfjarðarmálinu mættu í dómsal í gær Játuðu allir sök með fyrirvara Játuðu Allir sakborning- arnir játuðu sök með mis- miklum fyrirvörum. Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun á þriðju- dag flytja þingsályktunartillögu um aukið öryggi við framkvæmdir hins opinbera. 24 stundir sögðu frá því á fimmtudag að frágangur og merk- ingar vegna framkvæmda við Reykjanesbraut væri með slakasta móti og skapaði slysahættu. Ár- mann segir Vegagerðina verða að koma með mun ákveðnari hætti að þessum málum. „Annaðhvort með því að settar verði reglur eða framkvæmdaraðilum verði gert skylt að sýna fram á með hvaða hætti þeir ætla að huga að öryggismálum við framkvæmdina. Þá þarf einnig að fá samþykkt Vegagerðarinnar fyrir því að nægilega vel sé staðið að merkingunum. Vegagerðin þarf að gera þessar kröfur til verktaka og fylgja því eftir að hann verði við þeim. Þetta er gríðarlega brýnt mál því slys af völdum þess að ekki er nægi- lega vel staðið að framkvæmdum getum við ekki sætt okkur við.“ þsj Vill draga úr slysahættu Kröfu Saga Capi- tal fjárfesting- arbanka um að verða skráður eigandi allra hluta í fjárfest- ingarfélaginu In- solidum ehf. var hafnað í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Dögg Pálsdóttir annar eigandi In- solidum segist ánægð með nið- urstöðuna. Lögmaður Saga Capital segist bú- ast við að málið fari fyrir Hæsta- rétt. fr Kröfu Saga Capital hafnað Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Samkeppniseftirlitið hefur nú eignarhald Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í Hitaveitu Suðurnesja (HS) til skoðunar. Athugunin er í flýti- meðferð hjá stofnuninni þar sem niðurstaða verður helst að liggja fyrir áður en gengið verður frá kaupum OR á hlut Hafnfirðinga í HS, en það verður í síðasta lagi í byrjun mars næstkomandi. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir það ekki liggja alveg fyrir hvenær at- huguninni lýkur. „Við lýstum því yfir í undirbúningsferli við sölu á hlut ríkisins að það yrði skoðað vel ef eignatengsl kæmu upp milli keppinauta á þessum þrönga markaði. Athyglin beinist fyrst og fremst að þessum eignatengslum.“ Niðurstaða áður en OR kaupir Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, segir samkeppnisyfirvöld hafa heyrt afstöðu allra málsaðila og fengið öll gögn málsins afhent. „Við höfum reynt að ýta á að nið- urstaðan liggi fyrir áður en til loka þessara samninga um kaup á hlut Hafnarfjarðar kemur. Ef við kaup- um en það yrði síðan ógilt þá er ekkert víst að peningar fyrir hlutn- um séu enn til hjá Hafnfirðingum. Þeir gætu verið búnir að nota þá til skynsamlegri hluta. Ég held að Samkeppniseftirlitið geri sér líka grein fyrir því að þeir verði að klára sína vinnu fyrir þann tíma.“ Engir fyrirvarar í samningnum Gunnar Svavarsson, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, segir enga fyrirvara um samþykki samkeppn- isyfirvalda í kaupsamningnum milli OR og Hafnarfjarðar. „Það er þannig að þegar gert er tilboð eins og þetta er gert ráð fyrir því, eins og í öðrum málum, að stór aðili eins og Orkuveitan standi við sitt á sama hátt og sveitarfélög verða að standa við sitt. Það er enginn fyr- irvari í tilboði Orkuveitunnar. Þar af leiðandi myndu menn fyrst og fremst líta svo á að það væri Orku- veitunnar að leysa úr þeim vanda- málum sem kæmu upp vegna sam- keppnishindrana.“ Skoða hvort OR megi eiga í HS  Samkeppniseftirlitið skoðar eignaraðild Orkuveitunnar í HS  Óvíst er hvort orkufyrirtæki megi eiga hlut í keppinaut sínum Samkeppnishaml- andi? Ekki er víst að OR megi kaupa í Hitaveitu Suðurnesja. ➤ Þegar íslenska ríkið seldi rúm15 prósent í HS í fyrra var tek- ið fram að opinber orkufyr- irtæki mættu ekki bjóða í hlutinn vegna þess að það stæðist ekki samkeppnislög. ➤ OR, sem er opinbert orkufyr-irtæki, á í dag 16,6 prósenta hlut og hefur gert samning um kaup á 15,4 prósenta hlut til viðbótar. EIGNARHALD Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Því skal haldið til haga, að pistlahöfundur 24 stunda, Ill- ugi Jökulsson, starfar hjá Birt- íngi útgáfufélagi. Birtíngur er í meirihlutaeigu félags í eigu Baugs Group, sem var til um- fjöllunar í pistli Illuga sl. laug- ardag. Ritstj. Árétting Landsvirkjun greiddi í gær Arn- arfelli, sem byggir Hrauna- og Ufs- árveitur Kárahnjúkavirkjunar, framhjá Landsbankanum svo fyr- irtækið gæti greitt starfsmönnum sínum laun, en margir þeirra höfðu ekki fengið greitt fyrir vinnu í des- ember. Alla jafna hefur Landsvirkj- un lagt greiðslur til Arnarfells inn á reikning í Landsbankanum. Arnarfell hefur undanfarið átt í viðræðum við Landsbankann og Lýsingu vegna bágrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Samkvæmt heimild- um frysti Landsbankinn launasjóð fyrirtækisins. „Okkur fannst sanngjarnt að starfsfólkið fengi sín laun á meðan þessar viðræður fara fram og því var brugðið á þetta ráð,“ segir Sig- urður Arnalds, talsmaður Kára- hnjúkavirkjunar. Fyrir austan starfar nú lág- marksfjöldi starfsmanna hjá Arn- arfelli. Þeir vinna helst við að halda í horfinu. Vinna við aðra verkþætti hefur legið niðri í rúma viku. „Við þurfum að fara að skoða þessi mál mjög alvarlega í næstu viku, við getum ekki látið verkið bíða mikið lengur,“ segir Sigurður. aegir@24stundir.is Landsvirkjun greiðir laun Arnarfells Landsvirkjun greiðir framhjá Landsbanka Snjó hefur kyngt niður í Heið- mörk síðustu daga og því er skíðafærið það allra besta sem komið hefur í nokkur ár, að sögn starfsmanna þar. Búið er að troða skíðabrautir á svæðinu frá Elliða- vatnsbænum og upp á Elliða- vatnsheiði. mbl Besta skíðafæri í mörg ár STUTT ● Spilavíti Lögregla lagði hald á nokkur spilaborð og fleiri muni í húsleit í miðborginni í fyrra- kvöld. Farið var í tvö hús, en grunur leikur á að í öðru þeirra hafi verið rekið spilavíti. Við aðgerðina naut lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu aðstoðar sér- sveitar ríkislögreglustjóra. mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.