24 stundir - 19.01.2008, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
Enn meiri
verðlækkun
Allar vetrarvörur
á 40-70% afslætti
Gling-gló ehf
Laugavegi 39 - 101 Reykjavík
www.glingglo.is - s:5527682
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
29.januar 2008
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
María, krónprinsessa Danmerk-
ur, fetar um þessar mundir í fót-
spor tengdamóður sinnar og
stundar herþjálfun. Lærir hún að
hleypa af byssu, slökkva elda og
veita fyrstu hjálp.
Að þjálfun lokinni mun María
ganga í heimavarðlið landsins.
Þar gegndi Margrét Þórhildur
drottning á sínum tíma stöðu
majórs í flugsveit kvenna. Til að
byrja með mun prinsessan þjóna
varnarsvæði Kaupmannahafnar.
„Við erum ótrúlega ánægð með
áhuga krónprinsessunnar,“ segir
Jan S. Norgaard, yfirmaður
heimavarðliðsins. Lítur hann á
aðild Maríu sem klapp á bak
hinna fjölmörgu sjálfboðaliða
varðliðsins. aij
Krónprinsessa
fer í herinn
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ísraelar segjast hafa gert prófanir á
langdrægum eldflaugum sem borið
geta kjarnaodda. Talið er að próf-
ununum sé ætlað að skjóta Írönum
skelk í bringu. Mahmoud Ahmad-
inejad Íransforseti segist engar
áhyggjur hafa.
Eldflaugar drífa til Írans
Varnarmálaráðuneytið hefur
ekkert staðfest annað en að prófun
á eldflaugum hafi farið fram á
fimmtudag.
Telja sérfræðingar að flaugunum
sé ætlað að vera þriðja kynslóð Jer-
icho-flauga. Mun flugdrægni þeirra
vera um 1.500 kílómetrar. Þar með
gætu Ísraelar skotið flaugum hvert
á land sem er í Íran. Þetta kemur
heim og saman við tilgátur um að
prófununum sé ætlað að fá Írana til
að hætta kjarnorkuáætlun sinni.
„Það var mikið fagnað þegar
niðurstöður prófunarinnar urðu
ljósar,“ hefur The Telegraph eftir
ísraelskum heimildarmanni. „Hver
sá sem er að fylgjast með hvað ger-
ist í Ísrael mun skilja hvað hann á
að skilja.“
Óttast ekki árás
Mahmoud Ahmadinejad var lít-
ið brugðið við tíðindin og segist
ekki taka hættuna á árás Ísraels al-
varlega. Ísrael „skortir hugrekki til
að ráðast á Íran,“ sagði Ahmad-
inejad í viðtali við sjónvarpsstöðina
al-Jazeera. „Viðbrögð Írans myndu
láta þá sjá eftir því, og þeir vita það.
Ahmadinejad neitar því að Ír-
ansstjórn stefni að því að koma sér
upp kjarnavopnum. Segir hann
kjarnorkuáætlun landsins þjóna
friðsamlegum tilgangi.
Þrýsta á Rússa
Samkvæmt samningi á milli rík-
isstjórna landanna munu Rússar
selja Írönum 82 tonn af auðguðu
úrani til kjarnorkuframleiðslu á
tveggja mánaða tímabili. Þriðja
sending af fimm barst í gærmorg-
un.
Ísraelar hvetja Rússa til að hætta
samstarfi við Írana, sem þeir óttast
að hjálpi þeim að þróa kjarnavopn.
„Fyrst Rússland er farið að senda
kjarnorkueldsneyti til Bushehr get-
ur auðgun úrans þjónað hernaðar-
legum tilgangi,“ segir Tzipi Livni,
utanríkisráðherra Ísraels.
Langdrægar
flaugar Ísraels
Ahmadinejad Tekur á móti
Mohamed el-Baradei, kjarn-
orkueftirlitsmanni Samein-
uðu þjóðanna
➤ Ísrael hefur aldrei viðurkenntopinberlega að búa yfir
kjarnavopnum.
➤ Talið er að áform Írans-stjórnar um að koma sér upp
kjarnavopnum hafi verið lögð
á hilluna fyrir fjórum árum.
VÍGBÚNAÐARKAPPHLAUP
Næsta kynslóð ísraelskra eldflauga myndi ná til allra íranskra
skotmarka Rússar hvattir til að hætta að aðstoða Írana
Omar Osama bin Laden, einn af
19 börnum hryðjuverkamanns-
ins, ætlar að vinna að frið-
armálum og bæta ímynd Íslams á
Vesturlöndum.
„Fjöldi fólks heldur að Arabar —
sérstaklega bin Laden fjöl-
skyldan, sérstaklega synir Obama
— séu allir hryðjuverkamenn.
Þetta er ekki satt,“ sagði bin Lad-
en fréttamanni AP. aij
Föðurbetrungur
bin Ladens
Tölvur í höfuðstöðvum Kristi-
legra demókrata í Svíþjóð voru
notaðar til að nálgast klámfengn-
ar myndir af ungum stúlkum.
„Þetta er óásættanlegt,“ segir
Lennart Sjögren, ritari flokksins,
í samtali við Dagens Nyheter.
Segir Sjögren málið verða rann-
sakað ítarlega. Einnig verði
skerpt á reglum varðandi tölvu-
notkun starfsmanna flokksins. aij
Klám finnst hjá
Kristilegum
Fjöldi fólks hefur farist í óvenju-
miklum frosthörkum í Miðaust-
urlöndum. Frostið í Sýrlandi fór
niður í 16 gráður og snjór féll í
Bagdad í fyrsta sinn í manna minn-
um. Bændur á svæðinu hafa orðið
fyrir uppskerubresti.
Allt að 200 manns hafa týnt lífi í
Afganistan vegna kuldanna. Segja
stjórnvöld flesta hinna látnu hafa
verið smala, en einnig séu konur og börn á meðal fallinna. Verst er
ástandið í vesturhluta landsins, þar sem snjóar aðeins nokkra daga á
meðalári. Þar hefur meginþorri mannfallsins orðið og tugþúsundir
búfjár hafa orðið úti. andresingi@24stundir.is
Kuldakast í Miðausturlöndum