24 stundir - 19.01.2008, Blaðsíða 18
Hús verslunarinnar Kaupmannasamtök
Íslands eru með skrifstofu í húsinu.
styrktarsjóður sem á að styðja við
þróun verslunar í landinu. SVÞ
hafa aftur á móti tekið við eldra
hlutverki KÍ.
„Fyrrverandi kaupmenn“
Í samþykktum KÍ segir um að-
ild: „Aðilar að KÍ geta orðið fyrr-
verandi kaupmenn og rekstrarað-
ilar, sem áður voru félagar í KÍ,
svo og einstaklingar, sem starfa
við verslunarrekstur.“ Aðild er
hins vegar háð samþykki stjórnar.
Í samþykktunum segir einnig:
„Félagsmenn KÍ og aðildarfélaga
þeirra verða sjálfkrafa við inn-
göngu beinir félagsmenn í SVÞ og
Samtökum atvinnulífsins (SA).
Þetta gildir þó ekki um fyrrver-
andi kaupmenn og einstaklinga
sem ekki eru lengur í rekstri.“
Í stjórn lífeyrissjóðs
Þrátt fyrir að KÍ hafi ekki leng-
ur hlutverk á vinnumarkaði hafa
þau enn áhrif á og aðild að ýms-
um þáttum sem tilheyra vinnu-
markaði. Þar á meðal er sæti í
Kaupmannasamtök Íslands
(KÍ) stóðu ásamt fleirum að
stofnun Samtaka verslunar og
þjónustu (SVÞ) árið 1999. Hin
nýju samtök tóku þá við hlutverki
KÍ og fleiri félagasamtaka sem áð-
ur sáu um hagsmunagæslu fyrir
atvinnurekendur í verslunar- og
þjónustugreinum. KÍ áttu miklar
eignir þegar SVÞ voru stofnuð en
í stað þess láta þær renna inn í
hin nýju samtök var ákveðið að
viðhalda KÍ en breyta hlutverki
þeirra og tilgangi. Eignirnar voru
seldar og andvirði þeirra sett í
sjóð.
„Umsjón með eignum“
Í nýjum samþyktum KÍ segir
að tilgangur þeirra sé annars veg-
ar „að stuðla að framgangi versl-
unarinnar og verslunarmenntun-
ar í landinu og koma eftir
aðstæðum að varðveislu hvers
konar menningarverðmæta sem
tengst hafa verslunarsögu lands-
ins, meðal annars með styrkveit-
ingum til safna og til útgáfustarf-
semi.“ Hins vegar er tilgangurinn
„að hafa umsjón með eignum
samtakanna og ávöxtun fjármuna
þeirra í samræmi við skýra fjár-
festingastefnu.“
Hlutverk KÍ hefur því breyst
frá því sem áður var, þegar þau
voru aðili á vinnumarkaði, sem
semur um kaup og kjör, í að vera
eins konar fjárfestingar- og
stjórn Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, eins stærsta lífeyrissjóðs
landsins.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
starfar á grundvelli samkomlags
VR, Samtaka iðnaðarins (SI), Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna
(FÍS), KÍ, SA og Verslunarráðs Ís-
lands. Í samþykktum hans segir
að af átta fulltrúum í stjórn skuli
einn þeirra vera tilnefndur af KÍ.
Fjórir eru tilnefndir af VR, SA og
Verslunaráð skipa einn fulltrúa í
sameiningu og hin tvenn sam-
tökin einn hvor.
SVÞ hafa sóst eftir því að fá
sæti KÍ þar sem þau telja að
stjórnarsetan samræmist frekar
starfsemi þeirra en KÍ, sem er
ekki lengur aðili að vinnumark-
aði. Samþykktir lífeyrissjóðsins
hafa þó komið í veg fyrir að svo
verði en þeim verður ekki breytt
nema með samþykki allra aðila.
KÍ hafa hingað til neitað að gefa
eftir sætið til SVÞ.
