24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 4

24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 4
NEYTENDAVAKTIN Bolli af cappucino Kaffihús Verð Verðmunur Bláa kannan Akureyri 290 Energia Smáralind 300 3,4 % Café Konditori Smáralind 300 3,4 % Kofi Tómasar frænda Laugavegi 310 6,9 % Kaffitár Keflavíkurflugvelli 320 10,3 % Kaffi París Austurstræti 330 13,8 % Perlan kaffitería 380 31,0 % 4 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir Það er komin vetrartíð ... SINDAL motta 100% kókostrefjar, latex bakhlið L80xB50 cm 495,- © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.isOpið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 A T A R N A – K M I / F ÍT Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Þvottavél frá Siemens, sem lætur blettina hverfa. Þetta er vélin handa þér! „Hann var góður drengur hann Fischer, ég var einmitt að setja hérna til hliðar bók sem ég veit að hann hefði viljað fá,“ segir Bragi Kristjónsson fornbókasali en Bobby Fischer, fyrrverandi heims- meistari í skák, lést á fimmtudag. Fischer var fæddur í Bandaríkjun- um þann 9. mars 1943 en hann vann heimsmeistaratitilinn í frægu einvígi við Boris Spasskí í Reykja- vík árið 1972. Fischer fékk íslensk- an ríkisborgararétt árið 2005 og flutti hingað til lands. „Það er ekkert nema gott um þennan mann að segja og skrýtið sumt,“ segir Bragi en Fischer vandi komur sínar í bókabúðina hans við Hverfisgötu í Reykjavík. „Hann var að spá í alls konar útlagabók- menntir, hann taldi sig náttúrlega vera útlaga frá Bandaríkjunum og var það að sumu leyti,“ segir Bragi. „Hann var náttúrlega fórnarlamb mannvonsku heimsvaldastefnunn- ar,“ bætir hann við. „Hann var að sumu leyti óþarf- lega tilfinningasamur gagnvart sjálfum sér, hann var með það á heilanum að hann væri ofsóttur,“ segir Bragi, og bætir við að Bobby hafi verið mjög einstrengingslegur í skoðunum að mörgu leyti, „en hann var líka alveg brilliant og flottur,“ segir hann. fifa@24stundir.is Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, lést í gær Var útlagi að sumu leyti Veitingahúsið Kaffi Krókur, sem stendur við Aðalgötu á Sauðárkróki, gjöreyðilagðist í bruna í fyrrinótt. Húsið er eitt elsta hús á Sauðárkróki, byggt árið 1887, og hefur hýst margvíslega starfsemi. Þar var m.a. fyrsta fangageymsla Skagfirðinga. Stórbruni á Sauðárkróki í fyrrinótt Mynd/Feykir-Guðný Jóhannesdóttir Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is „Heilbrigðiskerfið virkar af því að heilbrigðisstéttir vinna saman. Við teljumst til heilbrigðisstétta,“ segir Sveinbjörn Berentsson bráðatækn- ir en mikil umræða hefur verið undanfarið um þá ákvörðun að hætta að láta lækna fylgja neyðar- bílnum. Sveinbjörn segir Landspítalann þó einungis vera að bregðast við þeirri þróun sem hefur orðið í menntun bráðatækna. Brynjar Þór Friðriksson starfar einnig sem bráðatæknir og hann tekur undir með Sveinbirni. „Þetta er ekki svo mikil breyting frá því sem áður var. Það er ekki læknir í öllum bílum,“ segir hann og bætir við að áfram verði unnið í nánu samstarfi við bráðalækni. „Við verðum í beinu talsambandi við lækna á bráða- móttökunni,“ segir hann og bætir því við að eftir sem áður verði læknir sendur á staðinn þegar mik- ið liggur við. „Meðalstarfsaldur bráðatækna hérna er 12 ár,“ segir Sveinbjörn og Brynjar bætir við að mikið hafi ver- ið lagt í þjálfunina. „Þjálfunin hér heima er stigskipt, fyrst er byrj- endaþjálfun, svo vinna menn í þrjú ár og fara í framhald og svo seinna lokaþjálfun erlendis.“ Íslenskir sjúkraflutningsmenn hafa farið til Pittsburg í Bandaríkjunum og tek- ur þjálfun þar um 10 mánuði. Bjarni Þór Eyvindsson hefur far- ið fyrir þeim bráðalæknum sem helst hafa gagnrýnt breytingarnar. „Menn hafa áhyggjur af því hvað gerist þó þjálfun bráðatækna sé mikið framfaraskref sem miðaði að því að efla þjónustuna,“ segir hann og bætir því við að samstarfið hafi skilað mjög góðum árangri. „Nú á að fórna því samstarfi fyrir litla eða enga peninga,“ segir Bjarni Þór. Bráðatæknar vel menntaðir  Þjónusta við sjúklinga ekki verri þótt læknar séu ekki í neyðarbíl Í þjálfun Bráðatæknar fá þjálfun í Pittsburg. ➤ Læknir hætti að vera í neyð-arbílum þann 15. janúar síð- astliðinn. ➤ Landlæknir telur breytingunaverða til bóta. ➤ Gert er ráð fyrir að breytinginspari um 30 milljónir. BRÁÐATÆKNAR Bráðatækna eða bráðalækna? Svein- björn Berentsson og Brynjar Þór Frið- riksson segja bráðatækna mikið fram- faraskref Svandís Svavarsdóttir, borg- arfulltrúi í Reykjavík, var í sæti sem sem losnaði í ókyrrð í lofti í gær þegar flugvél Flugfélags Ís- lands var í aðflugi að Egilsstaða- flugvelli. Svandís fékk höfuðhögg við atvikið. Hún var flutt á Heilsugæslustöðina á Egils- stöðum, en er ekki talin alvarlega slösuð. mbl.is Svandís fékk höfuðhögg í flugi Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Gerð var verðkönnun á einföldum cappucino á kaffi- húsum. 31% verðmunur er á bollanum þar sem Bláa kannan, Akureyri er með lægsta verð en Perlan með hæsta verð. Athugið að ekki er tekið tillit til gæða. Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum. Bláa kannan ódýrust Kristín Einarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.