24 stundir - 19.01.2008, Side 26

24 stundir - 19.01.2008, Side 26
26 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir Ég var í sveit norður í Stóru-Ávík sumarið 1972 meðan þeir Borís Spasskí og Bobby Fischer tefldu ein- vígið um heimsmeistaratitilinn í skák suður í Reykjavík. Í Árnes- hreppnum var þá ekkert sjónvarp og dagblöðin bárust þangað býsna stopult – að minnsta kosti man ég ekki til þess að hafa litið í dagblað þau fjögur sumur sem ég var í Stóru-Ávík. Því fór þetta heimsmeistaraein- vígi að mestu leyti framhjá mér – ég vissi varla um hvað systir mín var að tala þegar hún vísaði í bréfum til mín til einhvers Sæma rokk og hvurju hann hefði tekið upp á – eða talaði um hljóðnema í stólum og flugur í ljósum. Seinna meir, meðan ég tefldi svo- lítið, þá taldi ég mér trú um að ef ég hefði verið í bænum þetta sumar, þá hefði ég áreiðanlega ánetjast skák- listinni fyrir alvöru – og hangið í Laugardalshöllinni öllum stundum við að góna á skákborð meistar- anna. Og ég hefði farið að venja komur mínar í skákfélög og á skammri stundu þroskað með mér umtalsverða hæfileika. Og alveg efunarlaust orðið á end- anum stórmeistari í skák. Ungpiltar urðu stórmeistarar Þessi óskhyggja var ekki alveg út í loftið. Heimsmeistaraeinvígið 1972 hafði einmitt þessi áhrif á nokkra ís- lenska ungpilta – meðal strákanna sem héngu í Laugardalshöllinni og hlustuðu andaktugir á skákskýring- ar voru jafnaldar mínir Jón L. Árna- son og Margeir Pétursson – og Helgi Ólafsson var þarna líka á vappi og eflaust Jóhann Hjartarson, þótt hann væri yngri. Og allir urðu þessir ungu menn á endanum stórmeist- arar í skák og unnu góð afrek yfir reitunum 64. Hví skyldi ég ekki hafa getað það líka? Bara ef ég hefði verið í bæn- um … Reyndar benti mín taflmennska aldrei til þess – jafnvel ekki þegar best lét – að ég hefði neina sérstaka hæfileika. Ég held því að skákheim- urinn hafi ekki misst af miklu þótt ég hefði verið í sveitinni. En þótt ég nyti þess að vera í Stóru-Ávík hefði ég svosem alveg viljað fylgjast með þessu einvígi þar sem Bobby sálugi Fischer hrifsaði æðstu djásn skák- heimsins af Borís Spasskí – þetta var, hvað sem öðru leið, söguleg viðureign. Ómögulegt annað en Fischer myndi vinna Að því marki sem ég fylgdist með þessu, þá hélt ég reyndar með Spasskí. Það var að parti til af því mér fannst hann svolítið líkur karli föður mínum í útliti (bara svolítið!) en líka af því ég var penn og hlé- drægur drengur og kunni betur að meta pena og hlédræga menn eins og Spasskí heldur en götustrákinn Fischer sem sífellt var með kjaftinn á lofti. En samt virtist allan tímann ein- hvern veginn ómögulegt annað en Fischer myndi vinna. Spasskí var fágaður skáksnillingur en hann var bara maður. Fischer var einhvers konar náttúruafl. Og þrátt fyrir alla sína fágun og alla sína tækni hafa mennirnir enn ekki afl til að sigra náttúruna. Að minnsta kosti ekki þegar hún lætur fyrir alvöru skína í tennurnar. Eins og Fischer gerði svo sannarlega í Reykjavík. Gyðingahatari Seinna meir lærði ég að meta Fischer og það sem hann afrekaði þrátt fyrir alla erfiðleika og and- stöðu. Ég verð hins vegar að segja að á síðari hluta ævinnar þótti mér æ minna til hans koma. Ég á óskaplega erfitt