Hlutdeild í félagsheimilasjóði
Í kjarasamningi á milli VR og
SA er kveðið á um greiðslur
vinnuveitenda í Félagsheimila-
sjóð. Samkvæmt kjarasamning-
unum ber vinnuveitendum að
greiða í sjóðinn 0,25 prósent af
sama launastofni og lífeyrissjóðs-
gjöld eru reiknuð af. Greiðslur úr
sjóðnum skiptast síðan á milli
nokkurra samtaka atvinnurek-
enda auk KÍ.
Þegar SVÞ voru stofnuð sömdu
KÍ um að nýju samtökin fengju
hluta af þeirra hlutdeild í sjóðn-
um. Síðan þá hafa KÍ gefið eftir
meira af sínum hlut til SVÞ. Sam-
tök verslunar og þjónustu hafa
ekki verið fullkomlega sátt við
þetta fyrirkomulag enda eru
greiðslur í sjóðinn hluti af kjara-
samningum og því ætlaðar að-
ilum vinnumarkaðarins.
Sérstök staða KÍ
Staða KÍ er því mjög sérstök.
Samtökin létu af hlutverki sínu á
vinnumarkaði fyrir tæpum áratug
en fá þó enn til sín tekjur sem eru
tilkomnar vegna kjarasamninga
auk þess sem þau eiga fulltrúa í
stjórn eins stærsta lífeyrissjóðs
landsins.
KÍ hafa hingað til hafnað öll-
um óskum um að gefa eftir
stjórnarsætið og er ekki búist við
að svo verði á næstunni. Sam-
tökin munu því líklega halda sér-
stöðu sinni áfram.
Hafa áfram tekjur og
völd en litla starfsemi
➤ KÍ hafa verið einn af bak-hjörlum Rannsóknarseturs
verslunarinnar.
➤ KÍ hafa styrkt verslunarbrautBorgarholtsskóla auk þess að
veita styrki til ýmissa safna.
VERKEFNI KÍ
FRÉTTASKÝRING
Kaupmannasamtökin eiga stjórnarsæti í einum stærsta lífeyrissjóðnum þótt hlutverki þeirra hafi lokið 1999
Árvakur/Ómar
Eftir Elías Jón
Guðjónsson
elias@24stundir.is
18 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
„Við vildum fá þetta sæti á
sínum tíma en það var ekki
samþykkt af
Kaupmanna-
samtök-
unum,“ segir
Sigurður
Jónsson,
fram-
kvæmda-
stjóri SVÞ, aðspurður um
stjórnarsæti KÍ í stjórn Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna.
„Við erum fulltrúar fyr-
irtækjanna í bransanum,
semjum um þeirra laun og
vinnum að þeirra hagsmuna-
málum. Þessi sæti samræm-
ast á engan hátt tilgangi
Kaupmannasamtakanna,“
segir Sigurður. Hann setur
einnig spurningarmerki við
hlutdeild KÍ í Félags-
heimilasjóði, það er að þau
séu ekki fulltrúar þeirra sem
greiða í hann. Sigurður stað-
festir að stjórn SVÞ hafi ósk-
að eftir því við KÍ að yf-
irtaka stjórnarsætið.
Sigurður Jónsson
SVÞ vilja sætið
„Það var samið um það á sín-
um tíma að tilnefningarrétt-
urinn yrði
hjá KÍ en
hann færi
ekki til SVÞ,“
segir Bene-
dikt Krist-
jánsson, for-
maður Kaup-
mannasamtaka Íslands,
spurður hvers vegna KÍ eigi
enn fulltrúa í stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna. Hann
segir að KÍ séu að ýmsu leyti
ennþá í hagsmunagæslu fyrir
kaupmenn. „Það er ekkert
launungarmál að sumir af
okkar félagsmönnum hafa
ekki fundið sig innan SVÞ
vegna þess að þau eru mynduð
af stórum fyrirtækjum en fé-
lagsmenn Kaupmanna-
samtakanna eru litlir og með-
alstórir kaupmenn í dag.“
Benedikt segir ekkert óeðlilegt
að KÍ eigi aðild að Fé-
lagsheimilasjóði þar sem
margir félagsmenn þeirra séu
enn í rekstri.
Benedikt Kristjánsson
Með hlutverk