24 stundir - 19.01.2008, Side 10
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
„Það er ákveðin reglugerð í gildi
um hvernig verktakar mega haga
sér við sprengingar og á meðan
verktakinn gætir þess að halda
sprengingum innan ákveðinna
marka ber hann enga sök ef tjón
verður.“ Þetta segir Ólafur Haukur
Ólafsson, deildarstjóri eignatjóna
hjá Tryggingamiðstöðinni.
Verktakafyrirtækið Þórtak boð-
aði íbúa við Þverholt á kynning-
arfund á dögunum vegna sprengi-
vinnu á svæðinu, en fyrirtækið
byggir 319 íbúðir á lóð á milli Ein-
holts og Þverholts. Íbúar hafa
gagnrýnt að sprengivinnan hafi
verið illa kynnt fyrir íbúum og að
hús þeirra hafi ekki verið ástands-
skoðuð áður en sprengivinnan
hófst eins og verktakinn hafi boð-
að. Sprengingarnar hófust 3. jan-
úar.
„Þetta er auðvitað ástæðan fyrir
því að þessi svokallaða ástands-
skoðun var svona flaustursleg, því
tryggingafélagið veit að það kemur
aldrei til með að þurfa að borga
neitt,“ segir Anna B. Saari, íbúi við
Þverholt.
Íbúum brugðið
Eftirlit með sprengivinnu er í
höndum eftirlitsaðila verkkaupa.
Gæti verktaki þess að sprengingar
fari ekki yfir áttatíu mý, sem er
mælieining á bylgjuhraða spreng-
inga, er hann ekki skaðabótaskyld-
ur vegna skemmda sem hugsanlega
tengjast sprengivinnunni.
„Það var mikill hiti í íbúum á
fundinum en það sem var mest
sjokkerandi var þegar okkur var
sagt að við værum ótryggð. Fulltrúi
frá Tryggingamiðstöðinni sagði að
þó að það kæmi glufa í húsið hjá
mér eftir sprengingu, þannig að ég
gæti séð út, beri verktakinn ekki
ábyrgð reynist sprengingin innan
marka,“ segir Anna.
„Mörkin eru höfð það há að það
er ekki séns að þeir fari upp fyrir
þau. Samkvæmt mælingum hafa
sprengingarnar hérna verið á
bilinu tuttugu til þrjátíu mý fram
að þessu og við höfum fundið heil-
mikið fyrir þeim.“
Hverfandi líkur á tjóni
„Það eru hverfandi líkur á að
sprenging geti orsakað skemmdir í
húsum í nágrenninu,“ segir Ólafur
Haukur Ólafsson hjá Trygginga-
miðstöðinni.
Ólafur Haukur segir íbúa koma
til með að sitja uppi með skemmd-
ir sem kunna að hafa hlotist vegna
sprenginganna gæti verktakinn
þess að halda sig innan marka.
„Orsökin fyrir tjóninu er ekkert
frekar sprengingin en lélegur bygg-
ingarmáti.
Verktaki ber
enga ábyrgð
Verktaki er ekki skaðabótaskyldur vegna sprengivinnu, sé hún
innan ákveðinna marka Sönnunarbyrðin er fasteignareigandans
➤ Sprengivinna í Þverholti hófst3. janúar, sama dag og íbúar
voru boðaðir á fund þar sem
kynna átti þeim vinnuna.
➤ Til þessa hefur verið sprengtþrisvar til fimm sinnum á dag.
➤ Stærð sprenginganna tilþessa hefur verið á bilinu
tuttugu til þrjátíu mý.
➤ Reiknað er með að sprengi-vinnan standi í hálft ár.
SPRENGINGAR
Árvakur/ÞÖK
Framkvæmdir við Þverholt Húseigendur fá
ekki bætt tjón af völdum sprenginga haldi
verktaki sig innan marka við sprengivinnuna.
10 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
„Ég tel að þvert á móti eigi að
treysta eignarhald þjóðarinnar á ís-
lensku sjávarauðlindinni,“ segir
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna, um hug-
mynd viðskiptaráðherra um að
auðvelda erlendum fjárfestum að
kaupa sig inn í sjávarútveginn.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, tekur
í sama streng. „Ef við opnum fyrir
erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi
neyðumst við til að opna fyrir er-
lenda eignaraðild að fiskveiðirétt-
indunum. Sem við teljum að komi
ekki til greina.“
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir að
menn megi ekki rasa um ráð fram
og eigi ekki að fórna auðlindum
okkar einhliða. hlynur@24stundir
Erlend fjárfesting í sjávarútvegi
Stjórnarandstaða
vill ekki rýmri reglur
„Það á að halda í þessi hús
og ég tel að verslun geti
vel þrifist í þeim,“ segir
Áslaug Harðardóttir
verslunareigandi í mið-
bænum en hún er ósam-
mála hugmyndum um
uppbyggingu sem kaup-
menn við Laugaveg
skýrðu frá í 24 stundum í
gær.