með að bera virðingu fyrir delluskoðunum eins og þeim sem Fischer kom sér upp í æ ríkari mæli eftir því sem leið á ævina. Hann gerðist Gyðingahatari þótt hann væri sjálfur af Gyðingaættum og þótt ýmsar kenningar hans um sam- blástur sovésku stórmeistaranna gegn sér væru áreiðanlega sannar, þá virtist það fyrir neðan virðingu þessa mikla snillings að halda fram þvættingi eins og þeim að allar skák- ir sovésku skákmeistaranna væru samdar fyrirfram á einhverri rann- sóknarstofu – bara til að samræma aðgerðir gegn honum og öðrum hugsanlegum arftökum hans. Að rekast reglulega á Fischer Vitaskuld báru margar skoðanir Fischers í seinni tíð fyrst og fremst vitni um að hann væri haldinn sjúk- legum ofsóknargrillum. Það var náttúrlega fyrst og fremst verst fyrir hann sjálfan – hann leyfði aldrei hæfileikum sínum að blómstra eftir að lokamarki hans var náð hér í Reykjavík sumarið 1972. En per- sónulega verð ég samt að segja að það var eitthvað huggulegt og skemmtilegt við að rekast reglulega á Bobby Fischer í miðbæ Reykjavík- ur nú síðustu misserin – ýmist í bókabúð Máls og menningar, eða þá í fornbókabúðinni hans Braga frænda míns þar sem hann var fastagestur. Og þá brá svo við að hvað sem leið furðulegum og að mörgu leyti afspyrnu vondum skoð- unum hans, þá var hann í fram- göngu og fasi bæði penn og hlé- drægur. Það verður sjónarsviptir að hon- um. Ég hélt með Spasskí! aIllugi Jökulsson skrifar um skáksnilling Það var eitt- hvað huggu- legt og skemmtilegt við að rekast reglulega á Bobby Fisc- her í miðbæ Reykjavíkur nú síðustu misserin – ým- ist í bókabúð Máls og menningar, eða þá í forn- bókabúðinni hans Braga frænda míns þar sem hann var fastagestur Serblad 24 stunda Heilsa 29.januar 2008 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is frá kr. 99.990 – með allt innifalið Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða frábært tilboð í ferðir til Karíbahafsperlunnar Jamaica 14. og 24. febrúar. Í boði er gisting á góðu fjögurra stjörnu hóteli við Ocho Rios, Shaw Park Beach Hotel & Spa á ótrúlegum kjörum. Ævintýraeyjan Jamaica lætur engan ósnortinn. Eyjan er án efa ein fegursta eyja Karíbahafsins og hún býður stórkostlega náttúrufegurð og veðurfar. Á Jamaica ríkir einnig einstakt andrúmsloft og menningin á sér vart hliðstæðu í Karíbahafinu. Sandstrendurnar eru drifhvítar og með þeim fegurstu í heimi. Eyjan skartar náttúruperlum eins og Dunn’s fossunum, Blue Mountains og YS fossunum sem eru einstakar og láta engan ósnortinn. Reggie tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob Marleys fægasta sonar Jamaica. Þeir sem hafa komið til Jamaica eru flestir sammála um að eyjan hafi einstakt aðdráttarafl. Gríptu þetta frábæra tækifæri til að heimsækja þessa einstöku Karíbahafseyju á hreint ótrúlegum kjörum. 14. og 24. febrúar Ótrúlegt sértilboð **** hótel m/allt innifalið 10 eða 11 nætur - allt innifalið Verð kr. 99.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með allt innifalið í 10 nætur, 14. febrúar. Ferð 24. febrúar í 11 nætur kr. 7.000 aukalega. Ath. mjög takmörkuð gisting í boði á þessu sérstaka tilboðsverði. Mjög takmörkuð gisting í boði á þessu verði! Jamaica

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.