Hún segir engan ókost að
stóru vöruhúsin sæki ekki
í miðbæinn. „Miðbærinn
á að skapa sér sérstöðu en ekki eltast við verslunarmiðstöðvarnar,“
segir hún en hennar verslun stendur við Skólavörðustíg. Áslaug segir
flestar verslanir við Skólavörðustíg litlar en engu að síður sé mikil að-
sókn í verslunarhúsnæði þar „hér þrífst bara öðruvísi verslun, ég get
ekki séð betur en að hún sé að vaxa og dafna í miðbænum,“ segir hún.
Áslaug rekur einnig verslun í Stavangri í Noregi og segir hún alla versl-
un þar í litlum húsum. „Það hefur ekki verið rifið hús þar í 30 ár“ segir
hún og bætir við „í Notting Hill í London eru litlar og skrítnar versl-
anir og það er að stóraukast“ segir hún.
Áslaug segist vel skilja að húsin séu léleg en vill að uppbygging fari
þannig fram að séu byggð ný hús séu þau með sama sniði og þau sem
fyrir voru. fifa@24stundir.is
Hér þrífst öðruvísi verslun
„Það er mjög miður að fá ekki
fulltrúa í Jafnréttisráð. RIKK er
miðstöð jafnréttisrannsókna hér
á landi og
vettvangur
fræðimanna
úr öllum há-
skólum.
Með fulltrúa
héðan væri
tryggt að
ráðið gæti
nýtt nið-
urstöður
rannsókna,“
segir Irma
Erlingsdóttir forstöðumaður
Rannsóknarstofu í kvenna- og
kynjafræðum, aðspurð um frum-
varp til jafnréttislaga. Í fyrri gerð
frumvarpsins fékk RIKK fulltrúa
en ekki nú. þkþ
Klippt á fræða-
samfélagið
www.radiophonic-narration
Radiophonic Narration er fagnám fyrir hæfileikafólk sem vill vinna að skapandi fjölmiðlun.
Radiophonic Narration er fjölþjóðlegt verkefni á vegum Kvikmyndaskóla Íslands sem byggir
á gagnvirkri kennslu og verkefnagerð. Þátttakendur ferðast til Grænlands, Svíþjóðar, Danmerkur
og taka virkan þátt í workshops undir handleiðslu verðlaunaðra fagmanna. Í náminu er farið
rækilega í grunnþætti á framleiðslu heimilda- og fléttuþátta, svo sem upptöku- og klippitækni,
viðtalstækni, dramatúrgíu og hljóðnotkun.
UMSÓKNARFRESTUR: 15 FEBRÚAR
Nánari upplýsingar á www.radiophonic-narration.is
Fyrirspurnir: rikke@kvikmyndaskoli.is
Námstími: Frá mars 2008 til júlí 2009
www.kvikmyndaskoli.is
HEFURÐU EYRA FYRIR FJÖLMIÐLUN?
Námskeiðið Radiophonic Narration er haldið
á vegum Kvikmyndaskóla Íslands í samvinnu við
Háskóla Grænlands, Grænlenska fjölmiðlaskólann,
Dramatiska Institutet í Stokkhólmi og Danska
Ríkisútvarpið. Verkefnið er að auki stutt af RÚV,
KNR og Miðstöð munnlegrar sögu og styrkt
af Leonardo da Vinci - starfsmenntaáætlun
Evrópusambandsins.
Kolbrún Halldórsdóttir hefur
sent Félagi um foreldrajafnrétti
svarbréf þar sem hún biðst afsök-
unar á að hafa sært félagsmenn
með ummælum sínum um félag-
ið á þingi í fyrradag. Hún segir
það rangt að hún hafi það helst
gegn frumvarpinu að félagið fái
fulltrúa í Jafnréttisráði og að
sannfæring sín fyrir því að RIKK
eigi að fá fulltrúa í ráðinu hafi
ráðið málflutningi sínum. þkþ
Biðst afsökunar
á ummælum